Fleiri
Umfjöllun: Stelpurnar stóðu í Svíum 29.5.2011 17:22 Birgir Leifur endaði í 25. til 31. sæti í Belgíu Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, varð í 25. til 31. sæti á Telenet Trophy mótinu í Belgíu sem lauk í dag eftir að hafa leikið lokahringinn á pari vallarins. Birgir Leifur var þarna að keppa á sínu öðru móti á evrópsku Áskorendamótaröðinni en hann lék hringina fjóra á 288 höggum eða á pari vallarins. 29.5.2011 16:36 Füchse vantar eitt stig í viðbót til að komast í Meistaradeildina Lærisveinar Dags Sigurðssonar í Füchse Berlin unnu öruggan níu marka sigur á HSG Wetzlar, 26-17, í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. Füchse-liðinu vantar því aðeins eitt stig til viðbótar til þess að tryggja sér þriðja sætið í deildinni og þar með öruggt sæti í Meistaradeildinni á næstu leiktíð. 29.5.2011 16:22 Leikur Reading og Swansea sá verðmætasti Samkvæmt útreikningum Deloitte er mikilvægasti leikur ársins úrslitaleikurinn um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni ef litið er á fjárhagslegan ávinning, en talið er að sá leikur sé 90 milljóna punda virði. 29.5.2011 16:00 Tryggvi skoraði og lagði upp mark með grímuna - ÍBV á toppinn Tryggvi Guðmundsson var aðalmaðurinn á bak við 2-0 heimasigur ÍBV á nýliðum Víkinga í fyrsta leik sjöttu umferðar Pepsi-deildar karla sem fór fram í Eyjum í dag. Tryggvi er kinnbeinsbrotinn og lék með sérhannaða grímu í leiknum. 29.5.2011 15:15 Tryggvi í byrjunarliðinu hjá ÍBV Tryggvi Guðmundsson er í byrjunarliði ÍBV á móti Víkingi í Pepsi-deildinni en leikurinn hefst klukkan 16.00 á Hásteinsvellinum í Vestmannaeyjum. 29.5.2011 15:10 Sara Björk og Margrét Lára skoruðu báðar Sara Björk Gunnarsdóttir og Margrét Lára Viðarsdóttir voru báðar á skotskónum í sænska kvennaboltanum í dag en úrslit leikja þeirra voru þó gerólík. Sara Björk og félagar í LdB FC Malmö unnu 5-0 stórsigur á Dalsjöfor en Margrét Lára og félagar í Kristianstad töpuðu 1-3 fyrir Umeå. 29.5.2011 15:04 Ólafur markahæstur en Rhein-Neckar Löwen tapaði bronsleiknum Ólafur Stefánsson skoraði 7 mörk fyrir Rhein-Neckar Löwen þegar liðið tapaði 31-33 fyrir þýsku meisturunum í HSV Hamburg í leiknum um þriðja sætið í Meistaradeild Evrópu í handbolta. 29.5.2011 14:59 Rakel: Ríkir bjartsýni í hópnum Rakel Dögg Bragadóttir landsliðsfyrirliði segir að íslenska kvennalandsliðið sé staðráðið í að komast á fleiri stórmót á næstu árum. 29.5.2011 14:30 Vettel vann fimmta kappaksturinn á tímabilinu Þjóðverjinn Sebastian Vettel hjá Red Bull tryggði sér sigur í Mónakó-kappaksturinn í formúlu eitt í dag eftir hraða keppni við Spánverjann Fernando Alonso hjá Ferrari og Englendinginn Jenson Button hjá McLaren. 29.5.2011 14:20 Sandra hélt hreinu í öruggum sigri Jitex Sandra Sigurðardóttir og félagar hennar í Jitex unnu 3-0 sigur á Piteå í sænsku kvennadeildinni í fótbolta í dag en liðin voru jöfn að stigum fyrir leikinn. 