Fleiri fréttir

Yfir 50 stig þrjá leiki í röð

Kobe Bryant skoraði 60 stig í gærkvöldi þegar Los Angeles Lakers sigraði Memphis 121-119. Kobe komst þar með í metabækurnar því þetta var þriðji leikurinn í röð sem hann skorar yfir 50 stig. Hann er aðeins fjórði körfuboltakappinn sem skorar meira en 50 stig þrjá leiki í röð. Hinir þrír eru Wilt Chamberlain, Elgin Baylor og Michael Jordan.

Knattspyrnusambandið rannsakar slátrunarhótanir

Knattspyrnusamband Evrópu ætlar að taka til meðferðar ummæli belgíska landsliðsmarkvarðarins Stijn Stijnen í dag, en hann sagði landa sína ætla að slátra Portúgalanum Cristiano Ronaldo þegar liðin mætast í landsleik á laugardaginn.

Spenna í Keflavík

Úrslitakeppni Iceland Express deildar kvenna hófst með látum í kvöld. Íslandsmeistarar Hauka voru fjarri sínu besta í fyrsta leiknum gegn ÍS en höfðu engu að síður sigur 76-61. Keflavíkurstúlkur lögðu granna sína frá Grindavík á heimavelli 87-84 í hörkuleik.

Jón með 8 stig í tapleik

Jón Arnór Stefánsson og félagar í Lottomatica Roma töpuðu í kvöld á útivelli fyrir Maccabi Tel Aviv í Meistaradeildinni í körfubolta 79-72. Jón skoraði 8 stig og gaf 2 stoðsendingar á 19 mínútum. Hann var öflugur á lokasprettinum þegar ítalska liðið tók góða rispu, en heimamenn náðu að halda sínu og sigruðu. Þetta var fimmta tap Roma í röð í keppninni eftir sigur í fyrsta leik.

Man Utd og Lille sektuð

Manchester United og Lille voru í dag sektuð fyrir uppákomurnar sem urðu á leik liðanna í Meistaradeild Evrópu í síðasta mánuði. Stuðningsmenn beggja liða höguðu sér illa og þá var öryggiskröfum ekki framfylgt.

Grétar Rafn gjafmildur á afmæli sínu

Landsliðsmaðurinn í knattspyrnu, Grétar Rafn Steinsson, afþakkaði allar gjafir þegar hann hélt upp á afmæli sitt á árinu. Hann ákvað þess í stað að styrkja gott málefni. Hans Steinar Bjarnason greindi frá þessu í íþróttafréttum á Stöð 2 í kvöld og fréttina má sjá á VefTV síðar í kvöld.

Houston - Detroit í beinni í nótt

Viðureign Houston Rockets og Detroit Pistons verður sýnd beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Fjölvarpinu í kvöld klukkan hálf eitt. Þetta er kjörin upphitun fyrir leik San Antonio og Detroit sem sýndur verður beint á Sýn á miðnætti annað kvöld.

Yoon bætti markametið í Þýskalandi

Kóreska stórskyttan Kyung-Shin Yoon hjá Hamburg varð í gær markahæsti leikmaður þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta frá upphafi þegar hann skoraði 8 mörk í sigri Hamburg á Wilhelmshavener. Yoon hefur skorað 2662 mörk á ferlinum og toppaði Þjóðverjann Jochen Fraatz. Hann er markahæstur í deildinni enn á ný í ár og er án efa mesti markaskorari í sögu úrvalsdeildarinnar.

Doll blæs í herlúðra hjá Dortmund

Thomas Doll, nýráðinn þjálfari þýska úrvalsdeildarliðsins Dortmund, vill að leikmenn liðsins hætti að væla í fjölmiðlum og einbeiti sér að því að bjarga liðinu frá falli. Dortmund hefur átt mjög erfitt uppdráttar í vetur og er Doll þriðji þjálfari liðsins síðan um jól.

