Fleiri fréttir

Skrítnustu hlutir sem lenda í endurvinnslu

Kynlífsleikföng og uppblásnar dúkkur tróna á toppi nýs lista yfir hluti sem fólk reynir ranglega að endurvinna. Almenningur hefur á síðustu misserum sífellt verið hvattur meira til endurvinnslu. En sumir ganga of langt í viðleitni sinni. Í London var á dögunum birtur listi yfir hluti sem fólk reynir ranglega að endurvinna. Á listanum voru undarlegustu hlutir, svo sem dauð gæludýr, fiskabúr, krukka full af ösku (jarðneskar leifar látins manns) og svo framvegis. Starfsmaður sem vann að listanum segir málið ekkert grín. „Ef einn hlutur er settur í endurvinnslu og starfsmenn okkar taka ekki eftir honum verður að grafa alla sendinguna með almennu rusli. Hver sending er 10 tonn.," segir hann, en kostnaðurinn sem af þessu hlýst hleypur á hundruðum þúsunda. Því er mikilvægt að fólk missi ekki gersamlega stjórn á sér við endurvinnslu og haldi í ákveðna gagnrýni þegar það flokkar í tunnurnar.

Smæsti dreki heims afhjúpaður

Smæsta drekastytta heims var afhjúpuð í dag í Taiwan. Styttan var gerð af því tilefni að árið 2012 verður ár drekans, samkvæmt kínverska tímatalinu. Drekinn er aðeins tælega einn og hálfur sentimetri á lengd. Því er stækkunargler nauðsynlegt til að njóta þessa listaverks. Segir myndlistarmaðurinn að smíði verksins hafi verið þrautinni þyngri.

Vinnur að myndun þjóðstjórnar

Gríska þingið lýsti yfir trausti á ríkisstjórn George Papandreou með naumum meirihluta í gærkvöldi. Papandreou vinnur nú að myndun þjóðstjórnar og hefur fallið frá tillögu um að björgunarpakki til handa Grikkjum fari í þjóðaratkvæðagreiðslu. Ríkisstjórn Papandreous fékk stuðning þingsins með 153 atkvæðum af 300 á gríska þinginu. Papandreou fundaði með Karolos Papoulias, forseta Grikklands, klukkan tíu að íslenskum tíma til að greina honum frá áformum um myndun þjóðstjórnar. Forsvarsmenn helsta stjórnarandstöðuflokksins, Nýs lýðræðis, hafa þó lýst því yfir að þeir muni ekki taka þátt í myndun slíkrar stjórnar með Papandreou, en hann hefur lýst því yfir að hann muni sjálfur biðjast lausnar við myndun nýrrar samsteypustjórnar.

Facebook virkar ennþá

Eins og flestir hafa eflaust tekið eftir er samskiptamiðillinn facebook enn uppi þrátt fyrir að tölvuhakkargengið Anonymous hafi hótað að loka síðunni í dag. Fram kom fyrr í dag að árásin ætti að hefjast klukkan eitt í að íslenskum tíma. Enn hafa þessar umræddu árásir því engan árangur borið.

Hefja pílagrímsför til Mekku

Um tvær og hálf milljón múslima hefja í dag árvissa pílagrímsför til heilögu borgarinnar Mekku. Pílagrímsförin er í hugum múslima tákn einingar og auðmýktar gagnvart Guði, og er trúarleg skylda sem sannir múslimar verða að framkvæma minnst einu sinni á lífstíð sinni. Í dag hóf fjöldi hvítklæddra pílagrímsfara þessa fimm daga för sína með því að klífa fjallið Mercy at Arafat, sem er 19 kílómetra frá Mekku. Pílagrímsförina ber í ár upp á tímum sem miklar hræringar hafa verið í hinum arabíska heimi. Meðal annars má nefna blóðug mótmæli í Sýrlandi. Eining og friður er því pílagrímsförum sérlega hugleikin í ár og segjast margir biðja fyrir "því að þjóð þeirra geti staðið sameinuð öxl við öxl í framtíðinni". Múslimar hvaðanæva að í heiminum bíða alla ævi sína eftir möguleikanum á að leggja í þessa heilögu för og feta þar með í fótspor spámannsins Múhammeðs.

