Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ronaldo leikmaður mánaðarins Portúgalski vængmaðurinn Cristiano Ronaldo hjá Manchester United var í dag kjörinn leikmaður mánaðarins í ensku úrvalsdeildinni, annan mánuðinn í röð. Ronaldo er aðeins þriðji leikmaðurinn í sögu úrvalsdeildarinnar til að hljóta verðlaunin tvisvar í röð, en áður höfðu Robbie Fowler (´96) og Dennis Bergkamp (´97) hlotið þann heiður. 11.1.2007 19:06
Allardyce stjóri mánaðarins Sam Allardyce hjá Bolton var í dag kjörinn knattspyrnustjóri mánaðarins í ensku úrvalsdeildinni. Undir stjórn Allardyce vann Bolton fimm leiki í röð í desember og er nú komið í hörkubaráttu um sæti í Evrópukeppninni eftir slaka byrjun. Þetta er í fjórða skipti sem Allardyce er kjörinn stjóri mánaðarins síðan hann tók við Bolton árið 1999. 11.1.2007 19:02
Boykins á leið til Milwaukee Minnsti leikmaðurinn í NBA deildinni, leikstjórnandinn Earl Boykins hjá Denver Nuggets, er á leið til Milwaukee Bucks ásamt framherjanum Julius Hodge í skiptum fyrir bakvörðinn Steve Blake. Þetta er fyrst og fremst ráðstöfun til að spara peninga af hálfu Denver, en Milwaukee liðið er í gríðarlegum meiðslavandræðum þessa dagana. 11.1.2007 17:58
Koma David Beckham gríðarlega þýðingarmikil Don Garber, forseti bandarísku atvinnumannadeildarinnar í knattspyrnu, segir ekki hægt að mæla mikilvægi þess að David Beckham muni spila í deildinni á næstu leiktíð. Hann segir þetta stórt skref í framþróun deildarinnar og knattspyrnu í Bandaríkjunum í heild. 11.1.2007 17:41
Stuðningsmenn Getafe enn til vandræða Quique Sanchez Flores, þjálfari Valencia, er æfur yfir stuðningsmönnum Getafe eftir að hópur þeirra gerði sig sekan um kynþáttaníð í garð varnarmannsins Miguel í viðureign liðanna í bikarkeppninni á Spáni. Þetta er langt frá því að vera í fyrsta skipti sem stuðningsmenn Getafe eru gagnrýndir fyrir kynþáttaníð. 11.1.2007 17:24
Diawara og O´Brien skipta um félög Varnarmaðurinn Souleymane Diawara hjá Charlton var í dag sendur til Portsmouth í skiptum fyrir írska landsliðsmanninn Andy O´Brien. Hvorugur leikmaðurinn hefur náð að festa sig í sessi hjá félagi sínu til þessa og standa vonir manna til að vistaskiptin hjálpi þeim að hleypa lífi í ferilinn á ný. 11.1.2007 17:17
Los Angeles Galaxy Í dag varð ljóst að enski knattspyrnumaðurinn David Beckham mun ganga í raðir Los Angeles Galaxy í amerísku atvinnumannadeildinni næsta sumar. Það er því ekki úr vegi að skoða aðeins sögu félagsins, sem er eitt tíu upprunalegra atvinnumannaliðanna í MLS deildinni. 11.1.2007 16:20
Liverpool kaupir ungan Svía Liverpool hefur gengið frá kaupum á sænska unglingalandsliðsmanninum Astrit Ajdarevic frá Falkenberg í Svíþjóð. Leikmaðurinn er aðeins 16 ára gamall og talinn mikið efni. Kaupverðið er sagt á bilinu 1-2,5 milljónir punda, háð því hve vel honum gengur að sanna sig í herbúðum enska liðsins. 11.1.2007 16:05
Segja Beckham fá 18 milljarða fyrir fimm ára samning Reuters fréttastofan greinir frá því að samningurinn sem David Beckham gerir við LA Galaxy sé einn allra stærsti samningur sem sögur fara af í sögu atvinnuíþrótta, því hann muni fá meira en 18 milljarða króna fyrir samninginn. 11.1.2007 15:32
