Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Weekley sigraði á Heritage mótinu Bandaríski kylfingurinn Boo Weekley vann í dag sinn fyrsta sigur á PGA mótaröðinni í golfi þegar hann sigraði á Heritage mótinu í Suður-Karólínu. Weekley lauk lokahringnum í dag á þremur höggum undir pari og samtals á 13 höggum undir pari - höggi á undan Suður-Afríkumanninum Ernie Els sem átti fínan lokasprett á mótinu. 16.4.2007 18:26
Raul vill ekki fara frá Real Madrid Gulldrengurinn Raul hjá Real Madrid segist alls ekki vilja fara frá Real Madrid og ætlar að efna þau þrjú ár sem hann á eftir af samningi sínum. Nokkuð hefur verið ritað um Raul í spænskum miðlum undanfarið og því jafnvel haldið fram að hann væri á förum. 16.4.2007 18:06
Terry dáist að Cristiano Ronaldo John Terry, fyrirliði Chelsea, segist ekki í nokkrum vafa um að Cristiano Ronaldo hjá Manchester United verði kosinn leikmaður ársins af leikmannasamtökunum á Englandi síðar í þessum mánuði. Terry segist dást að hæfileikum Portúgalans á vellinum og tippar á að hann hafi betur gegn Didier Drogba í valinu. 16.4.2007 17:20
Líkir Rooney og Ronaldo við Michael Jordan Jay DeMerit, leikmaður enska liðsins Watford sem ólst upp í Bandaríkjunum, segir að tilþrif þeirra Wayne Rooney og Cristiano Ronaldo hjá Manchester United minni sig á það þegar hann fylgdist með Michael Jordan fara á kostum í NBA deildinni á árum áður. DeMerit segir tvíeykið hjá United gjörsamlega óstöðvandi, en er ekki frá því að Watford sé betra lið en Roma á Ítalíu. 16.4.2007 16:34
Blatter: Ekki einblína á krikket Sepp Blatter, forseti Alþjóða Knattspyrnusambandsins, er nú í þriggja daga heimsókn á Indlandi þar sem hann er að kynna knattspyrnuna fyrir krikket-sinnuðum heimamönnum. Hann skorar á þessa næst fjölmennustu þjóð heims að beina sjónum sínum í auknum mæli að knattspyrnu. 16.4.2007 16:00
Leaney í forystu á Heritage mótinu Nú stendur yfir keppni á lokahringnum á Verizon Heritage PGA-mótinu á Harbour Town vellinum í Suður-Karólínu. Keppni var frestað í gær vegna hvassviðris. Ástralinn Stephen Leaney er með forystu þegar þetta er skrifað, á samtals 15 höggum undir pari, en þeir sem voru í forystu fyrir lokadaginn eru rétt hálfnaðir með hringinn og því staðan óviss. 16.4.2007 15:48
Schuster vonast eftir kraftaverki gegn Barcelona Barcelona og Getafe spila fyrri leik sinn í udanúrslitum spænska konungsbikarsins á miðvikudagskvöldið og verður leikurinn sýndur beint á Sýn klukkan 18:25. Bernd Schuster, þjálfari smáliðs Getafe, segist vonast eftir kraftaverki á Nou Camp. 16.4.2007 15:26
Kahn sigursælasti leikmaður þýsku úrvalsdeildarinnar Markvörðurinn Oliver Kahn náði tveimur glæsilegum áföngum þegar hann stóð í marki Bayern Munchen í 2-1 sigri liðsins á Leverkusen um helgina. Kahn lék þá sinn 400. leik fyrir meistarana og vann sinn 292. sigur í úrvalsdeildinni á ferlinum. Enginn leikmaður hefur oftar verið í sigurliði í sögu deildarinnar. 16.4.2007 15:19
Mánudagsslúðrið á Englandi Bresku blöðin láta ekki sitt eftir liggja í slúðrinu um helgina frekar en aðra daga. Daily Mirror segir að Stuart Pearce stjóri Man City hafi flogið til Spánar til að fylgjast með varnarmanninum Juanito. Þá segir blaðið að Lawrie Sanchez muni reyna að kaupa Steven Davis frá Aston Villa ef honum verður boðið fullt starf hjá Fulham. 16.4.2007 14:38
