Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fannst látin eftir að hafa sest upp í bíl með ókunnugum Lík bandarískrar konu fannst um helgina í skógi austan við Moskvu í Rússlandi. Konan hvarf þann 15. júní síðastliðinn eftir að hafa sest upp í bíl með ókunnugum. Lögreglan í Rússlandi hefur handtekið karlmann vegna málsins. 20.6.2021 14:08
Ástandið aldrei verið verra í Brasilíu Dauðsföll af völdum Covid-19 heimsfaraldursins eru nú orðin fleiri en 500.000 í Brasilíu. Brasilía er með næst hæstu tíðni dauðsfalla í heiminum vegna faraldursins, á eftir Bandaríkjunum þar sem yfir 600.000 hafa látist. 20.6.2021 11:08
Ballarin laug í þætti Kveiks og ýtti undir samsæriskenningar Michelle Roosevelt Edwards, eða Michelle Ballarin, laug um það að eiga 30 milljóna Bandaríkjadala setur í Virginíu, í viðtali við Kveik í febrúar á síðasta ári. Setrið er í eigu fjárfestisins David B. Ford, sem dó á síðasta ári, og segist ekkja hans ekki hafa hugmynd um hvernig Edwards komst inn í húsið. 20.6.2021 10:03
Nýr olíuakur ógnar lífi 130 þúsund fíla Tugir þúsunda afrískra fíla eru í hættu vegna áforma um að bora fyrir olíu á svæði sem talið er meðal síðustu ósnertu svæða í álfunni. Ætlunin er að olíuakurinn teygi sig frá Namibíu yfir til Botnsvana, sem myndi koma öllu lífríki, og samfélögum, á svæðinu úr jafnvægi. 20.6.2021 09:16
Þúsundir tóku þátt í gleðigöngu í Póllandi Þúsundir gengu í gleðigöngu í Varsjá í gær og var þetta stærsti hinseginviðburður í sögu Póllands. Gangan er talið merki um andstöðu gegn yfirvöldum en hinseginréttindum hefur farið mikið aftur undanfarin ár. 20.6.2021 08:35
Einn lést í gleðigöngu í Flórída Einn er látinn og annar særður eftir að pallbíl var ekið inn í hóp fólks sem tók þátt í gleðigöngu í Flórída í gærkvöld. Bíllin var hluti af gleðigöngunni og búið var að skreyta hann með regnbogafánum. 20.6.2021 08:00
Lést vegna ökuníðinga á rafskútu Ung kona lést á miðvikudaginn í París eftir að tvær konur keyrðu á hana á rafskútu. Lögreglan í París leitar nú að konunum tveimur. 19.6.2021 20:25
Forsetahundurinn Champ er allur Í tilkynningu frá forsetahjónum Bandaríkjanna kemur fram að hundurinn Champ sé látinn. 19.6.2021 16:13
Sex ára fangelsi fyrir manndráp með samúræjasverði Þýskur karlmaður á fertugsaldri hefur verið dæmdur í sex ára fangelsi fyrir að drepa kærustu sína með samúræjasverði. 19.6.2021 14:26
Raisi sigurvegari í Íran Ebrahim Raisi bar sigur úr býtum í forsetakosningum í Íran. Níutíu prósent atkvæða hafa verið talin og Raisi hefur hlotið rúmlega helming þeirra. 19.6.2021 10:21
Palestínumenn afþakka bóluefni frá Ísrael Palestínsk yfirvöld hafa dregið sig út úr samningi við Ísrael en samkvæmt honum átti Palestína að fá minnst milljón skammta af Covid-19 bóluefni. Palestínumenn segja Pfizer-skammtana of nálægt því að renna út. 19.6.2021 08:13