Beckham skrifar undir samning við LA Galaxy David Beckham hefur náð samkomulagi við forráðamenn bandaríska knattspyrnufélagsins LA Galaxy og gengur í raðir liðsins í vor. Beckham staðfesti við Reuters að hann væri búinn að skrifa undir fimm ára samning. 11.1.2007 14:57
LA Galaxy í viðræðum við Beckham Talsmaður amerísku atvinnumannadeildarinnar í knattspyrnu hefur greint frá því að forráðamenn Los Angeles Galaxy séu í viðræðum við David Beckham um að ganga í raðir liðsins. Beckham er enn í viðræðum við Real Madrid um nýjan samning, en ekki er talið að hann verði hjá Madrid lengur en fram á vor í mesta lagi. 11.1.2007 14:48
Charlton kaupir Thatcher Enska úrvalsdeildarliðið Manchester City samþykkti í dag kauptilboð Charlton í varnarmanninn Ben Thatcher og gengið verður frá kaupunum ef Thatcher samþykkir kaup og kjör. Thatcher er 31 árs gamall og má teljast góður að fá að ganga laus eftir grófa líkamsárás á knattspyrnuvellinum í byrjun leiktíðar. 11.1.2007 14:40
Portsmouth kaupir Traore Enska úrvalsdeildarfélagið Portsmouth er duglegt á leikmannamarkaðnum þessa dagana og í morgun gekk það frá kaupum á Malímanninum Djimi Traore frá Charlton. Traore hefur ekki gert gott mót í veru sinni hjá Charlton en hann var áður hjá Liverpool. Kaupverðið er 1 milljón punda og hefur hann gert tveggja og hálfs árs samning. 11.1.2007 14:35
Mourinho fær ekki að kaupa leikmenn Jose Mourinho segist ekki ætla að selja einn einasta leikmann frá liði Chelsea í janúar því sér hafi verið bannað að styrkja hópinn. Hann hefði ætlað sér að kaupa sóknar- og varnarmann, en nú virðist vera komið upp vandamál í sambandi Mourinho og stjórnar félagsins. 11.1.2007 14:29
Wade kemur Miami til bjargar Hinn magnaði Dwyane Wade hjá meisturum Miami er kominn aftur á fulla ferð eftir að missa úr fjóra leiki vegna meiðsla og segist ekki hafa verið eins ferskur lengi. Það sýndi sig í nótt þegar hann tryggði Miami 107-103 sigur á Seattle með því að skora 14 af 29 stigum sínum á síðustu 8 mínútunum. 11.1.2007 14:08
Fjórir menn ákveða laun formanns KSÍ en aðeins sex vita upphæðina Aðeins sex einstaklingar vita hversu há laun formaður Knattspyrnusambands Íslands, KSÍ, hefur hverju sinni og laun formannsins eru ákveðin af framkvæmdastjórn KSÍ en formaður þeirrar stjórnar er formaður KSÍ, Eggert Magnússon. 11.1.2007 11:30
Dusty Klatt ekki brotinn "Þetta lítur betur út en á horfðist" segir Dusty Klatt um byltuna sem hann átti í annari umferð í minni flokknum í Anaheim síðastliðina helgi. Dusty Klatt sem var gríðarlega sterkur í tímatökum og átti eina hröðustu hringina datt þegar þegar hann var í svokölluðum þvottabretta-kafla. 11.1.2007 11:22
10 dagar í úrtöku Meistaradeildar Nú eru aðeins 10 dagar í að úrtaka fyrir Meistaradeild VÍS fer fram í Ölfushöll á Ingólfshvoli, en hún verður haldin laugardaginn 20. janúar næstkomandi. Það er mikill hugur í mönnum fyrir úrtökuna og keppast menn nú í hverju horni að þjálfa þann klár sem stefna skal með í úrtökuna. 11.1.2007 09:16
Gylfi Freyr í axlaraðgerð Gylfi Freyr Guðmundsson, núverandi Íslandsmeistari í Mótorkrossi, gekkst nýverið undir aðgerð á öxl, en Gylfi átti við þrálát meiðsl að stríða undir lok síðasta keppnistímabils. Aðgerðin heppnaðist vel og reiknar Gylfi með að geta beitt sér að fullu í sumar. 11.1.2007 01:50
