Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vonast til að landa Zambrotta og Thuram Evrópumeistarar Barcelona halda því fram í dag að samningaviðræður gangi vel við forráðamenn Juventus um að kaupa varnarmennina Lilian Thuram og Gianluca Zambrotta. Því er haldið fram að kaupin gætu farið fram í upphafi næstu viku og að Zambrotta muni kosta 13,5 milljónir punda og Thuram 3,5 milljónir punda. 20.7.2006 16:15
Real Madrid kaupir Cannavaro og Emerson Spænska stórliðið Real Madrid festi í kvöld kaup á þeim Fabio Cannavaro og Emerson frá ítalska liðinu Juventus. Spænskir fjölmiðlar halda því fram að kaupverðið sé tæpar 14 milljónir punda og munu leikmennirnir báðir skrifa undir tveggja ára samninga með möguleika á þriðja árinu. Hjá Real hitta þeir fyrir fyrrum stjóra sinn hjá Juventus, Fabio Capello. 19.7.2006 21:11
Renault hefur áhuga á Raikkönen Forráðamenn Renault-liðsins í formúlu 1 segja það ekkert leyndarmál að þeir hafi mikinn áhuga á að fá finnska ökuþórinn Kimi Raikkönen til liðs við sig á næsta keppnistímabili þegar heimsmeistarinn Fernando Alonso gengur í raðir McLaren. 19.7.2006 18:03
Tilboði Real Madrid í Nistelrooy hafnað Sir Alex Ferguson staðfesti í kvöld að Manchester United hefði neitað kauptilboði spænska stórliðsins Real Madrid í framherjann Ruud Van Nistelrooy. Fyrr í kvöld gengu þær fréttir fjöllum hærra að framherjinn gengi í raðir Real Madrid á morgun, en nú er útlit fyrir að ekkert verði af því. 18.7.2006 21:57
Áfrýjun hefst 22. júlí Juventus, Lazio, Fiorentina og AC Milan munu hefja áfrýjunarmál sitt fyrir dómstóli frá og með laugardeginum 22. júlí að sögn breska sjónvarpsins. Milan mun áfrýja ákvörðun dóms um stigafrádrátt sinn í A-deild á næsta ári, en hin liðin þrjú áfrýja stigafrádrætti og því að vera felld niður um deild. Ólíklegt er talið að Milan hafi nægan tíma til að áfrýja banninu á þáttöku í meistaradeildinni og verði því að sætta sig við að taka ekki þátt á næstu leiktíð. 18.7.2006 17:06
Engin útsala fyrirhuguð Forráðamenn ítalska stórliðsins AC Milan hafa gefið það út að engar af stórstjörnum félagsins verði settar á sölulista þó ljóst þyki að liðið eigi litla möguleika á að vinna meistaratitilinn á næstu leiktíð eftir að hafa fengið stigarefsinguna á dögunum. Liðið fær ekki heldur að taka þátt í meistaradeildinni, en það þýðir ekki að árar verði lagðar í bát í Mílanó. 18.7.2006 16:57
Magath framlengir samning sinn Þýskalandsmeistarar Bayern Munchen hafa framlengt samning þjálfarans Felix Magath um eitt ár og mun hann því stýra liðinu út árið 2008. Magath hefur náð frábærum árangri með liðið síðan hann tók við því árið 2004 og hefur stýrt því til sigurs í bæði deild og bikar bæði tímabilin sem hann hefur verið við stjórn. 18.7.2006 16:43
Engin tilboð komin í Torres Forseti spænska félagsins Atletico Madrid segir að sér hafi engin tilboð borist í framherjann sterka Fernando Torres, þrátt fyrir þrálátan orðróm um að félög á borð við Manchester United séu á höttunum eftir honum. Hinn 22 ára gamli Torres hefur verið talinn einn besti og efnilegasti framherji í Evrópu um árabil og er reglulega orðaður hvert stórliðið á fætur öðru. 18.7.2006 15:30
Við höfum ekki efni á leikmönnum Juventus Arsene Wenger gefur lítið út á þann orðróm að Arsenal sé á höttunum eftir einhverjum af stórstjörnum Juventus sem væntanlega munu yfirgefa ítalska félagið á næstu mánuðum, því hann segir að Arsenal hafi einfaldlega ekki efni á að borga þeim laun. 18.7.2006 14:58