29.5.2011 14:06 Real Madrid að krækja í Coentrao Real Madrid ætlar sér greinilega stóra hluti á leikmannamarkaðnum í sumar og forráðamenn félagsins eru þessa daganna í leit að nýjum leikmönnum fyrir næstkomandi tímabil. 29.5.2011 14:00 Ágúst: Eigum raunhæfa möguleika á HM-sæti Ágúst Þór Jóhannsson tók nýverið við þjálfun kvennalandsliðsins í handbolta ásamt Einari Jónssyni. Þeir fá nú það verkefni að koma Íslandi á næsta stórmót sem er HM í Brasilíu. 29.5.2011 13:15 Löw: Klose er enn framherji númer eitt hjá þýska landsliðinu Joachim Löw, þjálfari þýska landsliðsins í fótbolta, segir að Miroslav Klose sé ennþá framherji númer eitt hjá landsliðinu þrátt fyrir að Klose hafi misst sæti sitt til Mario Gomez hjá Bayern Munchen. 29.5.2011 12:30 NBA: Fær LeBron að dekka Dirk í úrslitunum? Það styttist nú óðum í að lokaúrslit NBA-deildarinnar hefjist þar sem mætast Miami Heat og Dallas Mavericks. Margir líta á þetta sem einvígi á milli hinna frábæru leikmanna LeBron James og Dirk Nowitzki sem eiga báðir eftir að kynnast því á farsælum ferli að verða NBA-meistari. 29.5.2011 12:00 Nær Rhein-Neckar Löwen þriðja sætinu? - í beinni á Sporttv Úrslitin ráðast í Meistaradeildinni í handbolta í dag og verður hægt að sjá bæði úrslitaleikinn og leikinn um þriðja sætið í beinni á Sporttv.is. Það verður alspænskur úrslitaleikur en áður munu Guðmundur Guðmundsson og lærisveinar hans í Rhein-Neckar Löwen reyna að tryggja sér þriðja sætið. 29.5.2011 11:30 Sjá næstu 50 fréttir
Alonso ætlaði að sækja til sigurs Fernando Alonso varð annar í Formúlu 1 mótinu í Mónakó í gær á Ferrari, eftir harðan slag við Sebastian Vettel á Red Bull og Jenson Button á McLaren á lokasprettinum. Hann hugðist sækja til sigurs, en óhapp í lok mótsins varð til þess að það gekk ekki upp. Alonso er núna fimmti í stigamóti ökumanna, en Vettel efstur eftir fimm sigra í sex mótum. 30.5.2011 08:36
KR og Fram á sitthvorum enda töflunnar - myndir KR-ingar og Framarar eru á sitthvorum enda töflunnar í Pepsi-deildar karla eftir 2-1 sigur KR á Fram á Laugardalsvellinum í gær. Grétar Sigfinnur Sigurðarson skoraði sigurmarkið fjórtán mínútum fyrir leikslok. 30.5.2011 08:00
Valur fimm stigum á undan Íslandsmeisturunum - myndir Valsmenn héldu hreinu í fjórða sinn á tímabilinu í gærkvöldi þegar þeir unnu 2-0 sigur á Íslandsmeisturum Breiðabliks á Vodafone-vellinum. Valsmenn hafa nú fimm stigum meira en Íslandsmeistarar Breiðabliks sem hafa fengið á sig 12 mörk í fyrstu sex leikjunum. 30.5.2011 07:00
Dwyane Wade fékk frí frá æfingu Dwyane Wade, leikmaður Miami Heat, fékk hvíld frá æfingu í gær til að jafna sig á smávægilegum meiðslum á öxl. 29.5.2011 23:30
Þorvaldur: Menn eru svekktir og sárir Þorvaldur Örlygsson þjálfari Framara var niðurlútur í leikslok eftir 1-2 tap gegn KR-ingum í kvöld. Framara sitja einir á botninum með eitt stig og ljóst er að Þorvaldur þarf að blása lífi í lið Framara ef ekki á illa að fara. 29.5.2011 22:58