Rio Ferdinand í ágætum málum Í morgun kom í ljós að meiðsli varnarmannsins Rio Ferdinand hjá Manchester United eru ekki eins alvarleg og óttast var í fyrstu. Hann meiddist á nára í leiknum við Watford á laugardaginn og óttast var að hann yrði frá keppni út leiktíðina. Hann stefnir á að spila á ný næsta laugardag gegn Middlesbrough, en óvíst er hvort hann nær leiknum við Sheffield United annað kvöld. 16.4.2007 14:26
Abramovich gaf Mourinho knús Breskir fjölmiðlar veittu því mikla athygli í dag að Roman Abramovich eigandi og Jose Mourinho knattspyrnustjóri Chelsea, féllust í faðma eftir að liðið tryggði sér sæti í úrslitaleik enska bikarsins í gær. Því hefur verið haldið fram að samband þeirra félaga væri orðið ansi súrt, en Abramovich hefur látið sig vanta inn í búningsklefa hjá liðinu í vetur eins og undanfarin ár. 16.4.2007 14:19
Duff úr leik hjá Newcastle Írski landsliðsmaðurinn Damien Duff getur ekki leikið meira með liði Newcastle á leiktíðinni eftir að hann varð fyrir ökklameiðslum í tapinu gegn Portsmouth í ensku úrvalsdeildinni um helgina. Duff er 28 ára gamall og kom til félagsins frá Chelsea fyrir fimm milljónir punda síðasta sumar. 16.4.2007 14:14
Leikmannasamtökin tilnefna leikmenn ársins Nú er búið að tilnefna þá knattspyrnumenn sem koma til greina í valinu á knattspyrnumanni ársins hjá leikmannasamtökunum í ensku úrvalsdeildinni, en valið samanstendur af atkvæðum knattspyrnumannanna sjálfra. Cristiano Ronaldo og Didier Drogba þykja báðir líklegir til að hampa titlinum að þessu sinni. 16.4.2007 14:07
Stjarnan í deildarbikarinn Handbolti Stjarnan úr Garðabæ tryggði sér í gær fjórða sæti DHL-deildar karla þegar liðið lagði Akureyri, 35-31, í hreinum úrslitaleik um síðasta sætið sem tryggir sæti í deildarbikarnum að lokinni deildarkeppninni. 16.4.2007 13:56
Njarðvík leiðir enn Njarðvíkingar hafa enn yfir gegn KR 59-53 þegar þriðja leikhluta er lokið í fjórða leik liðanna í úrslitarimmunni í Iceland Express deildinni. Igor Beljanski er kominn með 21 stig í liði Njarðvíkur en Pálmi Sigurgeirsson og Jeremiah Sola 13 hvor hjá KR. Það lið sem hefur verið undir eftir þrjá leikhluta hefur farið með sigur af hólmi í fyrstu þremur leikjunum og samkvæmt þeirri hefð ættu KR-ingar að vinna sigur í kvöld. 16.4.2007 21:20
Njarðvík leiðir eftir fyrsta leikhluta Njarðvíkingar mæta mjög grimmir til leiks í fjórða leiknum gegn KR í lokaúrslitum Iceland Express deildarinnar í vesturbænum. Njarðvík leiðir 24-15 og hafa bæði lið sýnt frábær tilþrif í byrjun leiks. 16.4.2007 20:17
Níundi besti árangur sögunnar hjá Dallas Dallas Mavericks tryggði sér í nótt 9. besta árangur sem náðst hefur í sögu deildarkeppninnar í NBA deildinni þegar liðið vann góðan sigur á grönnum sínum í San Antonio 91-85. Dallas hefur þegar unnið 66 leiki á tímabilinu þegar tveir leikir eru eftir og jafnaði í nótt árangur gullaldarliðs Milwaukee Bucks frá árinu 1971. 15.4.2007 23:55
Keppni aflýst á Heritage mótinu Lokahringurinn á Heritage mótinu í golfi verður spilaður á morgun mánudag eftir að keppni var aflýst í kvöld vegna veðurs. Vindhraði á mótsvæðinu var mikill í kvöld og varð starfsmaður fyrir trjágrein sem brotnaði í látunum. 15.4.2007 23:39
Spánn: Valencia gerði Barcelona greiða Valencia lagði Sevilla 2-0 í kvöldleiknum í spænska boltanum með tveimur mörkum frá spænska landsliðsmanninum David Villa. Sigur Valencia þýðir að Barcelona er enn með fjögurra stiga forskot á toppnum. Valencia skaust með sigrinum í fjórða sæti deildarinnar, aðeins tveimur stigum á eftir Sevilla. 15.4.2007 23:05
