Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
G7 ríkin mynda bandalag gegn Kína Leiðtogar G7 ríkjanna hafa samþykkt áætlun um að fara í aukna uppbyggingu innviða í þróunarríkjum til þess að stemma stigu við vaxandi áhrif Kína í þróunarríkjum. Joe Biden, Bandaríkjaforseti, lagði þetta til og ber verkefnið yfirskriftina „Byggjum aftur betri heim“ eða Build Back Better World upp á ensku. 12.6.2021 13:03
Johns Snorra minnst á toppi Everest Fjallagöngugarpurinn Colin O'Brady hélt í gær tilfinningaþrungna minningarathöfn til heiðurs fallinna félaga sinna. 12.6.2021 10:08
„Guð minn góður, ég er í gini hvals“ Bandarískur humarsjómaður lenti í því magnaða atviki að vera gleyptur af Hnúfubaki, sem virðist ekki hafa líkað bragðið og spýtti honum aftur út. Hann slapp vel þrátt fyrir martraðakennda sögu og virðist aðeins hafa farið úr öðrum hnjálið. 12.6.2021 08:39
Lýðræðisbaráttukona leyst úr fangelsi Lýðræðisbaráttukonan Agnes Chow losnaði úr fangelsi í Hong Kong í dag, laugardag, eftir sjö mánuði á bak við lás og slá. Chow var handtekin eftir að hún tók þátt í skipulagningu ósamþykktra mótmæla í borginni árið 2019. 12.6.2021 08:08
Unglingsstúlkan sem tók upp morðið á Floyd fær Pulitzer-verðlaun Unglingsstúlkan sem tók morðið á George Floyd upp á myndband hefur hlotið sérstök blaðamannaverðlaun frá stjórn hinna virtu Pulitzer verðlauna. Darnella Frazier, sem nú er átján ára gömul, hlaut verðlaunin vegna hugrekkisins sem hún sýndi að sögn Pulitzer-nefndarinnar. 12.6.2021 07:38
Fyrirskipa förgun tuga milljóna skammta af bóluefni Janssen Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna hefur fyrirskipað að fyrirtækið sem framleiðir bóluefni fyrir Janssen í Bandaríkjunum skuli farga fleiri milljónum skammta. 11.6.2021 22:54
Svíar óttast að fjórða bylgjan kunni að vera í uppsiglingu Hópsýkingar svonefnda deltaafbrigðis kórónuveirunnar vekja nú áhyggjur sænskra heilbrigðisyfirvalda af því að fjórða bylgja faraldursins gæti verið í uppsiglingu þar. Hvetja þau landsmenn til að láta bólusetja sig sem fyrst. 11.6.2021 16:57
Vilja banna að börnum sé kennt um hinsegin fólk Stjórnarflokkur Ungverjalands hefur lagt fram frumvarp sem myndi leggja bann við að börn séu frædd um hinsegin og transfólk. Mannréttindasamtök fordæma frumvarpið og segja það í ætt við sambærileg lög sem voru samþykkt í Rússlandi fyrir nokkrum árum. 11.6.2021 16:21
Boðar uppbyggingu múrs á landamærum Texas Ríkisstjóri Texas hefur heitið því að reisa múr við landamæri Texas að Mexíkó. Hann hefur sett milljarð Bandaríkjadala, eða um 122 milljörðum íslenskra króna, í verkefnið. 11.6.2021 15:50
Leita að eins árs stúlku eftir að lík systur hennar fannst í sjónum undan ströndum Tenerife Spænsk yfirvöld leita nú að eins árs gamalli stúlku eftir að lík sem er talið af sex ára gamalli systur hennar fannst í sjónum nærri bát föður þeirra undan ströndum Tenerife. Föðurins er einnig saknað en hann er grunaður um að hafa myrt dætur sínar. 11.6.2021 14:26
Náinn bandamaður Navalní eftirlýstur Rússnesk yfirvöld lýsa nú eftir Ivan Zhdanov, nánum bandamanni Alexeis Navalní, í kjölfar þess að dómstóll úrskurðaði samtök Navalní gegn spillingu ólögleg öfgasamtök í vikunni. Zhdanov veitti sjóði Navalní foyrstu. 11.6.2021 13:05