Andy Rooney látinn

Andy Rooney lést í dag, 92 ára að aldri. Hann var einn vinsælasti og umtalaðasti sjónvarpsmaður Bandaríkjanna, helst þekktur fyrir vikulegan pistil sinn „Nokkrar mínútur með Andy Rooney“ sem var hluti af fréttaþættinum 60 Minutes.

Mannskæðar sprengjuárásir í Nígeríu

60 manns hið minnsta létu lífið í sprengjuárásum og skotbardaga í Norður-Nígeríu í gærkvöldi, að sögn vitna. Fjórar lögreglustöðvar og nokkrar kirkjur voru sprengdar og sprengjunum fylgdi skotbardagi árásaraðilanna og öryggissveita.

Stórfelldur árekstur í Bretlandi

Að minnsta kosti 27 bílar rákust á í einum stærsta árekstri í manna minnum í Bretlandi á hraðbrautinni M5. Þessi stórfelldi árekstur varð í gærkvöldi með þeim hætti að minnst 27 bílar rákust saman af miklum krafti. Í árekstrinum urðu nokkrar öflugar sprengingar. Samkvæmt upplýsingum lögreglu sátu einhverjir fastir í brennandi bílum sínum í lengri tíma. Lögreglumenn unnu í alla nótt að því að losa fólk.

Anonymous til atlögu

Árás tölvuþrjótana Anonymous á Facebook á að hefjast klukkan eitt í dag að íslenskum tíma. Samkvæmt heimildum helstu tölvuvefsíða bandaríkjana gengur hópnum vel að skipulegga árásina en sumir meðlimir hafa sagt að árásin sé nú þegar hafa hafin. Facebook er hins vegar opið eins og er en margir draga það í efa að árásin hafi einhver eiginleg áhrif á samskiptarisann. Anonymous tilkynntu árás sína fyrir nokkrum mánuðu síðan sem hefur gefið stjórnendum facebook góðan tíma til að undirbúa sig.

Vinnur að myndun þjóðstjórnar

George Papandreou, forsætisráðherra Grikkja vinnur nú að myndun þjóðstjórnar í landinu, en ríkisstjórn hans stóðst vantrauststillögu á gríska þinginu í gær og hélt þar með velli. Forsvarsmenn helsta stjórnarandstöðuflokksins, Nýs lýðræðis, hafa hins vegar lýst því yfir að þeir muni ekki taka þátt í myndun þjóðstjórnar með Papandreou, að því er fram kemur á fréttavef BBC. Papandreou mun hitta Karolos Papoulias, forseta Grikklands, núna klukkan tíu að íslenskum tíma, til að greina honum frá áformum um myndun þjóðstjórnar. Papandreou kom heimsbyggðinni á óvart, en þó sérstaklega leiðtogum ríkja á evrusvæðinu, þegar hann tilkynnti á mánudag að björgunarpakki til handa Grikklandi færí í þjóðaratkvæðagreiðslu í landinu. Dagsetning þjóðaratkvæðagreiðslunnar hefur ekki verið ákveðin.

Enn flækjast málin hjá meintri barnsmóður Biebers

Vandræðin virðast ekki ætla að hætta fyrir Mariah Yeater, 19 ára stúlku frá San Diego. Fyrr í vikunni greindi hún frá ástarfundi hennar og stórstjörnunnar Justin Bieber. Hún sagði Bieber vera barnsföður sinn.

Enn eitt námuslysið í Kína

Tugir námumanna sitja nú fastir í kolanámu í Kína eftir grjóthrun átti sér stað í gær. Fjórar létust og er talið að um 50 námumenn séu fastir í námunni. Slysið átti sér stað Henan héraði í Kína.

Stjörnustríðsaðdáandi myrti eiginkonu sína

Rickie La Touche var fundinn sekur um að hafa myrt eiginkonu sína eftir að hún eyðilagði Stjörnustríðsleikföng hans. Hann var dæmdur í ævilangt fangelsi fyrir morðið.

Aðgerðarsinnar teknir höndum við Gasaströndina

Sjóher Ísraels stöðvaði tvö skip sem reyndu brjótast í gegnum herkvína við Gasaströndinni í dag. Sjóliðar gengu um borð í skipin sem voru á leið frá Tyrklandi. 27 aðgerðarsinnar voru um borð í bátunum en þeir voru að ferja vistir til Gasa-svæðisins.