Rúnar: Frábær sigur í erfiðum leik Rúnar Kristinsson þjálfari KR-inga var sigurreifur í leikslok og hrósaði lærisveinum sínum fyrir sterkan karakter í baráttusigri gegn Fram. 29.5.2011 22:49
Falur þjálfar kvennalið Keflavíkur - Pálína áfram í Keflavík Falur Harðarson hefur skrifað undir tveggja ára samning um að þjálfa kvennalið Keflavíkur en hann var aðstoðarmaður Jóns Halldórs Eðvaldssonar í vetur og hjálpaði liðinu að vinna þrefalt. Þetta kemur fram á heimasíðu Keflavíkur en þar kemur einnig fram að Pálína Gunnlaugsdóttir hafi skrifað undir nýjan tveggja ára samning við félagið. 29.5.2011 22:43
Matthías: Hef fundið mig vel í allt sumar „Frábær úrslit fyrir okkur,“ sagði Matthías Guðmundsson, leikmaður Vals, eftir sigurinn í kvöld, en hann gerði fyrsta mark leiksins í 2-0 sigri Valsmanna gegn Blikum. 29.5.2011 22:36
Grétar Sigfinnur: Alltaf gaman að skora Grétar Sigfinnur Sigurðarson varnarjaxl KR-inga átti afbragðsleik í vörn sinna manna í kvöld og kórónaði hann góðan leik sinn með því að skora sigurmarkið ellefu mínútum fyrir leikslok. 29.5.2011 22:33
Hörður: Hemmi Gunn getur verið stoltur af okkur „Þetta var mjög góður sigur hjá okkur í kvöld og við spiluðum flottan fótbolta allan leikinn,“ sagði Hörður Sveinsson, leikmaður Vals, eftir sigurinn í kvöld, en Hörður skoraði eitt mark fyrir Val. 29.5.2011 22:30
Ólafur: Þurfum að klemma saman rasskinnarnar „Það sem réði kannski úrslitum í kvöld var einbeitingarskortur hjá mínum drengjum,“ sagði Ólafur Kristjánsson, þjálfari Breiðabliks, eftir leikinn í kvöld. 29.5.2011 22:22
Kristján: Frábær frammistaða hjá öllum „Eftir sex umferðir erum við sex stigum á undan Íslandsmeisturunum, það er vel gert að okkar hálfu,“ sagði Kristján Guðmundsson, þjálfari Vals, eftir leikinn. 29.5.2011 22:15
Opnunardagur í kulda fyrir norðan Veiði er hafin í Laxá í Mývatnssveit og Laxárdal. Mjög kalt hefur verið nyrðra og urriðann þarf að sækja niður við botn að þessu sinni. 29.5.2011 22:09
Eto’o skoraði tvö þegar Inter varð ítalskur bikarmeistari Samuel Eto’o skoraði tvö mörk fyrir Inter í kvöld þegar liðið vann 3-1 sigur á Palermo í bikarúrslitaleiknum á Ítalíu. Eto’o skoraði bæði mörkin sín eftir stoðsendingar frá Hollendingnum Wesley Sneijder. 29.5.2011 21:48
Vötnin að lifna við á suður og vesturlandi Núna er besti tíminn fyrir vatnaveiðina að fara af stað, í flestum vötnum. Fæðuframboðið er ekki orðið það mikið að bleikjan sé orðin vandlát á það sem hún étur þannig að sé hún almennt á staðnum ættu menn að setja í hana fljótlega ef réttar flugur eru undir og veitt sé á réttu dýpi. En stundum er líka bara gott að vera heppinn. Veiðivísir fékk símtal frá veiðimanni sem var að koma úr Þingvallavatni, en þar var hann í sinni fyrstu ferð eftir að hafa æft sig í vor úti á túni. Hann fór nýlega á kastnámskeið og fjárfesti í græjum sem á að nota mikið í sumar. Til að gera langa sögu stutta lagði hann bílnum, eins og hann sagði sjálfur, "við einhvern veg í þjóðgarðinum", labbaði að vatninu og fór að kasta. 29.5.2011 21:30