AC Milan þykir líklegast til að hreppa Zambrotta Eins og búast mátti við í kjölfar ófara Juventus á síðustu dögum, hafa stórlið Evrópu nú rennt hýru auga til bestu leikmanna félagsins. Hinn fjölhæfi Gianluca Zambrotta er þar engin undantekning, en Sky-sjónvarpsstöðin heldur því fram að AC Milan sé líklegasta félagið til að landa honum. 18.7.2006 14:29
Juventus dæmt niður og svipt tveimur titlum Ítalska stórliðið Juventus hefur verið dæmt niður í B-deildina þar í landi og verður svipt meistaratitlunum tveimur sem liðið vann í ár og í fyrra. Þá hafa lið Lazio og Fiorentina einnig verið dæmd niður um deild. Fjórða liðið sem lá undir grun í málinu, AC Milan, heldur sæti sínu í A-deildinni en dregin verða 15 stig af liðinu í byrjun tímabils. 14.7.2006 19:01
Úrskurðar að vænta seinna í dag Nú styttist í að dómur falli í stóra spillingarmálinu sem riðið hefur yfir ítalska knattspyrnu á síðustu vikum og seinnipartinn í dag kemur í ljóst hvort stórliðin Juventus, AC Milan, Lazio og Fiorentina verða dæmd niður um deild í refsingarskyni. 14.7.2006 14:33
Roberto Donadoni tekur við af Lippi Ítalska knattspyrnusambandið gekk í dag frá ráðningu Roberto Donadoni í stöðu landsliðsþjálfara Ítala í stað Marcello Lippi sem sagði af sér á dögunum. Donadoni hefur ekki mikla reynslu af þjálfun, en var síðast með lið Livorno á Ítalíu og stýrði liðinu í sjötta sæti í deildinni. Hann er aðeins 43 ára gamall og stýrði áður Lecce og Genoa. Donadoni gerði garðinn frægan með liði AC Milan sem leikmaður og var í landsliðinu sem hlaut bronsið á HM árið 1990. 13.7.2006 18:14
Inter kaupir þrjá leikmenn Stórlið Inter Milan á Ítalíu hefur fest kaup á þremur nýjum leikmönnum. Sá þekktasti er líklega franski miðjumaðurinn Oliver Dacourt sem leikið hefur með Roma undanfarin ár og var fastamaður í franska landsliðinu í mörg ár. Þá hefur liðið fengið til sín Brasilíumennina Maicon Douglas Sisenando frá Mónakó og Maxwell Scherrer Cabelino Andrade frá Empoli, en þeir eru báðir 24 ára gamlir. 12.7.2006 17:15
Mun ekki hafa áhrif á niðurstöðuna Þrátt fyrir að Ítalir hafi náð að sigra HM á glæstan hátt seinasta sunnudag þá mun það ekki hafa nein áhrif á ákvörðun Íþróttadómstólsins sem að fjallar um hneykslismálið sem að tröllriðið hefur Ítalskri knattspyrnu undanfarna tvo mánuði. 12.7.2006 14:04
„Fólk á að minnast Zidane sem töframanns“ David Trezeguet, leikmaður Franska landsliðsins segir að fólk eigi að minnast Zinedine Zidane sem leikmanni sem kom með töfra í fótbolann ekki fyrir að hafa verið sendur útaf í úrslitaleikinn á sunnudaginn á HM. 11.7.2006 17:09
Cannavaro á leið til Real Madrid? Yfirmaður knattspyrnumála hjá Real Madrid segir að það sé aðeins dagaspursmál hvenær félagið landi varnarjaxlinum og fyrirliða ítalska landsliðsins, Fabio Cannavaro. Nýráðinn þjálfari Real þekkir Cannavaro vel frá dögum sínum hjá Juventus og eru menn í herbúðum Real bjartsýnir á að landa hinum smáa en knáa 32 ára gamla miðverði fljótlega. 11.7.2006 16:40
Lehmann á að spila áfram Markvörðurinn snjalli Oliver Kahn segir að Jens Lehmann eigi að halda áfram að spila með Þýskalandsliðinu. Kahn lék sem kunnugt kveðjuleik sinn fyrir Þjóðverja á HM er liðið sigraði Portúgal 3-1 um bronsverðlaunin. 10.7.2006 19:12
Makelele hættur með landsliðinu Claude Makelele er hættur að leika með franska landsliðinu en hann tilkynnti þetta í dag. Fyrirfram var búist við að HM yrði hans síðasta mót og svo varð raunin. Makelele er 34 ára gamall og hefur leikið 50 landsleiki fyrir Frakka. 10.7.2006 19:00
Málaferlin á Ítalíu tefjast Málaferlin í hneykslismálinu á Ítalíu munu halda áfram á morgun (þriðjudag) og verður dómur væntanlega kveðinn upp þá. Kveða átti dóminn upp í dag (mánudag) en vegna lagaflækja og lagalegs málþófs þá var málinu frestað um einn dag. 10.7.2006 18:43
