Fleiri fréttir

Breivik segir gjörðir sínar ekki vera refsiverðar

Anders Behring Breivik, fjöldamorðinginn í Útey og Osló, neitar því að gjörðir hans séu refisverðar. Þetta sagði hann þegar að hann mætti fyrir rétt í Osló í dag. Hann var færður í dómhúsið í handjárnum í fylgd tveggja lögreglumanna. Eins og kunnugt er, gengst Breivik við því að hafa orðið 77 manns að bana þann 22. júlí síðastliðinn.

Árásum á Homs haldið áfram

Stjórnarherinn í Sýrlandi hefur í dag haldið áfram árásum á borgina Homs og fleiri borgir sem hafa verið vígi mótmælenda í landinu síðustu mánuði. Að minnsta kosti fimmtíu hafa fallið í Homs í dag að því er Sky fréttastofan hefur eftir mótmælendum í borginni. Árás hersins er viðamikil og hafa hermennn látið til skarar skríða í tólf hverfum á sama tíma.

Eyjafjallajökull fyrir Evrópudómstólinn

Evrópudómstóllinn í Lúxemborg mun í þessari viku fella úrskurð í mikilvægu máli sem snýst um viðskiptavin Ryanair flugfélagsins og bætur henni til handa. Eldgosið í Eyjafjallajökli árið 2010 spilar stóra rullu í málinu en niðurstaða dómstólsins gæti haft gríðarleg áhrif á flugrekstur í framtíðinni komi til þess að lofthelgi verði lokað sökum náttúruhamfara á borð við eldgos.

Fyrrverandi hjákona Kennedys leysir frá skjóðunni

Mimi Alford, ein af fyrrverandi hjákonum John F. Kennedy, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, hefur birt nýjar upplýsingar um samband þeirra í bók sem hún skrifaði. Útdrættir úr bókinni, sem ber titilinn Once Upon a Secret, eða Gamalt leyndarmál, lýsa náum kynnar Alford og forsetans þegar hún var lærlingur í Hvíta húsinu. Í bókinni lýsir hún líka viðbrögðum forsetans þegar Patrick, sonur hans lést. Í bókinni er jafnframt fjallað um sögusagnir um lyfjaneyslu forsetans. Samkvæmt frásögn Alford stóð samband hennar við forsetann yfir í átján mánuði.

Forsætisráðherra Rúmeníu segir af sér

Emil Boc forsætisráðherra Rúmeníu hefur sagt af sér. Í yfirlýsingu segir hann að með því vonist hann til að lægja öldurnar sem risið hafa vegna hagræðingar og niðurskurðar stjórnar hans á fjármálum hins opinbera.

Þung stórskotahríð dynur á íbúum Homs

Þung stórskotahríð dynur nú aftur á íbúum borgarinnar Homs í Sýrlandi. Að sögn fréttamanns BBC sem er á staðnum heyrast sprenginar á 30 sekúndna fresti í borginni.

Öflugur jarðskjálfti við Filippseyjar

Öflugur jarðskjálfti sem mældist 6,8 stig á Richter skók Filippseyjar í nótt. Upptök skjálftans voru á hafsbotni um 70 kílómetra undan ströndum eyjarinnar Negros.

Óttast um afdrif rússneskra vísindamanna á Suðurpólnum

Ekkert hefur heyrst frá hópi rússneskra vísindamanna í eina viku en þeir eru við rannsóknir á Suðurpólnum. Menn hafa miklar áhyggjur af afdrifum þessa hóps en markmið hans var að ná sýnum úr dularfyllsta stöðuvatni heimsins.

Sauli Niinisto hreppti hnossið

Sauli Niinisto, íhaldssamur Evrópusinni, bar sigur úr býtum í seinni umferð forsetakosninganna í Finnlandi í gær. Hann fékk 63 prósent atkvæða og tekur því við af Tarja Halonen, sem gegnt hefur embættinu í tvö kjörtímabil, samtals tólf ár, við miklar vinsældir.

Löggur flytja vegna hótana

Allir 2.500 lögreglumennirnir í landamæraborginni Ciudad Juarez í Mexíkó hafa verið fluttir frá heimilum sínum vegna hótana frá glæpahópum.

Sex líffæri grædd í litla stúlku

Níu ára gömul stúlka frá Maine í Bandaríkjunum er á batavegi eftir að hafa gengist undir sexfalda líffæraígræðslu vegna krabbameins. Hún er að öllum líkindum fyrsta manneskjan til að fá vélinda grætt í sig.

Innilokuð þorp vegna fannkófs

Þyrlur voru notaðar til að koma mat og öðrum nauðsynjum til þorpa á fjalllendum svæðum Bosníu, þar sem fannfergi hefur lokað öllum landvegum.

Segir neitun Rússa skrípaleik

Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hvetur „vini lýðræðislegs Sýrlands“ til þess að standa saman gegn Bashar al-Assad Sýrlandsforseta.

