Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Telja vitni hafa logið um tilraunir Trumps til að snúa úrslitunum Sérstakur ákærudómstóll sem var kallaður saman til þess að rannsaka tilraunir Donalds Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, til þess að snúa við úrslitum forsetakosninganna árið 2020 í Georgíu telur að sum vitni hafi framið meinsæri. Hann mælir með að saksóknari gefi út ákærur. 16.2.2023 17:51
Brenndu banka i Beirút Mótmælendur réðust að bönkum í Beirút og Trípólí í morgun og brenndu minnst sex þeirra til að mótmæla takmörkunum á úttektum úr bönkum í Líbanon. Mótmælendur kveiktu einnig í dekkjum og stöðvuðu umferð. 16.2.2023 15:33
Áður óséð myndefni af Titanic Woods Hole Oceanographic Institution (WHOI) birti í gær rúmlega 80 mínútna langt myndband af skipsflaki Titanic. Meirihluti myndefnisins, sem tekið var upp árið 1986, hefur aldrei áður komið fyrir sjónir almennings. 16.2.2023 13:10
Nánast allur rússneski herinn sagður í Úkraínu Nærri því allur rússneski herinn, eða um 97 prósent hans, er nú í Úkraínu að sögn varnarmálaráðherra Bretlands. Hann segir Rússa hafa orðið fyrir miklu mannfalli og að Vladimír Pútín, forseti Rússlands, og leiðtogar hersins áttuðu sig ekki á raunveruleikanum og væri sama um það hve marga menn þeir misstu. 16.2.2023 12:39
Gaetz ekki ákærður vegna mansals Matt Gaetz, fulltrúadeildarþingmaður Repúblikanaflokksins, segist hafa fengið staðfestingu þess að hann verði ekki ákærður af saksóknurum sem höfðu hann til rannsóknar vegna mansals. Gaetz er umdeildur þingmaður og ötull stuðningsmaður Donalds Trumps. 16.2.2023 11:33
Óttuðust að mæta á fund með íbúum eftir eiturefnaslys Forsvarsmenn lestarfyrirtækis sem átti lest sem fór af sporunum í Ohio fyrr í þessum mánuði mættu ekki á opinn fund sem haldinn var um málið í gær. Vísuðu þeir til öryggisástæðna fyrir því að þeir mættu ekki á fundinn. Mikið magn eiturefna sluppu út í andrúmsloftið þegar lestin fór af sporinu. 16.2.2023 10:31
Eldflaugum rignir áfram yfir Úkraínu á meðan diplómatar ræða um frið Mikilvægir innviðir skemmdust í Lviv í vesturhluta Úkraínu í morgun, í loftárásum Rússa. Yfirvöld þar sögðu eld hafa kviknað í kjölfarið en greiðlega virðist hafa gengið að slökkva hann. Íbúar hafa verið hvattir til að leita skjóls ef og þegar loftvarnaflautur fara í gang. 16.2.2023 08:30
Kom í veg fyrir að lögreglu yrði bannað að leggja hald á gögn um tíðahring kvenna Glenn Youngkin, ríkisstjóra Virginíu í Bandaríkjunum, hefur tekist að stöðva framgang frumvarps sem kveður á um að lögreglu sé ekki heimilt að leggja hendur á gögn úr smáforritum sem konur nota til að skrásetja og fylgjast með tíðahring sínum. 16.2.2023 07:22
Lífstíðarfangelsi yfir hvítum þjóðernissinna vegna fjöldamorðsins í Buffalo Ríkisdómstóll í New York dæmdi hvítan þjóðernissinna sem skaut tíu blökkumenn til bana í stórmarkaði í borginni Buffalo í fyrra í lífstíðarfangelsi í dag. Karlmaður sem var viðstaddur dómsuppkvaðninguna reyndi að ráðast á sakborninginn. 16.2.2023 00:00
Lavrov segir Vesturlönd hafa ráðist á Rússland Atlandshafsbandalagið og Evrópusambandið hétu í dag auknum og áframhaldandi stuðningi við varnir Úkraínu gegn innrás Rússa. Utanríkisráðherra Rússlands sakar Bandaríkin og undirsáta þeirra um að grafa undan sjálfstæðri utanríkisstefnu Rússlands með það að markmiði að tortíma landinu. 15.2.2023 20:00
Færði heimsbyggðinni þakkir fyrir aðstoðina Mevlut Cavusoglu, utanríkisráðherra Tyrklands, þakkaði í dag öllum þeim ríkjum sem hafa boðið fram aðstoð sína eftir skjálftana mannskæðu í síðustu viku en að hans sögn hafa hundrað ríki boðist til að aðstoða og eru björgunarsveitir frá 76 löndum núna í Tyrklandi. 15.2.2023 19:59
