Sport

Dusty Klatt ekki brotinn

Dusty Klatt
Dusty Klatt

"Þetta lítur betur út en á horfðist" segir Dusty Klatt um byltuna sem hann átti í annari umferð í minni flokknum í Anaheim síðastliðina helgi. Dusty Klatt sem var gríðarlega sterkur í tímatökum og átti eina hröðustu hringina datt þegar þegar hann var í svokölluðum þvottabretta-kafla.

"Þetta var stórskrítið" sagði Dusty. "Ég var búinn að vera mjög öruggur á þessum kafla, bæði á æfingum og í tímatökum, en svo missti ég framdekkið í endabarð og hjólið endastakkst og ég lenti undir því" segir Dusty. Talið var að Dusty hafi brotið úlnið og farið úr lið á öxl. Dusty er illa marinn en óbrotinn og það mun skýrast á næstu dögum hvort hann geti verið með í næstu umferð Supercross í Pheonix.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×