Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Líkamsleifar pilts grafnar upp vegna Murdaugh-málsins Til stendur að grafa upp líkamsleifar Stephen Smith, sem var 19 ára þegar hann fannst látinn á sveitavegi nærri Moselle, heimili lögmannsins Alex Murdaugh. Fyrir tveimur vikum var Murdaugh fundinn sekur um að hafa myrt son sinn og eiginkonu. 20.3.2023 07:47
Munu eiga óformlegan fund í dag og snæða saman í kvöld Xi Jinping, forseti Kína, er væntanlegur til Moskvu eftir hádegi í dag þar sem hann mun eiga óformlegan fund með Vladimir Pútín Rússlandsforseta og snæða með honum kvöldverð. 20.3.2023 06:52
Grófu undan endurkjöri Carters og spiluðu með líf fimmtíu og tveggja gísla Fyrir rúmum fjórum áratugum tóku Demókratar á vegum Repúblikanans Ronalds Reagans þátt í því að koma í veg fyrir endurkjör Jimmy Carter, þáverandi forseta, með því að spila með líf 52 bandarískra gísla í Íran. Maður sem heitir Ben Barnes viðurkenndi nýverið að hann hefði tekið þátt í þessu verkefni. 19.3.2023 16:52
Ekkert lát á mótmælum í Frakklandi Ekkert lát er á mótmælum í Frakklandi vegna ákvörðunar forsetans Emmanuel Macron um að þröngva hækkun á eftirlaunaaldri þar í landi í gegnum þingið. Íbúar héldu út á götu í gærkvöldi, þriðja kvöldið í röð, og til átaka hefur komið milli mótmælenda og lögreglu. 19.3.2023 15:05
Grísk lögregla rænir og misþyrmir hælisleitendum kerfisbundið Gríska lögreglan misþyrmir og rænir flóttafólk með skipulögðum hætti. Hún hefur á síðustu árum stolið meira en tveimur milljónum evra af fólkinu. Grísk stjórnvöld hafa ennfremur flutt meira en 20.000 flóttamenn yfir til Tyrklands með ólögmætum hætti. 19.3.2023 14:31
Enn einni eldflauginni skotið frá Norður-Kóreu Enn einni eldflauginni var skotið frá Norður-Kóreu í morgun. Að þessu sinni var um að ræða skammdræga eldflaug og var henni skotið til austurs, á haf út frá Kóreuskaganum. 19.3.2023 10:07
Pútín fór óvænt til Maríupól í nótt Vladimír Pútín, forseti Rússlands, fór í óvænta heimsókn til Maríupól í Úkraínu í nótt. Þetta er í fyrsta sinn sem Pútín heimsækir nýlega hernumin svæði í Úkraínu, en hann ferðaðist til Krímskaga í gær. 19.3.2023 08:05
Tala látinna í Ekvador fer hækkandi: Hlupu skelfingu lostin út á götu Tala látinna vegna jarðskjálftans sem skók Ekvador og norðurhluta Perú í dag fer hækkandi. Þrettán hafa látið lífið og fleiri einstaklingar eru særðir. Fjölmargar byggingar skemmdust í skjálftanum. 19.3.2023 00:15
Minnst fjögur látin eftir að jarðskjálfti skók Ekvador Að minnsta kosti fjögur létu lífið í kjölfar jarðskjálfta að stærð reið yfir Ekvador í dag. Jarðskjálftinn átti upptök á um 65 kílómetra dýpi í grennd við bæinn Baláo. 18.3.2023 21:32
Pútin heldur upp á ólöglega innlimun Krímskaga Vladimír Pútín, forseti Rússlands, lenti óvænt á Krímskaga í dag. Þangað ku hann vera mættur til að halda upp á að níu ár eru frá „endursameiningu“ Krímskaga og Rússlands. 18.3.2023 14:56
Telur sig loks hafa fundið móður Leonardos Da Vinci Ítalskur sagnfræðingur hefur leyst meira en 500 ára ráðgátu um hver var móðir endurreisnarmálarans Leonardos Da Vinci. Hún var prinsessa og þræll sem rænt var frá heimkynnum sínum í barnæsku. 18.3.2023 14:30
Fundu líkamsleifar konu í frysti Lögreglan í Vermalandi í Svíþjóð fann hluta af líki konu í frystikistu á sveitabæ í fyrradag. Talið er að líkið hafi verið í frystinum í fjölda ára og karlmaður er sagður hafa játað að hafa myrt konuna. 18.3.2023 13:32
