Fleiri fréttir

Snúa á veiðiþjófana

Simpansar sem búa í regnskógum Gíneu í Vestur-Afríku hafa lært að skemma gildrur sem lagðar eru af veiðiþjófum, og kenna hver öðrum að forðast og skemma gildrurnar. Frá þessu er sagt á vef BBC.

Töfin ekki sök saksóknara

Asil Nadir, 69 ára auðkýfingur frá Kýpur, þarf að bíða í meira en ár eftir réttarhöldum í Bretlandi. Hann sneri sjálfviljugur aftur til Bretlands í síðasta mánuði eftir að hafa flúið fyrir sautján árum, þegar fyrirtæki hans fór á hausinn.

Yfir 500 hús eru ónýt eftir jarðskjálfta

Í það minnsta 500 hús í borginni Christchurch á Nýja-Sjálandi eru hrunin eftir jarðskjálfta sem reið yfir á föstudag og fjöldi húsa til viðbótar skemmdist. Mikil mildi þykir að enginn hafi látist og aðeins tveir slasast illa.

Ræddu við námumennina

Eftirlifendur úr flugslysi hafa heimsótt námumennina í Chile til að blása þeim von í brjóst. Mennirnir hafa nú verið fastir neðanjarðar í mánuð.

Fann pabba sinn fyrir tilviljun

Wanda Rodriguez, hjúkrunarkonu í New York, brá heldur en ekki í brún þegar hún tók á móti sjúklingi í síðustu viku. Þar var nefnilega kominn faðir hennar, sem Wanda hafði ekki séð eða heyrt frá í 41 ár, eða síðan hann stakk af frá konu sinni og börnum.

Útgöngubanni aflétt á Nýja Sjálandi

Enn hafa engar fregnir af mannskaða borist frá Nýja Sjálandi, en afar öflugur jarðskjálfti reið yfir Christchurch, næststærstu borg landsins, í gærmorgun. Tveir eru þó þungt haldnir eftir að hafa orðið fyrir grjót- og glerhruni í skjálftanum.

Köstuðu eggjum og skóm í Tony Blair

Um tvö hundruð mótmælendur voru mættir yfir utan bókabúð í Dublin í morgun en Tony Blair fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, hafði boðað komu sína í búðina til að árita eintök af endurminningum sínum.

Borgin eins og vígvöllur eftir jarðskjálfta

Vitni lýsa borginni Christchurch í Nýja Sjálandi eins og vígvelli eftir að jarðskjálfti að styrk 7,1 skók borgina snemma í morgun. Raflínur, skólp- og vatnslagnir og vegakerfi eru víða í ólagi eftir skjálftann, og hundruð bygginga hafa hrunið að hluta.

Neituðu að vinna með fíkniefnahring

Yfir sjötíu manns, sem fíkniefnasmyglarar myrtu í Mexíkó fyrir tæpum tveimur vikum, höfðu neitað að vinna með glæpahringnum. Annar tveggja manna, sem lifðu af, sagði sögu sína í sjónvarpsviðtali á leið heim til Ekvador.

Flutningaflugvél hrapaði í Dubai

Tveir létust þegar flutningaflugvél af gerðinni Boeing 747 fórst í Sameinuðu arabísku furstadæmunum í kvöld. Vélin hrapaði skömmu eftir flugtak frá alþjóðaflugvellinum í Dubai.

Miklar skemmdir í miðborginni

Umtalsverðar skemmdir blasa við víða í miðborg næst fjölmennstu borgar Nýja Sjálands eftir að harður jarðskjálfti reið yfir suðurhluta landsins seinnipartinn í dag. Skjálftinn var að stærðinni 7,2 en upptök hans voru í um 30 kílómetra fjarlægð frá borginni.

Öflugur skjálfti á Nýja Sjálandi

Öflugur jarðskjálfti reið yfir suðurhluta Nýja Sjálands síðdegis. Skjálftinn var að stærðinni 7,1 en upptök hans voru 55 kílómetra norðvestur af Christchurch sem er önnur stærsta borg landsins. Fjölmargir eftirskjáltar hafa mælst undanfarnar tvær klukkustundir. Þá er búist við því að fljóðbylgja fylgi í kjölfarið. Umtalsverðar skemmdir yrðu á byggingum og öðrum mannvirkjum.