Koma fyrstu laxarnir á land 5. júní? Það fer ekkert á milli mála að það er mættir einhverjir laxar í árnar. Það hefur sést til laxa nokkrum sinnum í Laxá í Kjós og þá má það heita pottþétt mál að Norðurá, Þverá/Kjarrá, Blanda og jafnvel fleiri ár séu þegar komnar með einhverja laxa í sína hylji 29.5.2011 21:17
Keppinautar gangrýna akstursmáta Hamilton í keppninni í Mónakó Felipe Massa gagnrýndi Lewis Hamilton fyrir akstursmáta hans í keppninni í Mónakó í dag og dómarar refsuðu Hamilton fyrir tvö brot í brautinni. Hamilton reyndi að þröngva sér framúr Massa í kröppustu beygju brautarinnar, en hann ók síðan Pastor Maldonado út úr mótinu undir lokin. 29.5.2011 21:16
Keisarinn: Blatter stendur sig vel Franz Beckenbauer eða keisarinn, fyrrum knattspyrnuhetja í Þýskalandi, sagði við þýska fjölmiðla að Sepp Blatter, forseti FIFA, stæði sig virkilega vel í starfi. 29.5.2011 20:15
Andri: Algjört tempóleysi, hugmyndaleysi og kraftleysi Andri Marteinsson, þjálfari Víkinga, var að vonum ósáttur eftir 0-2 tap á móti Eyjamönnum á Hásteinsvellinum í dag. Eyjamenn stjórnuðu leiknum frá fyrstu mínútu og Víkingarnir náðu aldrei að komast inn í leikinn. 29.5.2011 20:06
Heimir: Við vorum að skapa okkur fullt af dauðafærum Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV, var ánægður með leik sinna manna eftir sannfærandi 2-0 sigur á Víkingum í Eyjum í dag. Eyjamenn voru mikið meira með boltann og Heimir talaði um að þetta hafi verið nánast fullkominn leikur hjá sínum mönnum. 29.5.2011 20:00
Axel sigraði með yfirburðum í karlaflokki á fyrsta stigamótinu Axel Bóasson úr Keili sigraði með yfirburðum á fyrsta stigamóti ársins á Eimskipsmótaröð GSÍ í golfi. Axel lék hringina tvo á Garðavelli á Akranesi á 7 höggum undir pari samtals og var hann sjö höggum betri en Arnar Snær Hákonarson úr GR sem lék á pari samtals. Stefán Már Stefánsson úr GR, sem var efstur eftir fyrri keppnisdaginn á -5 endaði á 2 höggum yfir pari og endað hann í þriðja sæti. 29.5.2011 19:59
Vettel: Tókum áhættu mörgum sinnum og það gerir sigurinn enn sætari Sebastian Vettel á Red Bull vann sitt fimmta mót í Formúlu 1 á árinu, þegar hann kom fyrstur í endmark í Mónakó kappakstrinum í dag. Fernando Alonso á Ferrari og Jenson Button á McLaren sóttu stíft að honum í lokin en höfðu ekki erindi sem erfiði. 29.5.2011 19:41
Rakel Dögg: Margt jákvætt í okkar leik „Það var margt jákvætt í okkar leik en ég hefði viljað sigra,“ sagði Rakel Dögg Bragadóttir eftir leikinn í dag. 29.5.2011 18:20
Guðrún Brá sigraði á fyrsta stigamótinu á Eimskipsmótaröðinni Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Keili sigraði í kvennaflokki á fyrsta stigamóti ársins á Eimskipsmótaröðinni í golfi. Guðrún, sem er 17 ára gömul, lék hringina tvo á samtals fjórum höggum yfir pari, 75 höggum í dag og 73 höggum í gær. 29.5.2011 18:16