Trump segir að hann verði handtekinn Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, segir að hann verði handtekinn á þriðjudaginn. Það verði gert vegna rannsóknar á greiðslum hans til tveggja kvenna í aðdraganda forsetakosninganna 2016. 18.3.2023 12:40
Biden segir augljóst að Pútín sé sekur um stríðsglæpi Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, fagnar því að dómarar Alþjóðlega sakamáladómstólsins (ICC) hafi í gær gefið út handtökuskipun á hendur Vladimír Pútín, forseta Rússlands, fyrir stríðsglæpi í Úkraínu. Pútín er sakaður um að bera ábyrgð á því að fjöldi barna hafi verið flutt frá Úkraínu til Rússlands en Biden sagði augljóst að svo væri. 18.3.2023 09:57
Uppruni Covid: Spjótin beinast að marðarhundum en mikilvæg gögn hurfu Alþjóða heilbrigðismálastofnunin (WHO) gagnrýndi kínverska embættismenn í gær fyrir að hylma yfir rannsóknir sem gætu varpað ljósi á uppruna Covid-19. Forsvarsmenn WHO spurðu af hverju gögn sem birtust á netinu í janúar og hurfu aftur þegar vísindamenn fóru að spyrjast fyrir um þau, voru ekki birt strax fyrir þremur árum og af hverju þau voru fjarlægð aftur. 18.3.2023 07:52
Unglingur skaut tvo lögreglumenn til bana Sextán ára drengur skaut tvo lögreglumenn til bana í Edmonton í Kanada í gær. Því næst skaut hann sjálfan sig einnig til bana. 17.3.2023 22:16
Erdogan segist styðja aðild Finna að NATO Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, sagði í dag að tyrkneska þingið myndi greiða atkvæði um að samþykkja umsókn Finnlands um aðild að Atlantshafsbandalaginu. Ekki stendur til að samþykkja aðild Svía að svo stöddu og eru auknar líkur á því að Finnar gangi einir í NATO í bili. 17.3.2023 16:13
Gefa út handtökuskipun á hendur Pútín Dómarar Alþjóðlega sakamáladómstólsins (ICC) hafa gefið út handtökuskipun á hendur Vladimír Pútín, forseta Rússlands, fyrir stríðsglæpi í Úkraínu. Handtökuskipunin er gefin út vegna fjölda úkraínska barna sem rænt hefur verið til Rússlands. 17.3.2023 15:23
Ætla að granda herþotum sem sendar verða til Úkraínu Ráðamenn í Rússlandi segjast ætla að granda herþotum sem bakhjarlar Úkraínu gefa Úkraínumönnum. Pólverjar tilkynntu í gær að þeir ætluðu að senda minnst ellefu gamlar MiG-29 orrustuþotur til Úkraínu og ríkisstjórn Slóvakíu tilkynnti svo í dag að þaðan yrðu sendar þrettán þotur af sömu gerð. 17.3.2023 14:29
Málaliðar Wagner lýsa hryllilegum átökum við Bakhmut Ráðamenn á Vesturlöndum segja þúsundir rússneskra fanga, sem ráðnir hafa verið úr fangelsum landsins til að berjast fyrir málaliðahópinn Wagner Group, hafa fallið í átökum í Úkraínu. Föngunum var boðið frelsi í skiptum fyrir sex mánaða þjónustu og hefur fjölda fanga verið sleppt. 17.3.2023 12:08
Stal þyrlu en brotlenti henni strax Misheppnaður þyrluþjófur reyndi að ræsa fjórar þyrlur á flugvelli í Sacramento í Bandaríkjunum á miðvikudagsmorgun. Honum tókst að ræsa eina þeirra en brotlenti henni um leið og hann tók á loft. 17.3.2023 10:19
Knattspyrnumenn 50 prósent líklegri til að fá heilabilun Knattspyrnumenn eru 50 prósent líklegri til að fá heilabilun en annað fólk ef marka má nýja rannsókn við Karolinska-sjúkrahúsið í Svíþjóð. Niðurstöðurnar benda til þess að mögulega ætti að setja reglur um „skalla“ á knattspyrnuvellinum. 17.3.2023 09:17
Afstaða annarra óbreytt þrátt fyrir ákvörðun Pólverja Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, sagði í samtali við TV2 í gær að samræður ættu sér stað milli stjórnvalda á Vesturlöndum um þann möguleika að sjá Úkraínumönnum fyrir orrustuþotum. 17.3.2023 07:58
