Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Eldflaugaregn eftir blóðuga rassíu á Vesturbakkanum Ísraelsher segir að herskáir Palestínumenn hafi skotið sex eldflaugum frá Gasaströndinni á Ísrael í nótt. Svo virðist sem að eldflaugaárásirnar séu svar við blóðugri rassíu Ísraela sem urðu ellefu Palestínumönnum að bana á Vesturbakkanum í gær. 23.2.2023 08:44
Fréttamaður og ung stúlka myrt nærri vettvangi annars morðs Bandarískur sjónvarpsfréttamaður og níu ára stúlka hafa verið skotin til bana í nágrenni Orlando í Flórída, nærri vettvangi annars morðs sem hafði verið framið fáeinum klukkustundum fyrr. Sami maðurinn er grunaður um árásirnar. 23.2.2023 07:52
Fundu mennina látna á eldfjallinu Yfirvöld í Filippseyjum hafa staðfest að mennirnir fjórir sem voru týndir eftir að flugvél brotlenti á Mayon-eldfjallinu séu látnir. Teymi vinnur nú að því að koma líkum mannanna niður af fjallinu. 23.2.2023 07:28
Guterres fordæmir framferði Rússa Aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, António Guterres, hélt ræðu á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í nótt þar sem hann kallaði innrás Rússa í Úkraínu móðgun við sameiginlega samvisku heimsbyggðarinnar. 23.2.2023 07:14
Sænskur lögreglustjóri fannst látinn á heimili sínu Sænski lögreglustjórinn Mats Löfving, sem einnig er staðgengill ríkislögreglustjóra landsins, fannst látinn á heimili sínu í Norrköping í gærkvöldi. Nokkuð hefur gustað um Löfving eftir að hann skipaði lögreglukonu í embætti yfirmanns leynilögreglunnar árið 2015 – konu sem hann átti sjálfur í sambandi við. 23.2.2023 06:20
Tók sjálfu yfir njósnabelgnum Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur gert opinbera svokallaða „sjálfu“ (e. selfie) flugmanns sem tekin var fyrir ofan kínverska njósnabelginn sem var skotinn niður á dögunum. 22.2.2023 23:47
Morðingi Nipsey Hussle í minnst 60 ára fangelsi Maðurinn sem myrti rapparann Nipsey Hussle hefur verið dæmdur í minnst 60 ára fangelsi. Hann gæti setið inni til dauðadags. 22.2.2023 21:13
Pútín dásamaður á mikilli hyllingarsamkomu í Moskvu Biden Bandaríkjaforseti fundaði í dag í Varsjá með leiðtogum níu aðildarríkja NATO í austur Evrópu um varnir álfunnar og stuðning við Úkraínu. Pútín reyndi að fá Kínverja til liðs við sig og mætti síðan á hyllingarsamkomu með stuðningsmönnum sínum. 22.2.2023 19:05
Handtökur á Vesturbakkanum enduðu með blóðbaði Að minnsta kosti tíu Palestínumenn eru látnir og tugir eru særðir eftir að til átaka kom þegar ísraelskir hermenn gerðu rassíu í borginni Nablus á Vesturbakkanum í dag. Óttast er að átökin gætu leitt til enn frekari blóðsúthellinga. 22.2.2023 15:46
Drottnari í fangelsi eftir að undirlægjan drap kærastann Áströlsk kona hefur verið dæmd í sex ára fangelsi eftir að undirlægja hennar réðst á kærasta hennar og myrti. Hún hafði beðið undirlægjuna um að meiða kærastann alvarlega. Hún hafði kynnst undirlægjunni sex vikum fyrir morðið á vefsíðu fyrir fólk í BDSM-samfélaginu. 22.2.2023 13:31
Stakk kennarann sinn til bana Nemandi í menntaskóla í bænum Saint-Jean-de-Luz stakk í dag spænskukennarann sinn til bana. Nemandinn hefur verið handtekinn. 22.2.2023 11:38
Lögðu til ákærur í máli Trumps í Georgíu: „Þetta er ekki stuttur listi“ Ákærudómstóll í Georgíu sem rannsakað hefur Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, og bandamenn hans vegna afskipta þeirra af framkvæmd kosninga í ríkinu, hefur lagt til að nokkrir sem að málinu koma verði ákærðir. 22.2.2023 10:24