Umfjöllun: Framherjar Vals sáu um Blikana Valsmenn unnu frábæran sigur, 2-0, gegn Íslandsmeisturum Breiðabliks í sjöttu umferð Pepsi-deild karla í knattspyrnu en leikurinn fór fram að Hlíðarenda. Matthías Guðmundsson og Hörður Sveinsson skoruðu sitt markið hvor fyrir Valsmenn í leiknum, en þeir hafa verið nokkuð kaldir fyrir framan markið í sumar, spurning hvort framherjar Valsmanna séu komnir í gang. 29.5.2011 18:15
Ágúst: Hundfúlt að tapa þessum leik „Ég er bara hundfúll að hafa ekki náð að vinna þennan leik,“ sagði Ágúst Jóhannsson, þjálfari Íslands, eftir tapið í dag. 29.5.2011 18:11
Umfjöllun: Grétar skallaði KR aftur upp á toppinn Grétar Sigfinnur Sigurðarson tryggði KR 2-1 sigur á Fram á Laugardalsvellinum í 6. umferð Pepsi-deildar karla í kvöld en KR komst aftur á toppinn með þessum sigri. Eyjamenn voru búnir að vera í rúma þrjá klukkutíma eftir sigur á Víkingi út í Eyjum. 29.5.2011 18:00
Pálmi Rafn með tvö mörk og Veigar Páll með eitt í sigri Stabæk Pálmi Rafn Pálmarson skoraði tvö mörk og Veigar Páll Gunnarsson var með eitt þegar Stabæk vann 4-2 útisigur á Start í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Stabæk fór upp í annað sæti deildarinnar með þessum sigri. 29.5.2011 17:58
Barcelona vann líka Meistaradeildina í handbolta Handboltalið Barcelona fylgdi í dag í fótspor knattspyrnuliðs félagsins frá því í gær með því að tryggja sér sigur í Meistaradeild Evrópu. Barcelona vann öruggan þriggja marka sigur á Ciudad Real, 27-24, í uppgjör tveggja spænskra liða í úrslitaleiknum í Köln. 29.5.2011 17:39
Birgir Leifur endaði í 25. til 31. sæti í Belgíu Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, varð í 25. til 31. sæti á Telenet Trophy mótinu í Belgíu sem lauk í dag eftir að hafa leikið lokahringinn á pari vallarins. Birgir Leifur var þarna að keppa á sínu öðru móti á evrópsku Áskorendamótaröðinni en hann lék hringina fjóra á 288 höggum eða á pari vallarins. 29.5.2011 16:36
Füchse vantar eitt stig í viðbót til að komast í Meistaradeildina Lærisveinar Dags Sigurðssonar í Füchse Berlin unnu öruggan níu marka sigur á HSG Wetzlar, 26-17, í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. Füchse-liðinu vantar því aðeins eitt stig til viðbótar til þess að tryggja sér þriðja sætið í deildinni og þar með öruggt sæti í Meistaradeildinni á næstu leiktíð. 29.5.2011 16:22
Leikur Reading og Swansea sá verðmætasti Samkvæmt útreikningum Deloitte er mikilvægasti leikur ársins úrslitaleikurinn um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni ef litið er á fjárhagslegan ávinning, en talið er að sá leikur sé 90 milljóna punda virði. 29.5.2011 16:00
Tryggvi skoraði og lagði upp mark með grímuna - ÍBV á toppinn Tryggvi Guðmundsson var aðalmaðurinn á bak við 2-0 heimasigur ÍBV á nýliðum Víkinga í fyrsta leik sjöttu umferðar Pepsi-deildar karla sem fór fram í Eyjum í dag. Tryggvi er kinnbeinsbrotinn og lék með sérhannaða grímu í leiknum. 29.5.2011 15:15
