Fleiri fréttir

Hamilton stefnir á tvo titla

Lewis Hamilton hjá McLaren vann óvæntan sigur í dag, eftir afhroð Red Bull liðsins, en ökumennirnir Mark Webber og Sebastian Vettel óku hver á annan þegar þeir voru í fyrsta og öðru sæti.

Ólafur: Sáttur með eitt stig í Eyjum

Ólafur Kristjánsson, þjálfari Blika, var sáttur með eitt stig í Eyjum í dag gegn ÍBV. Liðin gerðu 1-1 jafntefli í fimmtu umferð Pepsi-deildarinnar.

Prandelli næsti þjálfari Ítalíu

Staðfest er að Cesare Prandelli verður næsti þjálfari Ítalíu en Marcello Lippi hættir eftir HM í Suður Afríku í sumar.

Vettel og Webber ósamála um áreksturinn

Sebastian Vettel og Mark Webber eru ekki sammála um atburðarrásina í Formúlu 1 mótinu í Tyrklandi í dag. Vettel segist ekki hafa gert mistök þegar hann reyndi framúrakstur á Webber, en þeir voru í forystu í mótinu og aka báðir fyrir Red Bull.

Blikar og Eyjamenn gerðu jafntefli

ÍBV og Breiðablik gerðu 1-1 jafntefli í Pepsi-deild karla í dag. Leiknum var að ljúka í Eyjum en hann var mjög fjörugur.

Alfreð og Aron unnu Meistaradeild Evrópu með Kiel

Kiel var rétt í þessu að tryggja sér sigur í Meistaradeild Evrópu í handknattleik. Alfreð Gíslason stýrir liðinu og var að vinna sinn fyrsta Meistaradeildartitil. Sömu sögu er að segja af Aroni Pálmarssyni.

Áfrýjun Keflvíkinga um undanþágu fyrir markmann líka hafnað

Það er nú orðið endanlega ljóst að Keflvíkingar fá ekki að fá Henrik Bödker lánaðan frá Þrótti, eins og félagið vildi gera. KSÍ neitaði Keflvíkingum um undanþágu, bæði framkvæmdastjórinn sem og Félagaskipta- og samninganefnd þangað sem Suðurnesjamenn áfrýjuðu.

Sjálfsmörk tryggðu Englandi sigur á Japan

England vann Japan 2-1 í vináttulandsleik sem fram fór í Austurríki í dag. Japanir komust yfir í leiknum en Frank Lampard misnotaði vítaspyrnu þegar hann hefði getað jafnað metin.

Ronaldo: Allir sem elska fótbolta elska mig

Ronaldo, Portúgalinn geðþekki, segir pressuna vera meiri þegar hann spilar fyrir landslið sitt en fyrir félagsliðið Real Madrid. Hann er þó vanur pressunni en Ronaldo verður fyrirliði á HM í sumar.

Björgvin vann eftir bráðabana

Björgvin Sigurbergsson úr GK vann fyrsta stigamót GSÍ-mótaraðarinnar eftir umspil við Kristján Þór Einarsson úr GKj. Þeir spiluðu báðir á 138 höggum eða á tveimur undir pari.

Margrét Lára skoraði tvö í dag

Kristianstad vann í dag sigur á Örebro 3-1 og er komið í þriðja sæti sænsku kvennadeildarinnar. Elísabet Gunnarsdóttir þjálfar liðið en Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði tvö mörk í leiknum.

Hamilton vann í dramatískri keppni

Bretinn Lewis Hamilton landaði sigri í Formúlu 1 mótinu í Tyrklandi, eftir mikla dramatík á milli Red Bull ökumannanna Mark Webber og Sebastian Vettel, sem leiddu mótið en lentu í árekstri.

Valdís vann í Vestmannaeyjum

Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni bar sigur úr býtum á Flugfélags Íslands mótinu en keppni í kvennaflokki er nýlokið. Leikið var í Vesmannaeyjum.

Zlatan gæti haft áhuga á Englandi

Zlatan Ibrahimovic er enn orðaður við sölu til Englands þrátt fyrir tilraunir Barcelona að segja að hann verði ekki seldur. David Villa var keyptur í síðustu viku og hvernig þeir báðir eiga að vera í byrjunarliðinu er mörgum umhugsunarefni.

Kobe tryggði Lakers titilinn og sæti í úrslitunum

Kobe Bryant átti stórleik þegar Los Angeles Lakers tryggði sæti sitt gegn Boston í úrslitarimmunni um NBA-titilinn í nótt. Lakers lagði Phoenix Suns 111-103 og er þar með meistari í Austurdeild NBA.