Þingmaður vill kljúfa Bandaríkin í tvennt Umdeildur fulltrúadeildarþingmaður með vaxandi áhrif innan Repúblikanaflokksins kallaði eftir því að Bandaríkjunum yrði skipt í tvennt í annars vegar ríki þar sem meirihluti kýs repúblikana og hins vegar þar sem flestir kjósa demókrata. Þá vill hún banna þeim sem flytja frá síðarnefndu ríkjunum til þeirra fyrrnefndu að kjósa tímabundið. 22.2.2023 09:05
Ráðherra þáði hundruð milljóna frá eiturlyfjahring Genaro García Luna, fyrrverandi öryggismálaráðherra Mexíkó, var í gær sakfelldur fyrir dómi í Bandaríkjunum fyrir að hafa þegið milljónir dollara í mútur frá mexíkóska eiturlyfjahringnum Sinaloa. Hann mun dvelja í fangelsi að minnsta kosti næstu tuttugu árin. 22.2.2023 07:25
Sex látin í árásum Rússa í Kherson Sex létust og sextán særðust eftir stórskotaliðsárás sveita rússneska hersins á borgina Kherson í gærkvöldi og í nótt. 22.2.2023 06:37
Putin segir Rússland fórnarlamb innrásar Vesturlanda Rússlandsforseti lýsir Rússlandi sem algjöru fórnarlambi stríðins í Úkraínu, þar sem íbúar væru gíslar stjórnar nýnasista og Vesturlanda sem hefðu byrjað stríðið í þeim tilgangi að eyða Rússlandi. Forseti Bandaríkjanna segir Vesturlönd hins vegar standa einhuga gegn einræðisöflum og þau muni styðja Úkraínu allt til sigurs. 21.2.2023 20:00
„Rússar munu aldrei bera sigur úr býtum“ Þegar Rússar réðust inn í Úkraínu, reyndi það ekki eingöngu á Úkraínumenn. Það reyndi á allan heiminn. Þetta sagði Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, í ræðu sem hann hélt í Póllandi í dag en þar sagði hann Vesturlönd standa sameinuð gegn innrás Rússa í Úkraínu. 21.2.2023 17:04
Xi sagður hyggja á ferð til Moskvu Xi Jinping, forseti Kína, er að undirbúa ferð til Moskvu þar sem hann mun funda með Vladimír Pútín, forseta Rússlands. Þessi ferð á að eiga sér stað á næstu mánuðum en ráðamenn á Vesturlöndum hafa áhyggjur af því að Kínverjar ætli að aðstoða Rússa með því að veita þeim hergögn. 21.2.2023 16:21
Stofnandi umdeildra hægrisamtaka út í kuldann Hægrisamtökin Project Veritas sem eru þekktust fyrir leynilegar og misvísandi upptökur útsendara sem villa á sér heimildir ráku James O'Keefe, stofnanda þeirra, í gær. O'Keefe er sakaður um að koma illa fram við starfsfólk og eyða fé samtakanna í bíla, einkaflugvélar og misheppnaðar danssýningar. 21.2.2023 15:05
Ákærður fyrir að leka ríkisleyndarmálum Saksóknari í Danmörku hefur birt fyrrverandi varnarmálaráðherra landsins, Claus Hjort Frederiksen, ákæru um að hafa lekið ríkisleyndarmálum sem varði þjóðaröryggi. 21.2.2023 14:24
Kokkur Pútíns sakar yfirmenn hersins um landráð Rússneski auðjöfurinn Yevgeny Prigozhin, sem gjarnan er kallaður „kokkur Pútíns“, sakaði Sergei Shoigu, varnarmálaráðherra, og Valery Gerasimov, formann herforingjaráðs Rússlands og yfirherforingja innrásarinnar í Úkraínu, um að reyna að gera út af málaliðahópinn Wagner Group. Prigozhin sagði Shoigu og Gerasimov vera seka um landráð. 21.2.2023 13:02
Lítið sem kom á óvart í stefnuræðu Pútíns Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hét því enn og aftur fram í morgun að Rússar bæru ekki ábyrgð á stríðinu í Úkraínu og að Vesturlönd væru að reyna að gera útaf við ríkið. Þetta sagði Pútín í stefnuræðu sinni sem hann hélt í dag. Ræðuna átti fyrst að halda í desember en henni var frestað vegna stríðsins í Úkraínu. 21.2.2023 10:36
