Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Messi og Mbappé sáu um Belgana Franska stórliðið Paris Saint-Germain endaði riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu þetta árið á öruggum 4-1 heimasigri gegn belgíska liðinu Club Brugge. Kylian Mbappé og Lionel Messi skoruðu tvö mörk hvor. 7.12.2021 19:45
Leipzig gulltryggði Evrópudeildarsæti sitt með sigri gegn Englandsmeisturunum RB Leipzig vann 2-1 sigur er liðið tók á móti Englandsmeisturum Manchester City í lokaumferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld. City hafði fyrir leik tryggt sér efsta sæti A-riðils, en sigurinn geirnegldi þriðja sætið fyrir Leipzig og liðið því á leið í útsláttakeppni Evrópudeildarinnar. 7.12.2021 19:35
Átta mörk Bjarka dugðu ekki til | Lærisveinar Aðalsteins taplausir í þrem í röð Það voru Íslendingar í eldlínunni í tveimur leikjum sem nú var að ljúka í EHF-bikarnum í handbolta. Bjarki Már Elísson var markahæsti maður Lemgo er liðið tapaði gegn GOG, 34-28, og Aðalsteinn Eyjólfsson og lærisveinar hans í Kadetten unnu góðan sigur gegn AEK, . 7.12.2021 19:23
Chelsea verður án fimm leikmanna gegn Zenit á morgun | Einn smitaður Enska knattspyrnuliðið Chelsea verður án fimm leikmanna þegar liðið mætir Zenit frá Pétursborg í lokaumferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu á morgun. 7.12.2021 18:32
Kolbeinn yfirgefur Gautaborg Knattspyrnumaðurinn Kolbeinn Sigþórsson verður ekki áfram í röðum sænska félagsins IFK Gautaborg eftir að samningur hans við félagið rennur út í lok árs. 7.12.2021 17:49
Þrír Íslendingar í úrvalsliði Evrópumótsins | Auður Helga valin efnilegust Ísland átti þrjá fulltrúa í úrvalsliði Evrópumótsins í fimleikum sem fram fór í Portúgal á dögunum. Þá var Auður Helga Halldórsdóttir valin sú efnilegasta. 7.12.2021 16:32
Dómari og starfsmaður yngra landsliðs sagðir gerendur í tveimur málanna Tvö kynferðisbrotamálanna sem óháð úttektarnefnd ÍSÍ segir að stjórn KSÍ hafi fengið vitneskju um frá árinu 2010 tengjast annars vegar dómara og hins vegar starfsmanni yngra landsliðs. Hvorugur hefur starfað frekar fyrir KSÍ eftir að sambandinu var tilkynnt um mál þeirra. 7.12.2021 15:44
Guðni segist hafa einblínt um of á form og trúnað Guðni Bergsson fráfarandi formaður KSÍ hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna skýrslu úttektarnefndar ÍSÍ. 7.12.2021 15:14
Bellingham sektaður en sleppur við bann Enska ungstirnið Jude Bellingham hefur verið sektaður um 40.000 evrur af þýska knattspyrnusambandinu fyrir ummæli sem hann lét fallla í garð dómara leiksins, Felix Zwayer, eftir 3-2 tap Dortmund gegn Bayern München um helgina. Sóknarmaðurinn ungi sleppur þó við bann. 7.12.2021 15:00
Leitaði til almannatengils vegna gruns um heimilisofbeldi landsliðsmanns Geir Þorsteinsson, fyrrverandi formaður KSÍ, brást við upplýsingum um að lögregla hefði verið kölluð að dvalarstað landsliðsmanns vegna grunsemda um heimilisofbeldi með því að leita til almannatengils. Fyrrverandi eiginkona umrædds landsliðsmanns varð fyrir vonbrigðum með hvernig KSÍ tók á málinu. 7.12.2021 14:44
KSÍ hafi mikið svigrúm varðandi val á landsliðsmönnum Úttektarnefnd ÍSÍ, sem var falið að fjalla um frammistöðu KSÍ í málum tengdum kynferðisofbeldi, skilaði sinni skýrslu í dag. Rán Ingvarsdóttir lögmaður segir að KSÍ hafi mikið svigrúm varðandi val á landsliðsmönnum. 7.12.2021 14:43