Tryggvi í byrjunarliðinu hjá ÍBV Tryggvi Guðmundsson er í byrjunarliði ÍBV á móti Víkingi í Pepsi-deildinni en leikurinn hefst klukkan 16.00 á Hásteinsvellinum í Vestmannaeyjum. 29.5.2011 15:10
Sara Björk og Margrét Lára skoruðu báðar Sara Björk Gunnarsdóttir og Margrét Lára Viðarsdóttir voru báðar á skotskónum í sænska kvennaboltanum í dag en úrslit leikja þeirra voru þó gerólík. Sara Björk og félagar í LdB FC Malmö unnu 5-0 stórsigur á Dalsjöfor en Margrét Lára og félagar í Kristianstad töpuðu 1-3 fyrir Umeå. 29.5.2011 15:04
Ólafur markahæstur en Rhein-Neckar Löwen tapaði bronsleiknum Ólafur Stefánsson skoraði 7 mörk fyrir Rhein-Neckar Löwen þegar liðið tapaði 31-33 fyrir þýsku meisturunum í HSV Hamburg í leiknum um þriðja sætið í Meistaradeild Evrópu í handbolta. 29.5.2011 14:59
Rakel: Ríkir bjartsýni í hópnum Rakel Dögg Bragadóttir landsliðsfyrirliði segir að íslenska kvennalandsliðið sé staðráðið í að komast á fleiri stórmót á næstu árum. 29.5.2011 14:30
Vettel vann fimmta kappaksturinn á tímabilinu Þjóðverjinn Sebastian Vettel hjá Red Bull tryggði sér sigur í Mónakó-kappaksturinn í formúlu eitt í dag eftir hraða keppni við Spánverjann Fernando Alonso hjá Ferrari og Englendinginn Jenson Button hjá McLaren. 29.5.2011 14:20
Sandra hélt hreinu í öruggum sigri Jitex Sandra Sigurðardóttir og félagar hennar í Jitex unnu 3-0 sigur á Piteå í sænsku kvennadeildinni í fótbolta í dag en liðin voru jöfn að stigum fyrir leikinn. 29.5.2011 14:06
Real Madrid að krækja í Coentrao Real Madrid ætlar sér greinilega stóra hluti á leikmannamarkaðnum í sumar og forráðamenn félagsins eru þessa daganna í leit að nýjum leikmönnum fyrir næstkomandi tímabil. 29.5.2011 14:00
Ágúst: Eigum raunhæfa möguleika á HM-sæti Ágúst Þór Jóhannsson tók nýverið við þjálfun kvennalandsliðsins í handbolta ásamt Einari Jónssyni. Þeir fá nú það verkefni að koma Íslandi á næsta stórmót sem er HM í Brasilíu. 29.5.2011 13:15
Löw: Klose er enn framherji númer eitt hjá þýska landsliðinu Joachim Löw, þjálfari þýska landsliðsins í fótbolta, segir að Miroslav Klose sé ennþá framherji númer eitt hjá landsliðinu þrátt fyrir að Klose hafi misst sæti sitt til Mario Gomez hjá Bayern Munchen. 29.5.2011 12:30
NBA: Fær LeBron að dekka Dirk í úrslitunum? Það styttist nú óðum í að lokaúrslit NBA-deildarinnar hefjist þar sem mætast Miami Heat og Dallas Mavericks. Margir líta á þetta sem einvígi á milli hinna frábæru leikmanna LeBron James og Dirk Nowitzki sem eiga báðir eftir að kynnast því á farsælum ferli að verða NBA-meistari. 29.5.2011 12:00
Nær Rhein-Neckar Löwen þriðja sætinu? - í beinni á Sporttv Úrslitin ráðast í Meistaradeildinni í handbolta í dag og verður hægt að sjá bæði úrslitaleikinn og leikinn um þriðja sætið í beinni á Sporttv.is. Það verður alspænskur úrslitaleikur en áður munu Guðmundur Guðmundsson og lærisveinar hans í Rhein-Neckar Löwen reyna að tryggja sér þriðja sætið. 29.5.2011 11:30