Pearce vill meiri aura

Stuart Pearce stjóri Manchester City hefur kallað á stjórn félagsins að dæla meiri peningum í liðið svo það geti verið samkeppnishæft í ensku úrvalsdeildinni. Gengi liðsins hefur valdið vonbrigðum í vetur og er það í fallbaráttu.

Seedorf vill Nistelrooy í landsliðið

Miðjumaðurinn Carence Seedorf hjá AC Milan vill ólmur fá landa sinn Ruud Van Nistelrooy inn í hollenska landsliðið. Framherjinn hefur átt í deilum við landsliðsþjálfarann Marco Van Basten og hefur ekki spilað með liðinu síðan á HM í sumar.

Redknapp sektaður

Harry Redknapp stjóri Portsmouth var í dag sektaður og aðvaraður af aganefnd enska knattspyrnusambandsins vegna hegðunar sinnar eftir leik liðsins við Manchester City í síðasta mánuði.

Pizarro hótar að hætta hjá Bayern

Perúmaðurinn Claudio Pizarro hjá Bayern Munchen segist ætla að fara frá félaginu ef honum verði ekki boðinn nýr og betri samningur fljótlega. Samningur hans rennur út í sumar og sagt er að hann vilji fá allt að 50.000 pund í vikulaun.

Birgir á tveimur yfir pari

Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson lauk fyrsta hringnum á Meideira mótinu í golfi á 74 höggum í dag eða tveimur höggum yfir pari. Mótið er liður í Evrópumótaröðinni. Hann er sem stendur í kring um 70. sætið af 144 keppendum, en 70 efstu komast í gegn um niðurskurð á morgun.

Filip Jicha til Kiel

Tékkneska stórskyttan Filip Jicha hefur gengið frá þriggja ára samningi við stórlið Kiel í Þýskalandi og gengur í raðir þess í sumar. Jicha er samherji þeirra Loga Geirssonar og Ásgeirs Arnar Hallgrímssonar hjá Lemgo. Hann var einn besti leikmaður Tékka á síðasta heimsmeistaramóti og verður 25 ára gamall í vor.

Ólafur tilnefndur sem leikmaður ársins

Ólafur Stefánsson er einn sjö handboltamanna sem Alþjóða Handknattleikssambandið hefur tilnefnt sem leikmenn ársins. Allir geta gefið Ólafi sitt atkvæði með því að fara inn á heimasíðu sambandsins eða með því að smella á hlekkinn hér í fréttinni.

Dapur leiktíð hjá Milwaukee

Lið Milwaukee Bucks hefur valdið miklum vonbrigðum í NBA deildinni í vetur. Meiðsli hafa þar sett stórt strik í reikninginn og í gær varð ljóst að tveir af lykilmönnum liðsins munu ekki spila meira með liðinu það sem eftir er leiktíðar.

Rivaldo á fallegasta mark í sögu Barcelona

Mark Brasilíumannsins Rivaldo gegn Valencia í lokaleik spænsku deildarinnar árið 2001 hefur verið kosið fallegasta og um leið mikilvægasta mark í sögu Barcelona á vefsíðu El Mundo Deportivo. Smelltu á hlekk í fréttinni til að sjá myndband af markinu.

Schuster ekki í viðræðum við Real Madrid

Þýski þjálfarinn Bernd Schuster hjá Getafe segir ekkert til í skrifum AS sem í dag fullyrti að hann væri í viðræðum við Real Madrid um að taka við af Fabio Capello. Schuster hefur áður lýst því yfir að hann vilji einn daginn taka við stóra liðinu í Madrid, en þvertekur fyrir að hafa rætt við forráðamenn félagsins nú.

