Formúla 1

Massa sigraði í Barein - Hamilton enn í verðlaunasæti

Felipe Massa fagnar sigrinum í Barein ásamt félaga sínum Kimi Raikkönen
Felipe Massa fagnar sigrinum í Barein ásamt félaga sínum Kimi Raikkönen AFP

Brasilíski ökuþórinn Felipe Massa hjá Ferrari kom fyrstur í mark í Barein kappakstrinum í Formúlu 1 sem fram fór í dag. Breska ungstirnið Lewis Hamilton á McLaren varð annar og þar með fyrsti nýliðinn sem kemst á verðlaunapall í fyrstu þremur keppnum sínum. Kimi Raikkönen á Ferrari varð þriðji og heimsmeistarinn Fernando Alonso á McLaren fimmti.

Massa var á ráspól eftir tímatökurnar í gær og hann náði mest 10 sekúndna forskoti um miðbik keppninnar. Hamilton náði þó að vinna muninn upp og varð fyrsti nýliðinn til að komast á pall í fyrstu þremur keppnum sínum.

Þeir Fernando Alonso, Kimi Raikkönen og Lewis Hamilton eru nú efstir og jafnir í keppni ökuþóra og hafa hver um sig hlotið 22 stig og Massa er kominn með 17 stig. McLaren er í efsta sæti bílasmiða eftir þrjár keppnir með 44 stig, Ferrari hefur 39 stig og BMW hefur 18 stig.

Úrslitin í Barein:

1 F Massa (Brasilíu) Ferrari 1:33.27.515

2 L Hamilton (Bretlandi) McLaren -2.360 sekúndum á eftir

3 K Raikkonen (Finnlandi) Ferrari -10.839

4 N Heidfeld (Þýskalandi) BMW Sauber -13.831

5 F Alonso (Spáni) McLaren -14.426

6 R Kubica (Póllandi) BMW Sauber -45.529

 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×