Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Romanov tekur til í herbúðum félagsins Tveir æðstu menn í stjórn knattspyrnuliðsins Hearts í skosku úrvalsdeildinni eru farnir frá félaginu. Vladimir Romanov, nýr eigandi liðsins, hefur heldur betur látið til sín taka og rak í dag Phil Anderton, yfirmann knattspyrnumála. Í kjölfarið ákvað George Foulkes að segja af sér í mótmælaskyni og því hafa þrír menn verið flæmdir frá félaginu á nokkrum dögum. 31.10.2005 19:00
Prince semur við Detroit Framherjinn Tayshaun Prince hefur framlengt samning sinn við Detroit Pistons til fimm ára og fær fyrir það um 47 milljónir dollara í laun. Samningar milli umboðsmanns Prince og félagsins náðust á elleftu stundu, en ef það hefði ekki tekist, hefði Prince verði með lausa samninga næsta sumar. 31.10.2005 18:00
Tekinn fullur á bílnum um helgina Vandræðagemlingurinn El Hadji Diouf hjá Bolton er enn kominn í fréttirnar fyrir agabrot og nú fyrir ölvunarakstur. Diouf var stöðvaður af lögreglu snemma á sunnudagsmorguninn og var látinn blása, þar sem í ljós kom að hann var undir áhrifum áfengis. 31.10.2005 17:00
Baðst afsökunar en fær sekt Lauren Robert hefur verið sektaður um óuppgefna upphæð fyrir að neita að vera á varamannabekk liðsins í leiknum gegn Sunderland á laugardaginn. Robert hefur beðist afsökunar á atvikinu, en hann lýsti því yfir skömmu fyrir leikinn að hann væri meiddur og gæti ekki spilað. 31.10.2005 16:00
Arsene Wenger er eins og gluggagægir Arsene Wenger og Jose Mourinho, knattspyrnustjórar Lundúnaliðanna Arsenal og Chelsea, munnhöggvast nú sem aldrei fyrr í fjölmiðlum og í morgun sagði Jose Mourinho að Wenger væri eins og gluggagægir að fylgjast með liði Chelsea. 31.10.2005 15:00
Yfirtaka á næsta leiti hjá Aston Villa Stuðningsmenn Aston Villa bíða þess nú í ofvæni að írska stórfyrirtækið Comer Homes Group kaupi hlaut Doug Ellis í félaginu og trúa að það muni hafa í för með sér að Villa komi sér á kortið með stóru liðunum á Englandi. 31.10.2005 12:15
Börsungar í stuði í gær Barcelona smellti sér í annað sæti spænsku deildarinnar í gær þegar liðið burstaði Real Sociedad 5-0. Osasuna er í efsta sæti deildarinnar eftir 2-0 á Espanyol í gær. 31.10.2005 11:00
Souness bjartsýnn Graeme Souness, knattspyrnustjóri Newcastle, segir að liðið sé að komast á beinu brautina eftir sigurinn á WBA í gær og setur stefnuna á eitt af efstu sætunum í úrvalsdeildinni í vetur. 31.10.2005 09:00
Fyrsta tap Grindvíkinga Nokkrir leikir voru á dagskrá í úrvalsdeild karla í körfuknattleik í gærkvöldi og þá var einn leikur í kvennaflokki, þar sem Haukastúlkur skelltu Íslandsmeisturum Keflavíkur í Hafnarfirði, 66-48. 31.10.2005 06:00
Getum engan unnið Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United sýndi leikmönnum liðsins enga miskunn í viðbrögðum sínum við niðurlægjandi 4-1 tapi fyrir Middlesbrough í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær. Hann segir að Man Utd geti ekki unnið nokkurt einasta lið í því formi sem liðið er í þessa dagana. 30.10.2005 19:45
Owen með tvö í sigri Newcastle Newcastle lyfti sér upp í 10. sæti ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í kvöld með 3-0 sigri á W.B.A. en þetta var eini leikurinn á dagskrá deildarinnar í dag. Michael Owen skoraði tvívegis fyrir Newcastle. 30.10.2005 17:58
Bjarni ekki með Plymouth Bjarni Guðjónsson var ekki í leikmannhópi Plymouth sem gerði markalaust jafntefli við Millwall í ensku 1. deildinni í fótbolta í dag. Plymouth er nú í fjórða neðsta sæti af 24 liðum deildarinnar með 16 stig, fjórum stigum á undan botnliði Millwall. 30.10.2005 17:04