Xi heimsækir Pútín eftir helgi Xi Jinping Kínaforseti mun halda í opinbera heimsókn til Rússlands í næstu viku þar sem hann mun meðal annars eiga fundi með Vladimír Pútín Rússlandsforseta. 17.3.2023 07:45
Átök í París eftir ákvörðun um að þröngva umdeildu frumvarpi í gegnum þingið Til átaka kom á milli lögreglunnar í París og fleiri borgum Frakklands og mótmælenda í gærkvöldi eftir að ríkisstjórn Emmanuels Macrons forseta ákvað að þröngva breytingum á eftirlaunakerfinu í gegnum franska þingið án þess að greiða um það atkvæði. 17.3.2023 07:31
Týnda úranið mögulega fundið Hersveitir í austurhluta Líbíu segjast hafa fundið um tvö og hálft tonn af úrani sem leitað hafði verið. Alþjóðakjarnorkumálastofnunin (IAEA) hefur ekki staðfest fund hersveitanna. 16.3.2023 20:01
Pólverjar fyrstir til að senda orrustuþotur til Úkraínu Andrzej Duda, forseti Póllands, tilkynnti í dag að minnst ellefu MiG-29 orrustuþotur frá tímum Sovétríkjanna yrðu sendar til Úkraínu og að fjórar þeirra yrðu sendar á næstu dögum. Pólland varð þar með fyrsta aðildarríki Atlantshafsbandalagsins til að senda Úkraínumönnum orrustuþotur. 16.3.2023 16:19
Macron þvingar í gegn breytingar á lífeyriskerfi Franska ríkisstjórnin ákvað að þvinga í gegn óvinsælar breytinga á eftirlaunakerfi landsins rétt áður en atkvæðagreiðsla átti að fara fram um þær í neðri deild þingsins í dag. Ákvörðunin byggir á sérstöku stjórnarskrárákvæði. 16.3.2023 14:46
Kókaínframleiðsla jókst um þrjátíu og fimm prósent á einu ári Kókaínframleiðsla jókst um 35 prósent milli 2020 og 2021 og hefur aldrei verið meiri. Þetta kemur fram í niðurstöðum nýrrar rannsóknar á vegum Sameinuðu þjóðanna en þar segir að umfang kókaínsölu sé að aukast í Afríku. 16.3.2023 14:31
Tekist á um dánarbú Leonards Cohen Einkaerfingjar kanadíska ljóðskáldsins og tónlistarmannsins Leonards Cohen saka umboðsmann söngvarans um að reyna að ræna dánarbúinu innan frá. Dánarbúið er metið á tæpar 50 milljónir dala og þessa dagana er tekist á um það fyrir dómstólum í Los Angeles. 16.3.2023 14:01
Vísindamenn mótfallnir fyrirhugaðri kolkrabbaræktun Sérfræðingar eru uggandi vegna fyrirætlana fjölþjóðlega fyrirtækisins Nueva Pescanova að rækta kolkrabba í matvælaframleiðslu á Kanaríeyjum á Spáni. Til stendur að slátra dýrunum, sem eru afar skynugar skepnur, með aðferðum sem sérfræðingarnir segja grimmilegar. 16.3.2023 12:40
Fyrsti fundur ráðamanna Japans og Suður-Kóreu í tólf ár Fumio Kishida, forsætisráðherra Japans, og Yoon Suk Yeol, forseti Suður-Kóreu, hittust í morgun og er það í fyrsta sinn sem leiðtogar ríkjanna gera það í tólf ár. Í aðdraganda fundarins samþykktu ráðamenn í báðum ríkjum að taka skref til að binda enda á langvarandi deilur þeirra. 16.3.2023 12:30
Opnað á ísbjarnatúrisma á Grænlandi Yfirvöld í Grænlandi hafa ákveðið að slaka á reglum sem gilda um það að nálgast ísbirni þar í landi. Reglubreytingin opnar á svokallaðan ísbjarnatúrisma. 16.3.2023 11:12
Nokkur tonn af úrani horfin í Líbíu Alþjóðakjarnorkumálastofunin (IAEA) segir að um tvö og hálft tonn af náttúrulegu úrani sem var geymt í Líbíu séu horfin. Rannsókn stendur yfir á hvernig það kom til að geislavirka efnið var fært og hvar það er niður komið. 16.3.2023 10:09