Tugir látnir eftir sprengjuárás í Pakistan

Að minnsta kosti 42 eru látnir og um hundrað slösuðust þegar sprengja sprakk á samkomu Sjía múslíma í borginni Quetta í Pakistan í dag. Fundargestir voru mættir til þess að lýsa yfir stuðningi við baráttu Palestínumanna en þetta er í annað sinn sem ráðist er á Sjía múslíma á einni viku í landinu en Sjíar eru minnihlutahópur í Pakistan.

Earl missir vind úr seglum

Fellibylurinn Earl hefur nú náð ströndum Norður Karólínu í Bandaríkjunum og stefnir að Nýja Englandi. Áður en hann náði landi hafði þó dregið verulega úr styrk hans og flokkast hann nú sem annars stigs fellibylur en hann hafði náð fjórða stigi þegar mestur vindurinn var í honum. Yfirvöld hvetja íbúa þó til þess að búa sig vel undir veðrið því enn geti hann blásið kröftuglega.

27 eitulyfjasmyglarar felldir í Mexíkó

Mexíkóski herinn felldi 27 meðlimi eiturlyfjagengis þegar skotbardagi braust út við bandarísku landamærin í nótt. Herflokkur varð fyrir árás þegar hann nálgaðist það sem virðist hafa verið þjálfunarbúðir fyrir glæpamennina en búðirnar uppgötvuðust í eftirlitsflugi flughersins.

Ekki lengur þörf fyrir guð

Breski vísindamaðurinn og metsöluhöfundurinn Stephen Hawking hefur komist að þeirri niðurstöðu að engin þörf sé fyrir guð til að útskýra tilurð heimsins. Heimurinn hafi einfaldlega orðið til af sjálfu sér, án íhlutunar guðs

Friðarviðræður á ný

Beinar friðarviðræður Ísraela og Palestínumanna hófust í gær í Bandaríkjunum eftir tveggja ára hlé. Þátttakendur sögðust hóflega bjartsýnir, en stefna á að ljúka viðræðum innan árs með samningi um stofnun Palestínuríkis.

Hitametin féllu víða í sumar

Gríðarleg hitabylgja hefur verið í Japan í sumar og mælast hitarnir þar þetta sumarið meiri en nokkru sinni, en mælingar þar hófust árið 1898.

Stuðlað að betri heilsu hafsins

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ákvað á miðvikudag að setja viðmið um gott umhverfisástand sjávar. Þessu er ætlað að auðvelda aðildarríkjum að þróa samhæfðar áætlanir um þessi mál á hverju hafsvæði fyrir sig. Þetta á að tryggja samræmi og þannig auðvelda samanburð milli svæða.

Milljónir barna í mikilli hættu

Enn eru um 2,3 milljónir barna í Pakistan undir fimm ára aldri án lífsnauðsynlegrar hjálpar. Barnaheill – Save the Children hafa náð til um 10 prósent þeirra barna sem hafa þurft að flýja heimili sín vegna þeirra gríðar­miklu flóða sem hafa geisað í landinu undanfarnar fjórar vikur.

Hafa áhyggjur af olíulekanum

Barack Obama, Bandaríkjaforseti, fundaði í dag og í kvöld með embættismönnum vegna sprengingarinnar sem varð á olíuborpalli á Mexíkóflóa út af ströndum Louisiana í dag. Björgunarmenn segja olíuslikju á sjónum. Robert Gibbs, talsmaður Hvíta hússins, segir að Obama muni fylgjast náið með framvindu mála.

Annar olíuborpallur á Mexíkóflóa sprakk

Olíuborpallur sprakk á Mexíkóflóa í dag á svipuðum slóðum og annar olíuborpallur sprakk í apríl. Umræddur borpallur er í eigu fyrirtækisins Mariner Energy. Þrettán starfsmönnum tókst að komast undan og hefur þeim nú verið bjargað, að því er fram kemur á vef breska ríkisútvarpsins. Þar er haft eftir yfirmanni hjá bandarísku strandgæslunni að olíuflekkir hafi sést við borpallinn.