McGinley fagnaði sigri Skoski kylfingurinn Colin Montgomerie varð efstur á peningalistanum í evrópsku mótaröðinni í golfi sem lauk með Volvo Masters mótinu á Spáni í dag. Írinn Paul McGinley fagnaði besta árangri sínum á 14 ára ferli á evrópsku mótaröðinni og fór með sigur á mótinu en hann lauk keppni á 10 undir pari. 30.10.2005 16:38
Aftur í efstu deild eftir 40 ár Sandefjord tryggði sér í dag sæti í efstu deild í norska fótboltanum í fyrsta skipti í 40 ár. Sandefjord náði með sigrinum 2. sæti í 1. deild með 4-3 sigri á Moss í dag en Sandefjord hefur ekki leikið í efstu deild síðan 1965. Andreas Tegström skoraði þrennu fyrir Sandefjord sem lenti 1-0 undir í leiknum en komst í 2-4 með mörkum Tegström á 73. mínútu og gífurleg fagnaðarlæti brutust út. 30.10.2005 15:46
Veigar skoraði tvö fyrir Stabæk Veigar Páll Gunnarsson lék allan leikinn og skoraði tvö af mörkum Stabæk sem valtaði yfir Pors Grenland, 8-1 í lokaumferð 1. deildar í norska fótboltanum í dag. Veigar skoraði samtals 13 mörk í deildinni þetta tímabilið og varð þriðji markahæsti leikmaðurinn. 30.10.2005 15:28
Lampard er bestur í heimi Jose Mourinho knattspyrnustjóri Chelsea segir að Frank Lampard sé besti leikmaður í heimi í dag. Lampard átti enn einn stórleikinn fyrir Chelsea í 4-2 sigrinum á Blackburn í gær og skoraði tvö mörk og hefur nú alls skorað 100 mörk. Mourinho segir að Lampard geti einfaldlega ekki orðið betri. 30.10.2005 15:06
Guðjón ósáttur þrátt fyrir sigur Guðjón Þórðarson er langt frá því að vera sáttur við leik sinna manna þrátt fyrir 3-2 sigur Notts County á Bury í ensku D-deildinni í fótbolta í gær. Notts County komst í 3-0 með þrennu frá Glyyn Hurst og var þetta fyrsti sigur liðsins í rúma tvo mánuði. 30.10.2005 14:37
Heil umferð í kvöld Heil umferð er á dagskrá í úrvalsdeild karla í körfuknattleik í kvöld og hefjast allir leikirnir klukkan 19.15. Þrjú lið eru taplaus fyrir leiki kvöldsins, topplið Grindavíkur sem heimsækir ÍR, Njarðvík í 2. sæti sem heimsækir Þór á Akureyri og Keflavík í 3. sæti sem tekur á móti KR. 30.10.2005 14:03
Montgomerie og Garcia efstir Skotinn Colin Montgomerie og Spánverjinn Sergio Garcia eru efstir og jafnir að loknum 54 holum á lokamóti Evrópsku mótaraðarinnar í golfi. Colin Montgomerie lék á 70 höggum í gær og er samtals á tíu höggum undir pari. 30.10.2005 13:56
Móðgaði lestarstjóra Hinn litríki fyrrverandi landsliðsþjálfari Ítala, Giovanni Trapattoni er ekki að afla sér vinsælda í Þýskalandi þar sem hann stýrir Bundesliguliði Stuttgart við slæman orðstír. Hann er ekki bara í ónáðinni hjá stuðningsmönnum liðsins sem hefur byrjað tímabilið skelfilega heldur hefur honum nú tekist að reita til reiði lestarstjóra í landinu. 30.10.2005 13:11
Fyrsta tap Juventus AC Milan skellti Juventus, 3-1, í risaslag ítalska fótboltans í gærkvöldi en leikið var á San Siro í Milano. Clarence Seedorf, Kaka og Andrea Pirlo skoruðu fyrir Milan í fyrri hálfleik en David Trezeguet minnkaði muninn fyrir Juve stundarfjórðungi fyrir leikslok. Þetta var fyrsta tap Juve á tímabilinu en þeir höfðu unnið alla níu leiki sína fyrir leikinn. 30.10.2005 10:15
Real Madrid á toppinn Vængbrotið lið Real Madrid vann mikilvægan útisigur á Real Betis 0-2 í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gærkvöld. Robinho og Alvaro Mejia skoruðu mörkin í sitthvorum hálfleiknum. Það vantaði nokkra lykilmenn hjá Madrid í leiknum eins og Ronaldo, Zidane og David Beckham. 30.10.2005 09:30
Grétar Rafn lék allan leikinn Grétar Rafn Steinsson lék allann tímann með AZ Alkmaar þegar liðið vann Ado Den Haag á útivelli 0-2 í hollensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær. Alkmaar er í öðru sæti með 24 stig, einu stigi á eftir PSV Eindhoven sem lagði Twente 0-1 í gær. 30.10.2005 07:15