Getafe mætir Barcelona í bikarnum

Í dag var dregið í undanúrslit Konungsbikarsins á Spáni. Smálið Getafe frá Madrid mætir þar Spánarmeisturum Barcelona, en liðið er komið í undanúrslit keppninnar í fyrsta sinn í sögunni. Barcelona hefur unnið keppnina 24 sinnum. Hin undanúrslitaviðureignin verður einvígi Sevilla og Deportivo. Leikirnir fara fram dagana 18. apríl og 9. maí en úrslitaleikurinn er ekki fyrr en 23. júní.

Woodgate spilar ekki með Englendingum

Miðvörðurinn Jonathan Woodgate hjá Middlesbrough er nýjasta nafnið á sjúkralista enska landsliðsins. Hann dró sig í dag út úr hópnum sem mætir Ísrael og Andorra vegna hnémeiðsla. Mikil meiðsli eru í röðum enska landsliðsins, sérstaklega í vörninni.

Beiðni Sevilla vísað frá

Fyrri leikur Sevilla og Tottenham í átta liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða fer fram fimmta apríl eins og til stóð. Spænska liðið vildi láta færa leikinn til vegna hátíðarhalda í borginni á skírdag, en Knattspyrnusambandið neitaði beiðninni.

Belgar ætla að slátra Cristiano Ronaldo

Stijn Stijnen, markvörður Brugge og belgíska landsliðsins, segir sína menn muni slátra Cristiano Ronaldo þegar Belgar mæta Portúgölum í landsleik í Lissabon á laugardaginn. George Boateng hjá Middlesbrough lét svipuð orð falla um Ronaldo í viðtali í gær, þar sem hann sagði að stutt væri í að einhver myndi meiða hann alvarlega ef hann hætti ekki að reyna að niðurlægja andstæðinga sína.

Of margir útlendingar í norska boltanum

Norðmenn hafa áhyggjur af fjölgun erlendra knattspyrnumanna í landinu.  Á síðustu leiktíð voru 4 af hverjum 10 leikmönnum erlendir.  Alls voru 136 leikmenn í norsku úrvalsdeildinni útlendingar. Ungir norskir knattspyrnumenn fá færri mínútur í deildinni en áður og fyrir vikið fara færri Norðmenn í atvinnumennsku til útlanda. Núna eru 14 íslenskir knattspyrnumenn á mála hjá liðum í norsku úrvalsdeildinni.

Rijkaard í stað Mourinho strax í vor?

Enska blaðið Independent segir að Hollendingurinn Frank Rijkaard sé efstur á óskalista Romans Abramovic sem næsti knattspyrnustjóri Chelsea. Það er ekki bara í tilhugalífi Romans sem gustar því sambúðin við Jose Mourniho þykir stormasöm. Jason Burt blaðamaður Independent reiknar með því að Abramovic reki Mourinho í sumar.

Birgir Leifur á pari eftir tíu holur

Birgir Leifur Hafþórsson er á pari eftir 10 holur á opna Madeiramótinu í golfi.  Birgir Leifur fékk fugl á 3. holu en skolla á þeirri áttundu.  Hann hefur parað hinar holurnar.  Englendingurinn Peter Baker hefur forystu, á 5 undir pari eftir 13 holur en annar er Daninn Mats Vibe-Hastrup, höggi á eftir.

Betra seint en aldrei

Spánverjar og Danir mætast í undankeppni Evrópumóts landsliða á laugardag. Í nóvember 1993 unnu Spánverjar 1-0 í Sevilla og tryggðu sér þar með keppnisrétt á HM í Bandaríkjunum árið eftir. Danir sem þá voru Evrópumeistarar sátu eftir með sárt ennið því Írar náðu 2. sætinu. Núna 14 árum síðar viðurkennir spænski harðjaxlinn Fernando Hierro að Spánverjar hafi ekki haft farið eftir settum reglum.

Dýrkeyptur sigur Gummersbach

Íslendingaliðið Gummersbach burstaði Melsungen 38-26 í þýska handboltanum í gærkvöldi. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 12 mörk og Róbert Gunnarsson 8. En sigurinn var Gummersbach dýrkeyptur. Franski landsliðsmaðurinn Daniel Narcisse fingurbrotnaði og spilar ekki næstu 6 vikurnar.

