Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Skólabörn Jamies Olivers tóku miklum framförum Skólabörnum í Greenwich í Bretlandi gengur betur í eðlisfræði og ensku eftir að áttatíu og einn skóli þar tók upp matseðil sem meistarakokkurinn Jamie Oliver setti saman. 2.2.2009 16:50
Fæðandi konu bannað að blóta Heilbrigðisyfirvöld í Noregi kanna nú mál hjóna sem kærðu ljósmóður fyrir að banna konunni í blóta þegar hún var að fæða barn sitt. 2.2.2009 14:36
Slegist um hvalina Félagar í Sea Shepherd samtökunum fá blautar móttökur þegar þeir hrella hvalveiðiskip Japana á Suður-Íshafinu. 2.2.2009 14:13
Fundu flak af frægu orrustuskipi Bandarískir fjársjóðsleitarmenn hafa fundið flakið af breska orrustuskipinu Victory sem fórst í fárviðri á Ermarsundi fyrir 264 árum. 2.2.2009 13:40
Gaddafi nýr leiðtogi Afríkusambandsins Muammar Gaddafi Líbýuleiðtogi var í morgun kosinn framkvæmdastjóri Afríkusambandsins á fundi þess í Eþíópíu. Gaddafí hlaut yfirgnæfandi stuðning í embættið en einhverjir fundarmenn voru áhyggjufullir vegna þess hve hann hefði verið umdeildur og væri talinn hvikull. Gaddafi hefur verið virkur innan sambandsins. Hann hefur lengi stutt hugmyndir um nánara samstarf Afríkuríkja á vettvangi þess og lagt til milljónir í stuðning við fátækari sambandsríki. 2.2.2009 12:38
Mestu snjókomu í tvo áratugi spáð í Bretlandi Spáð er mestu snjókomu í tvo áratugi um nánast allt Stóra-Bretland í dag. Almenningssamgöngukerfið í Lundúnum og víðar er nær algjörlega lamað vegna ofankomu. 2.2.2009 12:32
Barist í Srí Lanka Níu almennir borgarar féllu og tuttugu særðust þegar sprengjum var varpað þrívegis á sjúkrahús á norð-austurhluta Srí Lanka. Árásirnar voru gerðar á síðasta sólahring. Uppreisnarmenn Tamíltígra hafa völdin á svæðinu. Stjórnarher landsins segist ekki hafa gert árásir á sjúkrahúsið. 2.2.2009 12:31
Öskuregn í Tokyo Ösku rigndi í morgun yfir úthverfi Tokyo þegar gos hófst í eldfallinu Asama. Fjallið er um hundrað og fjörutíu kílómetra norðvestur af höfuðborg Japans. Viðvörun hefur verið gefin út og fólki bannað að fara innan við fjóra kílómetra að fjallinu. Aska hefur fallið til jarðar í allt að hundrað sjötíu og fimm kílómetra fjarlægð frá fjallinu og grjóthnullungar fundist í þúsund metra fjarlægð. 2.2.2009 12:27
Gáfust upp á að prenta peninga Seðlabankinn í Zimbabwe reyndi í dag að hressa upp á dollara sinn með því að skera tólf núll aftan af honum. 2.2.2009 11:03
Nældu sér í saur á náttúrugripasafninu í London Steingerður risaeðlusaur var það eina sem nokkrir þjófar höfðu upp úr krafsinu þegar þeir létu greipar sópa á náttúrugripasafninu í London. 2.2.2009 08:07
Ísraelar vörpuðu sprengjum á Gaza í gær Ísraelskar orrustuþotur gerðu árás á öryggismiðstöð í þorpi á Gaza-svæðinu í gærkvöldi auk þess að varpa sprengjum á munna smyglganga við egypsku landamærin. Enginn særðist í árásinni en Ísraelar hringdu á undan sér og vöruðu við árásinni. Um var að ræða hefndaraðgerð eftir að liðsmenn Hamas-samtakanna skutu flugskeytum yfir til Ísrael og særðu nokkra hermenn fyrr í gær. 2.2.2009 07:35