Ragnar Ingi áfram hjá KTM Ragnar Ingi Stefánsson, nífaldur Íslandsmeistari í Mótorkrossi, mun keppa fyrir KTM í sumar. Ragnar ók KTM 525 keppnishjóli s.l. sumar og átti ágætt tímabil en reiknar með því að aka nýrri týpu, KTM 505 í sumar en það er útboruð keppnisútgáfa af hinu vinsæla 450 hjóli frá KTM. 11.1.2007 01:18
Bikarmeistararnir fá ÍR í heimsókn Í kvöld var dregið í undanúrslit bikarkeppninnar í körfubolta. Bikarmeistarar Grindavíkur í karlaflokki mæta þá ÍR og Hamar/Selfoss fær heimaleik gegn Keflavík. Í kvennaflokki mætast annarsvegar Keflavík og Hamar og hinsvegar Grindavík og Haukar. Leikirnir fara fram í lok mánaðarins. 10.1.2007 23:34
Wycombe náði jöfnu gegn Chelsea Kraftaverkalið Wycombe heldur áfram að koma á óvart í enska deildarbikarnum og í kvöld náði liðið 1-1 jafntefli gegn Chelsea á heimavelli sínum. Wayne Bridge kom Chelsea yfir í fyrri hálfleik, en hinn magnaði Jermaine Easter jafnaði metin fyrir Wycombe, sem er þremur deildum neðar en Chelsea í töflunni. Easter hefur nú skorað í öllum leikjum liðsins í keppninni. Síðari leikur liðanna er svo á Stamford Bridge. 10.1.2007 21:58
Ójafn leikur í kvennakörfunni Tveir leikir fóru fram í efstu deild kvenna í körfubolta í kvöld þar sem grannarnir Grindavík og Keflavík völtuðu yfir andstæðinga sína. Keflavík rótburstaði Breiðablik 128-44 og Grindavík lagði Hamar 96-50. Keflavík hefur tveggja stiga forskot á Hauka á toppi deildarinnar en Íslandsmeistararnir eiga leik til góða. Grindavík er svo í þriðja sætinu. 10.1.2007 21:53
Hauka lögðu ÍBV Einn leikur var á dagskrá í DHL-deild kvenna í kvöld. Haukastúlkur lögðu ÍBV 35-28 á Ásvöllum. Liðin eru á svipuðu róli í deildinni en Haukar eru í fjórða sætinu með 16 stig, en ÍBV í því fimmta með 11 stig. 10.1.2007 21:50
Marcelo frá í sex vikur Bakvörðurinn ungi Marcelo hjá Real Madrid verður frá keppni í um sex vikur eftir að hann meiddist á ökkla í 2-0 tapi Real gegn Deportivo í spænsku deildinni um síðustu helgi. Marcelo gekk í raðir Real frá Fluminese í heimalandi sínu Brasilíu um leið og janúarglugginn opnaði. 10.1.2007 20:37
Webber á leið frá Philadelphia Segja má að vorhreingerningarnar hefjist snemma hjá liði Philadelphia 76ers þetta árið en félagið er í þessum töluðu orðum að ganga frá því að kaupa framherjann Chris Webber út úr samningi sínum. Webber er 34 ára gamall og orðinn nokkuð lúinn sem leikmaður, en á hvorki meira né minna en 43 milljónir eftir á samningi sínum sem gildir út næsta keppnistímabil. 10.1.2007 19:35
Mijatovic tekur orð sín til baka Yfirmaður knattspyrnumála hjá Real Madrid, Predrag Mijatovic, hefur dregið ummæli sín við Sky sjónvarpsstöðina í dag til baka og segir ekkert til í þeim fréttaflutningi að David Beckham sé á förum frá stórliðinu. 10.1.2007 19:29
Souness leggur fram formlegt tilboð í Wolves Hópur fjárfesta undir stjórn fyrrum knattspyrnustjórans Graeme Souness lagði í dag fram formlegt yfirtökutilboð í knattspyrnufélagið Woves. Tilboðið hljóðar upp á 20 milljónir punda og þykir áhugavert fyrir þær sakir að aðeins Englendingar koma að því, en mikið veður hefur verið gert á Englandi vegna mikilla umsvifa erlendra fjárfesta í knattspyrnunni þar í landi. 10.1.2007 19:24