Birtu myndband af þotunni lenda á drónanum Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur birt myndband sem sýnir þegar rússneskri herþotu var flogið á bandarískan dróna yfir Svartahafi. Myndbandið sýnir rússneska flugmenn reyna að varpa eldsneyti á drónann og í annarri tilrauninni lendir ein herþotan utan í drónanum svo hreyfill hans skemmist. 16.3.2023 10:08
Fyrstu merkin um að Venus sé enn eldvirk Reikistjörnufræðingar hafa í fyrsta skipti fundið beinar jarðfræðilegar vísbendingar um að eldvirkni sé enn til staðar á yfirborði nágrannareikistjörnunnar Venusar. Uppgötvunin getur hjálpað vísindamönnum að skilja hvernig Venus og jörðin þróuðust hvor í sína áttina. 16.3.2023 09:03
Rússar sagðir komnir á staðinn þar sem dróninn brotlenti Rússar eru mættir á staðinn þar sem flygyldi Bandaríkjamanna brotlenti á Svartahafi. Mark Milley, formaður herforingjaráðs Bandaríkjanna, segir drónann líklega á töluverðu dýpi og að erfitt verði að ná honum upp. 16.3.2023 07:51
Tyrkir sagðir ætla að samþykkja umsókn Finna Útlit er fyrir að yfirvöld í Tyrklandi ætli að samþykkja aðildarumsókn Finna í Atlantshafsbandalagið á næstu vikum en forseti Finnlands mun fara til Tyrklands á morgun. Tyrkir ætla þó ekki að samþykkja umsókn Svía að svo stöddu. 15.3.2023 16:48
Kafaði 52 metra á einum andardrætti Hinn fjörutíu ára gamli David Vencl sló í gær heimsmetið í frjálsri köfun án hlífðarbúnaðs. Kafaði hann 52 metra ofan í Sils-vatn í Sviss en til samanburðar er djúpi endi Vesturbæjarlaugar 3,8 metrar. 15.3.2023 15:51
Rússar ætla að sækja drónann í Svartahaf Rússar ætla að reyna að sækja brak bandaríska drónans sem brotlenti í Svartahafi í gær. Bandaríkjamenn segja drónann hafa lent í hafinu eftir að rússneskri herþotu hafi verið flogið utan í hann. 15.3.2023 15:00
Saksóknarinn í málinu gegn Baldwin segir af sér Saksóknari sem haldið hefur utan um rannsókn yfirvalda í Nýju Mexíkó á dauða Haylynu Hutchins, sem leikarinn Alec Baldwin skaut til bana við tökur myndarinnar Rust, hefur sagt af sér. Það er eftir að lögmenn Baldwins héldu því fram að skipun hennar í embætti sérstaks saksóknara færi gegn stjórnarskrá ríkisins, þar sem Andrea Reeb, umræddur saksóknari, sæti einnig á þingi Nýju Mexíkó. 15.3.2023 14:20
Bein útsending: Opinbera nýja búninga fyrir tunglferðir komandi ára Forsvarsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) og fyrirtækisins Axiom Space ætla að kynna nýja geimbúninga sem notaðir verða í Artemis áætluninni í dag. Um er að ræða búninga sem geimfarar munu væntanlega klæðast yfirborði tunglsins á komandi árum. 15.3.2023 14:00
Tókust á við lögreglu og komu í veg fyrir handtöku Imrans Khans Til átaka kom milli lögregluþjóna og stuðningsmanna Imrans Khans, fyrrverandi forsætisráðherra Pakistans, þegar þeir fyrrnefndu reyndu að handtaka þann síðarnefnda í gær. Til stóð að handtaka hann fyrir að mæta ekki í dómsal vegna ákæra um spillingu en það reyndist erfitt. 15.3.2023 11:18
Deilt um markaðsleyfi þungunarrofslyfja í Bandaríkjunum Alríkisdómari í Amarillo í Texas mun í dag hlýða á málflutning í máli sem samtök andstæðinga þungunarrofs hafa höfðað gegn Matvæla- og lyfjastofnun Bandaríkjanna til að fá þungunarrofslyfið mifepristone bannað. 15.3.2023 10:29
5.600 tonn af rusli hlaðborð fyrir rottur Parísarborgar Borgaryfirvöld í París segja 5.600 tonn af rusli hafa safnast upp í borginni eftir að sorphirðustarfsmenn lögðu niður störf til að mótmæla fyrirætlunum stjórnvalda um að hækka eftirlaunaaldurinn úr 62 árum í 64 ár. 15.3.2023 09:00
Kristrún á leiðtogafundi um varnarmál: Þjóðirnar í Norður-Atlantshafi þurfi að sýna forystu Innlent