KSÍ vissi af fjórum málum | Guðni fékk tilkynningu frá starfsmanni KSÍ um kynferðisofbeldi Úttektarnefnd ÍSÍ, sem var falið að fjalla um frammistöðu KSÍ í málum tengdum kynferðisofbeldi, skilaði sinni skýrslu í dag. Þar segir meðal annars að nefndin hafi komist að þeirri niðurstöðu að innan KSÍ hafi verið vitneskja um alls fjórar frásagnir um að leikmenn eða aðrir tengdir sambandinu hafi beitt kynbundnu eða kynferðislegu ofbeldi. 7.12.2021 14:23
Enska úrvalsdeildin mun notast við munnvatnspróf til að greina heilahristing Enska úrvalsdeildin í knattspyrnu mun á næsta tímabili notast við munnvatnspróf sérstaklega hannað til að greina heilahristing meðal leikmanna. Prófið verður til reynslu fyrst um sinn og er liður í því að vinna gegn heilabilun og bæta andlega heilsu leikmanna. 7.12.2021 14:01
Kynntu úttekt á viðbrögðum KSÍ vegna kynferðisbrotamála Óháð nefnd ÍSÍ kynnti niðurstöður úttektar á viðbrögðum og málsmeðferð KSÍ vegna kynferðisofbeldismála sem tengst hafa leikmönnum í landsliðum Íslands á blaðamannafundi í dag. Fundurinn var í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 2 Vísi. 7.12.2021 13:30
Klopp er vongóður um að Salah skrifi undir nýjan samning Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, segist vera vongóður um það að sóknarmaður liðsins, Mohamed Salah, skrifi undir nýjan samning við félagið. Erfiðlega hefur gengið að semja við Egyptann, en hann er sagður vilja fá meira greitt en félagið er tilbúið að greiða honum. 7.12.2021 13:01
Messi sagður efast um að Pochettino ráði við starfið Lionel Messi, leikmaður Paris Saint-Germain og einn besti knattspyrnumaður sögunnar, er sagður efast um að landi sinn, Mauricio Pochettino, ráði við starfið sem knattspyrnustjóri félagsins. 7.12.2021 12:30
Kænn sem refur þegar hann skoraði og meiddist Iago Aspas, fyrrverandi leikmaður Liverpool, náði sér viljandi í gult spjald í leik með Celta Vigo gegn Valencia í spænsku 1. deildinni í fótbolta á sunnudag. 7.12.2021 11:30
Hásteinsvöllur verður að gervigrasvelli Heimavöllur ÍBV, Hásteinsvöllur, verður gerður að gervigrasvelli með flóðlýsingu á næstunni. Framkvæmdir hefjast næsta haust og vonast er til að völlurinn verði klár fyrir upphaf Íslandsmótsins 2023. 7.12.2021 11:02
Smit í Njarðvík og leik frestað Leik Njarðvíkur og Stjörnunnar í Subway-deild karla í körfubolta, sem fara átti fram á fimmtudaginn, hefur verið frestað vegna kórónuveirusmits í herbúðum Njarðvíkur. 7.12.2021 10:33
Gefa leik og segja prófatörn ástæðuna en Ísfirðingum er ekki skemmt Fjölnismenn hafa ákveðið að hætta við að fara til Ísafjarðar og spila þar bikarleik gegn heimamönnum í Herði. Framkvæmdastjóri handknattleiksdeildar Harðar gefur lítið fyrir ástæður Grafarvogsbúa og telur vegalengdina til Ísafjarðar hafa vafist fyrir þeim. 7.12.2021 10:01
Hópsmit setur strik í reikninginn hjá Tottenham Enska knattspyrnuliðið Tottenham Hotspur hefur farið vel af stað undir stjórn Antonio Conte eftir að Ítalinn tók við liðinu fyrir rúmum mánuði síðan. Nú hefur kórónuveiran hins vegar herjað á liðið og það gæti sett strik í reikninginn fyrir mikið leikjaálag desembermánaðar. 7.12.2021 09:31
Segja að Godfrey hafi ætlað sér að stíga á Tomiyasu Gary Neville, fyrrverandi leikmaður Manchester United og enska landsliðsins í fótbolta og núverandi sparkspekingur, segist vera alveg viss um að það hafi ekki verið neitt óviljaverk hjá Ben Godfrey að stíga á andlit Takehiro Tomiyasu í leik Everton og Arsenal í gærkvöldi. 7.12.2021 09:02