Japanska eldfjallið Asama gýs Gos hófst í japanska eldfjallinu Asama snemma í morgun en það er um 140 kílómetra norðvestur af höfuðborginni Tókýó. Viðvörun hefur verið gefin út og er fólki bannað að vera á ferli nær fjallinu en fjóra kílómetra. Aska úr gosinu er tekin að falla til jarðar í allt að 175 kílómetra fjarlægð frá fjallinu. Asama, sem er eitt af 108 virkum eldfjöllum í Japan og gaus síðast árið 2004. 2.2.2009 07:32
Sex ár frá Kólumbíuslysinu í gær Fánar voru dregnir í hálfa stöng í gær við Kennedy-geimferðamiðstöðina til að minnast geimfaranna sjö sem fórust þegar Kólumbía splundraðist í þann mund sem hún kom til baka inn í lofthjúp jarðar eftir ferðalag sitt en þetta er í eina skiptið í bandarískri geimferðasögu sem slys hefur orðið á heimleið. 2.2.2009 07:28
Fjöldi fíkniefnamála í Árósum tvöfaldast Fjöldi fíkniefnamála í Árósum í Danmörku hefur meira en tvöfaldast síðan árið 1995. Þetta segir lögreglan á Austur-Jótlandi og bætir því við að fjöldi unglinga á aldrinum 15 til 19 ára, sem komast í kast við lögin, hafi á sama tíma fimmfaldast. 2.2.2009 07:27
Bretar hugsanlega í samhæft verkfall Samhæft verkfall starfsfólks í breska orkugeiranum gæti skollið á í þessari viku, fari sem horfir. Þetta segir breska blaðið Telegraph í grein um vaxandi óánægju Breta sem margir hverjir telja stjórnvöld útiloka innlenda starfskrafta og nýta sér þess í stað gloppur í Evrópulöggjöf til að ráða erlent starfsfólk gegn mun lægri launum. 2.2.2009 07:20
Varað við fannfergi um allt Bretland Breskir veðurfræðingar vara við mestu snjókomu í 20 ár um nánast allt Stóra-Bretland í dag. Ekki er nóg með að allt að 30 sentimetra djúpum jafnföllnum snjó sé spáð heldur gera veðurstofur landsins einnig ráð fyrir fimbulkulda alla vikuna. 2.2.2009 07:17
Rúmlega hundrað létust eftir sprengingu í eldsneytisbíl Að minnsta kosti 111 manns létust þegar eldsneytisflutningabíll sprakk í loft upp í Keníu í morgun. 200 til viðbótar særðust í eina af mannskæðasta slysi í sögu landsins. 1.2.2009 19:01
London er ekki Reykjavík við Thames ána „London er ekki Reykjavík við Thames ánna," sagði Gordon Brown forsæisráðherra Breta á Davos fundinum í gær þegar hann ræddi ástandið í efnahagsmálum heimsins. 1.2.2009 12:26
Þúsundir mótmæla Pútín Þúsundir mótmælenda hafa komið saman á fjöldafundi í austurhluta Rússlands þar sem þess er krafist að ríkisstjórn landsins segi af sér vegna efnahagsvandans sem þar ríkir. Mótmælendur í Vladivostok skella skuldinni á Vladimir Pútín forsætisráðherra og vilja meina að hann hafi haldið illa á spöðunum hvað varðar efnahagsmál. Þeir vilja einnig meina að hann hafi leynt þjóðina pólitískum ágreiningi sem þar ríkir. 31.1.2009 13:41
Með vel á annað hundrað vopna Danska lögreglan hefur á síðustu dögum fundið um 150 skotvopn á mismunandi stöðum á Djursland, eftir því sem Danska ríkisútvarpið hefur eftir lögreglunni á Austur-Jótlandi. 30.1.2009 21:18
Banna Darvocet verkjalyf Lyfjaeftirlitið í Bandaríkjunum leggur til að Darvon, verkjalyf sem hefur verið á markaði í 50 ár, verði bannað. Kosið var um þetta hjá Lyfjaeftirlitinu í dag og greiddu 14 banninu atkvæði sitt en 12 greiddu á móti því. Lyfið var fyrst samþykkt árið 1957 þegar engin önnur verkjalyf voru í boði fyrir utan aspirin og sterk verkjalyf. 30.1.2009 21:48
