Fleiri fréttir

Fleiri kærur vegna lögreglu í London

Fleiri kærur hafa borist vegna meints ofbeldis lögreglu í London meðan á G20-ráðstefnunni stóð um mánaðamótin. Alls hafa nú 145 kærur eða kvartanir borist vegna framgöngu lögreglu gagnvart mótmælendum en einn mótmælendi lést meðan mótmælin stóðu yfir.

Shinawatra hvetur til stillingar

Thaksin Shinawatra, fyrrverandi forsætisráðherra Taílands, hvetur stuðningsmenn sína til að sýna stillingu og biður konung landsins um að leysa þær deilur sem blossað hafi upp í taílenskum stjórnmálu. Hann segist ekki geta fjármagnað endurkomu í taílensk stjórnmál að þessu sinni.

Framleiðandi Carry On-myndanna látinn

Peter Rogers, framleiðandi bresku Carry On-myndanna, er látinn, 95 ára að aldri. Rogers framleiddi allar myndirnar en þær urðu 31 þegar upp var staðið og voru gerðar á árunum 1958 - 1978 auk einnar árið 1992.

Rússar á móti heræfingum í Georgíu

Rússar hafa biðlað til Nató að bandalagið hætti við fyrirhugaðar heræfingar í Georgíu sem Rússar líta á sem ögrun við sig. Dmitry Rogozin sendifulltrúi Rússa hjá Nató segir fyrirætlanirnar fáránlegar og að hann hafi farið fram á það við framkvæmdastjóra Nato að hætt verði við æfingarnar eða þeim að minnsta kosti frestað.

Framtalsskil í Bandaríkjunum í gær

Lokadagur til að gera skil á skattframtölum í Bandaríkjunum var í gær. Barack Obama Bandaríkjaforseti notaði tækifærið og lýsti því yfir í ávarpi í Hvíta húsinu að hann myndi gera allt sem mögulegt væri til að létta skattbyrði þeirra sem mest þyrftu á því að halda.

Seðlum rigndi í Danmörku

Skæðadrífa af peningaseðlum sveif um loftið á þjóðvegi nærri Ballerup í Danmörku í gær og neyddist lögregla til að loka veginum á meðan fénu var smalað saman. Þarna hafði maður rænt eitt útibúa Danske Bank í Ballerup og lagt svo á flótta.

Stærstu lýðræðiskosningar heims

Kosningar til indverska þingsins hófust í morgun og munu standa næsta mánuðinn. Kosningarnar fara fram í áföngum en rúmlega 700 milljónir manna eru á kjörskrá og er um stærstu lýðræðislegu kosningar heimsins að ræða.

Sakfelldur fyrir að myrða fjóra Íraka

Bandarískur hermaður hefur verið sakfelldur fyrir að myrða fjóra íraska fanga sem teknir voru höndum í Baghdad vorið 2007 í kjölfar skotbardaga.

Scotland Yard vill endurskoðun óeirðalöggæslu

Yfirmaður Scotland Yard í Bretlandi hefur fyrirskipað gagngera endurskoðun á starfsaðferðum lögreglu við óeirðir í kjölfar þess er mótmælandi lést af völdum hjartaáfalls meðan á mótmælum vegna G20-ráðstefnunnar stóð í London um mánaðamótin.

Kanadískir Vítisenglar handteknir

Um 150 manns voru handteknir í riasastórri aðgerð lögreglu á höfuðstöðvar Vítisengla í Kanada. Um tólf hundruð lögreglumenn tóku þátt í aðgerðinni en svipaðar aðgerðir voru framkvæmdar í Frakklandi og Dóminíska lýðveldinu á sama tíma. Hinir grunuðu voru handteknir eftir niðurstöðu úr svokallaðri „Hákarlsaðgerð“ sem staðið hefur yfir í um þrjú ár.

Ellefu látnir í bílsprengingu í Írak

Að minnsta kosti ellefu létu lífið og tuttugu og þrír særðust þegar sprengja sprakk í bíl í borginni Kirkuk í norðurhluta Íraks í dag. Þetta staðfestir lögregla í samtali við BBC nú í kvöld.

Sjóránin við Sómalíu bitna á neyðaraðstoð

Tíð sjórán út af ströndum Sómalíu kosta hjálparsamtök og þjóðir mikla fjármuni og bitna á neyðaraðstoð við fjölmörg ríki í Afríku. Frá lokum febrúar hefur verið ráðist á 78 skip á svæðinu.