Lögfræðingur Juve segir að liðið eigi hrós skilið ekki réttarhöld Fyrrum yfirmenn Juventus eiga hrós skilið fyrir að hjálpa Ítölum að sigra HM frekar en að vera ákærðir fyrir spillingu segir lögmaður Juventus. 10.7.2006 18:29
Ítölsku liðin standa ekki saman í málaferlunum Þrjú af fjórum liðunum sem að eru ákærð fyrir spillingu í ítalska boltanum héldu því fram fyrir rétti á fimmtudag að fella ætti niður ákærur á hendur þeim og að Juventus ætti að sæta ábyrgð í málinu. 10.7.2006 18:23
FIFA segir myndband ekki hafa verið notað FIFA segja að endursýningar á myndbandi hafi ekki átt neinn þátt í því þegar Zidane var rekinn út af í úrslitaleik HM á sunnudag fyrir að skalla Marco Materazzi. 10.7.2006 18:10
2.3 mörk að meðaltali í leik Alls voru skoruð 147 mörk á HM í Þýskalandi sem lauk í gær. Þetta gerir 2.3 að meðaltali í leik. Á HM árið 2002 voru skoruð 161 mark eða 2.52 að meðaltali í leik. HM árið 1998 voru skoruð 171 mark sem gerir 2.67 að meðaltali í leik. Alls voru það 110 leikmenn sem skorðuð þessi 147 mörk. Miroslav Klose var markhæstur með 5 mörk. 10.7.2006 17:42
Heimsmeistararnir og heimsmet í vitleysu Berlín er þögnuð, eftir hávaðasama nótt, flugelda og öskur, er kominn nýr dagur, fyrsti dagur án HM. Ítalía tók dolluna, flott að horfa á Cannavario lyfta styttunni góðu og fögnuður Ítalanna fölskvalaus. 10.7.2006 17:35
Deschamps tekinn við Juventus Frakkinn Didier Deschamps hefur verið ráðinn næsti þjálfari ítalska stórliðsins Juventus. Deschamps varð heimsmeistari með franska landsliðinu árið 1998 og gerði garðinn frægan sem leikmaður Juventus á sínum tíma. Frekari frétta er að vænta af ráðningu Deschamps síðar í dag. 10.7.2006 16:17
Real og Bayern á höttunum eftir Nistelrooy Nú virðist sem Real Madrid ætli að veita Þýskalandsmeisturum Bayern Munchen samkeppni um hollenska framherjann Ruud Van Nistelrooy hjá Manchester United, en framtíð hans hjá enska félaginu virðist vera mjög óljós. 10.7.2006 15:49
Niðrandi ummæli um móður Zidane orsök reiðikastsins? Talið er að niðrandi ummæli um móður Zinedine Zidane, fyrirliða franska knattspyrnulandsliðsins, hafi orðið til þess að Zidane skallaði Materazzi leikmann Ítala í leik liðanna á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu í gær. 10.7.2006 13:44
Hagvöxtur jókst um 0.3% Þjóðverjar eru mjög ánægðir með hvernig HM hefur farið fram í sínu landi. Þó svo að lið þeirra hafi ekki náð að vinna mótið eru flestir á því að þessi keppni hafi verið gríðarleg lyftistöng fyrir efnahagslíf landsins. 9.7.2006 13:58
Miljarður mun horfa á úrslitaleikinn Búist er við því að miljarður manna muni fylgjast með úrslitaleiknum á HM sem fram fer í dag klukkan 18.00. Er þetta mesta áhorf sem um getur á einu sjónvarpsefni svo vitað sé. Það eru Frakkar og Ítalir sem mætast eins og flestum er kunnugt. 9.7.2006 13:53
Fjórir tímar í heimsmeistaratitil Tíminn er núna, Berlín iðar af ítölskum og frönskum fánum, fólki í öllum regnbogans litum. Hér á Olympíuleikvangingum er sögulegur leikur í uppsiglinu, tvö lið, 22 leikmenn, dómari, tveir línuverðir og verðlaunin er eilífðin sjálf, nafn sigurliðsins greypt í granít, tapliðið fær bara silfur. Og hver vinnur? 9.7.2006 13:40
Kahn hættur með landsliðinu Oliver Kahn, markvörður Þýskalandsliðins sem setið hefur nær alla HM-keppnina á bekknum er hættur með landsliðinu og var leikurinn um þriðja sætið hans síðasti leikur. Þessi frábæri markvörður átti góðan leik gegn Portúgölum. 8.7.2006 23:45
