Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Milliriðillinn klár hjá U-19 liði Íslands Í kvöld komst á hreint hvaða lið leika í milliriðli með íslenska U-19 ára landsliðinu í handbolta á opna Evrópumótinu sem fram fer í Gautaborg í Svíþjóð. Íslenska liðið mætir Tékkum, Slóvenum, Norðmönnum og Eistlandi í riðlinum og leiktímana má sjá hér fyrir neðan. 4.7.2007 19:49
Defoe ætlar ekki að fara frá Tottenham Framherjinn Jermaine Defoe hjá Tottenham ætlar ekki að láta það á sig fá þó liðið hafi keypt Darren Bent frá Charlton fyrir metfé á dögunum og ætlar að berjast áfram fyrir sæti sínu í liðinu á komandi leiktíð. 4.7.2007 18:53
Henin í undanúrslit Justin Henine, stigahæsta tenniskona heims, tryggði sér í dag sæti í undanúrslitaleik Wimbledon mótsins þegar hún bar sigurorð af Serenu Williams frá Bandaríkjunum 6-4 3-6 og 6-3. Williams átti við meiðsli að stríða en barðist af miklum krafti. Henin mætir Marion Bartoli í undanúrslitum. 4.7.2007 18:16
Bellamy líklega á útleið Framherjinn Craig Bellamy virðist ekki eiga mikla framtíð fyrir sér hjá Liverpool ef marka má viðtal sem tekið var við Rafa Benitez knattspyrnustjóra í dag, eftir að hann gekk frá samningi við Fernando Torres. 4.7.2007 17:18
West Ham samþykkir tilboð í Reo-Coker Enska úrvalsdeildarfélagið West Ham samþykkti í dag 8,5 milljón punda kauptilboð Aston Villa í miðjumanninn Nigel Reo-Coker. Coker gengur væntanlega í raðir Villa á næsta sólarhring, en hann á eftir að standast læknisskoðun og skrifa undir samning við Villa. Hann er 23 ára gamall og gekk í raðir West Ham frá MK Dons árið 2004. 4.7.2007 17:13
Venus lagði Sharapovu Bandaríska tenniskonan Venus Williams tryggði sér í dag sæti í fjórðungsúrslitum á Wimbledon mótinu þegar hún vann baráttusigur á Mariu Sharapovu frá Rússlandi 6-1 og 6-3 eftir að leiknum hafði verið frestað vegna rigningar. Williams er þrefaldur sigurvegari á mótinu en Sharapova hefur unnið það einu sinni. 4.7.2007 17:06
Landsmótið sett annað kvöld Risalandsmót UMFÍ verður haldið í Kópavogi dagana 5. - 8. júlí. Ungmennafélag Íslands fagnar 100 ára afmæli sínu og af því tilefni er efnt til stærsta landsmóts sem haldið hefur verið hér á landi. 4.7.2007 16:52
Inter hætt við að kaupa Chivu Inter Milan hefur hætt við að kaupa rúmenska varnarmanninn Cristian Chivu frá Roma. Forráðamenn Inter segja verðmiðann á leikmanninum einfaldlega of háan en Roma vill fá 18 milljónir evra fyrir hann. Real Madrid og Barcelona eru einnig sögð hafa áhuga á varnarmanninum en ljóst er að hann fer ekki til Inter í bráð. 4.7.2007 16:00
Nördaleikurinn á föstudaginn Á föstudag fer fram stórleikur milli íslensku og sænsku nördanna á Kópavogsvelli - þar sem nýja stúkan verður jafnframt vígð. Landslið íslensku nördanna hyggur þá á hefndir, eftir ófarir A-landsliðsins í Svíþjóð á dögunum. 4.7.2007 15:11
Torres kominn til Liverpool Spænski landsliðsmaðurinn Fernando Torres hefur nú gengið formlega í raðir Liverpool á Englandi sem keypti hann fyrir metfé frá Atletico Madrid - 3,35 milljarða króna. Torres er 23 ára og skrifaði í dag undir 6 ára samning við enska félagið. Hann er dýrasti leikmaður í sögu Liverpool og ljóst að pressan verður gríðarleg á þessum unga leikmanni á næstu leiktíð. 4.7.2007 14:55