Gagnrýndi aðra bakhjarla fyrir hægagang með skriðdreka Boris Pistorius, varnarmálaráðherra Þýskalands, gagnrýndi aðra bakhjarla Úkraínu á fundi í Brussel í gær. Gagnrýnin sneri að því að þeir hefðu um margra vikna skeið þrýst á Þjóðverja um að heimila sendingar Leopard skriðdreka til Úkraínu og í kjölfarið væru þeir sjálfir með hægagang varðandi hergagnaflutninga. 15.2.2023 14:23
Réðst á lögmann sinn Tuttugu og fimm ára kona réðst á lögmann sinn við fyrirtöku í þinghaldi í Wisconsin-ríki í Bandaríkjunum í gær. Konan er ákærð fyrir að hafa myrt mann, misnotað hann kynferðislega og sundurlimað lík hans. 15.2.2023 13:24
Versnandi fæðuskortur í Norður-Kóreu Fæðuskortur Norður-Kóreu hefur farið versnandi að undanförnu og hafa yfirvöld meðal annars dregið úr matarskammti hermanna. Ríkisstjórn Norður-Kóreu hefur viðurkennt vandamálið og sagt að þróun í landbúnaði sé eitt mikilvægasta verkefni þessa árs. 15.2.2023 13:11
Umsvifa- og áhrifamikill undirróðurshópur afhjúpaður Ísraelskur félagsskapur sem kallar sig „Team Jorge“ segist hafa tekið þátt í að hafa áhrif á niðurstöður yfir 30 forsetakosninga víðsvegar í heiminum. Teymið ræður yfir „her“ gervimenna og dreifir falsfréttum og fremur skemmdarverk í þágu viðskiptavina sinna. 15.2.2023 12:46
Lögmaður Trumps í sigti saksóknara Alríkissaksóknarar sem halda utan um rannsókn Dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna á meðhöndlun Donalds Trumps, fyrrverandi forseta á leynilegum skjölum, vilja fá upplýsingar um samskipti Trumps og lögmanns hans. Þessi samskipti eru trúnaðarmál en saksóknararnir hafa leitað til dómara til að fá aðgang að þeim og fá lögmanninn í yfirheyrslu hjá ákærudómstól. 15.2.2023 10:25
Sturgeon segir af sér Nicola Sturgeon hyggst segja af sér sem fyrsti ráðherra Skotlands. Hún hefur gegnt embættinu síðan árið 2014 en enginn hefur verið ráðherra landsins svo lengi. 15.2.2023 10:03
Fyrirliði taílenska drengjaliðsins sem festist í helli látinn af völdum höfuðáverka Duangpetch Promthep, einn þeirra tólf taílensku drengja sem var bjargað úr helli í norðurhluta Taílands árið 2018, er látinn. Hann var sautján ára. 15.2.2023 09:35
Að minnsta kosti 6.000 börn send í „endurmenntunarbúðir“ í Rússlandi Að minnsta kosti 6.000 börn frá Úkraínu hafa verið send í svokallaðar „endurmenntunarbúðir“ í Rússlandi, með það að markmiði að heilaþvo þau með rússneskum áróðri. Hundruð barna var haldið í búðunum í margar vikur eða mánuði. 15.2.2023 06:54
Íbúar uggandi eftir meiriháttar eiturefnaslys Ólykt finnst enn í smábæ í Ohio í Bandaríkjunum eftir að ýmir konar eiturefni sluppu út í umhverfið þegar flutningalest fór út af sporinu fyrr í þessum mánuði. Íbúar þar óttast að eiturefnin ógni heilsu þeirra en fjölda spurninga er enn ósvarað um umfang slyssins. 14.2.2023 23:48
Engin merki um geimverur að sögn Hvíta hússins Fjölmiðlafulltrúi Hvíta hússins tók það skýrt fram á fréttamannafundi í gær að ekkert bendi til þess að hlutirnir þrír sem skotnir voru niður yfir Bandaríkjunum og Kanada á dögunum tengist geimverum. 14.2.2023 14:48
Réttarhöldin í Samherjamálinu hefjast í haust Ákveðið var í morgun að réttarhöldin yfir mönnunum tíu sem ákærðir eru í Samherjamálinu í Namibíu munu hefjast þann 2. október næstkomandi. Gert er ráð fyrir að réttarhöldin standi yfir fram í júní árið 2024. 14.2.2023 14:06
Haley fer fram gegn Trump Nikki Haley, fyrrverandi ríkisstjóri Suður-Karólínu og fyrrverandi sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum, lýsti því yfir í morgun að hún ætli í forsetaframboð. Hún er sú fyrsta sem lýsir yfir framboði eftir að Donald Trump, fyrrverandi forseti, lýsti því yfir í nóvember í fyrra að hann ætlaði að gera aðra atlögu að Hvíta húsinu. 14.2.2023 14:02