Titilslagurinn galopinn í Istanbúl í dag

Formúlu 1 mótið í Istanbúl fer fram í dag og Martin Whitmarsh hjá McLaren segir að allt sé galopið hvað titilslaginn varðar, eftir að Lewis Hamilton stakk sér á milli Mark Webber og Sebastian Vettel á ráslínunni.

West Ham vill David Beckham lánaðan

Annar eigenda West Ham segist vilja fá David Beckham til félagsins að láni. Hann spurðist einnig fyrir um Joe Cole en hann hefur ekki áhuga á West Ham.

Sir Alex finnur sjálfur eftirmann sinn

Sir Alex Ferguson mun hjálpa til við að finna eftirmann sinn hjá Manchester United. Þetta segir stjórnarformaður félagsins, David Gill.

Slök rásstaða Ferrari í tímamótakeppni

Ferrari eru aðeins í áttunda og tólfta sæti á ráslínu í mótinu á Istanbúl brautinni á morgun, Felipe Massa á undan Fernando Alonso. Liðið hafði einfaldlega ekki hraðann sem þarf í sjálfu afmælistmóti liðsins, en Ferrari ræsir af stað í 800 skipti á sunnudag.

Júlíus: Stelpurnar okkar eiga kvöldið

Íslenska kvennalandsliðið er á leiðinni heim á hótel í Eurovision partý. „Þær eiga kvöldið,“ sagði þjálfarinn Júlíus Jónasson kampakátur við Vísi rétt í þessu.

Gunnleifur: Tók vel á því í upphituninni

„Er ég ekki örugglega maður leiksins?" sagði markvörðurinn Gunnleifur Gunnleifsson hress og kátur eftir 4-0 sigurinn gegn Andorra í vináttulandsleik á Laugardalsvelli í dag.

Íslenska kvennalandsliðið komst á Evrópumótið í desember

Íslenska kvennalandsliðið hefur náð þeim frábæra árangri að komast á Evrópumótið í Noregi og Danmörku sem fer fram í desember á þessu ári. Ísland mátti tapa með fjórum mörkum til að komast áfram en tapaði með þremur.

Ólafur Björn á fimm undir í Eyjum

Íslandsmeistarinn Ólafur Björn Loftsson er á fimm höggum undir pari eftir fyrri hringinn á Flugfélags Íslands-mótinu, fyrsta mótinu í Íslandsmeistaramótaröðinni, sem fer fram í Vestmannaeyjum.

Sigfús Páll Sigfússon aftur í Fram

Sigfús Páll Sigfússon er genginn í raðir Fram á nýjan leik. Hann kemur til liðsins frá Val. Hann gerði tveggja ára samning við Fram en hann var samningslaus hjá Val.

Webber kátur, Vettel hundfúll

Mark Webber náði besta tíma í tímatökum í þriðja mótinu í röð og hefur unnið tvö síðustu mót á sannfærandi hátt. Hann er með forystu í stigamótinu ásamt Sebastian Vettel, liðsfélaga sínum sem ræsir þriðji af stað í Istanbúl kappakstrinum í Tyrklandi á morgun.

Umfjöllun: Þolinmæðissigur á leiðinlegasta liði Evrópu

Sigur Íslands á Andorra í dag var öruggur og aldrei í hættu. Andorra er líklega með eitt allra leiðinlegasta landslið sem undirritaður hefur séð spila á Laugardalsvelli, en strákarnir pirruðu sig ekki á því og kláruðu verkefnið vel. 4-0 sigur niðurstaðan.

1. deild: Fyrsti sigur Gróttu

Grótta vann sinn fyrsta sigur í 1. deild karla í knattspyrnu í dag. Gróttan vann þá öruggan og góðan 4-1 sigur á Fjarðabyggð fyrir austan.

Real greiddi Inter 8 milljónir Evra fyrir Mourinho

Jose Mourinho er tekinn við Real Madrid eins og allir vita. Það tók sinn tíma að staðfesta það þar sem Real og Inter deildu um hversu mikið spænska félagið þyrfti að borga því ítalska.

Öruggur 4-0 sigur Íslands

Ísland vann Andorra 4-0 í æfingaleik sem var að ljúka á Laugardalsvelli. Heiðar Helguson skoraði tvö mörk og Veigar Páll Gunnarsson og Kolbeinn Sigþórsson sitt markið hvor.

Ólafur Loftsson byrjar vel í Eyjum

Íslandsmótið í golfi hófst í morgun í Vestmannaeyjum. Fyrstu kylfingar fóru út klukkan 7.40 en blíðskaparveður er í Eyjum.

Sjá næstu 50 fréttir