George Santos: „Ég hef verið hræðilegur lygari“ Þingmaður Repúblikanaflokksins í Bandaríkjunum viðurkenndi í gær að hafa logið til um margt sem tengist fortíð hans. Aðspurður hvers vegna hann hafi logið sagðist hann hafa gert það áður og komist upp með það þá. 21.2.2023 10:32
Fyrrverandi starfsmaður handtekinn vegna dráps á biskupi Karlmaður sem lögreglan í Los Angeles í Bandaríkjunum handtók í tengslum við morð á þekktum biskupi er eiginmaður þernu biskupsins og hafði sjálfur unnið fyrir hann. Lögregla rannsakar enn tilefni morðsins. 21.2.2023 08:49
Pútín Rússlandsforseti flytur stefnuræðu sína í dag Vladimír Pútín Rússlandsforseti mun í dag flytja árlega stefnuræðu sína til rússnesku þjóðarinnar. Til stóð að ræðan yrði flutt í desember síðastliðnum en henni var frestað vegna stríðsins í Úkraínu. 21.2.2023 08:47
Fundu flugvélarflak á eldfjalli Yfirvöld á Filippseyjum hafa sent björgunarhópa upp á óvirka eldfjallið Mayon í leit að fjórum mönnum sem taldir eru hafa brotlent á fjallinu. Í gær náðu björgunaraðilar að staðsetja flugvélarflak mannanna ofan á fjallinu. 21.2.2023 07:21
Þrír látnir í Tyrklandi eftir skjálfta gærdagsins Björgunarsveitir í Tyrklandi leita nú aftur að fólki í rústum húsa eftir að tveir öflugir skjálftar riðu þar yfir í gær. 21.2.2023 06:32
Annar öflugur skjálfti á landamærum Tyrklands og Sýrlands Jarðskjálfti af stærðinni 6,4 reið yfir á landamærum Tyrklands og Sýrlands fyrir skömmu. Aðeins tvær vikur eru frá því að skjálfti af stærðinni 7,8 skók svæðið með þeim afleiðingum að 47.000 hafa látist og gríðarlegur fjöldi mannvirkja jafnaðist við jörðu. 20.2.2023 18:30
Staðfesta að hin látna er Bulley Lík sem fannst í ánni Wyre í Lancashire á Englandi í gær er lík Nicola Bulley, tveggja barna móður sem hvarf sporlaust þann 27. janúar síðastliðinn. 20.2.2023 17:53
Spánn: Svínaskítafýla allan ársins hring Spánn hefur á síðustu 15 árum skipað sér í fararbrodd sem stærsti svínaræktandi Evrópu. Þetta má þakka dreifbýlisátaki sem ætlað var að styrkja minnstu þorpin í landinu. Þar ríkir nú megn óánægja með átakið. Það eina sem það hafi skilið eftir sig sé svínaskítafýla alla daga ársins. 20.2.2023 13:30
Fjármálaráðherrann vill taka við af Sturgeon Kate Forbes, fjármálaráðherra Skotlands, hefur tilkynnt að hún sækist eftir að taka við af Nicolu Sturgeon sem leiðtogi Skoska þjóðarflokksins og þar með verða næsti fyrsti ráðherra landsins. 20.2.2023 13:21
Telja að biskup hafi verið myrtur í Los Angeles Lögreglan í Los Angeles-sýslu rannsakar lát kaþólsks biskups á laugardag sem morð. Biskupinn var skotinn til bana á heimili sínu og byssumaðurinn eða mennirnir ganga enn lausir. 20.2.2023 12:00
Biden í óvæntri heimsókn til Kænugarðs Joe Biden Bandaríkjaforseti er mættur í óvænta heimsókn til úkraínsku höfuðborgarinnar Kænugarðs. Hann fundaði með Vólódýmír Selenskí Úkraínuforseta í morgun. 20.2.2023 10:26
Vilja aftur funda með Svíum um NATO-aðild Tyrknesk stjórnvöld hafa tilkynnt að til standi að halda fleiri fundi með fulltrúum sænskra og finnskra stjórnvalda um NATO-aðild þeirra. Mevlüt Cavusoglu, utanríkisráðherra Tyrklands, greindi frá þessu í morgun. 20.2.2023 10:12