Ivanovic bráðnaði þegar hún sá Jack Bauer Serbneska tenniskonan Ana Ivanovic hefur þegar tryggt sér sæti í fjórðungsúrslitunum á Wimbledon-mótinu þrátt fyrir að vera aðeins 19 ára gömul. Henni varð mikið um þegar hún sá þá Kiefer Sutherland og David Beckham fylgjast með sér leggja Nadiu Petrovu. 4.7.2007 14:10
Nýtt veðmál hjá Ronaldo og Ferguson Breska blaðið The Sun greinir frá því í dag að Cristiano Ronaldo hjá Manchester United ætli að leggja enn meira undir í ár en í fyrra í árlegu veðmáli sínu við Alex Ferguson knattspyrnustjóra. Ronaldo veðjaði 400 pundum á að hann næði að skora 15 mörk í deildinni á síðustu leiktíð og vann - þar sem hann skoraði 17 mörk. 4.7.2007 14:03
Hilderbrand ætlar sér stóra hluti hjá Valencia Þýski landsliðsmarkvörðurinn Timo Hildebrand var kynntur til sögunnar sem nýr markvörður spænska liðsins Valencia í dag. Hann stefnir ótrauður á að velta Santiago Canizares úr sessi sem markvörður númer eitt hjá liðinu eftir að hann kom frá Stuttgart í dag. 4.7.2007 13:41
40 hafa náð draumahögginu í ár Það sem af er golfvertíð 2007 eru komnar 40 tilkynningar til skrifstofu GSÍ um holu í höggi. Einhverjir fleiri en þeir sem eru á listanum hér fyrir neðan hafa eflaust náð draumahögginu í ár en ekki tilkynnt það á réttu eyðublaði og sent til GSÍ. Á meðan að svo er ekki er afrekið ekki viðurkennt af Einherjaklúbbnum og því ekki skráð. 4.7.2007 13:36
Calderon vill Robben eða Malouda Ramon Calderon, forseti Real Madrid, hefur gefið það út á heimasíðu félagsins að hann sé ákveðinn í að landa annað hvort Arjen Robben frá Chelsea eða Florent Malouda frá Lyon í sumar. Chelsea hefur blásið á fullyrðingar Calderon varðandi Arjen Robben, en félögin eru bæði sögð á eftir Malouda. "Þeir spila sömu stöðu og við munum því aðeins kaupa annan þeirra," sagði Calderon brattur að vanda. 4.7.2007 13:33
Nadal fúll þrátt fyrir sigur Spænski tenniskappinn Rafael Nadal vann mjög nauman sigur á Robin Soderling á Wimbledon-mótinu í dag eftir að leik þeirra hafði verið frestað ótt og títt vegna veðurs. Nadal gagnrýndi mótshaldara fyrir lélegt skipulag í kring um rigningarnar og furðaði sig á því af hverju leikurinn var ekki kláraður fyrr. 4.7.2007 13:23
Torres mætir á Anfield í dag Dýrasti knattspyrnumaður í sögu Liverpool verður kynntur formlega til sögunnar á Anfield í dag þegar framherjinn Fernando Torres mun formlega ganga í raðir félagsins. Torres hefur þegar setið blaðamannafund í heimalandinu þar sem hann kvaddi stuðningsmenn Atletico Madrid, en heilsar rauða hernum í dag eftir að hafa verið keyptur á rúma 3,3 milljarða króna. 4.7.2007 13:17
Eriksson hitti leikmenn City í dag Sven-Göran Eriksson, fyrrum landsliðsþjálfari Englendinga, hitti leikmenn Manchester City í fyrsta skipti á æfingasvæði liðsins í dag. Búist er við því að Eriksson skrifi undir samning um að gerast stjóri liðsins um leið og Thaksin Shinawatra nær að klára yfirtöku sína á félaginu, en það gæti gerst í dag eða á morgun. Shinawatra þarf að eignast 75% hlut í félaginu til að svo geti orðið, en hann hefur þegar tryggt sér rúmlega 65% hlut í félaginu. 4.7.2007 13:14