Áttburamóðir átti sex börn fyrir Kona sem fæddi áttbura á sjúkrahúsi í Kaliforníu á dögunum átti sex börn fyrir. 30.1.2009 15:28
Fagnað sem þjóðhetju eftir að hafa strunsað út af fundi Erdogan, forsætisráðherra Tyrklands, rauk öskureiður af ársþingi Alþjóðaefnahagsráðsins í Davos í Sviss í gær eftir snörp orðaskipti við Peres Ísraelsforseta. Deiluefnið var árásir Ísraela á Gaza. Erdogan var fagnað sem hetju við heimkomuna til Tyrklands í gærkvöldi. 30.1.2009 12:32
Ríkisstjóri Illinois rekinn Ríkisþingið í Illinois í Bandaríkjunum rak í gærkvöldi ríkisstjórann Rod Blagojevich fyrir brot í starfi. Allir fulltrúar á þinginu greiddu atkvæði með því að reka hann. Blagojevich er einnig bannað héðan í frá að gegna opinberu embætti í Illinois-ríki. 30.1.2009 12:20
Skókastarinn í Írak heiðraður með bronsskó Gríðarmikill skór úr bronsi hefur verið settur upp í bænum Tikrit í Írak til heiðurs blaðamanninum Muntader al-Zaidi sem varð þjóðhetja arabaheimsins í einu vetfangi þegar hann grýtti skóm sínum í George Bush, þáverandi Bandaríkjaforseta, í desember og kallaði hann hund. 30.1.2009 07:32
Samdráttur í Valentínusargjöfum milli ára Er það virkilega hugurinn sem gildir? Bandarískar turtildúfur komast að því í eitt skipti fyrir öll eftir hálfan mánuð en þá rennur hinn rómaði dagur elskenda upp sem kenndur er við heilagan Valentínus. 30.1.2009 07:26
Mættu með fallbyssukúlu í skólann Fótur og fit varð uppi í barnaskóla í borginni Naha á japönsku eyjunni Okinawa þegar tveir tólf ára drengir mættu sallarólegir með ósprungna 90 millimetra fallbyssukúlu í skólann í fyrradag. 30.1.2009 07:22
Ráðgjafar Browns höfnuðu sögusafni hans Áætlanir Gordons Brown, forsætisráðherra Bretlands, um breskt sögusafn, voru blásnar af og það af hans eigin ráðgjöfum. Í stað sögusafns vilja ráðgjafarnir að rafrænum sýndarveruleikasöfnum verði komið fyrir á þeim söfnum sem þegar eru til, þar sem ýmis rafræn söguleg gögn verði höfð til sýnis, svo sem gömul gagnasöfn og vefsíður. Með því sparast stórfé, að mati ráðgjafanna. 30.1.2009 07:20
Gagnrýnir páfa fyrir að létta banni af Williamson Breski þingmaðurinn Sadiq Khan gagnrýnir Benedikt páfa sextánda harðlega fyrir að létta bannfæringu af biskupnum Richard Williamson í síðustu viku. 30.1.2009 07:17
Söfnuðu 2 milljónum punda á 10 mánuðum Sjóður sem settur var á laggirnar til þess að hafa uppi á Madeleine McCann safnaði 2 milljónum punda á fyrstu 10 mánuðunum eftir að hún hvarf. Stjörnur á borð við JK Rowling og Sir Richard Branson ásamt þúsundum annarra lögðu sjóðnum lið eftir að stúlkan hvarf þegar fjölskyldan var í fríi í Algarve í maí árið 2007. 29.1.2009 21:14
Gyðingar slíta sambandi við Páfagarð Miðstjórn samtaka gyðinga í Þýskalandi hefur slitið öllu sambandi við kaþólsku kirkjuna eftir að Benedikt páfi leysti undan bannfæringu biskup sem hefur lýst efasemdum um helförina. 29.1.2009 17:53