Um 240 konum nauðgað í Kongó

Grunur leikur á að um 240 konum, stúlkum og börnum hafi verið nauðgað þegar að uppreisnarmenn hertóku bæ í Kongó í Afríku á dögunum. Þetta segja Sameinuðu þjóðirnar í nýrri skýrslu. Yfirvöld í Kongó höfðu áður sagt að þeim hefðu borist tilkynningar um 150 nauðganir í bænum.

Friðarferlið hafið að nýju

Beinar friðarviðræður Ísraela og Palestínumanna eru hafnar eftir tveggja ára hlé. Viðræðurnar fara fram í Washington höfuðborg Bandaríkjanna og í gærkvöldi bauð Barack Obama forseti til kvöldverðar í Hvíta húsinu.

Hague sver af sér samkynhneigð

Utanríkisráðherra Bretlands hefur gefið út yfirlýsingu þar sem sögusögnum um samkynhneigð hans er vísað á bug.

Námamennirnir eru ekki byttur og dópistar

Heilbrigðisráðherra Chile hefur þurft að koma fram í fjölmiðlum og kveða niður sögusagnir þess efnis að námamennirnir 33 sem dúsa í lokaðri námu á 700 metra dýpi, séu alkóhólistar og fíkniefnaneytendur.

Lifði af fall af fertugustu hæð

Rúmlega tvítugur maður lifði af fjörutíu hæða fall ofan af húsþaki í New York. Maðurinn lenti á fólksbifreið af gerðinni Dodge Charger. Hann fór í gegnum bakrúðu bílsins og hafnaði í aftursætinu. Maðurinn brotnaði á báðum fótum en svo virðist sem hann hafi stokkið fram af þakinu.

Segjast hóflega bjartsýnir

Litlar vonir virðast bundnar við að nýjar viðræður Ísraela og Palestínumanna skili árangri, þótt þátttakendur segist hóflega bjartsýnir.

Forsendan fyrir stríðinu reyndist ekki rétt

„Vandinn við þetta stríð, í huga margra Bandaríkjamanna, er að ég held sá, að forsendan sem notuð var til að réttlæta upphaf þess reyndist þegar til kom ekki rétt,“ sagði Robert Gates, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, á miðvikudag þegar hann heimsótti bandaríska hermenn í borginni Ramadi í Írak.

Blair: Brown var óþolandi

Ævisaga Tony Blair fyrrverandi forsætisráðherra Breta kemur út í dag og í henni vandar hann eftirmanni sínum í Downing stræti ekki kveðjurnar.

Fjöldamorðingi gerði samning við djöfulinn

Lögregla í höfuðborg Argentínu hefur handtekið mann sem á síðustu vikum hefur myrt sex manneskjur til að þóknast djöfli einum. Maðurinn, Marcelo Antelo, er 22 ára gamall og segja fjölmiðlar þar í landi að hann hafi gert einskonar samning við djöfulinn, eða öllu heldur goð í andatrú sem kallast "Höfðingi dauðans", eða San la Muerte.

Minnast upphafs heimsstyrjaldarinnar

Þess er nú minnst í Póllandi að 71 ár er liðið frá upphafi Seinni heimsstyrjaldarinnar þegar Þjóðverjar réðust á Pólland. Pólsk freigáta skaut í morgun nokkrum skotum undan ströndum landsins á Eystrasalti en þann 1. september 1939 hóf Þýska herskipið Schleswig-Holstein á pólska herstöð á ströndinni.

Námamennirnir beðnir afsökunar

Eigendur námunnar þar sem 33 verkamenn lokuðust inni á dögunum hafa beðið þá og fjölskyldur þeirra afsökunar. Björgunarstörf hófust í gær en búist er við því að það taki þrjá til fjóra mánuði að ná til mannanna, sem eru á 700 metra dýpi.

Earl nálgast austurströndina

Fellibylurinn Earl nálgast nú austurströnd Bandaríkjanna og yfirvöld í Norður Karólínu hafa fyrirskipað fólki í strandhéruðum ríkisins að koma sér í öruggt skjór.

Sjá næstu 50 fréttir