Fleiri fréttir

Hver er þessi Chukwudi Chijindu sem er að slá í gegn hjá Þór?

Chukwudi Chijindu skoraði bæði mörk Þórsara í 2-1 sigri á Víkingum í toppslag 1. deildar karla í Ólafsvík í gær. Chijindu hefur skorað fjögur mörk í fyrstu þremur leikjum sínum með Þór og er þegar orðinn markahæsti leikmaður liðsins í sumar.

Frakkar Ólympíumeistarar á öðrum leikunum í röð

Frakkar eru Ólympíumeistarar í handbolta karla eftir eins marks sigur á Svíum, 22-21, í úrslitaleik í London í dag. Frakkar vörðu þar með titil sinn frá því fyrir fjórum árum þegar þeir unnu Íslendinga í úrslitaleik.

Rory Mcllroy efstur á US PGA

Rory Mcllroy er efstur á US PGA mótinu eftir þrjá daga en leikmenn voru að ljúka síðustu holum þriðja hringsins rétt í þessu. Leik var frestað í gær vegna veðurs og í dag fóru fram síðustu holur þriðja dagsins.

Zlatan bjargaði stigi fyrir PSG

Zlatan Ibrahimovic kom í veg fyrir neyðarlegt tap í fyrsta leik sínum fyrir Paris Saint German í gærkvöldi. Zlatan sem kom til liðsins frá Milan skoraði tvö mörk í jafntefli liðsins við Lorient.

Tvær norskar í úrvalsliði Ólympíuleikanna

Norski markvörðurinn Kari Aalvik Grimsbo og norski línumaðurinn Heidi Loke voru báðar valdar í úrvalslið handboltakeppni kvenna á Ólympíuleikunum í London en val sérstakar nefndar á vegum IHF var tilkynnt í dag.

Bannað að taka við bronsinu sínu

Landslið Suður-Kóreu vann brons í fótboltakeppni karla á Ólympíuleikunum í London en einn leikmanna liðsins var þó hvergi sjáanlegur þegar Kóreumenn tóku við bronsinu sínu í gær. Alþjóðaólympíunefndin útilokaði hann nefnilega frá verðlaunaafhendingunni eftir að leikmaðurinn varð uppvís að því að veifa fána með pólitískum skilaboðum eftir sigurinn á Japan í leiknum um 3. sætið.

Króatar tóku bronsið - unnu Ungverja létt

Króatar urðu í þriðja sæti í handboltakeppni karla á Ólympíuleikunum í London eftir öruggan sjö marka sigur á Íslandsbönum Ungverja, 33-26, í leiknum um bronsverðlaunin. Króatar voru fimm mörkum yfir í hálfleik og náðu mest átta marka forskoti í seinni hálfleiknum þannig að sigurinn var afar sannfærandi.

Barry og Richards verða ekki með meisturum City í dag

Ensku landsliðsmennirnir Gareth Barry og Micah Richards verða fjarri góðu gamni í dag þegar Englandsmeistarar Manchester City mæta bikarmeisturum Chelsea í árlegum leik um Samfélagsskjöldinn sem fer fram á Villa Park. Leikurinn hefst klukkan 12.30 og er í beinni á Stöð 2 Sport og Stöð 2 Sport 2.

Ryan Lochte viðurkennir að hafa pissað í Ólympíulaugina í London

Bandaríski sundmaðurinn Ryan Lochte viðurkenndi í útvarpsviðtali hjá Ryan Seacrest að hann hafi freistast til að pissa í laugina á Ólympíuleikunum í London. Ryan Lochte keppti í mörgum greinum á leikunum og oft var stutt á milli hjá honum. Uppskera Lochte á leikunum var tvö gull, tvö silfur og eitt brons og hann hefur nú alls unnið til ellefu verðlauna á Ólympíuleikum.

Kári Steinn í 42. sæti í maraþoni karla

Kári Steinn Karlsson náði frábærum árangri í maraþonhlaupi karla á Ólympíuleikunum í London en hann kom í mark á 2.18:47 klst sem skilaði honum í 42. sæti af 105 keppendum.

Heimsmethafinn keppir ekki í maraþoninu

Patrick Makau frá Keníu verður ekki á meðal keppanda í maraþonhlaupi karla á Ólympíuleikunum í London í dag, þó svo að hann hafi sett heimsmet í greininni í fyrra.