Segja Hamas myrða og pynta Palestínumenn Palestinskur maður sakaði í dag Hamas samtökin um að hafa pyntað og myrt bróður sinn fyrir að gagnrýna samtökin opinberlega. 29.1.2009 17:14
George Bush vel tekið Það hefur ekki farið mikið fyrir George Bush síðan hann lét af embætti forseta Bandaríkjanna. Það er enda hefð fyrir því að fyrrverandi forsetar hafi hægt um sig. 29.1.2009 16:32
Dýrmætasta skipsflakið fundið Bandarískt björgunarfyrirtæki telur sig hafa fundið verðmætasta skipsflak sem vitað er um á hafsbotni. 29.1.2009 16:00
Michelle Obama í vax Barack Obama forseti er auðvitað löngu kominn upp í vaxmyndasöfnum víðsvegar í heiminum. Nú er röðin komin að eiginkonu hans Michelle. 29.1.2009 15:22
Flugmennirnir alltof uppteknir Rannsóknarnefnd flugslysa í Bandaríkjunum hefur komist að þeirri niðurstöðu að flugslys sem varð þegar tvær fréttastofuþyrlur rákust saman hafi orðið vegna þess að flugmennirnir voru alltof uppteknir. 29.1.2009 15:18
Mótmælt í Moskvu Hópur fólks kom saman í Moskvu, höfuðborg Rússlands í dag og mótmælti áformum yfirvalda um að reisa sorpbrennslustöðvar í borginni. Lögregla skarst í leikinn og handtók meðal annars mótmælanda sem hafði dulbúið sig sem endurvinnslutunnu. 29.1.2009 14:11
Lífvörður Baggers skotinn Lífvörður fjársvikamannsins Steins Bagger, Hells Angels liðinn Brian Sandberg, var skotinn skömmu eftir eitt í dag. Hann fékk tvö skot í bakið þar sem hann sat á kaffihúsi. Að sögn danska blaðsins Extrabladet er ekki vitað um líðan hans. 29.1.2009 13:36
Hestar fara illa út úr kreppunni Hestar hafa mjög fengið að finna fyrir efnahagskreppunni. Þeir eru stórir og dýrir í rekstri. Í Bretlandi og Bandaríkjunum sjá æ fleiri eigendur framá að þeir hafi ekki efni á að eiga þá lengur. 29.1.2009 13:33
Blackwater missir starfsleyfi í Írak Yfirvöld í Írak hafa tilkynnt að starfsleyfi Blackwater öryggisþjónustunnar verði ekki endurnýjað. 29.1.2009 13:30
Þíða í samskiptum Rússa og Bandaríkjamanna Útlit er fyrir þíðu í samskiptum Bandaríkjamanna og Rússa eftir forsetaskipti vestanhafs. Rússar eru sagðir ætla að fresta flugskeytavörnum sínum þar sem ný Bandaríkjastjórn hafi uppi breytta stefnu í eldflaugavörnum í Austur-Evrópu. 29.1.2009 12:33
Ljónið át ekki páfa Rómverjar til forna höfðu þann leiða sið að fleygja kristnum mönnum fyrir ljón í hringleikahúsinu mikla. Og skemmtu sér óhóflega þegar ljónin tóku til matar síns. 29.1.2009 11:18
Ný aldursgreining tunglsins Leifar af sirkoni í grjóti sem geimfarar fluttu með sér frá tunglinu getur gefið veigamikla vísbendingu um aldur þessa fylgihnattar jarðarinnar. 29.1.2009 08:58
Læknar gagnrýna áttburafæðingu Vel heppnuð áttburafæðing í Kaliforníu á mánudagsmorguninn hefur farið sem eldur í sinu um heimsfréttirnar en þá komu í heiminn fyrstu áttburar sem allir lifðu. Hamingja og gleði umlukti móðurina og nýburahópinn en sínum augum lítur hver silfrið. 29.1.2009 08:54
Kim er við hestaheilsu Kim Jong-il, leiðtogi Norður-Kóreu, er við hestaheilsu og fullfær um að stjórna landinu. Þetta fullyrðir sonur hans, Kim Jong-Nam en sögusagnir um alvarleg veikindi leiðtogans hafa verið lífseigar. 29.1.2009 08:53