Ítalía: Kaflaskiptur leikur hjá Inter og Palermo Fátt getur komið í veg fyrir að Inter Milan hampi meistaratitlinum á Ítalíu í ár þrátt fyrir að liðið næði aðeins jafntefli gegn Palermo á heimavelli sínum í dag 2-2. Roma styrkti stöðu sína í öðru sætinu með því að bursta Sampdoria 4-0. 15.4.2007 23:01
Ferguson: Ég þurfti að sannfæra Ronaldo Sir Alex Ferguson greindi frá því í samtali við breska blaðið News of the World um helgina að hann hafi flogið sérstaklega til Portúgal eftir HM í sumar til að sannfæra vængmanninn Cristiano Ronaldo um að það væri í lagi að snúa aftur til Englands. Ronaldo var ekki vinsæll hjá stuðningsmönnum enska landsliðsins eftir að Portúgalar slógu þá úr keppni á HM. 15.4.2007 21:45
Heilladísirnar á bandi Barcelona Barcelona náði í kvöld fjögurra stiga forskoti á toppi spænsku deildarinnar í knattspyrnu eftir 1-0 sigur á Mallorca á heimavelli. Markið var sjálfsmark á síðustu mínútu leiksins eftir að skot varamannsins Javier Saviola hrökk af stönginni í varnarmann og í netið. Eiður Smári Guðjohnsen sat allan tímann á bekknum hjá Barcelona. Sevilla getur minnkað forskot Barca niður í eitt stig með sigri á Valencia í stórleik kvöldsins sem er sýndur beint á Sýn. 15.4.2007 19:18
Hughes: Vorum fimm mínútum frá úrslitaleiknum Mark Hughes, stjóri Blackburn, var mjög sáttur við frammistöðu sinna manna í dag þó þeir hafi beðið í lægri hlut gegn Chelsea í undanúrslitaleik enska bikarsins. Hann sagði sína menn hafa verið hársbreidd frá því að ná í úrslitaleikinn. 15.4.2007 19:09
Mourinho: Úrslitaleikurinn verður ótrúlegur Jose Mourinho, stjóri Chelsea, hrósaði sínum mönnum í hástert í dag þegar liðið tryggði sér sæti í úrslitaleik enska bikarsins með 2-1 sigri á Blackburn í framlengdum leik. Hann segir úrslitaleikinn milli Chelsea og Manchester United verða stórkostlegan. 15.4.2007 19:03
Allt í járnum í Þýskalandi Werder Bremen skaust aftur í annað sætið í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag eftir góðan 2-0 sigur á Dortmund. Meistarar Bayern Munchen halda í veika von um að verja titilinn eftir 2-1 sigur á Leverkusen. 15.4.2007 17:57
Fylkir og ÍR fallin - Ólafur varði 29 skot í marki Vals Gríðarleg spenna var í dag í næst síðustu umferð úrvalsdeildar karla í handbolta. Toppliðin Valur og HK unnu leiki sína því ráðast úrslit í deildinni ekki fyrr en í lokaumferðinni, en Fylkir og ÍR töpuðu leikjum sínum í dag og eru því fallin úr deildinni. 15.4.2007 17:42
Draumaúrslitaleikur á Wembley Chelsea tryggði sér í dag sæti í úrslitaleiknum í enska bikarnum með 2-1 sigri á Blackburn í undanúrslitum á Old Trafford. Liðið mætir því Manchester United í draumaúrslitaleik á Wembley. Frank Lampard kom Chelsea yfir í upphafi leiks en Jason Roberts jafnaði í þeim síðari. Í framlengingu var það svo Michael Ballack sem skoraði sigurmark Lundúnaliðsins í fínum knattspyrnuleik. 15.4.2007 17:36
Dýrt tap hjá Charlton Charlton missti í dag af gullnu tækifæri til að komast af fallsvæðinu í ensku úrvalsdeildinni þegar liðið lá 2-1 fyrir Everton á útivelli. Ekkert mark kom í leiknum fyrr en eftir 80 mínútur þegar Joleon Lescott kom heimamönnum yfir. Darren Bent náði að jafna fyrir Charlton á 89. mínútu, en liðið missti af dýrmætu stigi í fallslagnum þegar Skotinn James McFadden skoraði sigurmark þeirrar bláklæddu í uppbótartíma. 15.4.2007 16:07