19 ára í brasilíska landsliðið

Mikill áhugi er í Svíþjóð á leikjum brasilíska landsliðsins við Chile í Gautaborg á laugardag og Gana á þriðjudag. 19 ára strákur sem er varamarkvörður hjá Gremio var í morgun valinn í landsliðshóp Brasilíumanna.

Markvörðurinn klúðraði vítaspyrnu

Brasilíumeistaranir í Sao Paulo urðu loks að lúta í gras í fyrsta sinn frá í september. Sao Paulo tapaði fyrir mexikóska liðinu Necaxa í Suður Ameríkukeppninni í gærkvöldi. Sao Paulo skoraði fyrsta markið og markvörðurinn Rogerio Ceni gat komið liðinu í 2-0 en honum mistókst að skora úr vítaspyrnu, Alexandro Alvarez varði frá honum. Mexikóarnir skoruðu tvívegis í seinni hálfleik og unnu 2-1. Þetta var fyrsti ósigur Sao Paulo í 29 leikjum frá því í september.

Roy Keane samur við sig

Fyrrverandi fyrirliði írska landsliðsins, Roy Kenae, gagnrýnir harðlega marga af landsliðsmönnum Íra og segir þá eingöngu gefa kost á sér í liðið til þess að baða sig í sviðsljósinu.  Roy Keane, sem núna er knattspyrnustjóri Sunderland, gagnrýndi landsliðsþjálfarann Steve Staunton harðlega í síðustu viku fyrir að velja ekki Sunderlandmennina, David Connolly og Liam Miller í landsliðið.  Írar mæta Walesverjum í undankeppni Evrópumótsins á laugardag.  Leikurinn verður sýndur beint á Sýn.

Benítez fer hvergi

Bandaríkjamennirnir Gillett og Hicks sem keyptu Liverpool á dögunum sáu ástæðu til þess að gefa út yfirlýsingu um knattspyrnustjórann Rafa Benitez. Benitez er eftirsóttur og forystumenn Real Madríd sagðir ólmir vilja fá hann til þess að stýra Madrídarskútunni.

Birgir Leifur byrjaður á Madeira

Birgir Leifur Hafþórsson er á einu höggi undir pari eftir 4 holur á opna Madeira mótinu í golfi sem hófst á Santo da Serra vellinum í morgun. Birgir Leifur paraði tvær fyrstu holurnar en fékk síðan fugl á fjórðu holu. Hann er á einu undir pari eftir 5 holur.

Enn vinnur Dallas

Dallas sigraði Cleveland 98-90 í Cleveland í gærkvöldi í NBA körfuboltanum. Dirk Nowitzki var stigahæstur hjá Dallas með 23 stig en hann hitti illa í leiknum. Jason Terry skoraði 21 stig í 56. sigurleik Dallas. LeBron James var langstigahæstur hjá Cleveland með 31 stig.

Sir Alex vill Eið Smára

Enska blaðið The Sun greinir frá því í morgun að Sir Alex Ferguson knattspyrnustjóri Manchester United vilji fá Eið Smára Guðjohnsen í raðir Manchester liðsins. Samkvæmt The Sun er Eiði ætlað að taka við hlutverki sænska framherjans Henriks Larson.

Fimm mörk í 2 æfingaleikjum

Hannes Þ. Sigurðsson byrjar vel hjá norska liðinu Viking en hann hefur skorað fimm mörk í síðustu tveimur æfingaleikjum liðsins. Hannes skoraði þrennu í 7-1 sigri á Start og bætti síðan við tveimur mörkum á fyrstu 22 mínútunum í 3-3 jafntefli á móti Bryne í gær. Hannes lagði einnig upp mark og var nálægt því að innsigla þrennuna annan leikinn í röð en mark sem hann skoraði var dæmt af.