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Geta ekki bæði varið Bakhmut og undirbúið gagnárásir Bandaríkjamenn hafa varað ráðamenn í Úkraínu við því að næstu mánuðir verði mikilvægir og að þeir eigi að einbeita sér að undirbúningi gagnárása í vor, frekar en að verja Bakhmut. Úkraínumenn skortir skotfæri og varahluti við varnir gegn umfangsmiklum árásum Rússa, sem hafa litlum árangri skilað hingað til. 14.2.2023 14:00
Tvö fimmtán ára grunuð um að hafa myrt sextán ára stúlku Stelpa og strákur, bæði fimmtán ára gömul, hafa verið handtekin af lögreglu grunuð um að hafa stungið sextán ára gamla stúlku til bana í almenningsgarði í Culcheth. 14.2.2023 13:11
Ýmsir kostir við njósnabelgi en vont að vera nappaður Þrátt fyrir að tæknin sé ef til vill gamaldags geta stórþjóðir hagnýtt sér ýmsa kosti loftbelgja til að njósna um keppinauta sína á alþjóðavettvangi. Gallinn er þó sá að það getur verið vont ef upp kemst um njósnabelgina, þar sem ekki sé ólíklegt að það gerist fyrir augum almennings, eins og gerðist yfir Bandaríkjunum á dögunum. 14.2.2023 11:08
Náði að rétta flugvélina af 800 fetum yfir Kyrrahafi Flugvél United sem var á leið frá Maui á Havaii til San Fransisco hrapaði skyndilega yfir Kyrrahafi áður en flugmaðurinn náði að rétta hana af um 800 fet fyrir ofan hafið. Þetta gerðist stuttu eftir flugtak í desembermánuði og mátti litlu muna að flugvélin færist. 14.2.2023 10:54
Fundu fólk á lífi eftir átta daga Björgunarsveitarmenn, hermenn og aðrir leitarmenn í Tyrklandi fundu í morgun fólk á lífi í rústum húsa sem hrundu fyrir átta dögum síðan. Minnst þrír fundust á lífi í rústum húsa en leitað er í þremur héruðum Tyrklands. Sérfræðingar segja litlar líkur á því að margir muni finnast á lífi. 14.2.2023 10:20
Átta ára drengur talinn hafa látist eftir að hafa fengið raflost Átta ára gamall ástralskur drengur er talinn hafa látist eftir að hafa fengið raflost á meðan hann var í fríi með fjölskyldunni sinni á Fídji. Drengurinn fannst meðvitundarlaus í blómabeði á hótelinu og var úrskurðaður látinn á sjúkrahúsi í kjölfarið. 14.2.2023 10:07
Varar við að Rússar hyggi á valdarán Forseti Moldóvu hefur sakað Rússa um áætlanir um valdarán í Moldóvu með því að fá „erlenda skemmdarverkamenn“ til að steypa stjórninni í landinu. 14.2.2023 09:19
Hafa haft uppi á skynjurum úr meintum njósnabelgjum Talsmenn bandaríska hersins segja að tekist hafi að hafa uppi á skynjurum úr meintum kínverskum njósnabelg, þeim fyrsta skotinn var niður yfir Atlantshafi fyrir tíu dögum. 14.2.2023 08:01
Þrír skotnir til bana í háskóla í Michigan Að minnsta kosti þrír létust og fimm særðust hið minnsta þegar byssumaður hóf skothríð á svæði Ríkisháskólans í Michigan (e. Michigan State University (MSU)) í East Lansing í Bandaríkjunum í nótt. 14.2.2023 06:42
Neyðarástand á Nýja-Sjálandi Neyðarástandi hefur nú verið lýst yfir á öllu Nýja Sjálandi vegna fellibylsins Gabriellu sem hefur víða valdið gríðarlegu tjóni. 14.2.2023 06:25
Fjölmenn mótmæli í Ísrael: „Þau heyra og þau eru hrædd“ Tugþúsundir Ísraelsmanna mótmæltu á götum Jerúsalem í gær vegna fyrirhugaðra breytinga á réttarkerfi landsins. Breytingarnar hafa verið harðlega gagnrýndar, sérstaklega þar sem þær eru kynntar í skugga réttarhalda yfir forsætisráðherra landsins sem grunaður er um spillingu. 14.2.2023 00:09
Keyrði á gangandi vegfarendur í New York Karlmaður var í dag handtekinn í New York eftir að hafa keyrt á gangandi vegfarendur á sendiferðabíl. Að minnsta kosti tveir liggja þungt haldnir á spítala eftir atvikið. 13.2.2023 18:39
