Sport

Djurgården vann tvöfalt

Kári í leik með Djurgården.
Kári í leik með Djurgården. MYND/©Guðmundur Svansson

Kári Árnason lék síðustu 20 mínúturnar með Djurgården sem tryggði sér nú síðdegis sænska bikarmeistaratitilinn í fótbolta með 2-0 sigri á Åtvidabergs í úrslitaleiknum. Sölvi Ottesen var ekki í leikmannahópi Djurgården sem með sigrinum vann tvöfalt í Svíþjóð en liðið varð á dögunum sænskur meistari.

Þetta er í annað sinn á fjórum árum sem  Djurgården vinnur tvöfalt í Svíþjóð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×