Erlent

Pólverjar fyrstir til að senda orrustuþotur til Úkraínu

Samúel Karl Ólason skrifar
Pólskri MiG-29 flogið yfir annarri.
Pólskri MiG-29 flogið yfir annarri. EPA/Adam Warzawa

Andrzej Duda, forseti Póllands, tilkynnti í dag að minnst ellefu MiG-29 orrustuþotur frá tímum Sovétríkjanna yrðu sendar til Úkraínu og að fjórar þeirra yrðu sendar á næstu dögum. Pólland varð þar með fyrsta aðildarríki Atlantshafsbandalagsins til að senda Úkraínumönnum orrustuþotur.

Duda sagði MiG-29 þoturnar orðnar nokkuð gamlar en ítrekaði að þær væru í góðu standi. Talsmaður ríkisstjórnar Póllands sagði í gær að ráðamenn í fleiri ríkjum hefði samþykkt að senda Úkraínumönnum þotur en tók ekki fram hvaða ríki um væri að ræða, samkvæmt frétt AP fréttaveitunnar.

Pólverjar voru einnig fyrstir til að senda Leopard-2 skriðdreka til Úkraínu í síðasta mánuði. Pólverjar ætla að fylla upp í skarðið sem hergagnasendingar mynda með FA-50 þotum frá Suður-Kóreu og F-35 frá Bandaríkjunum.

Úkraínumenn hafa lengi beðið um orrustuþotur en hingað til hafa bakhjarlar þeirra ekki viljað verða við því. Staða úkraínska flughersins er nokkuð óljós en fyrir innrás Rússa í fyrra átti ríkið þó nokkrar orrustu- og herþotur frá tímum Sovétríkjanna.

Meðal þess sem Úkraínumenn hafa lagt mikla áherslu á að fá eru skotfæri fyrir stórskotalið og loftvarnarkerfi, auk orrustuþota.

Umfangsmiklar sóknir Rússa skila litlu

Rússar hafa um nokkurra vikna skeið staðið í umfangsmiklum árásum víðs vegar í austurhluta Úkraínu. Þær hafa skilað takmörkuðum árangri en sagt var frá því í gær að í febrúar hefðu Rússar lagt undir sig rúmlega 2.300 ferkílómetra sem samsvarar um 0,04 prósentum af Úkraínu.

Þetta hefur kostað Rússar þúsundir hermanna en embættismenn á Vesturlöndum segja til að mynda að Rússar hafi misst um 1.200 hermenn á einum degi við Bakhmut í febrúar. Þetta hefur sömuleiðis kostað Rússa mikið magn skotfæra og annarra hergagna.

Bakhjarlar Úkraínu heita hergögnum

Úkraínumenn vinna að því að mynda nýjar hersveitir með nýjum vopnum og hergögnum og eru taldir líklegir til að gera umfangsmiklar gagnárásir á næstu vikum og mánuðum.

Bandaríkjamenn og Þjóðverjar hafa sent Úkraínu mikið magn vestrænna bryndreka en Frakkar tilkynntu í gær að AMX-10, sem hægt er að kalla létta skriðdreka“, væru komnir til Úkraínu. Vonast er til þess að hergögnin muni reynast Úkraínumönnum vel á næstu mánuðum.

Varnarmálaráðherrar þeirra rúmlega fimmtíu ríkja sem styðja Úkraínu funduðu gegnum fjarfundarbúnað í gær en á þeim fundi sagði Lloyd Austin, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, að tryggja þyrfti Úkraínumönnum þau vopn og þau hergögn sem þeir þyrftu fyrir væntanlegar gagnárásir þeirra á næstu vikum og mánuðum.

Úkraínskir hermenn hafa kvartað undan skorti á skotfærum og þá sérstaklega skotfærum fyrir stórskotalið en rússneski herinn er sagður eiga í sambærilegum vandræðum.

Samkvæmt frétt New York Times sagðist Lloyd vongóður um að bakhjarlar Úkraínumanna myndu veita þeim þá aðstoð sem þeir þarfnast fram að vori og lengur. Sérfræðingar segja að skotfæraframleiðsla og aðgengi Úkraínumanna annars vegar og Rússa hins vegar að skotfærum muni skipta sköpum á komandi mánuðum.

Sú fylking sem fyrr getur vopnum búist verði í mun betri stöðu.


Tengdar fréttir

Birtu myndband af þotunni lenda á drónanum

Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur birt myndband sem sýnir þegar rússneskri herþotu var flogið á bandarískan dróna yfir Svartahafi. Myndbandið sýnir rússneska flugmenn reyna að varpa eldsneyti á drónann og í annarri tilrauninni lendir ein herþotan utan í drónanum svo hreyfill hans skemmist.

Sagðir ætla að höfða mál gegn Rússum fyrir stríðsglæpi

Saksóknarar Alþjóðlega sakamáladómstólsins (ICC) ætla að höfða tvö mál gegn Rússum vegna ódæða þeirra í Úkraínu. Saksóknarar vilja leggja fram nokkrar handtökuskipanir vegna stríðsglæpa en rannsakendur dómstólsins hafa um mánaða skeið verið að störfum í Úkraínu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×