Grísku stjórnarflokkarnir ósammála um aðgerðir

Þrátt fyrir að vera í kapphlaupi við tímann hafa grísku stjórnarflokkarnir ekki getað komið sér saman um viðbrögð við kröfum frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum um enn harðari aðhaldsaðgerðir.

Mona Lisa á tvíburasystur

Viðgerðir á málverki af Monu Lisu, sem hefur árum saman verið geymt á Prado-listasafninu í Madrid, leiddu í ljós að það var málað á sama tíma og hið fræga verk Leonardo da Vincis. Áður var talið að málverkið væri eftirgerð af verki da Vincis, en nú þykir ljóst að nemandi hans hafi málað mynd af sömu fyrirsætu um leið og meistarinn málaði sitt verk, og nemandinn þá haft vinnubrögð da Vincis til hliðsjónar.

Ísbjarnarhúnn vekur lukku í Toronto

Fjögurra mánaða gamall ísbjarnarhúnn var kynntur fyrir gestum dýragarðsins í Toronto í fyrsta sinn í gær. Húnninn hefur verið í lokaður frá umheiminum frá því að móðir hans yfirgaf hann.

PETA æf út í nýjustu kvikmynd Liam Neeson

Dýraverndunarsamtökin PETA biðla til fólks um að sniðganga nýjustu kvikmynd leikarans Liam Neeson eftir að hann upplýsti að hann hafi borðað úlfakjöt við tökur á myndinni.

Depardieu mun leika Strauss-Kahn

Franski leikarinn Gerard Depardieu mun leika Dominique Strauss-Kahn í væntanlegri kvikmynd. Myndin mun fjalla um kynlífshneyksli sem leiddu til þess að Strauss-Kahn sagði af sér sem forstjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

Tækniundrið Philae mun lenda á halastjörnu

Könnunarflaugin Rosetta stefnir nú hraðbyri í átt að halastjörnunni 67P/Churyumov-Gerasimenk. Stefnt er að því að hún muni lenda á halastjörnunni í janúar árið 2014 og brjóta þá blað í sögu geimvísinda.

Tíbeskir munkar kveiktu i sjálfum sér

Þrír tíbeskir munkar kveiktu í sjálfum sér í suðvesturhluta Kína fyrr í dag. Fórnfæringarnar voru gerðar í mótmælaskyni við yfirráðum Kína yfir Tíbet.

Ekkert lát á kuldakasti í Evrópu

Ekkert lát er á kuldakastinu sem nú gengur yfir Evrópu. Yfirvöld í Úkraínu segja að níu hafi látist í nótt og því hafa alls 131 látist í landinu.

Mitt Romney sigraði í Nevada

Mitt Romney, fyrrverandi fylkisstjóri Massachusetts, sigraði í forvali Repúblikanaflokksins fyrir forsetakosningar í Nevada í nótt.

Ákvörðun Rússlands og Kína "svívirðileg"

Aðildarríki Öryggisráðs Sameinuðu Þjóðanna harma ákvörðun Rússlands og Kína um að hafa beitt neitunarvaldi sínu í gær þegar ráðið fjallaði um ályktun varðandi ástandið í Sýrlandi.

Samgöngur farnar úr skorðum í Bretlandi

Snjó hefur kyngt niður í Bretlandi og liggja samgöngur þar víða niðri. Ökumenn hafa neyðst til að skilja bíla sína eftir á hraðbrautum vegna snjóþungans og hafa björgunarsveitarmenn á sérútbúnum bifreiðum þurft að kalla eftir aðstoð.

Fljúgandi fólk yfir New York

Auglýsingabrella hefur vakið mikla athygli á myndbandavefsíðunni YouTube. Myndbandið sýnir nokkrar fjarstýrðar flugvélar í mannslíki svífa yfir götum New York í Bandaríkjunum.

Féll í kælilaug kjarnaofns

Starfsmaður í kjarnorkuveri í Kaliforníu varð fyrir þeirri óheppilegri reynslu að detta ofan í kælilaug kjarnaofns. Slysið átti sér stað þegar hann teygði sig í vasaljós sem hann hafði misst.

Öryggisráðið fundar um Sýrland

Talið er að 200 hafi látist í sprengjuárásum í borginni Homs í Sýrlandi í dag. Andspyrnuhópar segja að yfirvöld þar landi hafi staðið að baki árásinni.

Rússar mótmæla í frosthörkum

Tugir þúsunda mótmæltu í Moskvu í dag en þess er krafist að Vladimír Pútín dragi forsetaframboð sitt til baka. Skipuleggjendur mótmælanna segja að 120.000 manns hafi verið á mótmælunum.

Manning mun fara fyrir herdómstól

Bandaríski herinn hefur staðfest að Bradley Manning, greiningasérfræðingnum sem gefið að sök að hafa lekið þúsundum skjala sem innihéldu mikilvægar öryggisupplýsingar til uppljóstrunarsíðunnar Wikileaks, verði sóttur til saka fyrir herdómstólum, að því er kemur fram á fréttavef BBC.

Sjá næstu 50 fréttir