Rod Blagojevich í raunveruleikaþátt hjá NBC

Rod Blagojevich, fyrrum ríkisstjóri Illinois, þurfti ekki að búa við atvinnuleysi lengi. Blagojevich vann sér það til frægðar í fyrra að ætla að falbjóða öldungadeildarþingsæti Baracks Obama í Illinois þegar hinn síðarnefndi hyrfi til annarra starfa.

Flykkjast í ófrjósemisaðgerðir í kreppunni

Bandaríkjamenn gangast nú undir ófrjósemisaðgerðir sem aldrei fyrr. Frá þessu er greint í New York Times og segjast sérfræðingar sem þar er rætt við sjá glöggan svip með ástandinu sem ríkti í kreppunni miklu á fjórða áratug síðustu aldar en þá hafi fæðingartíðni snarlækkað í Bandaríkjunum.

Stakk starfsmann vinnumiðlunar

Starfsmaður atvinnumiðlunar í Árósum í Danmörku var stunginn í miðju viðtali við viðskiptavin í gær. Starfsmaðurinn, tæplega fimmtug kona, var að taka niður upplýsingar um rúmlega fertugan viðskiptavin þegar sá síðarnefndi dró upp hníf og stakk hana rétt neðan við vinstri handlegg.

Lík fannst á fimm stöðum í Bretlandi

Hnífstunga í bakið var dánarorsök manns sem hafði verið svo grátt leikinn að lík hans fannst í bútum á fimm stöðum, með allt að 150 kílómetra millibili, í Hertfordskíri í Bretlandi í lok mars.

Heitasti dagur ársins í London

Lundúnarbúar mega búast við hlýrra veðri en íbúar Tenerife og Barcelona á Spáni í dag en gert er ráð fyrir að hitastigið verði allt að 21 gráða í suður- og austurhluta Bretlands og að heitasti dagur ársins fram að þessu sé runninn upp.

Friður og forvarnir framar handtökum

Lögreglan ætti fremur að einbeita sér að því að koma á og halda friði í samfélaginu, frekar en að framkvæma sem flestar handtökur. Þetta segir lögreglustjóri og fyrrum aðstoðardómari í Glósturskíri í Bretlandi.

Kastró jákvæður í garð Bandaríkjamanna

Fyrrum forseti Kúbu, Fídel Kastró, segir að hugmyndir Bandaríkjamanna um að aflétta ferðatakmörkunum og takmörkunum á fjármagnsflutningum til Kúbu séu jákvæðar, en lítilvægar.

Lenti þotu eftir að flugmaður varð bráðkvaddur

Flugumsjónarmenn í Flórída kalla það kraftaverk að farþegi um borð í skrúfuþotu af gerðinni Super King Air skyldi ná stjórn á vélinni og ná að lenda henni slysalaust eftir að flugmaðurinn varð bráðkvaddur á leið til Jackson í Mississippi á páskadag.

Elsta klámstjarna Japans aldrei sprækari

Shigeo Tokuda er 75 ára gamall. Hann kallar þó ekki allt ömmu sína og lét þennan virðulega aldur og nokkur grá hár ekki aftra sér frá því að hefja tökur á nýrri klámmynd um páskana.

Kyrrð kemst á í Taílandi

Stjórnarandstæðingar í Taílandi hafa nú haft sig á brott af lóð stjórnarráðs landsins þar sem þeir hafa setið um skrifstofu forsætisráðherra landsins vikum saman.

Sá íbúðina sína í rúst á Facebook

Carolyn Lorimer leigði ungu pari íbúðina sína í Folkstone í Kent og hafði ekki frekari áhyggjur af málinu. Leigjendunum kynntist hún gegnum leigumiðlun þar í bænum sem sagði þau hið grandvarasta fólk, ráðvant og ráðdeildarsamt.

Norður-Kóreumenn hætta öllum kjarnorkuviðræðum

Norður-Kóreumenn segjast munu draga sig út úr viðræðum um að hætta við kjarnorkuáætlun sína eftir að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fordæmdi eldflaugarskot þeirra í síðustu viku sem haldið var fram að væri gervitungl.

Demantaþjófur beitir dáleiðslu

Indverskum svikahrappi tókst að stela demantshálsmenum og -armböndum að verðmæti rúmlega 20 milljónir króna með því að dáleiða starfsmann skartgripaverslunar.

Kynmök á kolólöglegum hraða

Norskt par var stöðvað og á yfir höfði sér himinháar sektir, ekki eingöngu fyrir að aka á rúmlega 130 kílómetra hraða á þjóðvegi rétt utan við Ósló heldur einnig fyrir að stunda kynmök meðan á akstrinum stóð.

Hugðust skemma raforkuver

Rúmlega eitt hundrað manns eru í haldi lögreglu í Nottinghamskíri í Bretlandi, grunaðir um að hafa lagt á ráðin um að fremja skemmdarverk á einu stærsta raforkuveri landsins um helgina.

