Fótbolti

Undanúrslit-upprifjun

Buffon og Cannavaro fagna eftir leikinn í undanúrslitum
Buffon og Cannavaro fagna eftir leikinn í undanúrslitum MYND/AP

Nú eru undanúrslitin á HM að baki og bara tveir leikir eftir, leikurinn um þriðja sætið og sjálfur úrslitaleikurinn. Þá er kominn tími á að gera upp undanúrslitin.

Fá mörk litu dagsins ljós í leikjunum tveimur og er það kannski ekki skrítið miðað við gæði varnanna hjá liðunum sem að eftir voru. Mark umferðarinnar var þó vafalaust markið hjá Fabio Grosso á 119. mínútu framlengingarinnar á móti Þjóðverjum, stórglæsilegt mark sem að kom eftir frábæra sendingu frá Andrea Pirlo.

Einnig voru in mörkin eftirminnileg, afgreiðslan hjá Del Piero og yfirvegunin í hinu gríðarlega mikilvæga víti hjá Zidane. Eftirminnilegasta stundin var þó ef til vill eftir leik Frakka og Portúgala þegar að Figo og Zidane skiptust á treyjum og maður sá þar tvo kónga sem að virða hvorn annann og eiga virðinguna svo sannarlega skilið, föðmuðust vel og innilega og þökkuðu fyrir leikinn.

Skemmtileg stund í ljósi sögu þessarra leikmanna og þess að þetta er á efa seinast stórmót þeirra beggja. Nokkrir leikmenn stóðu upp úr í leikjunum tveimur, má þar nefna Jens Lehman, Andrea Pirlo, Zidane, Thuram og jafnvel C. Ronaldo þrátt fyrir leiðinlegan leikaraskap í þeim unga pilti. Þó má vafalítið taka undir það að maðurinn sem að stóð upp úr í undanúrslitunum var Fabio Cannavaro sem að var hreint út frábær í ítölsku vörninni og blokkeraði ófá skotin og kom Materazzi ósjáldan til bjargar eftir að hinn síðarnefndi hafði ráfað út úr stöðu sinni eða misst mann fram hjá sér.

Maður umferðarinnar er því hinn smái en Knái leikmaður Juventus, Fabio Cannavaro, þó svo að margir vilji meina að Andrea Pirlo hafi kannski verið betri í þeim leik og skapað markið sem að réði úrslitum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×