Fleiri fréttir

Torres: Ekki enn náð mínu besta fram

Fernando Torres segir að hann hafi ekki enn náð sínu besta fram þó svo að hann hafi skorað bæði mörkin í 2-0 sigri Liverpool á Chelsea í dag.

Real Madrid enn á toppnum

Real Madrid er enn á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar eftir 2-0 sigur á Atletico Madrid í grannaslag í kvöld.

Red Bull mun ekki hagræða úrslitum í titilslag ökumanna

Christian Horner yfirmaður Red Bull segir að lið sitt muni ekki beita liðskipunum til að hagræða úrslitum í titilslag ökumanna. Bæði Mark Webber og Sebastian Vettel eiga möguleika á meistaratitlinum í kapphlaupi við Fernando Alonso og Lewis Hamilton. Þeir keppa í síðasta móti ársins um næstu helgi.

Snæfell hafði betur í grannaslagnum

Það var boðið upp á grannaslag í 32-liða úrslitum Powerade-bikarkeppni karla þegar að 2. deildarlið Víkings frá Ólafsvík tók á móti Íslands- og bikarmeisturum Snæfells.

Umfjöllun: Tindastóll fór létt með Breiðablik í Smáranum

Það var gleði í andlitum leikmanna Tindastóls eftir að þeir unnu fyrsta leik tímabilsins í kvöld. Þeir lögðu Breiðablik 49-78 í 32-liða úrslitum Powerade-bikarsins og var sigurinn aldrei í hættu hjá gestunum frá Suðárkróki.

Vettel stoltur af titli Red Bull

Sebastian Vettel hjá Red Bull er hluti af stórri liðsheild sem fagnaði fyrsta meistaratitlinum í Formúlu 1 og tryggði sér titil bílasmiða með tvöföldum sigri í Brasilíu í dag. Vettel lagði grunn að sigri með því að fara strax framúr Nico Hulkenberg sem var fremstur á ráslínu. Vettel sá við honum fyrir fyrstu beygju

Ilievski: Sigurinn í kvöld táknar nýtt upphaf fyrir Tindastól

„Við erum kátir með sigurinn og gleðiefni að finna sigurtilfinningu,“ sagði Borce Ilievski, þjálfari Tindastóls, eftir sigur sinna manna gegn Breiðablik í 32-liða úrslitum Powerade-bikarins í körfuknattleik sem fram fór í Smáranum í kvöld.

Sævaldur: Erum að byggja upp nýtt lið

„Breiðablik teflir fram mjög breyttu liði frá síðustu leiktíð og við gáfum yngri leikmönnunum tækifæri á að spreyta sig í dag. Við erum að byggja upp nýtt lið,“ segir Sævaldur Bjarnason, þjálfari Breiðabliks, sem beið lægri hlut fyrir Tindastól, 49-78 í 32-liða úrslitum Powerade-bikarins.

Tindastóll áfram í bikarnum

Tindastóll vann í kvöld sigur á 1. deildarliði Breiðabliks í 32-liða úrslitum Powerade-bikarkeppni karla, 78-49. Þetta var fyrsti sigur Tindastóls á tímabilinu.

Létt hjá Barcelona

Barcelona vann í kvöld góðan 3-1 sigur á Getafe í spænsku úrvalsdeildinni og hélt þar með perssu á Real Madrid.

Sögulegt tímabil hjá Rosenborg

Rosenberg fór í gegnum tímabilið í norsku úrvalsdeildinni í sumar án þess að tapa leik. Það er í fyrsta sinn í sögunni sem það gerist en tímabilinu lauk í dag.

Öruggt hjá Fylki

Fylkir vann öruggan sigur á Gróttu, 32-23, í N1-deild kvenna í dag, og er nú með átta stig í fjórða sæti deildarinnar.

Malmö meistari í Svíþjóð

Malmö varð í dag sænskur meistari í knattspyrnu en lokaumferð sænsku úrvalsdeildarinnar fór fram í dag.

Vettel fagnaði í Brasilíu

Red Bull vann tvöfaldan sigur í brasilíska kappakstrinum í Formúlu 1 í dag en þeir Sebastian Vettel og Mark Webber komu fyrstir í mark í dag. Það dugði til að tryggja liðinu heimsmeistaratitilinn í flokki bílasmiða.

Færeyskur landsliðsmaður til Vals

Jónas Þór Næs, landsliðsmaður frá Færeyjum, hefur gengið til liðs við Val og er annar Færeyingurinn sem kemur til liðsins. Sá þriðji er á reynslu hjá félaginu.

Wenger: Úrslit dagins eru mikil vonbrigði

Arsene Wenger er allt annað en sáttur með lærisveina sína í Arsenal sem töpuðu mjög óvænt á heimavelli gegn nýliðum Newcastle í dag. Það var Andy Carroll sem skoraði eina mark leiksins og hefur Wenger áhyggjur af frammistöðu liðsins á heimavelli.

FCK hefndi fyrir bikartapið

FCK vann í dag auðveldan 4-0 sigur á Horsens í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu og hefndi þar með fyrir óvænt tap fyrir liðinu í bikarkeppninni í síðasta mánuði.