Piltalandsliðið sigraði í riðlinum Íslenska piltalandsliðið í handbolta skipað leikmönnum 19 ára og yngri lagði Moldavíu 19-15 í lokaleik sínum í E-riðli opna Evrópumótsins í morgun og tryggði sér þar með sigur í riðlinum. Næstu tvo daga leikur liðið í milliriðli á mótinu en ekki skýrist hverjir mótherjarnir verða fyrr en síðar í dag. 4.7.2007 13:08
Pizarro skaut Perú í 8-liða úrslit Framherjinn Claudio Pizarro sem nýverið gekk í raðir Chelsea var hetja Perúmanna í nótt þegar hann skoraði bæði mörk sinna manna í 2-2 jafntefli gegn Bólivíu í Copa America. Venesúela og Úrúgvæ gerðu einnig jafntefli 0-0 í A-riðlinum og komast bæði áfram í 8-liða úrslit. 4.7.2007 13:01
Fabregas sáttur hjá Arsenal Spænski landsliðsmaðurinn Cesc Fabregas hjá Arsenal hefur nú tekið af allan vafa um framtíð sína hjá félaginu og segist ánægður í röðum liðsins. Hann segist vilja vera áfram í Lundúnum. 4.7.2007 12:58
Ívar framlengir við Reading Enska úrvalsdeildarfélagið Reading tilkynnti í dag að það hefði náð samkomulagi við fjóra af leikmönnum sínum um að framlengja samninga sína. Einn þeirra er landsliðsmaðurinn Ívar Ingimarsson sem er nú samningsbundinn Reading til ársins 2010. Þá framlengdu þeir James Harper, Shane Long og Simon Cox einnig samninga sína við félagið. 4.7.2007 12:54
FH-ingar á sigurbraut á ný Íslandsmeistarar FH komust aftur á sigurbraut í Landsbankadeildinni kvöld þegar þeir lögðu Víkinga 4-1 á heimavelli sínum í Kaplakrika. Þá unnu Framarar annan sigur sinn í deildinni í sumar þegar þeir báru sigurorð af Breiðablik 1-0 á Laugardalsvellinum. 3.7.2007 21:24
Torres stóðst læknisskoðun Spænski landsliðsmaðurinn Fernando Torres stóðst læknisskoðun hjá Liverpool og verður kynntur til sögunnar á morgun sem nýr leikmaður liðsins. Sagt er að kaupvirðið sé 26,5 milljónir punda eða 3,35 milljarðar króna og að leikmaðurinn muni skrifa undir sex ára samning við þá rauðu eftir að hafa spilað allan sinn feril með Atletico Madrid á Spáni. 3.7.2007 19:03
Eggert Magnússon: Gott að þessu er lokið Eggert Magnússon, stjórnarformaður West Ham, sagðist ánægður í dag þegar í ljós kom að West Ham héldi sæti sínu í ensku úrvalsdeildinni eftir að kröfu Sheffield United vegna Carlos Tevez var vísað frá. Forráðamenn United vildu að liðið héldi sæti sínu í úrvalsdeildinni þrátt fyrir fall á þeim grunni að West Ham hefði teflt fram ólölgleum leikmanni í vor. 3.7.2007 16:39
Alonso: Ég get náð Hamilton Heimsmeistarinn Fernando Alonso segist vel geta náð félaga sínum Lewis Hamilton hjá McLaren í stigakeppni ökuþóra í Formúlu 1, þú breska ungstirnið hafi á hann 14 stiga forystu það sem af er mótinu. 3.7.2007 16:32
Íslenska liðið í efsta sæti Íslenska U-19 ára piltalandsliðið í handbolta vann í dag 23-16 sigur á Austurríkismönnum í öðrum leik sínum á opna Evrópumótinu í Gautaborg. Ísland hafði yfir 11-10 í hálfleik en átti góðan endasprett líkt og í leiknum við Ungverja í morgun. Ólafur Bjarki Ragnarsson skoraði 6 mörk fyrir íslenska liðið og Orri Freyr Gíslason 5. Íslenska liðið er efst í E-riðli eftir fyrsta keppnisdaginn. 3.7.2007 16:28