NBA: Beðið eftir Oden Gríðarleg eftirvænting ríkir nú í NBA deildinni um hvort miðherjinn öflugi Greg Oden hjá Ohio State háskólanum gefur kost á sér í nýliðavalinu í sumar. Oden er talinn einhver efnilegasti miðherji sem spilað hefur í háskólaboltanum á síðustu árum. 15.4.2007 15:49
Kiel bikarmeistari í Þýskalandi Kiel varð í dag þýskur bikarmeistari í handbolta eftir sveiflukenndan úrslitaleik gegn Kronau Östringen. Leikurinn var sýndur beint á Sýn. Östringen sem sló Hamburg óvænt út í undanúrslitunum í gær var mun sterkari aðilinn í fyrri hálfleik þegar liðið náði mest 6 marka forystu. Staðan í hálfleik var 19-15 fyrir Kronau Östringen sem vermir áttunda sætið í þýsku úrvalsdeildinni. Oleg Velyky var markahæstur Östringenmanna með 10 mörk. 15.4.2007 15:25
Kelly fór holu í höggi á Heritage mótinu Bandaríkjamaðurinn Jerry Kelly fór holu í höggi í gær og hefur forystu fyrir lokahringinn á Heritage golfmótinu á PGA mótaröðinni. Suður Afríkumaðurinn Ernie Els hafði þriggja högga forystu fyrir þriðja hring en sú staða var ekki lengi að breytast eftir að kylfingar hófu leik í gær. 15.4.2007 15:20
Ágúst að hætta með Hauka? Enn er óvíst hvort Ágúst Björgvinsson þjálfari Íslandsmeistara Hauka í Iceland Exress deild kvenna í körfubolta verði áfram við stjórnvölinn hjá Hafnarfjarðarliðinu. Haukar urðu í gær Íslandsmeistarar annað árið í röð þegar liðið vann seiglusigur á Keflavík en Haukastúlkur unnu einvígið 3-1. Haukar hirtu þrjá stærstu titlana, Íslandsmeistaratitilinn, deildarmeistaratitilinn og bikarmeistaratitilinn. 15.4.2007 15:18
Jafnt hjá Wigan og Tottenham í markaleik Wigan og Tottenham skildu jöfn 3-3 í fjörugum fyrri leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Wigan er í fallbaráttu en Tottenham í baráttu um sæti í Evrópukeppni. Wigan komst þrisvar yfir í leiknum en Lundúnaliðið náði alltaf að svara. 15.4.2007 14:56
Massa sigraði í Barein - Hamilton enn í verðlaunasæti Brasilíski ökuþórinn Felipe Massa hjá Ferrari kom fyrstur í mark í Barein kappakstrinum í Formúlu 1 sem fram fór í dag. Breska ungstirnið Lewis Hamilton á McLaren varð annar og þar með fyrsti nýliðinn sem kemst á verðlaunapall í fyrstu þremur keppnum sínum. Kimi Raikkönen á Ferrari varð þriðji og heimsmeistarinn Fernando Alonso á McLaren fimmti. 15.4.2007 14:41
Memphis stöðvaði Denver Neðsta lið NBA deildarinnar Memphis Grizzlies gerði sér lítið fyrir og stöðvaði átta leikja sigurhrinu Denver Nuggets í nóptt með 133-118 sigri í fjörugum leik. Chucky Atkins og Tarence Kinsey skoruðu 28 stig hvor fyrir Memphis en Carmelo Anthony var atkvæðamestur hjá Denver með 28 stig. Alls voru sjö leikir á dagskrá í nótt. 15.4.2007 14:31
Framlengt hjá Blackburn og Chelsea Undanúrslitaleikur Blackburn og Chelsea í enska deildarbikarnum hefur verið framlengdur eftir að staðan var 1-1 að loknum venjulegum leiktíma á Old Trafford í Manchester. Frank Lampard kom Chelsea yfir eftir um stundarfjórðung, en Jason Roberts jafnaði fyrir baráttuglaða Blackburn menn á 63. mínútu. 15.4.2007 16:57
