Fleiri fréttir

Hálf sjötugur fjöldamorðingi trúlofast tvítugri stúlku

Hálf sjötugur franskur fjöldamorðingi, sem gengur undir nafninu Snákurinn og er grunaður um að hafa myrt að minnsta kosti 20 manns víðsvegar um Asíu, hefur trúlofast tvítugri stúlku frá Nepal þar sem hann situr í fangelsi.

Sjötug kona er nýbökuð mamma

Kona sem sögð er vera sjötug að aldri ól tvíbura í Uttar Pradesh á Indlandi í gær. Konan varð þunguð eftir tæknifrjóvgun.

Átök i Gleðigöngu í Búdapest

Til átaka kom í Búdapest í Ungverjalandi í gær þegar hægri öfgamenn réðust með bensínsprengjum og grjóti að þátttakendum í árlegri hátíðargöngu samkynheigðra, svokallaðri Gleðigöngu. Lögregla beitti vatnsdælum og táragasi til að stöðva árásirnar og dreifa árásarmönnunum. Gangan hélt síðan áfram.

Óttast að milljónir dollara hafi farið til lítils

Aðal sendimaður Sameinuðu þjóðanna í Afganistan segir að nauðsynlegt sé að endurskipuleggja hvernig erlendu hjálparfé er varið þar í landinu og segist óttast að milljónir dollara hafi farið til lítils.

Hjó hausinn af Adolf Hitler

Karlmaður var handtekinn í Berlín í dag eftir að hann hjó hausinn af vaxmyndastyttu af Adolf Hitler á opnun á Madame Tussauds í borginni.

Mannskæð átök í Mongólíu

Fimm manns hafa látið lífið og um þrjú hundruð særst í átökum sem brutust út eftir þingkosningar í Mongólíu um síðustu helgi. Forsetinn Nambaryn Enkhbayar lýsti á föstudag yfir neyðarástandi í landinu í fyrsta skipti, vegna ofbeldisins.

Betancourt grét af gleði

Fyrrum gíslinn Ingrid Betancourt grét af gleði þegar hún kom til Frakklands síðdegis í dag. Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti og eiginkona hans Carla Bruni tóku á móti henni á herflugvelli við París.

Sérsveit skipuð gegn hnífaglæpum

Átján ungmenni hafa fallið fyrir morðingjahendi í hnífaárásum í Lundúnaborg það sem af er þessu ári. Sextán ára piltur og tveir rúmlega tvítugir háskólanemar voru stungnir til bana í borginni í gær. Lundúnalögreglan hefur skipað sérsveit gegn hnífaglæpum í höfuðborginni.

Segir af sér vegna ásakana um misferli

Ray Lewis, aðstoðarborgarstjóri London, sagði af sér í dag í kjölfar ásakana um að hann sé viðriðinn kynlífs og fjármálahneysli. Lewis segir að ásakanirnar séu rangar en ákvað engu að síður að láta af störfum.

Betancourt komin til Frakklands

Hin fransk-kólumbíska Ingrid Betancourt er komin til Frakklands tveimur dögum eftir að hún var frelsuð úr gíslingu. Henni var fagnað eins og hetju við komu hennar til Frakklands. Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti tók á móti henni en hann hefur barist fyrir frelsun hennar úr gíslingu.

Mörg þúsund flýja heimili sín vegna elda í Kaliforníu

Einn slökkviliðsmaður hefur farist í skógereldunum sem loga á rúmlega tvö þúsund ferkílómetra svæði í Kaliforníu í Bandaríkjunum. Mörg þúsund íbúum hefur verið gert að yfirgefa heimili sín. Margir þrjóskast þó við og reyna að bjarga eigum sínum.

Reglubundið flug frá Kína til Taívans

Fyrsta flugvélin í reglubundnu flugi frá Kína til Taívans lenti í morgun á eyjunni. Er þetta í fyrsta sinn í nærri 60 ár sem reglubundið flug er tekið upp á milli landanna.

Maður fæddi stúlku

Thomas Beatie, sem fæddist sem kona en lifir sem karlmaður eftir að hafa undirgengist kynskiptaaðgerð, fæddi stúlkubarn á spítala í Oregon í dag.

Leita hælis hjá bandaríska sendiráðinu

Um 220 manns hafa safnast saman fyrir utan bandaríska sendiráðið í Harare, höfuðborg Simbabve, í von um að þeim verði veitt pólitískt hæli. Fólkið segist hafa orðið fyrir ofsóknum í kjölfar forsetakosninganna sem fram fóru í landinu um síðustu helgi.

Bush ætlar á Ólympíuleikana

George W. Bush Bandaríkjaforseti ætlar að vera viðstaddur opnunarhátíð Ólympíuleikana sem haldnir verða í Kína í næsta mánuði. Talsmaður forsetans staðfesti þetta á blaðamannafundi síðdegis.

Hitler veldur enn og aftur hneykslan

Adolf Hitler, leiðtogi nasista og Þýskalands í seinni heimstyrjöldinni, heldur enn áfram að valda usla í Þýskalandi rúmlega sextíu árum eftir dauða sinn en nú sem vaxstytta.

Tveir franskir stúdentar grimmilega myrtir í Lundúnum

Tveir franskir stúdentar sem fundust stungnir til dauða í kjölfar eldsvoða á sunnudag höfðu verið bundnir og orðið fyrir hrottalegri árás samkvæmt upplýsingum frá lögregluyfirvöldum í Lundúnum.

Forseti Sambíu látinn

Levy Mwanawasa, forseti Sambíu, lést á sjúkrahúsi í París í dag eftir að hafa fengið heilablóðfall fyrr í vikunni.

Vill að 630 milljarða arfur fari í hundana

Áætlað er að eignir fasteignadrottningarinnar Leonu Helmsley sem lést fyrir tæpu ári nemi um átta milljörðum bandaríkjadala, jafnvirði tæpra 630 milljarða króna.

Betancourt frelsuð

Kólumbísk stjórnvöld sögðu nú fyrir skömmu að fjórum gíslum hefði verið bjargað úr prísund FARC skæruliðanna. Þrír gíslanna eru bandarískir ríkisborgarar en sá fjórði er hin fransk kólumbíska Ingrid Betancourt.

Mogens Glistrup allur

Mogens Glistrup, stofnandi hins danska Framfaraflokks, lést í gærkvöld, 82 ára gamall. Glistrup var með umdeildari stjórmálamönnum Danmerkur, bæði fyrir skoðanir sínar í innflytjendamálum og vegna skattsvika sem hann var dæmdur fyrir.

Íslendingur segir mótmælin í Mongólíu vera mjög ofbeldisfull

Þór Daníelsson, fulltrúi Rauða krossins í Mongólíu, segir að mótmælin í Ulan Bator höfuðborg landsins séu mjög ofbeldisfull. Miklar óeirðir brutust út í gærkvöld og í nótt sem enduðu með því að hið minnsta fjórir létust og 300 særðust.

Kona á þrítugsaldri lést að völdum stungusára í London

Kona á þrítugsaldri var úrskurðuð látin eftir að hafa fundist með stungusár seint í gærkvöldi í Peckham í Suður-London. Ekki er vitað hver stóð á bak við stungunni en rannsókn er nú í gangi á málinu. Mikið hefur verið um stunguárásir í London síðustu mánuði sem hefur vakið upp ugg í borgarbúum.

Sjá næstu 50 fréttir