Enn einni Teslunni ekið á neyðarbifreið vestanhafs Ökumaður Tesla-bifreiðar lést og farþegi slasaðist alvarlega þegar henni var ekið á kyrrstæða slökkvibifreið á hraðbraut í norðanverðri Kaliforníu í Bandaríkjunum á laugardag. Brunabílnum hafði verið lagt til að vernda slökkviliðsmenn á vettvangi annars slyss. Fjöldi sambærilegra slysa þar sem Teslur koma við sögu hefur átt sér stað vestanhafs. 20.2.2023 08:47
Svíakonungur gengst undir hjartaaðgerð Karl Gústaf Svíakonungur mun gangast undir hjartaaðgerð í dag. 20.2.2023 08:19
Tugir látnir eftir óveður í Brasilíu Yfirvöld í São Paulo fylki í Brasilíu segja að þrjátíu og sex séu látnið hið minnsta eftir flóð og aurskriður sem fylgdu miklu óveðri sem gekk yfir um helgina. 20.2.2023 07:26
Aukinn stuðningur Kína við Rússa yrði dýru verði keyptur Bandarísk stjórnvöld telja ljóst að Kínverjar íhugi nú að veita Rússum beinan stuðning í innrásarstríði þeirra í Úkraínu í formi vopna. Sérfræðingur í alþjóðamálum telur að slíkur stuðningur yrði Kínverjum afar dýrkeyptur. 19.2.2023 22:00
Stjórnvöld verða að bjóða unglingum nautaat Hæstiréttur Spánar segir að nautaat sé hluti af menningararfi spænsku þjóðarinnar. Þess vegna verði stjórnvöld að leyfa ungu fólki að nota menningarstyrk sem það fær við 18 ára aldur, til að að fara á nautaat. Ríkisstjórn sósíalista ákvað í fyrra að útiloka nautaat frá menningarstyrknum. 19.2.2023 15:01
Fundu lík þar sem Bulley hvarf Í kringum hádegi í dag fann lögreglan í Lancashire lík í ánni Wyre. Áin er í nágrenni við síðustu þekktu staðsetningu Nicola Bulley, tveggja barna móður á fimmtugsaldri, sem hvarf sporlaust þann 27. janúar síðastliðinn. 19.2.2023 14:58
Fá ekki að mæta á verðlaunaafhendingu vegna ógnar við almenning Rússneskum fréttamanni og fjölskyldu hans hefur verið meina að mæta á afhendingarathöfn Bafta verðlaunanna. Lögregluyfirvöld í Bretlandi telja að almenningi myndi stafa ógn af mætingu hans þar sem hann er eftirlýstur af yfirvöldum í Rússlandi. Hann hefur unnið til verðlauna fyrir umfjöllun sína um Alexei Navalní. 19.2.2023 12:22
Sex ákærðir eftir að átján flóttamenn fundust látnir í sendiferðabíl Saksóknari í Búlgaríu hefur ákært sex manns fyrir mansal eftir að átján afganskir flóttamenn fundust látnir aftan í sendiferðabíl í nágrenni við Sófíu. 52 flóttamönnum hafði verið troðið í sendiferðabílinn „eins og í sardínudós,“ að sögn saksóknara. 19.2.2023 08:23
Jimmy Carter liggur banaleguna Jimmy Carter, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, er í líknandi meðferð. Hann hefur nýverið varið tíma á sjúkrahúsi en ákvað í dag að verja þeim tíma sem hann á eftir á heimili sínu með fjölskyldu sinni. 18.2.2023 21:04
Slapp frá mannræningja með því að læsa sig inni á bensínstöð Kona sem hafði verið haldið nauðugri í nærri því ár, slapp með því að læsa sig inni á bensínstöð í New Jersey í Bandaríkjunum. Maður sem hún hóf samband með beitti hana ofbeldi og hélt henni nauðugri um langt skeið. Hann hefur verið ákærður fyrir mannrán. 18.2.2023 20:43
Saka Rússa um glæpi gegn mannkyninu Yfirvöld í Bandaríkjunum segja hersveitir Rússa hafa framið glæpi gegn mannkyninu í Úkraína. Kamala Harris, varaforseti Bandaríkjanna, opinberaði þetta í ræðu á öryggisráðstefnunni í München í dag og sagði nauðsynlegt að hinir seku yrðu dregnir til ábyrgðar fyrir glæpina. 18.2.2023 18:51