Balotelli skoraði tvö og fékk að líta rautt í sigri City

Ítalinn Mario Balotelli var heldur betur í sviðsljósinu á Hawthorns vellinum, heimavelli West Brom, sem beið lægri hlut fyrir milljarðaliði Manchester City, 0-2. Carlos Tevez var óvænt í byrjunarliði City og lagði upp fyrsta markið sem Balotelli skoraði á 20. mínútu.

Roma hafði betur gegn nágrönnunum í Lazio

Það var sannkallaður nágrannaslagur þegar Lazio og Roma mættust á Ólympíuleikvangnum í Róm í dag. Roma hafði betur gegn toppliði Lazio, 0-2, og voru það Marco Borriello og Mirko Vucinic sem skoruðu mörkin í síðari hálfleik.

Hearts vann Edinborgarslaginn

Eggert Gunnþór Jónsson heldur áfram að gera það gott á Easter Road, heimavelli Hibernian í Edinborg.

Drogba á bekknum gegn Liverpool – Torres og Gerrard byrja

Liverpool og Chelsea mætast í stórleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Liverpool hefur farið afleitlega af stað í ensku deildinni í vetur en hafa verið að leika betur á undanförnum vikum. Þeir höfðu betur gegn Napoli í Evrópudeildinni á fimmtudag þar sem Steven Gerrard skoraði þrennu.

Frækinn sigur Newcastle gegn Arsenal á Emirates

Newcastle vann frækinn sigur á Arsenal, 0-1, á Emirates vellinum í dag og kemst fyrir vikið upp í 4. sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Arsenal voru miklu mun betri í leiknum en náðu ekki að skapa sér mörg færi gegn sterki vörn nýliðanna.

Swansea hafði betur í Wales-slagnum

Swansea hafði betur gegn Cardiff í toppslag í ensku B-deildinni í dag. Leikurinn er ekki síður merkilegur fyrir þær sakir að bæði lið eru frá Wales.

Molinari hafði betur gegn besta kylfingi heims í Kína

Ítalinn Francesco Molinari sigraði á HSBC Champions golfmótinu sem lauk í morgun í Sanghæ, Kína. Molinari lék samtals á 19 höggum undir pari og lék einu höggi betur en besti kylfingur heims, Englendingurinn Lee Westwood, sem varð annar. Þeir tveir voru í algjörum sérflokki í mótinu.

Jón Arnór góður í naumu tapi

Granada tapaði 60-57 fyrir Menorka í spænsku úrvalsdeildinni en liðið var 51-38 undir þegar 7 mínútur voru eftir. 19-9 endasprettur liðsins hófst á þriggja stiga körfu frá Jóni Arnóri.

Van Persie í leikmannahópi Arsenal

Robin van Persie er í leikmannahópi Arsenal sem mætir Newcastle í ensku úrvalsdeildinni í dag. Þetta er í fyrsta sinn sem hann er í hópnum síðan í lok ágúst en hann hefur verið að glíma við ökklameiðsli.

Houllier: Carew er heimskur

Gerard Houllier, stjóri Aston Villa, hefur svarað fyrir sig eftir að hann var gagnrýndur af hinum norska John Carew, leikmanni liðsins.

Háspenna í Formúlu 1 titilslag í dag

Það verður mögnuð stemmning á meðal fjörugra áhorfenda á Jose Carlos Pace (Interlagos) í Brasilíu í dag, þar sem Fernando Alonso getur tryggt sér meistaratitilinn í Formúlu 1, en þrír keppinauta hans eru þó framar á ráslínu og vilja hindra að slíkt gerist í dag. Aðeins tveimur mótum er ólokið og fimm ökumenn eiga enn möguleika á titilinum.

FC Dallas sló út meistarana

FC Dallas gerði sér lítið fyrir og sló út núverandi meistara í MLS-deildinni, Real Salt Lake, í úrslitakeppni deildarinnar í nótt.

Button slapp undan vopnuðum ræningjum

Formúlu 1 heimsmeistarinn Jenson Button og föruneyti hans slapp undan vopnuðum ræningjum sem gerðu tilraun til að nálgast bíl sem hann var farþegi í eftir tímatökuna á Interlagos brautinn í Brasiíu í gær. Hann var á ferð með föður sínum og tveimur öðrum samkvæmt tilkynningu frá McLaren liðinu, en autosport.com fjallaði um málið.

Wenger hefur áhyggjur af Diaby

Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, viðurkennir að hann hafi áhyggjur af Abou Diab og að hann viti ekki hvenær hann muni spila á ný.

Tevez neitar frétt um þunglyndi

Talsmaður Carlos Tevez segir það alrangt að Carlos Tevez hafi verið í meðferð hjá sálfræðingi eins og kom fram í enska götublaðinu The Sun í gær.

Nani missir af baráttunni um Manchester

Sir Alex Ferguson hefur staðfest að Portúgalinn Nani muni missa af nágrannaslag United og City í Manchester sem fram fer á miðvikudag. Hann var ekki í liði United sem hafði nauman 2-1 sigur á Wolves í gær og verður frá næstu vikuna hið minnsta.

Sjá næstu 50 fréttir