Erlent

Stað­festa að hin látna er Bull­ey

Árni Sæberg skrifar
Nicola hvarf sporlaust úr göngutúr með hundinn.
Nicola hvarf sporlaust úr göngutúr með hundinn. Lögreglan í Lancashire

Lík sem fannst í ánni Wyre í Lancashire á Englandi í gær er lík Nicola Bulley, tveggja barna móður sem hvarf sporlaust þann 27. janúar síðastliðinn.

Lögreglan í Lancashire staðfesti fyrir skömmu að líkið sem fannst í gær væri af Bulley. Líkið var fiskað upp úr ánni í gær eftir miklar aðgerðir lögreglu á svæðinu þar sem síðast hafði spurst af Bulley. Þyrla og drónar voru notaðir til að kemba ánna eftir að fólk á göngu gerði lögreglu viðvart um að þeir hefðu séð til líks, að því er segir í frétt The Guardian um málið.

Bulley hafði verið leitað logandi ljósi eftir að hún hvarf sporlaust eftir að hafa farið út að ganga með fjölskylduhundinn þann 27. janúar síðastliðinn. Til hennar sást til Bulley í grennd við ánna klukkan níu að morgni þann dag.

Einungis um 25 mínútum eftir að það sást til hennar fannst síminn hennar á bekk við árbakkann. Þá var ólin og taumurinn af hundinum á jörðinni við hliðina á bekknum. Skömmu áður en hún hvarf sporlaust hafði hún skráð sig inn á Teams-fund í símanum. Hún var enn skráð á fundinn þegar síminn fannst.

Lögreglan gagnrýnd fyrir að deila viðkvæmum persónuupplýsingum

Síðastliðinn miðvikudag hélt lögreglan blaðamannafund í tengslum við leitina að Bulley. Lögreglan hefur verið harðlega gagnrýnd fyrir að deila viðkvæmum persónuupplýsingum um móðurina á fundinum. Þar kom fram að hún ætti við áfengismál að stríða og væri komin með snemmbúin tíðahvörf.

Penny Mordaunt, forseti neðri deildar breska þingsins, er á meðal þeirra sem hafa gagnrýnt lögregluna fyrir þetta. „Það fyrsta sem ég hugsaði um var fjölskyldan hennar. Það er nógu erfitt þegar ástvinur týnist,“ sagði Mordaunt á BBC í gær.


Tengdar fréttir

Fundu lík þar sem Bulley hvarf

Í kringum hádegi í dag fann lögreglan í Lancashire lík í ánni Wyre. Áin er í nágrenni við síðustu þekktu staðsetningu Nicola Bulley, tveggja barna móður á fimmtugsaldri, sem hvarf sporlaust þann 27. janúar síðastliðinn.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×