Kári Árnason til Danmerkur Landsliðsmaðurinn Kári Árnason hjá Djurgarden í Svíþjóð gengur í raðir danska liðsins AGF í Árósum um helgina ef marka má fréttir frá Danmörku. Langt er síðan ljóst varð að Kári yrði ekki áfram í herbúðum sænska liðsins og nú er útlit fyrir að leikmaðurinn gangi í raðir hins fornfræga danska liðs á næstu dögum. 10.1.2007 19:14
Tveir leikir í beinni í kvöld Sjónvarpsstöðvar Sýnar verða með tvær beinar útsendingar í fótboltanum í kvöld og hefjast þær báðar klukkan 19:50. Fyrri leikur Wycombe og Chelsea í undanúrslitum enska deildarbikarsins verður sýndur á Sýn og á Sýn Extra verður fyrri leikur Alaves og Barcelona í spænska bikarnum, þar sem Eiður Smári Guðjohnsen verður væntanlega í byrjunarliði Katalóníuliðsins. 10.1.2007 19:02
Klose vill ekki fara hvert sem er Þýski landsliðsframherjinn Miroslav Klose segir aðeins fimm félög koma til greina fyrir sig ef hann ákveði að yfirgefa herbúðir Werder Bremen í sumar eins og flestir reikna með. Klose hefur verið orðaður við fjölda stórliða eftir að ljóst varð að hann ætlaði ekki að framlengja við Bremen. 10.1.2007 18:57
Portsmouth fær miðjumann að láni Enska úrvalsdeildarfélagið Portsmouth hefur fengið miðjumanninn Arnold Mvuemba að láni frá franska liðinu Rennes út leiktíðina. Mvuemba þessi er 21 árs gamall og ef hann stendur sig vel á Englandi gæti farið svo að Portsmouth gengi frá kaupum á honum í sumar. 10.1.2007 18:52
Jákvæðar fréttir hjá Everton Lið Everton fékk þær góðu fréttir í dag að miðjumaðurinn Tim Cahill sé orðinn heill á ný eftir meiðsli og svo gæti farið að hann fengi strax sæti í byrjunarliðinu á ný eftir að Everton tapaði illa í síðasta leik. David Moyes hefur boðað breytingar í kjölfarið og þá fékk félagið þau tíðindi í dag að meiðsli bakvarðarins Nuno Valente væru ekki eins alvarleg og talið var í fyrstu - svo gæti farið að hann missti aðeins úr tvo leiki. 10.1.2007 18:48
Mills frjálst að fara frá City Stuart Pearce, stjóri Manchester City, segir að varnarmanninum Danny Mills sé frjálst að fara frá félaginu. Mills missti sæti sitt í hendur hins unga og efnilega Micah Richards og hefur verið sem lánsmaður hjá Hull City í 1. deild í tvo mánuði. Þar hefur hann staðið sig vel og sagt er að félagið hafi áhuga á að ganga frá kaupum á leikmanninum. 10.1.2007 18:45
Pires að ná sér Franski miðjumaðurinn Robert Pires hjá Villarreal er nú óðum að ná sér af hnémeiðslum sínum, níu mánuðum eftir að hann gekk í raðir spænska liðsins frá Arsenal. Pires hefur enn ekki spilað alvöruleik með Villarreal eftir að hann meiddist á hné í æfingaleik í sumar en er nú búinn í endurhæfingu og fær væntanlega tækifæri með liðinu fljótlega. 10.1.2007 18:41
Benitez kvartar yfir peningaleysi Rafa Benitez, stjóri Liverpool, segir að félagið hafi ekki nógu mikla peninga úr að moða til að geta fjárfest í ungum og efnilegum leikmönnum. Leikmannakaup stjórans á liðnum árum voru gagnrýnd nokkuð í breskum blöðum í dag í kjölfar ófara liðsins í leikjunum tveimur gegn Arsenal. 10.1.2007 17:21