Telja fleiri en 350.000 manns líða hungur í Tigray Sameinuðu þjóðirnar og hjálparsamtök áætla nú að fleiri en 350.000 líði hungur í stríðshrjáðu Tigray-héraði í Eþíópíu. Milljónir til viðbótar séu í hættu á hungursneyð sem er þegar sú versta í heiminum í áratug. 11.6.2021 12:03
Trump-stjórnin fékk aðgang að símagögnum demókrata Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna í tíð Donalds Trump sem forseta fékk aðgang að upplýsingum úr fjarskiptatækjum að minnsta kosti tveggja þingmanna Demókrataflokksins þegar það rannsakaði leka á trúnaðarupplýsingum. Fáheyrt er sagt að saksóknarar sækist eftir slíkum upplýsingum um þingmenn. 11.6.2021 11:04
Stóru iðnríkin ætla að gefa milljarð bóluefnaskammta Sjö helstu iðnríki heims ætla að tilkynna að þau muni gefa þróunarríkjum um allan heim að minnsta kosti milljarð skammta af bóluefni gegn kórónuveirunni. Bandaríkin og Bretland ætla að leggja til meira en helming skammtanna. 11.6.2021 09:56
Gríðarstór vatnspyttur stækkar og stækkar og ógnar bóndabæ Stór vatnspyttur sem myndaðist skyndilega á jörð í ríkinu Puebla í Mexíkó í maí síðastliðnum hefur stækkað og stækkað og er nú á stærð við knattspyrnuvöll. Nú er svo komið að jarðvegur undir býlinu á jörðinni er farinn að láta undan. 11.6.2021 09:10
Tölvuþrjótar segjast hafa komist yfir grunnkóða Electronic Arts Tölvuþrjótar brutust inn í kerfi Electronic Arts, eins stærsta tölvuleikjaframleiðanda í heimi, og tókst að stela grunnkóða nokkurra leikja fyrirtækisins. 11.6.2021 08:15
Boris segist hafa átt frábæran fund með Biden Boris Johnson forsætisráðherra Breta segist hafa átt frábæran fund með Joe Biden Bandaríkjaforseta sem staddur er á Englandi þessa dagana. 11.6.2021 06:54
Bretland gefi 100 milljónir skammta bóluefnis Boris Johnson, forsætisráðherra Bretland, tilkynnti í dag að Bretland myndi gefa rúmlega 100 milljónir skammta bóluefnis til fátækari landa. 11.6.2021 00:02
Segja Kínverja hafa skapað „dystópískt helvíti“ í Xinjiang Mannréttindasamtökin Amnesty International saka kínversk stjórnvöld um glæpi gegn mannkyninu með meðferð sinni á úígúrum í Xinjiang-héraði. Framkvæmdastjóri samtakanna segir kommúnistastjórnina hafa skapað „dystópískt helvíti af gífurlegri stærðargráðu“. 10.6.2021 15:54
Langflest Afríkuríki ná ekki bólusetningarmarkmiði Níu af hverjum tíu Afríkuríkjum ná ekki markmiði um að bólusetja 10% íbúa sinna fyrir september, að sögn Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO). Þriðja bylgja kórónuveirufaraldursins er nú í uppsiglingu víða í álfunni. 10.6.2021 14:52
Ísland fær félagsskap í græna liðinu Rúmenía flokkast nú sem grænt land á korti Sóttvarnastofnunar Evrópu um stöðu faraldursins í álfunn. Ísland hefur verið flokkað grænt í nokkrar vikur og hefur verið nær eitt hingað til, auk Möltu sem var grænmerkt fyrir viku síðan. 10.6.2021 14:05
Dæmd í 21 árs fangelsi í Noregi fyrir að myrða börnin sín Dómstóll í Osló hefur dæmt 35 ára konu í 21 árs fangelsi fyrir að hafa drepið tvo syni sína, sjö og eins árs, í Lørenskog, austur af Osló, á síðasta ári. 10.6.2021 13:49
Viðurkenna Suður-Íshafið sem heimshaf Suður-Íshafið í kringum Suðurskautslandið verður nú skráð sem fimmta heimshafið á kortum Landafræðifélags Bandaríkjanna í fyrsta skipti í meira en hundrað ára sögu þess. Fram að þessu hefur óeining ríkt um fjölda heimshafanna og félagið hefur aðeins viðurkennt fjögur. 10.6.2021 13:01