Orlando skrefi nær úrslitakeppninni Einum leik er þegar lokið í NBA deildinni í körfubolta í kvöld. Orlando Magic vann auðveldan sigur á Philadelphia á útivelli 104-87 og þarf nú aðeins einn sigur í viðbót til að tryggja sér áttunda og síðasta sætið inn í úrslitakeppnina. Dwight Howard setti persónulegt met með 35 stigum og hirti auk þess 11 fráköst fyrir Orlando. Leikur Houston og New Orleans verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni klukkan hálf eitt í nótt. 14.4.2007 23:27
Carrick borubrattur í treyju númer 16 Miðjumaðurinn Michael Carrick hjá Manchester United skortir greinilega ekki sjálfstraustið þessa dagana og segist njóta þeirrar áskorunar að spila í treyju númer 16 hjá liðinu. Goðsögnin Roy Keane lék með númer 16 þar á undan og Carrick er hvergi smeykur þó fólk ætli honum að taka við keflinu af Íranum grjótarða. 14.4.2007 22:15
Schalke í vænlegri stöðu Schalke tók stórt skref í átt að fyrsta meistaratitli sínum í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag með sannfærandi 3-0 útisigri á Mainz. Kevin Kuranyi, Gerald Asamoah og Lincoln skoruðu mörk Schalke, sem hefur nú fjögurra stiga forskot á Bremen á toppnum. Bremen á leik til góða gegn Dortmund á morgun. 14.4.2007 21:09
Súrt tap hjá Real Madrid Real Madrid missti af tækifæri til að komast á topp spænsku deildarinnar í knattspyrnu í kvöld þegar liðið lá 2-1 á útivelli fyrir Racing Santander. Real hafði ekki tapað í 9 leikjum í röð, en eftir að Raul kom Madrid yfir í upphafi leiks, skoraði varnarmaðurinn Ezequiel Garay tvö mörk úr vítaspyrnum í síðari hálfleiknum. 14.4.2007 20:39
FCK deildarmeistari í Danmörku Íslendingalið FCK í Danmörku tryggði sér í dag deildarmeistaratitilinn í handbolta þegar liðið lagði meistara Kolding í næst síðustu umferð deildarinnar 35-31. Arnór Atlason skoraði tvö mörk fyrir FCK og Gísli Kristjánsson eitt. FCK mætir Viborg í úrslitakeppni fjögurra efstu liðanna um meistaratitilinn, en hin undanúrslitarimman verður milli Kolding og GOG. 14.4.2007 20:34
Öruggur sigur hjá Íslandsmeisturunum Nýkrýndir Íslandsmeistarar Stjörnunnar unnu yfirburðasigur á Fram í dag 29-17 í DHL-deild kvenna í handbolta. Kristín Guðmundsdóttir skoraði 8 mörk fyrir Stjörnuna Sólveig Kjærnested 5 og Rakel Bragadóttir 4. Ásta Birna Gunnarsdóttir skoraði 4 mörk fyrir Fram. Valur burstaði Akureyri 33-23 og Grótta vann Hauka 27-21. 14.4.2007 20:19
Coppell hrósaði Brynjari Steve Coppell, stjóri Reading, var ekki sáttur við frammistöðu sinna manna í 1-0 sigrinum á Fulham í ensku úrvalsdeildinni í dag. Hann sagði liðið hafa slakað of mikið á eftir að það náði forystu í leiknum en hrósaði Brynjari Birni Gunnarssyni fyrir vinnusemi sína á miðjunni. 14.4.2007 19:21
Manchester United í úrslit Manchester United komst í dag í úrslit ensku bikarkeppninnar með öruggum 4-1 sigri á Watford á Villa Park í dag. Wayne Rooney kom United yfir á 7. mínútu en Hameur Bouazza jafnaði fyrir Watford á 26. mínútu. Cristiano Ronaldo kom United yfir aðeins tveimur mínútum síðar og staðan 2-1 í hálfleik. 14.4.2007 18:28
Haukastúlkur Íslandsmeistarar Haukastúlkur tryggðu sér í dag Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta annað árið í röð eftir 88-77 sigur á Keflavík í fjórða leik liðanna í Keflavík. Haukar unnu einvígið því 3-1. Leikurinn í dag var sveiflukenndur en Haukaliðið tryggði sér sigurinn í lokin með því að hirða hvert sóknarfrákastið á fætur öðru á mikilvægum augnablikum. Helena Sverrisdóttir hjá Haukum var kjörin besti leikmaður einvígisins og kemur það engum á óvart. 14.4.2007 17:45