Þýska lögreglan rannsakar ummæli Bellingham eftir leik Dortmund og Bayern Lögreglan í þýskalandi rannsakar nú ummæli Jude Bellingham, leikmanns Borussia Dortmund, sem hann lét falla um dómara leiksins eftir 3-2 tap liðsins gegn Bayern München í þýsku úrvalsdeildinni um liðna helgi. 7.12.2021 08:31
Benitez: „Það var allt á móti okkur“ Knattspyrnustjóri Everton, Rafa Benitez, hefur líklega setið í heitasta sætinu í ensku úrvalsdeildinni undanfarnar vikur eftir vægast sagt slæmt gengi liðsins. Sigur Everton gegn Arsenal í gærkvöldi var fyrsti deildarsigur liðsins síðan í lok september, og Spánverjinn var að vonum feginn. 7.12.2021 08:02
Steph Curry nálgast metið yfir flesta þrista eftir stórsigur Það var nóg um að vera í NBA-deildinni í körfubolta í nótt, en alls fóru fram tíu leikir. Steph Curry og félagar hans í Golden State Warriors unnu stórsigur gegn Orlando Magic, 126-95, þar sem Curry gerði sér lítið fyrir og setti niður sjö þrista fyrir Warriors. 7.12.2021 07:36
Ofurdeild Evrópu óþörf: Vandræði Barcelona, Dortmund og Atlético sanna það Síðasta umferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu hefst í kvöld. Enn á fjöldi liða eftir að tryggja sæti sitt í 16-liða úrslitum. Þar á meðal er spænska stórliðið Barcelona sem má muna fífil sinn fegurri, liðið þarf í raun á kraftaverki að halda til að komast áfram. 7.12.2021 07:01
Dagskráin í dag: Meistaradeild Evrópu í brennidepli Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu á hug okkar allan í dag. Einnig er keppt í Vodafone-deildinni í CS:GO. 7.12.2021 06:00
„Hann átti það nú ekki skilið, minn kæri vinur“ Fagnaðarlæti í íþróttum eiga það til að fara úr böndunum, bæði innan vallar sem utan. Það er þó sjaldan sem bíllyklar koma við sögu en það gerðist þó er Kristinn Kjærnested fagnaði ásamt góðvini sínum Jónasi Kristinssyni hér um árið. 6.12.2021 23:01
Fyrrverandi þjálfari Víkings og Breiðabliks að taka við Rosenborg Milos Milojevic er við það að taka við norska stórveldinu Rosenborg. Milos lék lengi vel hér á landi og þjálfaði svo bæði Víking og Breiðablik frá 2013 til 2017. Nú virðist sem hann sé á leiðinni að taka við einu stærsta liði Skandinavíu. 6.12.2021 22:30
Gray hetja Everton eftir að VAR virtist ætla að stela senunni Everton vann hádramatískan 2-1 sigur á Arsenal í eina leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Dómgæsla leiksins – og myndbandsdómgæsla – var hins vegar í brennidepli framan af leik. 6.12.2021 22:00
Naumt hjá Þjóðverjum | Danmörk með stórsigur Öllum átta leikjum dagsins á HM kvenna í handbolta er nú lokið. Ljóst er hvaða lið fara áfram í milliriðla úr E-,F-, G- og H.riðli. Á meðan Danmörk vann stórsigur á Suður-Kórea vann Þýskaland nauman sigur á Ungverjalandi. 6.12.2021 21:31
Dregið í þriðju umferð FA-bikarsins: Gerrard mætir á Old Trafford Í kvöld var dregið í þriðju umferð ensku FA-bikarkeppninnar. Um er að ræða elstu og virtustu bikarkeppni heims. Í þriðju umferð koma úrvalsdeildarlið inn í myndina og er mikil spenna hjá neðri deildar liðum Englands fyrir drættinum. 6.12.2021 20:46
Stjarnan staðfestir komu Jóhanns Árna Knattspyrnudeild Stjörnunnar staðfesti í dag komu Jóhanns Árna Gunnarssonar til félagsins. Hann kemur frá Fjölni en í gær var greint frá því að hann væri á leiðinni í Garðabæinn. 6.12.2021 20:00