Missy Franklin ætlar að velja námið frekar en peningana

Missy Franklin er 17 ára gömul og nýbúin að finna fjögur Ólympíugull á sínum fyrstu leikum í London. Hún er enn í menntaskóla og stendur til boða að velja atvinnumennskuna yfir háskólanám. Franklin segir ákvörðunina vera mjög erfiða en það lítur út fyrir að hún ætli að velja námið yfir peningana.

Gifti sig í miðri sveitakeppni í golfi

Það var nóg að gera um helgina hjá Alfreð Brynjari Kristinssyni, liðsmanni í sveit Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar í Sveitakeppninni í golfi því hann gifti sig í gær í miðri sveitakeppni. Þetta kemur fram á kylfingur.is. Alfreð hefur sigrað í tveimur tvímenningsleikjum af þremur í mótinu hingað til en GKG hefur ekki tapað leik í mótinu til þessa og þykir líklegt til afreka.

Besta knattspyrnukona heims búin að spila sinn síðasta landsleik

Japanska landsliðskonan Homare Sawa tilkynnti það eftir tapleikinn á móti Bandaríkjunum í úrslitaleik knattpyrnukeppni kvenna á Ólympíuleikunum í London að hún væri búin að spila sinn síðasta landsleik. Bandaríkin vann leikinn 2-1 og tryggði sér gullið.

Þórir og norsku stelpurnar unnu Ólympíugullið í kvöld - myndir

Þórir Hergeirsson gerði norska kvennalandsliðið í handbolta að Ólympíumeisturum í London í kvöld og íslenski þjálfarinn er því búinn að ná gullnu þrennunni þar sem liðið hans hefur unnið öll þrjú stórmótin, EM, HM og ÓL, á undanförnum þremur árum.

Unnu bronsið og sluppu við herþjónustu

Suður-kóreska fótboltalandsliðið vann fyrstu verðlaun þjóðar sinn í fótboltakeppni Ólympíuleikanna í gær þegar liðið lagði Japan 2-0 í bronsleiknum á ÓL í London. Leikmenn liðsins fengu ekki bara bronsið að launum eftir sigurinn.

Di Matteo: Ég geri engar róttækar breytingar

Roberto Di Matteo, stjóri Chelsea, ætlar ekki að gera miklar breytingar á því skipulagi sem færði félaginu tvo titla í lok síðasta. Di Matteo segir að Chelsea ætli ekki að fara spila fótbolta eins og Barcelona þrátt fyrir að hafa keypt nokkra sókndjarfa leikmenn í sumar.

Kári Steinn og félagar á þekktum slóðum

Maraþonhlaup karla fer fram á Ólympíuleikunum á morgun og fer fram í hjarta Lundúna. Kári Steinn Karlsson, Íslandsmethafi í greininni, er meðal þátttakenda.

Bandarísku körfuboltakonurnar unnu úrslitaleikinn með 36 stigum

Bandaríkin er Ólympíumeistari kvenna í körfubolta á fimmtu Ólympíuleikunum í röð eftir 36 stiga sigur á Frakklandi, 86-50, í úrslitaleiknum í kvöld. Bandaríska liðið var algjört yfirburðarlið á mótinu og vann alla átta leiki sína sannfærandi.

Þórir vann gullnu þrennuna með Noregi

Noregur varð í kvöld Ólympíumeistari í handknattleik kvenna eftir sigur á Svartfjallalandi, 26-23, í spennandi úrslitaleik í London í kvöld.

Kagawa tryggði United endurkomusigur á Hannover - Real og Barca unnu

Japaninn Shinji Kagawa skoraði sigurmark Manchester United í 4-3 sigri á þýska liðinu Hannover í æfingaleik í Þýskalandi í kvöld. United lenti 3-1 undir í leiknum en skoraði þrjú mörk á síðustu tuttugu mínútum leiksins. Real Madrid og Barcelona unnu bæði sína leiki í kvöld.

Mo Farah vann aftur: Gullverðlaunin eru fyrir ófæddar tvíburastelpur hans

Bretinn Mohamed Farah tryggði sér í kvöld sigur í 5000 metra hlaupi á Ólympíuleikunum í London en hann hafði áður unnið 10.000 metra hlaupið á leikunum. Mo Farah varð heimsmeistari í 5000 metrunum í Daegu í Suður-Kóreu fyrir ári síðan og er að sanna sig sem einn besti millivegahlaupari sögunnar.