Stutt í endurkomu Petr Cech Nú styttist óðum í endurkomu markvarðarins Petr Cech hjá Chelsea, en hann hefur ekki spilað leik í þrjá mánuði eftir að hann höfuðkúpubrotnaði í leik gegn Reading í október. Markvörðurinn segist vera kominn í fínt form en bíður eftir að fá endanlega græna ljósið frá læknum til að fá að spila á ný. 10.1.2007 17:16
Treyja Kobe Bryant orðin vinsælust á ný Svo virðist sem vinsældir körfuboltamannsins Kobe Bryant séu aftur að ná hámarki, en samkvæmt nýjustu tölum frá Bandaríkjunum á hann nú söluhæstu keppnistreyjuna á markaðnum í dag. Bryant var á toppnum árið 2003, en Dwyane Wade hjá Miami hirti toppsætið árið 2005 og hafði haldið því síðan. Treyja LeBron James er í þriðja sætinu og liðsfélagarnir Allen Iverson og Carmelo Anthony hjá Denver eru í fjórða og fimmta sæti. 10.1.2007 16:44
Luis Garcia spilar ekki meira í vetur Spánverjinn Luis Garcia hjá Liverpool verður ekki meira með liðinu á leiktíðinni eftir að hann sleit krossbönd í hné í leiknum gegn Arsenal í bikarnum í gær. Garcia getur ekki spilað fótbolta í amk 6 mánuði vegna þessa. Þá verður félagi hans Mark Gonzalez frá í um þrjár vikur vegna meiðsla sem hann hlaut í sama leik. 10.1.2007 16:38
Búið að velja í stjörnuliðin Nú er búið að velja í stjörnulið karla og kvenna í körfubolta, en árlegir stjörnuleikir fara fram í DHL-höllinni í vesturbænum á laugardaginn. Kvennaleikurinn er klukkan 14 og karlaleikurinn klukkan 16. Blandað er í liðum í kvennaflokki en hjá körlunum er það úrvalslið Íslendinga gegn úrvalsliði Íslands. Þá verða skotkeppnin og troðkeppnin á sínum stað ef næg þáttaka verður. 10.1.2007 16:28
Raikkönen ætlar ekki að breyta um stíl Finnski ökuþórinn Kimi Raikkönen segist ekki ætla að breyta um stíl eftir að hann gekk í raðir Ferrari frá McLaren í Formúlu 1, hvorki utan vallar né innan. Raikkönen hefur verið gagnrýndur af Formúlusérfræðingum fyrir að taka ekki nógu vel leiðsögn og fyrir að taka íþróttina ekki nógu alvarlega. 10.1.2007 16:08
Wenger og Ljungberg ósáttir Sænska dagblaðið Expressen hefur eftir vini Freddy Ljungberg hjá Arsenal að Arsene Wenger knattspyrnustjóri sé að bola honum frá félaginu. Wenger á að hafa gert Svíanum það ljóst að hann hafi spilað sinn síðasta leik fyrir Arsenal. 10.1.2007 15:59
Ullrich á að snúa aftur til æfinga Erik Zabel, fyrrum liðsfélagi hjólreiðakappans Jan Ullrich, segir að honum ætti í það minnsta að vera gert kleift að æfa á meðan ekki þykir fullsannað að hann hafi neytt ólöglegra lyfja. Ullrich var rekinn frá liði T-mobile eftir að rannsókn var hrundið á stað í tengslum við harðar ásakanir um lyfjamisnotkun. 10.1.2007 15:52
Wie á ekki möguleika í karlana Ástralinn Stuart Appleby segir að ungstirnið Michelle Wie eigi ekki möguleika á að keppa á karlamótum og segir allt of snemmt fyrir hana að reyna fyrir sér á þeim vettvangi. Wie tekur þátt í sínu 13. móti um næstu helgi sem fram fer á Havaí. 10.1.2007 15:44
Venus Williams missir af opna ástralska Meiðslakálfurinn Venus Williams getur ekki tekið þátt í opna ástralska meistaramótinu í tennis vegna handameiðsla. Williams er aðeins í 48. sæti á styrkleikalistanum eftir að hafa vermt toppsætið í eina tíð. Stigahæsta tenniskona heims, Justine Henin-Hardenne, getur heldur ekki tekið þátt vegna meiðsla. 10.1.2007 15:40