Saka Suu Kyi um spillingu í embætti Herforingjastjórnin í Búrma sakar Aung San Suu Kyi sem hún steypti af stóli forseta um stórfellda spillingu í embætti. Suu Kyi gæti átt yfir höfði sér allt að fimmtán ára fangelsi verði hún fundin sek. 10.6.2021 11:37
Kalla eftir viðamikilli endurskoðun á fjölda Covid-tilfella á Indlandi Hérað á Indlandi hefur hækkað tölu látinna vegna Covid-19 um nokkur þúsund manns eftir að í ljós kom að mörg þúsund tilfelli höfðu ekki verið skráð í gagnagrunni héraðsins. Breytingin er talin varpa skýru ljósi á það að fjöldi dáinna vegna plágunnar sé mun meiri en opinberar tölur sýna. 10.6.2021 09:14
Castillo lýsir yfir sigri en Fujimori vill ógilda fjölda atkvæða Talning atkvæða stendur en yfir eftir forsetakosningarnar í Perú. Mjög mjótt er á munum en vinstrimaðurinn Pedro Castillo hefur þegar lýst yfir sigri á meðan andstæðingur hans, hægrimaðurinn Keiko Fujimori, hefur farið fram á að hundruð þúsunda atkvæða verði úrskurðuð ógild. 10.6.2021 08:47
Bestu myndir af Ganýmedes í áratugi Myndir sem bandaríska geimfarið Juno tók af Ganýmedes, stærsta tungli Júpíters, og bárust til jarðar í vikunni eru þær skýrustu í áratugi. Geimfarið flaug þá nær tunglinu en nokkuð annað geimfar hefur gert frá því á síðustu öld. 10.6.2021 08:41
Danir kveðja grímurnar nær alfarið eftir nýtt samkomulag um tilslakanir Danskir þingmenn náðu seint í nótt – eftir um tólf tíma samningaviðræður sín á milli – samkomulagi um nýjar tilslakanir í landinu. 10.6.2021 07:42
Er hægt að leysa loftslagsvandann með því að breyta sporbraut tunglsins um jörðu? Væri hægt að leysa loftslagsvandann með því að breyta sporbraut tunglsins um jörðu eða sporbraut jarðar um sólu? Að þessu spurði Louie Gohmert, þingmaður Repúblikanaflokksins, á nefndarfundi á þriðjudag. 10.6.2021 07:35
Stærsti kjötframleiðandi heims greiðir lausnargjald í kjölfar netárásar Stærsti kjötframleiðandi í heimi, brasilíska stórfyrirtækið JBS, hefur neyðst til að greiða tölvuþrjótum lausnargjald upp á um 11 milljónir dollara. 10.6.2021 06:53
Biden hittir Johnson, drottninguna og Pútín Joe Biden Bandaríkjaforseti er mættur til Evrópu í sína fyrstu opinberu heimsókn eftir að hann tók við forsetaembættinu. Hann kom til London í gærkvöldi og hittir Boris Johnson forsætisráðherra í dag. 10.6.2021 06:43
Bók eftir Hitler og vopn á heimili annars hinna handteknu Rannsóknarlögreglumenn fundu eggvopn, byssu og bók eftir Adolf Hitler á heimili annars tveggja manna sem handteknir voru í gær í tengslum við árás á Emmanuel Macron Frakklandsforseta. 9.6.2021 23:26
Vildi gefa heimilislausum og bótaþegum lager af ónýtum grímum Jens Spahn, heilbrigðisráðherra Þýskalands, er í vandræðum eftir að hann pantaði í upphafi kórónuveirufaraldursins milljónir sóttvarnagríma frá asískum framleiðendum, sem reyndust ónothæfar þegar til kastanna kom. 9.6.2021 22:01
Samtök Navalnís lýst ólögleg öfgasamtök Borgardómstóll í Moskvu féllst í dag á kröfu saksóknara um að lýsa samtök Alexeis Navalní, stjórnarandstöðuleiðtoga í Rússlandi, ólögleg öfgasamtök. Það hefur það í för með sér að meðlimir samtakanna mega ekki bjóða sig fram í þingkosningum í landinu í september. 9.6.2021 21:46
Frakkland býður fullbólusetta ferðamenn velkomna Fullbólusettir ferðamenn geta ferðast til Frakklands frá og með deginum í dag og veitingastaðir geta nú leyft gestum að vera innanhúss. Fólki frá sextán ríkjum þar sem staða kórónuveirufaraldursins er slæm eru þó enn meinað að koma til Frakklands. 9.6.2021 19:22