Rúrik samdi við Viborg Landsliðsmaðurinn Rúrik Gíslason gerði í dag þriggja ára samning við danska úrvalsdeildarfélagið Viborg, en hann var með lausa samninga hjá enska félaginu Charlton. Rúrik var með samning undir höndum hjá danska félaginu í gær og skrifaði undir hann í dag. Stjórnarformaður félagsins sagðist í gær vongóður um að landa Rúrik og sagði félagið hafa mikinn áhuga á að ganga frá samningi við hann. 3.7.2007 15:12
Elding eyðilagði hús Tiger Woods Tiger Woods missti á föstudaginn hús sem hann átti í Florida. Elding fór í húsið og gjöreyðilagði það. Tiger keypti 12 hektara jörð í Jupiter Island í Flórída í janúar í fyrra, en þar eru fyrir nokkur hús og kostaði jörðin um 38 milljónir bandaríkjadala. 3.7.2007 15:05
Meistarinn úr leik Sigurgöngu Amelie Mauresmo á Wimbledon-mótinu lauk í dag þegar hún tapaði 7-6 (8-4), 4-6 og 6-1 fyrir hinni tékknesku Nicole Vaidisovu í fjórðu umferðinni. Leiknum var frestað fjórum sinnum vegna rigninga en hinn 18 ára Vaidisova vann að lokum sannfærandi sigur í síðasta settinu og tryggði sér sæti í fjórðungsúrslitunum á mótinu. Þetta var þriðji sigur Vaidisovu á Mauresmo í röð. 3.7.2007 15:01
Icelandair styrkir knattspyrnufélögin í Landsbankadeildinni Icelandair og öll liðin í Landsbankadeildinni í knattspyrnu skrifa í dag undir samstarfssamning, sem felur í sér að nú geta stuðningsmenn og áhangendur liðanna styrkt sín lið fjárhagslega með því að bóka flug beint á heimasíðu síns liðs. Á heimasíðum allra liðanna verður beinn aðgangur að bókunarvél Icelandair á netinu. 3.7.2007 14:57
Juventus ekki á eftir Lampard Claudio Ranieri segir Juventus ekki vera á höttunum eftir miðjumanninum Frank Lampard hjá Chelsea eins og haldið hefur verið fram í fjölmiðlum. Hann segir að þó Lampard sé frábær leikmaður, vanti Juventus aðeins miðvörð í leikmannahóp sinn fyrir átökin á næstu leiktíð. 3.7.2007 14:15
Sheffield United fær ekki sæti í úrvalsdeild Sheffield United mun ekki fá sæti í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð eftir að beiðni þeirra um að stig yrðu dregin af West Ham var vísað frá í dag. Forráðamenn Sheffield United leituðu réttar síns því þeim þótti West Ham hafa teflt Argentínumanninum Carlos Tevez fram ólöglega á síðustu leiktíð. 3.7.2007 13:42
Rashard Lewis samþykkir að fara til Orlando Magic Framherjinn Rashard Lewis hjá Seattle Supersonics hefur tjáð forráðamönnum Orlando Magic að hann vilji skrifa undir samning við félagið. Lewis er með lausa samninga hjá Seattle í sumar eftir að hafa skorað yfir 22 stig að meðaltali fyrir Seattle síðasta vetur. 3.7.2007 12:44
Argentína í 8-liða úrslitin Argentínumenn tryggðu sér í nótt sæti í 8-liða úrslitunum í Suður-Ameríkubikarnum í knattspyrnu þegar liðið vann 4-2 sigur á Kólumbíu eftir að hafa lent undir í leiknum. Juan Roman Riquelme skoraði tvö mörk fyrir Argentínu í leiknum eftir að Hernan Crespo jafnaði úr vítaspyrnu og Diego Milito tryggði sigurinn með marki í lokin. 3.7.2007 12:31
