Sport

Ragnar Ingi áfram hjá KTM

Ragnar Ingi á KTM
MYND/supersport.is

Ragnar Ingi Stefánsson, nífaldur Íslandsmeistari í Mótorkrossi, mun keppa fyrir KTM í sumar. Ragnar ók KTM 525 keppnishjóli s.l. sumar og átti ágætt tímabil en reiknar með því að aka nýrri týpu, KTM 505 í sumar en það er útboruð keppnisútgáfa af hinu vinsæla 450 hjóli frá KTM.

Ragnar gekkst undir erfiða aðgerð á báðum hnjám fyrir síðasta tímabil og gat lítið beitt sér fyrri part sumars. Síðan lenti hann í slæmu fingurbroti og missti af draum sínum um að verða Íslandsmeistari í Mótorkrossi í 10. skipti. Aðspurður segist hann sjaldan hafa hjólað jafn mikið á vetrarmánuðum og nú og reiknar með að koma sterkur inn í baráttuna í sumar. Hann ætlar sér sinn 10. titil í sumar og þrátt fyrir að vera kominn á fimmtugsaldur segist hann sjaldan hafa verið sprækari en einmitt nú.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×