Lýsa Ortega sem einræðisherra eftir handtökur á andstæðingum Fulltrúi Bandaríkjastjórnar líkti Daniel Ortega, forseta Níkaragva, við einræðisherra eftir að ríkisstjórn hans lét handtaka fjórar framármenn úr stjórnarandstöðu landsins á hálfu sólarhring í gær. Fyrir höfðu tveir líklegir mótframbjóðendur Ortega í forsetakosningum í haust verið hnepptir í varðhald. 9.6.2021 14:21
Níu látnir þegar hús hrundi í Suður-Kóreu Níu manns hið minnsta eru látnir og óttast er um líf átta til viðbótar eftir að fimm hæða hús sem verið var að rífa, féll saman og hrundi í suðurkóreska bænum Gwangju í morgun. 9.6.2021 13:20
Samtök Navalní líklega bönnuð í dag Búist er við því að dómstóll í Moskvu fallist á kröfu saksóknara um að lýsa samtök Alexeis Navalní, stjórnarandstöðuleiðtoga, ólögleg öfgasamtök í dag. Félagar í samtökunum gætu átt yfir höfði sér fangelsisdóma auk þess sem þeim yrði bannað að bjóða sig fram í kosningum í haust með nýjum lögum. 9.6.2021 10:35
Einungis búið að bólusetja um 0,8 prósent Suður-Afríkumanna Á meðan vestræn ríki eru komin vel á veg með að bólusetja stóran hluta landsmanna hafa ríki Afríku setið á hakanum. 9.6.2021 07:54
Breskir tónlistarmenn ærast ekki af fögnuði yfir auknu aðgengi að Íslandi Innanríkisráðherra Bretlands, Oliver Dowden, tilkynnti keikur á föstudag að breskir tónlistarmenn gætu nú ferðast til og spilað á Íslandi, í Noregi og Liecthenstein án þess að þurfa vegabréfsáritun, vegna nýs fríverslunarsamnings sem Bretland hefur gert við ríkin. Viðtökur breskra tónlistarmanna hafa þó ekki verið dynjandi lófatak og þakkir. 8.6.2021 23:30
Mladic verður aldrei sleppt úr fangelsi Áfrýjunardómstóll Sameinuðu þjóðanna staðfesti í dag ævilangan fangelsisdóm yfir Ratko Mladic fyrir þjóðarmorð og aðra stríðsglæpi í stríðinu í Bosníu á árunum 1992 til 1995. 8.6.2021 19:21
Trudeau fordæmir huglausa morðárás á múslimska fjölskyldu Forsætisráðherra Kanada segir morðárás á þrjár kynslóðir í sömu fjölskyldu í London-Ontario á sunnudag hafa verið grófa og huglausa. Grípa verði til aðgerða til að koma í veg fyrir að hatursglæpur sem þessi endurtaki sig. 8.6.2021 18:31
Stjórn Biden heldur áfram að verja Trump í meiðyrðamáli Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna heldur því enn fram að þegar Donald Trump kallaði konu sem sakaði hann um nauðgun „dræsu“ og „lygari“ hafi það verið hluti af störfum hans sem forseti. Afstaða ráðuneytisins er óbreytt þrátt fyrir stjórnarskiptin í janúar. 8.6.2021 16:58
Höfðu spurnir af áformum stuðningsmanna Trump vikum fyrir árásina Bandaríska þinglögreglan hafði njósnir af því að stuðningsmenn Donalds Trump forseta ætluðu sér að fara með vopnum í þinghúsið að minnsta kosti tveimur vikum áður en æstur múgur réðst þar inn í janúar. Þeim upplýsingum var þó aldrei komið til lögregluliðsins í framlínunni. 8.6.2021 15:20
Dómur yfir „Bosníu-slátraranum“ stendur óraskaður Dómstóll Sameinuðu þjóðanna staðfesti í dag lífstíðardóm yfir bosníuserbneska herforingjanum Ratko Mladic. Maldic hafði áfrýjað dómi, sem féll árið 2017, þar sem hann var dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir þátt sinn í þjóðernishreinsunum í Bosníu. 8.6.2021 15:11