Sex falla í skyndiflóðum

Að minnsta kosti sex hafa látist í skyndiflóðum í hafnarborginni Genoa á Ítalíu í dag. Mikil rigning hefur verið á svæðinu síðustu daga og er henni kennt um flóðin.

Hugsanlegt líf undir yfirborði Mars

Niðurstöður nýrrar rannsóknar á vegum Geimferðastofnunnar Bandaríkjanna, NASA, gefa til að kynna að líf hafi líklega aldrei verið á yfirborði Mars. Aftur á móti eru talsverðar líkur á að líf hafi þrifist undir yfirborði plánetunnar.

Kínverjar vara við aðgerðum gegn Íran

Hong Lei, talsmaður Utanríkisráðuneytis Kína, sagði í dag að nauðsynlegt sé að koma í veg fyrir hugsanlegar árásir á Íran. Hann sagði einnig að Íran verði að virða áherslur og reglur Alþjóðakjarnorkumálastofnunnar.

Tugir fastir í kolanámu í Kína

Tugir kínverskra námamanna eru fastir í kolanámu í Henan héraði þegar námugöngin féllu saman. Fjórir létust hið minnsta en um fimmtíu er saknað. Slysið átti sér stað seint í gærkvöldi. Mörg hundruð námamenn látast á hverju ári í Kína og eru námastörft þar í landi talin ein hættulegasta atvinnugrein í heimi. Fyrr í vikunni létust 29 verkamenn í gas sprengingu.

Tvö þúsund ferðalangar fastir við Everest

Um tvö þúsund ferðalangar eru fastir við fjallsrætur Mount Everest vegna óveðurs sem hefur stöðvað flugsamgöngur við flugvöllinn í bænum Lukla í Nepal. Á meðal þeirra sem eru fastir eru ferðamenn og leiðsögumenn en þeir hafa verið veðurteptir á svæðinu í fimm daga. Fréttamaður breska ríkisútvarpsins segir að matarbirgðir á hótelum á svæðinu séu að klárast og þá hafa sum hótelin þurft að grípa til þess að nota matsali sem svefnhótel. Samkvæmt veðurspám er ekki búist við því að óveðrið gangi niður á næstu dögum.

Jarðskjálftar kosta flest mannslíf af náttúruhamförum

Jarðskjálftar eru þær náttúruhamfarir sem kosta flest mannslíf. Þannig fórust um 780 þúsund manns í jarðskjálftum á síðustu tíu árum eða um 60% allra þeirra sem fórust í náttúruhamförum á þessum tímabili. Þetta kemur fram í nýrri úttekt í breska læknatímaritinu Lancet.

Finninn Kimmo Sasi næsti forseti Norðurlandaráðs

Norðurlandaráð hefur kosið Finnann Kimmo Sasi forseta ráðsins 2012. Finnar munu fara með formennsku í Norðurlandaráði á næsta ári. Hann tekur við stöðunni af Dananum Bertel Haarder.

Hefur haft margvísleg áhrif

„Undanfarin tuttugu ár hefur þróunarskýrslan skapað umræður og haft margvísleg áhrif víða um heim,“ segir Khalid Malik, sviðsstjóri þróunarskýrslusviðs Sameinuðu þjóðanna.

Ísjaki á stærð við Berlín að myndast

Risavaxinn ísjaki er nú að myndast á vesturhluta Suðurskautslandsins. Vísindamenn fylgjast grannt með en sérfræðingar á Geimferðastofnun Bandaríkjanna, NASA, telja að endanleg stærð ísjakans verði um 880 ferkílómetrar.

Vísindamenn hægja á öldrun músa

Vísindamönnum í Bandaríkjunum hefur tekist að hægja á öldrun músa. Með því að eyða óvirkum frumum gátu vísindamennirnir komið í veg fyrir hrukkumyndum, hrörnun vöðva og starblindu í músunum.

Ný Bond mynd á næsta ári

Leikarinn Daniel Craig tilkynnti í dag að 23. kvikmyndin um spjærann James Bond muni heita Skyfall. Tökur á myndinni hefjast í vikunni og verður hún frumsýnd þann 23. október á næsta ári.