Ísland burstaði Ungverja Íslenska handboltalandsliðið skipað piltum yngri en 19 ára vann í morgun sinn fyrsta leik á opna Evrópumótinu í Gautaborg í Svíþjóð þegar það burstaði Ungverja 23-14. Íslenska liðið hafði yfir 11-9 í hálfleik en tók öll völd á vellinum í þeim síðari. Anton Rúnarsson var markahæstur í íslenska liðinu með 8 mörk. Liðið mætir Austurríkismönnum síðar í dag. 3.7.2007 12:14
Stjóri Derby framlengir Billy Davies, stjóri Derby County, hefur samþykkt að framlengja samning sinn við félagið um eitt ár og er nú samningsbundinn Derby til ársins 2010. Hann stýrði liðinu upp í ensku úrvalsdeildina í vor en orðrómur hafði verið uppi um að nýr maður yrði fenginn til að taka við liðinu. Skotinn Davies hefur verið í brúnni hjá Derby síðan 2006 þegar hann kom frá Preston. 3.7.2007 12:04
Garcia skrifar undir hjá Atletico Spænski landsliðsmaðurinn Luis Garcia hefur skrifað undir þriggja ára samning við spænska félagið Atletico Madrid, en hann fer þangað í skiptum fyrir Fernando Torres. Kaupverðið er sagt vera um 4 milljónir punda. Garcia gekk í raðir Liverpool frá Barcelona árið 2004 og skoraði 30 mörk í 121 leik fyrir félagið. 3.7.2007 11:59
Geremi á leið til Newcastle Miðjumaðurinn Geremi hefur samþykkt að ganga í raðir Newcastle frá Chelsea á frjálsri sölu og á nú aðeins eftir að fá atvinnuleyfi svo að af félagskiptunum geti orðið. Geremi er 28 ára gamall landsliðsmaður Kamerún og hefur verið í röðum Chelsea frá árinu 2003. 3.7.2007 11:53
SuperMoto æfing í Hafnarfirði SuperMoto æfing verður í Rallýcross brautinni í Hafnarfirði á fimmtudaginn kl 19.00. Nú verður tímatökubúnaður og því hvetjum við alla að koma með sendana, eða redda sér sendum. 3.7.2007 10:09
Torres í læknisskoðun í dag Fernando Torres, leikmaður Atletico Madrid, mun fara til Liverpool í dag til þess að gangast undir læknisskoðun og skrifa undir samning sinn við félagið. Líklegt er að hann verði kynntur fjölmiðlum strax á morgun. 3.7.2007 08:49
Gæti verið í hóp í kvöld Svo gæti farið að varnarmaðurinn sterki, Milos Glogovac, verði í leikmannahópi Víkings í kvöld í fyrsta sinn á leiktíðinni. Hann meiddist skömmu fyrir upphaf móts en Víkingur mætir FH í kvöld. 3.7.2007 00:01
Stefán til Bröndby í vikunni Allar líkur eru á því að Stefán Gíslason, leikmaður Lyn í Noregi, gangi til liðs við danska úrvalsdeildarliðið Bröndby á allra næstu dögum, jafnvel í þessari viku. Lyn hefur þegar staðfest kauptilboð Bröndby eftir því sem Arnór Guðjohnsen, umboðsmaður Stefáns, sagði við Fréttablaðið í gær. 3.7.2007 00:01
FH getur komið sér á réttan kjöl Í kvöld fara fram tveir leikir í Landsbankadeild karla. Íslandsmeistarar FH taka á móti Víkingum og Fram mætir Breiðabliki á Laugardalsvelli. Báðir leikirnir hefjast klukkan 19.15. 3.7.2007 00:01
Úrslit úr leikjum dagsins hér heima Þrír leikir fóru fram í Landsbankadeild kvenna í kvöld. Toppliðin Valur og KR unnu sína leiki ásamt því að Fjölnir vann Keflavík. Einnig var heil umferð spiluð í 1. deild karla. 2.7.2007 22:17