Stórsigur Boro á Man Utd Middlesboro niðurlægði Manchester United með 4-1 sigri í ensku úrvalsdeildinni í knattpsyrnu nú í kvöld þar sem Gaizka Mendieta skoraði tvívegis fyrir heimamenn. 29.10.2005 18:23
Árni Gautur norskur meistari Árni Gautur Arason varð í dag norskur meistari í fóbolta með liði sínu Vålerenga á dramatískan hátt. Liðið lauk keppni efst með 46 stig eftir 2-2 jafntefli á útivelli við Odd Grenland, einu stigi á undan Jóhannesi Harðarsyni og félögum í Start sem tapaði óvænt fyrir Fredrikstad, 3-1 á heimavelli. 29.10.2005 18:14
Dómarinn eyðilagði leikinn Chris Coleman knattspyrnustjóri Fulham var æfur af reiði yfir frammistöðu dómarans Andre Marriner þegar liðið tapaði fyrir Wigan í ensku úrvalsdeildinni í dag. 29.10.2005 17:22
Loksins sigur hjá Notts County Notts County, lið Guðjóns Þórðarsonar vann loks sigur í ensku 3. deildinni í fótbolta í dag þegar liðið sigraði Bury, 2-3 á útivelli. Glynn Hurst skoraði þrennu fyrir County sem hafði ekki fagnað sigri síðan 29. ágúst eða slétta tvo mánuði. Með sigrinum lyftu strákarnir hans Guðjóns sér upp í 12. sæti deildarinnar þar sem liðið er með 22 stig, aðeins 9 stigum á eftir toppliði Leyton Orient sem vann Oxford 1-0 í dag. 29.10.2005 16:51
Brynjar skoraði fyrir Reading Brynjar Björn Gunnarsson skoraði eina mark Reading sem gerði 1-1 jafntefli við Leeds í ensku 1. deildinni í fótbolta í dag. Brynjar kom sínum mönnum yfir á 63. mínútu en var skipt út af á 83. mínútu. Ívar Ingimarsson lék allan leikinn með Reading að venju en hjá Leeds var Gylfi Einarsson ekki í hópnum vegna leikbanns. 29.10.2005 16:36
Fyrsti sigur Everton í 2 mánuði Everton vann sinn annan sigur á tímabilinu í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag þegar liðið vann 0-1 útisigur á Birmingham. Simon Davies skoraði eina mark leiksins á 43. mínútu fyrir Everton sem hafði ekki unnið leik í deildinni síðan 21. ágúst. Chelsea vann Blackburn 4-2 og lék Eiður Smári síðustu 12 mínúturnar. 29.10.2005 16:14
Start eða Vålerenga? Lokaumferðin í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu hefst nú kl. 16 í dag og er óhætt að segja að háspenna ríki í tveimur leikjanna. Start er í efsta sæti með jafnmörg stig og Vålerenga, bæði með 45 stig.Árni Gautur Arason er í byrjunarliði Vålerenga og það er Jóhannes Harðarson einnig í liði Start. 29.10.2005 15:45
Djurgården vann tvöfalt Kári Árnason lék síðustu 20 mínúturnar með Djurgården sem tryggði sér nú síðdegis sænska bikarmeistaratitilinn í fótbolta með 2-0 sigri á Åtvidabergs í úrslitaleiknum. Sölvi Ottesen var ekki í leikmannahópi Djurgården sem með sigrinum vann tvöfalt í Svíþjóð en liðið varð á dögunum sænskur meistari. 29.10.2005 15:22
Eiður á bekknum hjá Chelsea Eiður Smári Guðjohnsen er á varamannabekk Chelsea sem er 2-1 yfir gegn Blackburn eftir aðeins 16 mínútna leik í ensku úrvalsedildinni í fótbolta í dag. Hermann Hreiðarsson er að sjálfsögðu í burjunarliði Charlton sem tekur á móti Bolton. 29.10.2005 14:23
Jafntefli hjá Arsenal og Tottenham Tottenham og Arsenal gerðu 1-1 jafntefli í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Wigan er í 2. sæti deildarinnar með 22 stig eftir að liðið vann sinn 5. sigur í röð í deildinni fyrr í dag með naumum 1-0 sigri á Fulham. 29.10.2005 14:03
3 marka sigur á Norðmönnum Íslenska handboltalandsliðið sigraði Norðmenn, 26-23 í morgun á 4 liða æfingamótinu í Póllandi og tryggðu sér þar með sigur á mótinu. Guðjón Valur var markahæsti leikmaður mótsins með 25 mörk en hann og Ólafur Stefánsson voru valdir í úrvalslið mótsins. 29.10.2005 13:47