Schweinsteiger stal senunni í sigri Þjóðverja Gestgjafarnir Þjóðverjar kórónuðu frábært heimsmeistaramót með því að tryggja sér þriðja sætið í dag þegar þeir lögðu Portúgala að velli 3-1 í Stuttgart í dag. Bastian Schweinsteiger hlaut uppreisn æru þegar hann skoraði tvö af mörkum þýska liðsins og var maðurinn á bak við það þriðja. Nuno Gomez minnkaði muninn fyrir Portúgala skömmu fyrir leikslok, eftir sendingu frá Luis Figo sem var að spila sinn síðasta leik fyrir landsliðið. 8.7.2006 20:34
Bronsleikurinn í kvöld Leikið verður um bronsið á HM í kvöld. Eins og flestir vita eru það heimamenn, Þjóðverjar sem spila við Portúgali. Leikurinn er klukkan 19.00 og að sjálfsögðu sýndur á Sýn eftir leik er svo hinn magnaði 4-4-2 þáttur þeirra fóstbræðra, Heimis Karls og Þorsteins Joð. 8.7.2006 13:55
Domenech í banni á sunnudaginn? Portúgalir eru ævareiðir útí Raymond Domenech þjálfara franska landsliðsins, en hann á að hafa lent í miklu orðaskaki við Portúgalska varamannabekkinn í seinni undanúrslitaleiknum á miðvikudag. 7.7.2006 21:18
Trúir ekki á ósigranleika Franski snillingurinn Thierry Henry framherji Franska landsliðsins og Arsenal óttist ekki hinn sterka varnarmúr Ítala. Henry trúir ekki þeim sögusögnum um að Ítalska vörnin sé ósigrandi. 7.7.2006 21:09
Afríka kallar Forseti FIFA, Joseph Sepp Blatter, Kofi Annan, framkvæmdarstjóri Sameinuðu þjóðanna og forseti Suður Afríku, Thabo Mbeki, stilltu sér upp með HM styttuna góðu þegar „Afríka kallar“ (Africa´s Calling) verkefnið var kynnt í morgun. 7.7.2006 14:54
Materazzi segir að Gattuso pakki Zidane saman Marco Materazzi miðvörður Ítalska landsliðsins er kokhraustur fyrir úrslitaleikinn á HM sem að fram fer á sunnudaginn. Hann segir að lítið mál sé fyrir Gennaro Gattuso að pakka Zinidine Zidane saman og koma í veg fyrir að hann beri franska liðið uppi. 7.7.2006 14:36
Grosso byrjaði ekki í alvörufótbolta fyrr 2001 Fabio Grosso, leikmaður Ítalíu segir að hann hafi ekki byrjað að spila alvöru fótbolta fyrr en fyrir fimm árum síðan þegar Perugia fékk hann á frjálsri sölu frá fjórðu deildar liðinu Chieti. 7.7.2006 14:31
Klismann fær frest fram í ágúst Þýska knattspyrnusambandið ætlar að gefa Jurgen Klinsmann, frest til 16 ágúst á að ákveða sig hvort hann hafi áhuga að vera áfram með þýska landsliðið. 7.7.2006 14:24
Kahn verður í markinu Oliver Kahn mun verja mark Þjóðverja er þeir mæta Portúgölum í leik um bronsið á HM á laugardaginn. Það er Þýska blaðið Bild sem segir frá þessu og hefur þetta eftir Jurgen Klinsmann, þjálfara liðsins. 7.7.2006 14:15
Larsson spilaði sinn fyrsta leik á heimavelli í kvöld Helsingborg vann í kvöld lið Péturs Hafliða Marteinssonar og félaga hans í Hammarby 3-1 ísænska bikarnum. Þetta var fyrsti leikur Henke Larsson á heimavelli með Helsingborg. 6.7.2006 21:21
Thuram telur að Frakkar þurfi að varast Ítalina Lilian Thuram miðvörður franska landsliðsins sem að leikur einnig með ítalska liðinu Juventus telur að Frakkar verði að passa sig á samheldnu og sterku liði Ítala í úrslitaleiknum. 6.7.2006 13:13
Undanúrslit-upprifjun Nú eru undanúrslitin á HM að baki og bara tveir leikir eftir, leikurinn um þriðja sætið og sjálfur úrslitaleikurinn. Þá er kominn tími á að gera upp undanúrslitin. 6.7.2006 13:08
„Stórkostlegt!“ Frönsku blöðin voru í sjöunda himni eftir sigur Frakka í gær, Le Figaro sagði, „Vinnan skilaði úrlitaleiknum“. „Stórkostlegt!“, birtist á forsíðu Le Parisien og á síðum L'Equipe, „Markmið lífsins“. Liberation var hógvært í morgun og sagði, „Sunnudagur í Berlín“. 6.7.2006 11:33