Sameinuðu þjóðirnar kalla eftir vopnasölubanni á Mjanmar Sameinuðu þjóðirnar hafa kallað eftir því að allri vopnasölu til Mjanmar verði hætt vegna blóðugs valdaráns sem herinn framdi fyrr á þessu ári. Kallið er talið nokkuð óeðlilegt og fá dæmi eru til um að Sameinuðu þjóðirnar grípi til þessa ráðs. 19.6.2021 07:43
Bóluefnið sem brást Í upphafi kórónuveirufaraldursins kepptust tvær þýskar rannsóknarstofur um að koma bóluefni á markað sem fyrst: BioNTech annars vegar og CureVac hins vegar. Rúmu einu og hálfu ári eftir að kapphlaupið hófst eru eigendur BioNTech á toppi tilverunnar; þeir bera ábyrgð á bóluefni Pfizer; en CureVac? Það er fyrirtæki á barmi gjaldþrots. 18.6.2021 23:44
Björn særði fjögur í Japan Villtur skógarbjörn gekk laus í Sapporo, í norður Japan, í dag. Björninn særði fjóra áður en hann var skotinn til bana. 18.6.2021 16:54
Skelfilegt ástand í málefnum flóttafólks Aldrei hafa fleiri verið á flótta í heiminum en nú. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna. Sviðstjóri hjá Rauða krossinum segir stöðuna skelfilega. 18.6.2021 12:01
Aldrei hafa fleiri verið á flótta í heiminum Fjöldi þeirra sem þurftu að flýja heimili sín á síðasta ári jókst um rúmar ellefu milljónir manna sem er enn meiri aukning en var árið 2019. 18.6.2021 08:39
Búa sig undir viðræður og átök við Bandaríkin Kim Jong-un, leiðtogi Norður-Kóreu, segir að ríkið verði að búa sig undir að eiga bæði samtal og í átökum við Bandaríkin á næstunni. Hann lagði þó sérstaka áherslu á möguleg átök. 18.6.2021 08:23
Fyrsti forseti Sambíu fallinn frá Kenneth Kaunda, sem var fyrstur til að gegna embætti forseta Afríkuríkisins Sambíu, er látinn, 97 ára að aldri. Hann var einn síðasti eftirlifandi af þeirri kynslóð leiðtoga Afríkuríkja sem hafði barðist gegn nýlendustefnu Evrópuríkja. 18.6.2021 07:53
Spennan magnast á Gasa eftir loftárásir í nótt Ísraelsmenn vörpuðu sprengjum á Gasasvæðið í nótt í annað sinn frá því að vopnahléssamningur var gerður í lok síðasta mánaðar eftir ellefu daga hörð átök á svæðinu. 18.6.2021 07:36
Dagurinn sem markar endalok þrælahalds orðinn lögboðinn frídagur Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur skrifað undir lög þess efnis að 19. júní verði héðan í frá einn af lögboðnum frídögum Bandaríkjamanna. 18.6.2021 06:53
Íranir ganga að kjörborðinu Forsetakosningar fara fram í Íran í dag þar sem allir þeir fjórir sem til greina koma sem arftaki Hassan Rouhani eru taldir vera harðlínumenn. 18.6.2021 06:26
Höfða mál á hendur klámrisa vegna myndbanda án samþykkis Á fjórða tug kvenna hafa höfðað hópmál gegn fyrirtækinu Mindgeek, sem á og rekur klámsíðuna Pornhub. Konurnar segja vefsíðuna hýsa myndbönd af þeim, sem var hlaðið upp án þeirra samþykkis. 17.6.2021 23:21
Evrópa grænkar á Covid-kortinu Það er orðið nokkuð grænt um að lítast á korti Sóttvarnastofnunar Evrópu, sem sýnir sjónrænt stöðu kórónuveirufaraldursins víðs vegar um Evrópu. 17.6.2021 20:55