Táragasi beitt á bandaríska mótmælendur

Lögregla í Bandaríkjunum beitti táragasi gagnvart mótmælendum í Oakland fyrr í dag. Mótmælendurnir kenna sig við Occupy Wall Street hreyfinguna. Eftir friðsamleg mótmæli gærdagsins bárust lögreglu upplýsingar um að mótmælendur hefðu brotist inn í byggingu og kveikt elda seint í gærkvöld. Þá höfðu einhverjir lamað starfsemi hafnarinnar í Oakland. Lögreglan mætti á staðinn til að reyna að dreifa mótmælendum. Að sögn yfirvalda tóku þá mótmælendur að kasta steinum og skjóta flugeldum að lögreglumönnum og þar með þvinga þá til að beita táragasi.

Með andlit á eista

Læknar sem meðhöndluðu mann sem fann fyrir verkjum í eista urðu furðu lostnir þegar þeir skoðuðu röntgenmyndir af eistanu. Við þeim blasti mynd af andliti. Röntgenmyndin birtist í grein í vísindaritinu Urology og barst þaðan til allra helstu dagblaða og vefrita í heimi, enda þykir myndin einstök.

Umhverfishættur ógna lífskjaraþróun

„Sjálfbærni er ekki eingöngu og ekki einu sinni aðallega umhverfismál,“ sagði Helen Clark, yfirmaður Þróunarstofnunar Sameinuðu þjóðanna, þegar hún kynnti nýjustu þróunarskýrslu stofnunarinnar í Kaupmannahöfn í gær.

Telur aðild Palestínu að UNESCO ekki til góðs

„Aðild Palestínu að stofnunum Sameinuðu Þjóðanna (SÞ) er engum til góðs," sagði Ban Ki-moon, aðalritari SÞ, í viðtali í gær. Hann benti á að afleiðingar þess að fjármagn stofnananna minnki í kjölfar umsókna Palestínu muni bitna á milljónum manna. Sem kunnugt er fékk Palestína inngöngu í UNESCO fyrr í vikunni. Í kjölfarið hættu Bandaríkin og Kanada að styðja stofnunina. Þar með missti stofnunin um einn fjórða hluta fjármagns síns.

Papandreou að segja af sér?

Búist er við því að forsætisráðherra Grikklands, George Papandreou, segi af sér á næsta hálftímanum samkvæmt upplýsingum fréttamiðilsins BBC. Papandreou mun hitta gríska forsetann í dag strax eftir að neyðarfundi í ríkisstjórninni sem hann situr þessa stundina lýkur. Gera menn ráð fyrir því að þar muni hann bjóðast til að láta af völdum og leggja til að mynduð verði samsteypustjórn með Lucas Papademos, fyrrverandi varaforseta seðlabanka Evrópu, í forsvari.

Málaferli vegna dauðrar rottu

Þegar danska matvælaeftirlitið fékk tilkynningu frá fyrirtækinu Flex Pack, sem selur Nupo megrunarduftið, í apríl síðastliðnum um að fundist hefði dauð rotta í gámi með heslihnetum frá Tyrklandi ákvað eftirlitið að farminum, 24 tonnum, yrði eytt. Litið var svo á að hneturnar væru mengaðar af úrgangi frá rottum og þess vegna gætu þær verið heilsuspillandi. Þær væru ekki hæfar til neyslu.

Múhameðsgrín vekur viðbrögð

Tveimur eldsprengjum var varpað inn á skrifstofur franska skoptímaritsins Charlie Hebdo í fyrrinótt. Francois Fillon, forsætisráðherra Frakklands, fordæmdi árásina.

Lindsay Lohan aftur á leið í fangelsi

Leikkonan Lindsay Lohan er aftur á leið í fangelsi og þarf að afplána 30 daga vegna brota á skilorði frá fyrri dómi. Henni er gert að mæta í afplánunina fyrir 9. nóvember næst komandi.

G-20 fundurinn hefst í dag í skugga Grikklands

Fundur leiðtoga G-20 ríkjanna hefst í Cannes í Frakklandi í dag. Eins og á neyðarfundi leiðtoga Evrópusambandsins í sömu borg í gærdag verður Grikkland í brennidepli á G-20 fundinum.

Skoða peningastreymi til flokka

Danir eiga nú að fá að vita meira um hvaðan féð til stjórnmálaflokkanna kemur. Ríkisstjórn Helle Thorning-Schmidt ætlar að skipa nefnd sérfræðinga sem eiga að skoða vel og vandlega reglurnar um fjárstuðning við stjórnmálaflokka.

Sjá næstu 50 fréttir