Coppell styður Ívar Steve Coppell, knattspyrnustjóri enska 1. deildarliðsins Reading segist fullkomlega sáttur við þá ákvörðun Ívars Ingimarssonar að gefa kost á sér í íslenska landsliðið á ný. Coppell sýnir ákvörðun Ívars mikinn skilning en hann dró sig út úr landsliðshópnum í ágúst 2004 þar sem landsliðsþjálfararnir Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson höfðu ekki valið hann reglulega í byrjunarliðið. 29.10.2005 13:14
Helgi Jónas og Damon Bailey hættir Úrvalsdeildarlið Grindavíkur í körfubolta hefur orðið fyrir mikilli blóðtöku. Helgi Jónas Guðfinnsson hefur mjög óvænt gefið það út að hann ætli að taka sér frí frá spilamennsku um óákveðinn tíma og í ljósi þess, auk meiðsla Jóhanns Ólafssonar, hefur félagið ákveðið að segja upp samningi við Bandaríkjamanninn Damon Bailey. 28.10.2005 19:15
Keflavík tapaði í Lettlandi Keflvíkingar töpuðu öðrum leik sínum í röð í Evrópukeppninni nú áðan, gegn lettneska liðinu BK Riga 99-81. Næsti leikur Keflvíkinga verður við finnska liðið Lapperanta í Keflavík á fimmtudaginn. 28.10.2005 18:15
Kominn tími til að vinna Arsenal "Arsenal er eitt besta lið síðustu tíu ára í deildinni og við höfum ekki unnið þá í sex ár, þannig að nú er kominn tími til að snúa þeirri þróun við. Við erum fyrir ofan þá í töflunni núna og vonandi getum við haldið þeirri stöðu," sagði Martin Jol. 28.10.2005 17:15
Jafntefli gegn Dönum Íslenska landsliðið í handknattleik gerði jafntefli við Dani 32-32 á æfingamótinu í Póllandi nú áðan. Leikurinn var jafn og spennandi allan tímann, en íslenska liðið hafði yfir 17-16 í hálfleik. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 8 mörk fyrir Ísland, en Alexander Petersons kom næstur með 6 mörk. Ólafur Stefánsson, Einar Hólmgeirsson og Róbert Gunnarsson skoruðu allir 4 mörk. 28.10.2005 16:30
Benitez ætlar að kaupa leikmenn Rafa Benitez ætlar að kaupa miðvörð og hægri kantmann þegar félagaskiptaglugginn í enska boltanum opnast í janúar og segir að það hafi verið mistök að tryggja sér ekki leikmenn í stöðurnar í sumar. 28.10.2005 16:00
Ísland yfir gegn Dönum í hálfleik Íslenska landsliðið í handknattleik hefur yfir 17-16 gegn Dönum á æfingamóti sem haldið er í Póllandi þessa dagana. Guðjón Valur Sigurðsson er markahæstur í íslenska liðinu með 4 mörk í hálfleiknum. 28.10.2005 15:30
Bruce ætlar að versla í janúar Steve Bruce hefur sagt að hann muni fara fram á fé til leikmannakaupa til að styrkja lið Birmingham í janúar vegna mikilla meiðsla í herbúðum liðsins. Birmingham er í fallbaráttu sem stendur og það skrifa þeir fyrst og fremst á meiðsli lykilmanna. 28.10.2005 14:00
Útlitið hefur skánað lítillega Heilsa fyrrum knattspyrnumannsins George Best hefur batnað örlítið til hins betra í dag að sögn lækna, en hann hefur legið þungt haldinn á sjúkrahúsi í London. 28.10.2005 12:30
Getafe missti af toppsætinu Spútniklið Getafe missti af tækifæri sínu til að komast á topp spænsku fyrstu deildarinnar í knattspyrnu í gærkvöld, þegar liðið steinlá á útivelli gegn Real Sociedad 3-0. Mörkin komu öll í fyrri hálfleiknum, en þó leikur lærisveina Bernd Schuster hafi skánað í þeim síðari, náðu þeir ekki að rétta sinn hlut. 28.10.2005 09:00
Suðurnesjaliðin taplaus Grindavík og Njarðvík eru enn taplaus eftir leiki kvöldsins í Iceland Express-deild karla. Grindavík valtaði yfir Hamar/Selfoss 114-84 og Njarðvík vann nauman sigur á Haukum í Njarðvík 78-74. 27.10.2005 21:00
Sjáðu langt viðtal við Óskar eftir 6-1 tap: „Nauðsynlegt fyrir íslenskan fótbolta að KR verkefnið sé til“ Sport