Fleiri fréttir

Glæsileg þrenna Ronaldo sá um Villarreal

Real Madrid vann í kvöld 4-2 sigur á Villarreal eftir að hafa tvívegis lent undir í leiknum. Cristiano Ronaldo fór á kostum en hann skoraði fyrstu þrjú mörk Real og lagði það fjórða upp fyrir Brasilíumanninn Kaka.

Örvar: Hefðum getað tekið þetta með smá heppni

„Þetta var bara alvöru bikarleikur. Þetta var góð auglýsing fyrir körfuna, harka og fjör,“ sagði Örvar Kristjánsson, þjálfari Fjölnis, eftir að liðið féll út gegn KR í Powerade-bikarnum í körfubolta. KR vann leikinn 82-74 í DHL-höllinni í dag.

Gremio játar sig sigrað - Ronaldinho fer til Flamengo

Gremio í Brasilíu hefur staðfest að Ronaldinho sé ekki á leið til félagsins. Hann mun í staðinn ganga til liðs við Flamengo á næstu dögum. Adriano Galliani, varaforseti AC Milan, sagði í gær að Flamengo væri að vinna kapphlaupið um leikmanninn.

Leicester og Man City þurfa að mætast aftur

Leicester og Manchester City þurfa að mætast aftur til að skera úr um hvort liðið fer áfram í FA-bikarnum. Liðin gerðu 2-2 jafntefli á heimavelli Leicester í dag.

Dzeko: Kominn til City til að vinna titla

Edin Dzeko segist vera mættur til Manchester City til þess að vinna titla. Þessi bosníski sóknarmaður var keyptur frá Wolfsburg á 27 milljónir punda frá Wolfsburg í síðustu viku og mun leika sinn fyrsta leik fyrir City gegn Wolves um næstu helgi.

KR komið í undanúrslit

KR vann í dag Fjölni í 8-liða úrslitum Powerade-bikarkeppni karla, 82-74, og tryggði sér þar með sæti í undanúrslitum keppninnar.

Úrvalslið Evrópu rúllaði upp Asíu á lokadeginum

Úrvalslið Evrópu sýndi styrk sinn á lokakeppnisdegi Royal Trophy keppninnar gegn úrvalsliði Asíu á Black Mountain vellinum í Taílandi í dag. Evrópa fékk 9 vinninga gegn 7 og varði titilinn en þetta er í fimmta sinn sem keppnin fer fram. Evrópa hefur sigrað fjórum sinnum.

Milan gerði jafntefli í átta marka leik - Cambiasso hetja Inter

AC Milan gerði 4-4 jafntefli við Udinese í ótrúlegum leik í ítölsku A-deildinni í dag. Milan lenti 3-1 undir í leiknum en náði að bjarga stigi úr leiknum. Udinese tók forystuna eftir 35 mínútur þegar Antonio Di Natale skoraði af stuttu færi. Rétt fyrir hálfleik jafnaði Milan með marki Alexandre Pato eftir undirbúning hjá Zlatan Ibrahimovic.

Bikardráttur: Man Utd fékk Southampton

Þeir eru ekkert að hangsa neitt á Englandi og hafa þegar dregið í fjórðu umferð FA-bikarkeppninnar. Ljóst er að Manchester United heimsækir Southampton en þessi lið mættust í úrslitum keppninna 1976.

Berbatov: Auðvitað var þetta víti

„Auðvitað var þetta vítaspyrna," sagði Búlgarinn Dimitar Berbatov eftir 1-0 sigur Manchester United á Liverpool í dag. Eina mark leiksins kom úr vítaspyrnu strax í byrjun leiks eftir að Daniel Agger var dæmdur brotlegur.

Nóg að ræða á kaffistofunum eftir sigur Man Utd á Liverpool

Kenny Dalglish fékk ekki þá byrjun sem hann óskaði þegar Manchester United vann Liverpool 1-0 í enska bikarnum í dag. Þrátt fyrir að vera einum fleiri stærstan hluta leiksins tókst heimamönnum aðeins að skora eitt mark en eru þó komnir áfram.

Byrjunarlið Man Utd og Liverpool

Edwin van der Sar, Nemanja Vidic og Wayne Rooney eru allir fjarri góðu gamni í liði Manchester United sem mætir Liverpool í stórleik 3. umferða FA-bikarsins nú klukkan 13:30.

Redknapp segir að Beckham komi ekki

Harry Redknapp, stjóri Tottenham, segir að David Beckham muni líklega ekki ganga til liðs við félagið eins og búist var við.

Dalglish: Mikill heiður fyrir mig

Kenny Dalglish segir það vera mikill heiður fyrir sig að fá að stýra liði Liverpool á ný. Hann tók í dag tímabundið við liðinu eftir að Roy Hodgson var rekinn.

Amauri gæti verið á leið til Liverpool

Ítalskir fjölmiðlar fullyrða í dag að forráðamenn Juventus gætu boðið Liverpool að fá Brasilíumanninn Amauri í staðinn fyrir leikmenn sem liðið hefur augastað á.

Kýldur af eigin stuðningsmanni

Hegðun eins stuðningsmanns enska D-deildarliðsins Stevenage setti ljótan blett á sigur liðsins á Newcastle í ensku bikarkeppninni í dag.

Tólfti sigur Barcelona í röð

Barcelona vann í kvöld sinn tólfta sigur í röð í spænsku úrvalsdeildinni og virðast hreinlega vera óstöðvandi.

Helena komin í sögubækurnar hjá TCU

Helena Sverrisdóttir varð í kvöld stoðsendingahæsti leikmaðurinn í sögu TCU-háskólaliðsins í körfubolta. Liðið vann þá sigur á UNLV, 68-60.

Ungverjar unnu æfingamótið í Póllandi

Ungverjaland virðist vera í fínum málum fyrir HM í Svíþjóð sem hefst nú á fimmtudaginn en liðið vann í dag sigur á sterku fjögurra landa móti í Póllandi.

Aron: Er á réttri leið

Aron Pálmarsson átti afar góðan leik með íslenska landsliðinu í dag og skoraði sex mörk í öðrum sigri Íslands á Þjóðverjum á jafn mörgum dögum, 31-27.

Kári Kristján: Vona að ég fari með

Kári Kristján Kristjánsson átti mjög góðan leik með íslenska landsliðinu í dag og skoraði þrjú mörk í fjögurra marka sigri á Þýskalandi, 31-27.

Umfjöllun: Hitað upp fyrir HM með tveimur sigrum á Þýskalandi

Ísland vann í dag fjögurra marka sigur á Þýskalandi, 31-27, í æfingaleik í Laugardalshöll í dag. Liðin mættust einnig í gær og fóru þá íslensku strákarnir einnig með sigur af hólmi. Það er því ljóst að þeir mæta af fullum krafti og með sjálfstraustið í botni þegar flautað verður til leiks á HM í Svíþjóð í næstu viku.

Fabregas jafnteflinu feginn

Cesc Fabregas, fyrirliði Arsenal, var feginn að hafa náð jafntefli gegn Leeds eftir að hafa verið undir lengst af í síðari hálfleik.

Helena heiðruð af TCU

Helena Sverrisdóttir hefur verið útnefnd annar tveggja íþróttanámsmanna desembermánaða í háskóla hennar í Bandaríkjunum, TCU.

Sjá næstu 50 fréttir