Hyggst aflétta ferðatakmörkunum til Kúbu

Barack Obama forseti Bandaríkjanna sagði í dag að ríkisstjórn sín muni á næstunni taka skref í átt að frekar afléttingu á ferðatakmörkunum til Kúbu. Þannig verður þeim sem búsettir eru í Bandaríkjunum gert kleift að heimsækja ættmenni sín oftar og auðveldar en áður. Einnig verður fólki leyft að senda meira fé til Kúbu en áður hefur mátt.

Umferðin farin að þyngjast

Umferð er farin að þyngjast til höfuðborgarinnar enda margir á faraldsfæti um helgina. Í gjaldskýli Spalar við Hvalfjarðargöng fengust þær upplýsingar fyrir skömmu að umferðin væri þó enn vel viðráðanleg og engar raðir teknar að myndast.

Segir Brown ekki þurfa að afsaka tölvupósta fyrrum ráðgjafa

Gordon Brown þarf ekki að biðjast afsökunar á tölvupóstsendingum Damian McBride fyrrum ráðgjafa síns að mati Alan Johnson heilbrigðisráðherra landsins. Hann segir menn eiga að biðjast afsökunar á því sem þeir beri ábyrgð á og þetta hafi ekkert með Gordon Brown að gera.

Hríðskotarifflum beitt í Bangkok í morgun

Hríðskotarifflum var beitt í Bangkok á Tælandi í morgun þegar herinn lét til skarar skríða gegn mótmælendum sem vilja forsætisráðherra landsins frá völdum. Fjöldi ferðamanna hefur afpantað ferðir sínar til landsins.

Á ofshraða með stúlku í fanginu

Ungur ökumaður missti ökuskírteinið í Noregi um helgina fyrir að aka á alltof miklum hraða. Lögreglumenn veittu honum eftirför þegar hann mældist á 123 kílómetra hraða. Lögreglumennirnir sáu þá fljótlega að það var ekki bara bíllinn sem var á fullri ferð, heldur parið sem var í honum líka.

Sérsveitarmenn skutu sómalska sjóræningja

Bandarískir og franskir sérsveitarmenn létu til skarar skríða gegn sómölskum sjóræningjum um helgina. Bandarísku sérsveitarmennirnir skutu til bana þrjá af fjórum sjóræningjum sem héldu bandarískum skipstjóra í gíslingu. Skipstjórinn slapp ómeiddur.

Tuttugu og einn lét lífið í bruna í Póllandi

Að minnsta kosti tuttugu og einn lét lífið þegar athvarf fyrir heimilislausa brann til grunna í norðvesturhluta Póllands í nótt. Margir eru slasaðir eftir að hafa stokkið út um glugga til að bjarga sér frá eldinum.

Vilja hefja friðarviðræður

Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, og Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, ræddu saman símleiðis í gær að frumkvæði Abbas. Þetta var fyrsta samtal leiðtoganna frá því að Netanyahu tók við sem forsætisráðherra 31. mars. Talsamaður forsætisráðherrans segir að um vinalegt símtal hafi verið ræða.

Vopnahlé á Srí Lanka

Mahinda Rajapaksa, forseti Sri Lanka, lýsti í gær yfir tveggja daga vopnahléi. Hann vill ekki að stjórnarherinn ráðist á aðskilnaðarsinna Tamíl Tígra og leyfi þess stað almennum borgurum að flýja bardagasvæði.

Uppreisnarmenn drápu 13 í Perú

Uppreisnarmenn í samtökunum Skínandi stíg í Perú hafa undanfarna daga drepið 13 hermenn í tveimur árásum í suðausturhluta landsins. Árásirnar eru sagðar þær umfangsmestu síðastliðin tíu ár.

Maóistar felldu tvo lögreglumenn

Fjörutíu vopnaðir maóistar drápu tvo lögreglumenn og einn óbreyttan borgara þegar þeir réðust inn í dag á lögreglustöð Chhattisgarh fylki sem er í miðhluta Indlands. Í gær drápu þeir fimm lögreglumenn og særðu þrjá í austurhluta landsins.

Hálfbróður Obama meinað að koma til Bretlands

Samson Obama, hálfbróðir Baracks Obama Bandaríkjaforseti, fær ekki að heimsækja Bretland þar sem móður hans býr eftir að hann framvísaði ekki sínum skilríkjum þegar hann var handtekinn fyrir meint kynferðisbrot í nóvember. Hann var grunaður um að hafa áreitt unga stúlku. Þetta kemur fram í breska blaðinu News of the World.

Sjá næstu 50 fréttir