Fótbolti

Kahn verður í markinu

MYND/Reuters

Oliver Kahn mun verja mark Þjóðverja er þeir mæta Portúgölum í leik um bronsið á HM á laugardaginn. Það er Þýska blaðið Bild sem segir frá þessu og hefur þetta eftir Jurgen Klinsmann, þjálfara liðsins.

Jens Lehmann sem varið hefur mark Þjóðverja alla keppnina sagði að hann vildi sjá Kahn spila leikinn gegn Portúgal. Kahn hafði þetta að segja um málið " Ég horfi ekki á þetta sem einhvers konar greiða við mig, bara alls ekki.

Ég hlakka mikið til að spila þennan leik og leikurinn um þriðja sætið er mikilvægur því það er verið að keppa um sæti og verðlaunapening," sagði Kahn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×