Jón Arnór og Haukur Helgi mætast á morgun Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. nóvember 2011 07:00 Jón Arnór og Jakob Sigurðarson.
Það verður söguleg stund fyrir íslenskan körfubolta í hádeginu á morgun þegar Assignia Manresa tekur á móti CAI Zaragoza í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta. Með þessum liðum spila nefnilega íslenskir landsliðsmenn og verður þetta í fyrsta sinn sem Íslendingar mætast í bestu körfuboltadeild í Evrópu. Jón Arnór Stefánsson er á sínu fjórða tímabili í spænsku deildinni, en hann leikur nú með CAI Zaragoza eftir að hafa verið hjá CB Granada síðustu tvö tímabil þar á undan. Jón Arnór hefur verið eini íslenski leikmaðurinn í bestu deildum Evrópu undanfarin ár en hann var líka sér á báti þegar hann lék á Ítalíu og í Rússlandi. Haukur Helgi Pálsson hætti í Maryland-háskólanum eftir síðasta vetur og gekk til liðs við Assignia Manresa. Hann byrjaði tímabilið í byrjunarliðinu en hefur fengið minna að spreyta sig að undanförnu. Það er vonandi að Haukur Helgi, sem er aðeins 19 ára gamall, fái að reyna sig á móti Jóni Arnóri og félögum á morgun. Leikurinn fer fram á heimavelli Assignia Manresa og má búast við góðri mætingu enda eru þetta nágrannalið á Norður-Spáni. CAI Zaragoza getur náð Assignia Manresa að stigum með sigri. Það yrði þá þriðji sigur Zaragoza-liðsins í röð, en það hefur verið að braggast eftir erfiða byrjun. Það er hægt að segja öfuga sögu af Manresa, sem byrjaði mjög vel en hefur verið að gefa eftir. Leikurinn hefst klukkan 11.15 að íslenskum tíma.
Mest lesið Verður Aron þjálfari FH? Handbolti Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Enski boltinn Ef ég væri að spila gegn Liverpool myndi ég trúa á sigur Íslenski boltinn Guðni eftir sigur FH: „Gáfumst aldrei upp“ Íslenski boltinn Öflug sveit á Norðurlandamótið Sport Uppgjörið: Breiðablik - FH 2-3 | Veisla í Kópavogi Íslenski boltinn Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Enski boltinn Enn er Rosenborg í veseni Fótbolti Haukar ósigraðir á toppnum Íslenski boltinn Danskur skúrkur og Wolfsburg fallið í fyrsta sinn í 30 ár Fótbolti Fleiri fréttir Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina „Er týpan sem er til í að taka nýjar áskoranir“ Gáfu miðann sinn og misstu af Grindavík verða Íslandsmeistari Mætti brjálaður til leiks eftir að hafa misst af verðlaunum Sjáðu öll tilþrif Pargo: „Aldrei séð annað eins á fjölum á Íslandi“ „Stjörnufólk er pirrað“ Ól upp dólg í nýkrýndum Íslandsmeisturum Myndaveisla: Sigurhátíð Grindvíkinga í Síkinu Uppgjörið og viðtöl: Tindastóll - Grindavík 101 - 109 | Grindavík er Íslandsmeistari Þakkaði guði eftir leik sem gæti verið hans síðasti Tárvot sigurstund bræðranna frá Grindavík Baldur tekur við Álftnesingum Áfall fyrir Grindavík: Kane og Óli meiddir og ekki með í kvöld Vilja ekki sjá annað lið fagna titlinum í Síkinu, aftur „Veit ekki hvort það er hægt en vonandi reyna þau“ Tókst takmarkið eftir stórskemmtilega seríu Magnaðar meistaramyndir úr Njarðvík Sjá meira