Íslenski boltinn

Tryggvi í byrjunarliðinu hjá ÍBV

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Tryggvi Guðmundsson með grímuna.
Tryggvi Guðmundsson með grímuna. Mynd/Heimasíða ÍBV
Tryggvi Guðmundsson er í byrjunarliði ÍBV á móti Víkingi í Pepsi-deildinni en leikurinn hefst klukkan 16.00 á Hásteinsvellinum í Vestmannaeyjum.

Tryggvi spilar leikinn með veglega grímu eftir að hafa þríbrotnað í andlitinu í síðasta leik liðsins í Keflavík. Hann lét sérsníða grímuna fyrir sig.

Tryggvi er að elta markamet Inga Björns Albertssonar og vantar átta mörk til að ná jafna metið. Hann missti af bikarleik gegn Kjalnesingum í síðustu viku en mun ekki missa af neinum leik í Pepsi-deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×