Tékkar í milliriðil eftir dramatískan sigur Tékkland vann dramatískan sigur á Slóvakíu í lokaleik liðanna í E-riðli á HM kvenna í handbolta sem fram fer á Spáni, lokatölur 24-23. Sigurinn tryggði Tékklandi sæti í milliriðli mótsins. 6.12.2021 19:00
Seinni bylgjan: Átti Hafsteinn Óli að fá á sig víti og rautt undir lok leiks? Stefán Árni Pálsson, þáttastjórnandi Seinni bylgjunnar, velti því fyrir sér hvort Hafsteinn Óli Ramos Rocha hefði átt að fá dæmt á sig víti og í kjölfarið rautt spjald undir lok leiks ÍBV og HK í Vestmannaeyjum um helgina. 6.12.2021 18:15
Segir stjórn Liverpool þurfa að leysa málið | Er ánægður með að vera orðaður við Barcelona Samningur Mohamed Salah við Liverpool rennur út sumarið 2023. Þessi magnaði leikmaður hefur ekki enn skrifað undir nýjan samning og segist vera ánægður að hann sé orðaður við Barcelona. 6.12.2021 17:31
Brands farinn: Óvíst hvað verður um Grétar Rafn Hollendingurinn Marcel Brands hefur sagt starfi sínu lausu sem yfirmaður knattspyrnumála hjá enska knattspyrnuliðinu Everton. Óvissa ríkir um framtíð Grétars Rafns Steinssonar hjá félaginu en hann er sem stendur yfir leikmannakaupum og þróun leikmanna félagsins. 6.12.2021 17:00
Goðsögnin Origi: Stígur upp þegar mest á reynir Það virðist sem Divock Origi skori einungis þegar stórstjörnur Liverpool-liðsins eru heillum hornfar og það stefnir í að liðið tapi stigum. Það gerðist um helgina er Liverpool vann 1-0 sigur á Wolves í ensku úrvalsdeildinni. 6.12.2021 16:31
Grét eftir að hún fékk verðlaunin í leikslok Íranska kvennalandsliðið í handbolta er á sínu fyrsta stórmóti og það gengur ekkert sérstaklega vel hjá nýliðunum. Liðið er samt búið að fá sín fyrstu verðlaun. 6.12.2021 16:00
Rangnick horfir til New York í leit að aðstoðarþjálfurum Nýráðinn þjálfari enska knattspyrnuliðsins Manchester United, Ralf Rangnick, horfir til New York í leit að aðstoðarþjálfara. 6.12.2021 15:31
Þungavigtin: Gummi Tóta kveður New York í úrslitaleiknum Guðmundur Þórarinsson er búinn að fá nóg af því að fá ekki traustið hjá þjálfara New York City þrátt fyrir að skila hvað eftir annað frábærri frammistöðu inn á vellinum. Guðmundur átti mikinn þátt í því að lið hans spilar til úrslita um titilinn. 6.12.2021 14:45
Seinni bylgjan: „Ekki oft sem maður sér stjórnarmenn spila með liðunum“ Magnús Gunnar Erlendsson sýndi okkur að allt er fertugum fært með frábærri frammistöðu í leik Fram og Aftureldingar í Olís-deild karla í handbolta um helgina. 6.12.2021 14:31
Ljónin tileinkuðu fyrsta sigurinn fórnarlömbum skotárásarinnar í Oxford NFL-deildin er óútreiknanleg og spennan í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni minnkaði ekki eftir úrslitin um helgina. Það er sérstaklega í Ameríkudeildinni sem öll er í einum hnút. 6.12.2021 14:01
Þjálfari fékk hjartaáfall og lést þegar hann fagnaði sigurmarki Adham El-Selhadar, þjálfari egypska knattspyrnufélagsins El-Magd SC, kvaddi þennan heim óvænt og sorglega eftir að hafa fengið hjartaáfall í miðjum leik. 6.12.2021 13:30
Þökk sé formanninum sprungu allir úr hlátri í KR-klefanum þrátt fyrir 7-0 tap Kristinn Kjærnested, fyrrum formaður Knattspyrnudeildar KR, var nýjasti gestur Henry Birgis Gunnarssonar í Foringjunum á Stöð 2 Sport en í þáttunum er rætt við menn sem hafa gefið mikið af sér og verið lengi í áhrifastöðum hjá íslenskum íþróttafélögunum. 6.12.2021 13:01
Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Handbolti