Sport

Heimsmethafinn keppir ekki í maraþoninu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar
Patrick Makau frá Keníu.
Patrick Makau frá Keníu. Mynd/Nordic Photos/Getty
Patrick Makau frá Keníu verður ekki á meðal keppanda í maraþonhlaupi karla á Ólympíuleikunum í London í dag, þó svo að hann hafi sett heimsmet í greininni í fyrra.

Það gerði hann í Berlínarmaraþoninu þegar hann kom í mark á 2:03,38 klst. Kári Steinn Karlsson varð sautjándi í þessu sama hlaupi á 2:17,12 klst og tryggði sér þar með þátttökurétt á leikunum í London.

Hver þjóð má aðeins senda þrjá hlaupara til leiks en langflestir úr hópi bestu maraþonhlaupara heims koma frá Keníu og Eþíópíu. Makau tók þátt í Lundúnarmaraþoninu fyrr á þessu ári en þurfti að hætta vegna meiðsla. Var hann ekki valinn í keppnislið Keníu af þeim sökum.

Einn þekktasti maraþonhlapuari allra tíma, Haile Gebrselassie, verður ekki heldur með en hann hefur átt við meiðsli að stríða. Gebrselassie er 39 ára gamall og stefndi að því að ljúka ferlinum á leikunum í ár.

Gebrselassie var heimsmethafinn í greininni þar til að Makau sló metið hans í Berlín í fyrra. Gebrselassie vann einnig gull í 10 km hlaupi á Ólympíuleikunum 1996 og 2000 en sneri sér þá að maraþoni.

Líklegast er að hlaupari frá Keníu eða Eþíópíu beri sigur úr býtum í keppninni í dag. Abel Kirui, tvöfaldur heimsmeistari í greininni, Wilson Kipsang og Emmanuel Mutai hlaupa fyrir Keníu en þeir tveir síðastnefndu hafa unnið Lundúnarmaraþonið síðustu tvö ár.

Fulltrúar Eþíópíu eru einnig ógnarsterkir. Ayele Abshero hefur náð frábærum árangri þrátt fyrir ungan aldur en hann er einungis 21 árs gamall. Hann hljóp sitt fyrsta maraþon á ferlinum fyrr á þessu ári og skilaði sér þá í mark á 2:04,23 klst sem er fjórði besti tími frá upphafi og sá besti í ár.

Hinir eru Dino Sefir og Getu Feleke en báðir hafa hlaupið undir 2:05 klst á þessu ári.

Ólympíumeistarinn frá leikunum í Peking fyrir fjórum árum síðan er Sammu Wanjiru frá Keníu en hann lést í fyrra. Wanjiru stökk fram af svölunum á húsi sínu eftir að kona hans kom að honum með annarri konu í rúminu.

Wanjiru setti nýtt Ólympíumet í Peking þegar hann kom í mark á 2:06,32 klst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×