Myndband af tilþrifum vikunnar hjá Jóni Arnóri

Jón Arnór Stefánsson þótti eiga tilþrif vikunnar í ítölsku úrvalsdeildinni í körfubolta þegar hann tryggði liði sínu Roma sigur á toppliði Siena í vikunni 84-83. Frá þessu var greint á heimasíðu KKÍ. Smelltu á hlekkinn hér fyrir neðan til að sjá tilþrifin.

Bandaríkjamenn heppnir með mótherja

Landslið Bandaríkjanna í körfubolta sleppur við að leika með liði Ólympíumeistara Argentínu í riðli í Ameríkukeppninni sem fram fer í sumar, en dregið var í riðla í dag. Tvö af liðunum tíu sem taka þátt tryggja sér sæti á Ólympíuleikunum í Peking á næsta ári.

Keane á enn í deilum við Íra

Roy Keane, stjóri Sunderland og fyrrum fyrirliði írska landsliðsins, er ekki hættur að deila á írska knattspyrnusambandið þó hann sé búinn að leggja skóna á hilluna. Keane átti í frægum deilum við landsliðsþjálfarann þegar hann spilaði með liðinu á sínum tíma og nú hefur hann gagnrýnt hreppapólitík hjá knattspyrnusambandinu í heimalandi sínu.

Toronto - Orlando í beinni í kvöld

Leikur Toronto Raptors og Orlando Magic í NBA deildinni verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Fjölvarpinu klukkan 23:00 í kvöld. Hér er á ferðinni athyglisverður slagur í Austurdeildinni þar sem tveir af bestu stóru mönnunum í deildinni kljást - þeir Chris Bosh og Dwight Howard.

Berbatov fer ekki frá Tottenham

Umboðsmaður búlgarska framherjans Dimitar Berbatov hjá Tottenham segir engar líkur á því að markaskorarinn fari frá félaginu. Berbatov er búinn að skora 19 mörk á leiktíðinni og hefur slegið í gegn síðan hann kom frá Leverkusen í sumar.

Valur biðst afsökunar á ummælum sínum

Valur Ingimundarson, þjálfari Skallagríms, hefur beðist afsökunar á ummælum sínum í viðtali við Arnar Björnsson á Sýn í gærkvöld. Þar lýsti Valur yfir óánægju sinni með störf dómara og lét í það skína að hallaði á lið utan af landi í dómgæslu. Félag körfuknattleiksdómara hefur leitað sér aðstoðar lögfræðinga og íhugar að kæra Val.

Drogba og Cole sleppa

Didier Drogba og Ashley Cole hjá Chelsea verða ekki ákærðir fyrir afskipti sín af manninum sem réðist að félaga þeirra Frank Lampard eftir leik Tottenham og Chelsea í enska bikarnum á mánudaginn. Aganefnd fór yfir myndband af atvikinu og fann ekkert athugavert við framkomu leikmannanna, en Drogba var um tíma sakaður um að hafa stigið á manninn þegar öryggisverðir höfðu yfirbugað hann.

Sevilla vill ekki spila á skírdag

Forráðamenn spænska knattspyrnuliðsins Sevilla hafa farið þess á leit við Knattspyrnusamband Evrópu að fyrri leikur liðsins við Tottenham í 8-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða verði færður. Leikurinn er á dagskrá 5. apríl, en það er skírdagur.

Blótsyrðaflaumur Ferguson skemmdi viðtal BBC

Breska blaðið The Sun greinir frá því í dag að Sir Alex Ferguson hafi ráðist harkalega að starfsmanni Sky eftir leik Manchester United og Middlesbrough á mánudaginn. Skotinn öskraði og blótaði svo hátt að breska sjónvarpið þurfti að klippa til viðtal sitt við knattspyrnustjóra Boro eftir leikinn.

Sjá næstu 50 fréttir