Segja Rússa hafa misst heilt stórfylki við Vuhledar Úkraínumenn segja Rússa hafa misst mikinn fjölda atvinnuhermanna í árásum á bæinn Vuhledar í Dónetsk héraði. Í raun hafi Rússar misst heilt stórfylki (Brigade) landgönguliða í árásum á bæinn en árásirnar hafa litlum sem engum árangri skilað. 13.2.2023 15:17
Hvarf sporlaust en síminn og hundataumurinn urðu eftir Lögreglan í Bretlandi leitar enn lifandi ljósi að tveggja barna móður á fimmtugsaldri sem hvarf sporlaust fyrir rúmum tveimur vikum. Síðast sást til hennar þegar hún fór út að ganga með hundinn sinn við Wyre ána 27. janúar. 13.2.2023 13:31
Fannst lifandi eftir 174 klukkustundir en vonir um að finna fleiri dvína Sífellt færri finnast nú lifandi í rústunum í Tyrklandi en vika er liðin frá mannskæðustu jarðskjálftum á svæðinu í áratugi. Kona fannst í dag lifandi eftir 174 klukkustundir en vonir fara dvínandi og spjótin beinast að gölluðum mannvirkjum. Íslenskt sérfræðingateymi stýrir enn aðgerðum rústabjörgunarsveita en færði sig um set í gær. 13.2.2023 12:50
Segja dularfullt andlát átta ára barns hræðilegt slys Átta ára gamalt barn búsett í Sydney í Ástralíu lést á Fídjí á fimmtudag í kjölfar þess að það fannst meðvitundarlaust í gróðurbeði í hótelgarði. Lögregla segir að um sé að ræða hræðilegt slys. 13.2.2023 10:18
Sýrlendingar örvæntingarfullir og enn berst lítil aðstoð Sýrlendingar sem lifðu tvo stóra jarðskjálfta, sem riðu yfir norðurhluta Sýrlands og suðurhluta Tyrklands í síðustu viku, af eru örvæntingarfullir. Lítil aðstoð hefur borist, enda landsvæði þeirra undir stjórn uppreisnarmanna, en þeir sem lifðu hryllinginn af glíma nú við sult og kulda. 13.2.2023 08:18
Vita ekki hvernig fljúgandi furðuhlutirnir haldast á lofti Mikið hefur gengið á í lofthelgi Bandaríkjanna undanfarna daga. Bandaríkjaher hefur skotið niður fjóra fljúgandi hluti á átta dögum, síðast í gær. Að sögn talsmanna hefur svona ekki gerst innan bandarískrar lofthelgi á friðartímum. 13.2.2023 07:23
Hátt í fimmtíu þúsund heimili rafmagnslaus í Nýja-Sjálandi Tæplega fimmtíu þúsund heimili eru rafmagnslaus í Nýja-Sjálandi vegna fellibyljarins Gabríellu sem gengur yfir norðurhluta landsins. Yfirvöld í eyríkinu hafa gefið út viðvaranir vegna vinda og rigninga og hundruð flugferða hafa fallið niður vegna veðursins. 13.2.2023 06:28
Óttast að dánartalan tvöfaldist Yfir þrjátíu þúsund eru nú látin eftir gríðarlegan jarðskjálfta í Tyrklandi og Sýrlandi fyrir tæpri viku. Sameinuðu þjóðirnar óttast að dánartalan muni tvöfaldast. Tyrkir eru nú byrjaðir að handtaka verktaka vegna húsa sem hrundu en umdeilt er hvar ábyrgðin raunverulega liggur. Neyðarsöfnun Rauða kross Íslands hefur gengið vel og verða 30 milljónir sendar til Rauða krossins í Tyrklandi og Sýrlandi. 12.2.2023 23:50
Fjórði fljúgandi hluturinn skotinn niður af Bandaríkjaher Bandaríkjaher skaut fyrir skömmu niður enn annan fljúgandi hlutinn í mikilli hæð yfir stöðuvatninu Huron í Michican fylki í Bandaríkjunum, skammt frá landamærum Kanada. Um er að ræða fjórða hlutinn sem skotinn er niður í þessum mánuði í Norður-Ameríku. 12.2.2023 21:50
Bandaríkjamenn óskuðu eftir frekari aðstoð íslenska hópsins Stjórnstöð íslenska hópsins sem sinnir björgunarstarfi á jarðskjálftasvæðum í Tyrklandi var í dag flutt að ósk Bandaríkjamanna, frá borginni Antakya til Adiyaman. Óskað var eftir því að Íslendingar myndu fylgja með til að tryggja áfram samfellu í störfum alþjóðlegra björgunarsveita. Fjórir aðgerðarstjórnendur voru því sóttir af þyrlu bandaríska hópsins en hinn hluti hópsins hefur lagt af stað heim til Íslands. 12.2.2023 20:07