Sænska ríkisstjórnin gæti fallið á mánudag Sænska þingið mun greiða atkvæði um vantrauststillögu Svíþjóðardemókrata á ríkisstjórn Stefan Löfven á mánudag. 17.6.2021 19:55
Vonleysi kjósenda fyrir forsetakosningar í Íran Kjósendur í Íran eru ekki vongóðir um úrslit forsetakosninganna sem fara fram í landinu á morgun hafi merkjanleg áhrif á lífsgæði þeirra. Búist er við slakri kjörsókn í kosningunum sem eru taldar munu festa völd Ali Khamenei, æðstaklerks, enn frekar í sessi. 17.6.2021 09:01
Sjötíu ára ráðgáta leyst um endanlegan hvíldarstað Tojo Japanskur prófessor hefur fundið lausnina við 70 ára ráðgátu; hvíldarstað jarðneskra leifa Hideki Tojo, forsætisráðherra Japans í seinni heimstyrjöldinni. Samkvæmt gögnum í bandaríska þjóðskjalasafninu var ösku hans dreift á Kyrrahafinu að lokinni aftöku. 17.6.2021 08:01
Taldi ráðherra í eigin ríkisstjórn vonlausan með öllu Dominic Cummings, fyrrverandi aðstoðarmaður Borisar Johnson, forsætisráðherra Bretlands, hefur birt einkaskilaboð milli þeirra tveggja þar sem Johnson segir Matt Hancock, heilbrigðisráðherra í ríkisstjórn sinni, vera „algjörlega vonlausan.“ 16.6.2021 23:50
Biden ánægður með fundinn en hóflega bjartsýnn Joe Biden Bandaríkjaforseti kveðst ánægður með fund sinn við rússneska kollega sinn, Vladímír Pútín. Forsetarnir funduðu í Genf í Sviss í dag. 16.6.2021 21:11
Fundur forsetanna laus við „fjandskap“ Enginn fjandskapur var í viðræðum Joes Biden Bandaríkjaforseta og Vladímírs Pútín Rússlandsforseta í dag, að sögn rússneska forsetans. Búist hafði verið við því að fundurinn gæti staðið yfir í allt að fimm tíma en honum lauk fyrr en áætlað var. 16.6.2021 16:56
Rykský skyggði á reginrisann Betelgás Stjörnufræðingar telja sig nú hafa leyst ráðgátuna um hvers vegna risastjarnan Betelgás dofnaði svo á næturhimninum að það var greinanlegt með berum augum. Rykský sem stjarnan sjálf spýtti frá sér skyggði á hana frá jörðinni séð. 16.6.2021 15:39
Þyngdartap Kim vekur upp spurningar um heilsu hans Nýlegar myndir benda til þess að Kim Jong-un, einræðisherra Norður-Kóreu, hafi grennst töluvert að undanförnu. Þær hafa vakið miklar vangaveltur um heilsufar leiðtogans. 16.6.2021 14:32
Klukkustunda langur fundur Biden og Pútín í Genf hafinn Joe Biden Bandaríkjaforseti og Vladímír Pútín Rússlandsforseti skiptust á kurteisisheitum þegar þeir hittust til fundar á sveitasetri við Genf í Sviss í dag. Búist er við því að fundur þeirra standi yfir í allt að fimm klukkustundir og þeir fari yfir breitt svið umræðuefna. 16.6.2021 13:28
Nuuk einangruð næstu vikuna Landsstjórn Grænlands hefur bannað allar ferðir frá höfuðborginni Nuuk og til annarra staða í landinu í tilraun til að hefta útbreiðslu kórónuveirunnar í höfuðborginni. Þó er kannað hvort mögulegt sé að opna á ferðir frá Nuuk og til Danmerkur. 16.6.2021 13:26
Ísland ekki með í fyrstu tilnefningum Biden til sendiherra Fyrstu tilnefningar Joes Biden Bandaríkjaforseta til sendiherraembætta voru gerðar opinberar á þriðjudag en sendiherraefni fyrir Ísland er ekki á meðal þeirra. Biden tilnefnir meðal annars flughetju sem fulltrúa sinn gagnvar Alþjóðaflugmálastofnuninni. 16.6.2021 12:43