Úlfar landsliðsþjálfari: Mikið afrek hjá Axel

Axel Bóasson náði frábærum árangri i dag þegar hann hafnaði i 8. til 12. sæti á Evrópumóti einstaklinga á Írlandi. Axel lék lokadaginn á 70 höggum og var i heildina á fimm höggum undir pari. Axel jafnaði með þessu besta árangur Íslendings á þessu sterka áhugamannamóti en Ólafur Mar Sigurðsson hafnaði einnig i 8. sæti á þessu sama móti árið 2002.

Tuttugu ára rússnesk stelpa setti heimsmet í 20 km göngu

Elena Lashmanova, tvítug rússnesk stelpa, tryggði sér sigur í 20 kílómetra göngu kvenna á Ólympíuleikunum í London í dag þegar hún kom fyrst í mark á nýju heimsmeti. Lashmanova kom í mark á einum klukkutíma, 25 mínútum og 2 sekúndum en hún bætti þar með eins árs heimsmet löndu sinnar Veru Sokolovu um sex sekúndur.

Birkir Már lagði upp tvö mörk í sigri Brann

Landsliðsbakvörðurinn Birkir Már Sævarsson lagði upp tvö fyrstu mörk Brann í 3-2 sigri á Haugesund í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Næsti leikur Birkis er með íslenska landsliðinu á móti Færeyjum á Laugardalsvellinum á miðvikudaginn.

Hvítá/Ölfusá: Net tekin upp vegna laxleysis

Hópur netaveiðirétthafa í Ölfusá og Hvítá mælist til þess að netabændur á svæðinu taki net sín upp það sem eftir lifir sumars eða dragi úr sókn. Ástæðan er lítil veiði á stöng í hliðarám og fjölmargir óvissuþættir um ástand laxastofna

Spænsku stelpurnar náðu bronsinu eftir tvíframlengdan leik

Spænska kvennalandsliðið í handbolta tryggði sér bronsverðlaun á Ólympíuleiknum í London í kvöld eftir dramatískan 31-29 sigur á Suður-Kóreu í tvíframlengdum leik. Þetta eru fyrstu verðlaun spænska kvennalandsliðsins í sögu handboltakeppni Ólympíuleikanna.

Þórsarar upp í annað sætið - Chijindu með bæði mörkin

Þórsarar eru komnir upp í annað sætið í 1. deild karla í fótbolta eftir 2-1 sigur á Víkingum í Ólafsvík í dag en Ólafvíkur-Víkingar eru engu að síður með tveggja stiga forskot á toppnum. Þórsarar eiga leik inni og eru í góðum málum í baráttu sinni fyrir að endurheimta sæti sitt í Pepsi-deildinni.

Aron Einar með tvö mörk í sigri á Newcastle

Aron Einar Gunnarsson fór á kostum þegar Cardiff City vann 4-1 sigur á úrvalsdeildarliði Newcastle í æfingaleik í Cardiff í dag. Aron Einar er að koma aftur inn eftir meiðsli og er greinilega orðinn góður af þeim.

Þórir: Við erum ekki búin að vinna gullið ennþá

Þórir Hergeirsson, þjálfari norska kvennalandsliðsins í handbolta, var ekki alltof sáttur með línumanninn Heidi Löke í gær þegar hún lét mynda sig með gullmedalíu á blaðamannafundi í gær. Noregur mætir Svartfjallalandi klukkan 19.30 í kvöld í úrslitaleiknum á Ólympíuleikunum í London.

Mexíkó vann á Wembley - bið Brasilíu eftir Ólympíugulli lengist enn

Mexíkó kom flestum á óvart með því að vinna 2-1 sigur á Brasilíu í úrslitaleik knattspyrnukeppni karla á Ólympíuleikunum í London en úrslitaleikurinn fór fram á Wembley í dag. Mexíkó lék án sinnar stærstu stjörnu, Giovani Dos Santos, sem gat ekki spilað vegna meiðsla, en það kom ekki að sök og mexíkóska liðið vann nokkuð sannfærandi sigur eftir að hafa skorað fyrra markið sitt eftir aðeins 28 sekúndna leik.

Sölvi Geir missir af leiknum gegn Færeyjum

Sölvi Geir Ottesen, leikmaður danska liðsins FC Kaupmannahafnar, verður ekki með íslenska landsliðinu í vináttuleiknum gegn Færeyingum á Laugardalsvellinum á miðvikudag. Sölvi Geir á við meiðsli að stríða en hann missti líka af leikjunum við Svía og Frakka í maí.

Sjá næstu 50 fréttir