Evrópsk lögregluyfirvöld handtaka 73 í tengslum við mansal Lögregluyfirvöld í Evrópu hafa handtekið 73 einstaklinga fyrir mansal og telja sig hafa fundið 630 möguleg fórnarlömb mansals og misnotkunar af ýmsu tagi. Tuttugu og þrjú ríki tóku þátt í umræddum aðgerðum. 16.6.2021 10:29
Castillo lýsir yfir sigri í Perú Pedro Castillo hefur lýst yfir sigri í forsetakosningum í Perú. Andstæðingur Castillo, Keiko Fujimori, hefur sakað hann um kosningasvindl. 16.6.2021 10:22
Ný mótefnameðferð gegn Covid-19 gefur góða raun Vísindamenn segja nýja mótefnameðferð munu bjarga lífi sex af hverjum hundrað sem fá meðferð vegna alvarlegs sjúkdóms af völdum kórónuveirunnar, SARS-CoV-2. 16.6.2021 08:19
Hófstilltar væntingar um árangur fundar Biden og Pútín Joe Biden Bandaríkjaforseti hittir í dag kollega sinn Vladimír Pútín Rússlandsforseta á fundi í svissnesku borginni Genf. 16.6.2021 07:02
Ísraelsmenn varpa aftur sprengjum á Gasa Ísraelsmenn gerðu loftárás á Gasa-svæðið í kvöld eftir að íkveikjusprengjur voru sendar með blöðrum frá svæðinu til Ísraels. BBC greinir frá þessu. 15.6.2021 23:05
Þrýstu á ráðuneyti að taka undir lygar um kosningasvik Nánustu ráðgjafar Donalds Trump, þáverandi Bandaríkjaforseta, þrýstu á æðstu embættismenn í dómsmálaráðuneytinu til að fá þá til að taka undir stoðlausar ásakanir Trump um stórfelld kosningasvik. Þeir kiknuðu þó ekki undan þrýstingnum. 15.6.2021 16:53
Loka á alla flug- og skipaumferð frá Nuuk vegna fimm nýrra smita Fimm hafa greinst með kórónuveiruna í grænlensku höfuðborginni í gærkvöldi og í nótt. Búið er að loka á allt flug frá Nuuk vegna smitanna. 15.6.2021 13:44
Suðurkóreskur dómstóll segir munnmök tveggja karla jaðra við nauðgun Suðurkóreskur herdómstóll hefur dæmt tvo menn í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa stundað munnmök. Mennirnir eru sagðir hafa brotið gegn ákvæðum herlaga, sem banna endaþarmsmök og aðrar „ósæmilegar“ athafnir. 15.6.2021 12:13
Uppljóstrari hjá þjóðaröryggisstofnun laus úr fangelsi Ung kona sem vann fyrir Þjóðaröryggisstofnun Bandaríkjanna og var sakfelld fyrir að leka leynilegum upplýsingum til fjölmiðla árið 2018 er laus úr fangelsi. Lögmaður hennar segir að henni hafi verið sleppt vegna góðrar hegðunar. 15.6.2021 11:07
„Afar ólíklegt“ að Biden fengi að skipa hæstaréttardómara 2024 Mitch McConnell, leiðtogi minnihluta bandarísku öldungadeildarinnar, segir afar ólíklegt að hann myndi gera Joe Biden Bandaríkjaforseta kleift að skipa nýjan hæstaréttardómara árið 2024 ef repúblikanar næðu aftur meirihluta. 15.6.2021 09:00
Erfðabreytt E coli umbreytir plastflöskunum í vanillubragðefni Vísindamönnum hefur tekist að framleiða vanillubragðefni úr endurunnum plastflöskum með aðstoð erfðabreyttra baktería. 15.6.2021 08:08