Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hundrað breskir hermenn fallnir í Afganistan Eitt hundrað breskir hermenn hafa fallið í Afganistan frá því Bandaríkjamenn og bandamenn þeirra réðust inn í landið í október 2001 og hröktu talíbana frá völdum. 9.6.2008 12:50
Tilkynnti á Netinu að hann ætlaði að láta til skarar skríða Maður sem myrti sjö í hnífaárás í Japan í gær tilkynnti hvar og hvenær hann ætlaði að láta til skarar skríða í netskilaboðum skömmu áður en ódæðin voru framin. Japönsk yfirvöld íhuga að takmarka veiðihnífaeign þar í landi en hörð byssulöggjöf er sögð hafa fækkað byssuárásum til muna. 9.6.2008 12:38
Hvað hefði Hillary getað gert við peningana? Hillary Clinton eyddi svimandi háum fjárhæðum í tilraun sinni til að tryggja sér tilnefningu demókrata til forsetaframboðs í Bandaríkjunum. Dagblaðið New York Daily News hefur tekið saman kostnaðinn og gefur henni nokkur dæmi um hvað hún hefði getað gert við peningana annað en að henda þeim á glæ í kosningabaráttu sem tapaðist. 9.6.2008 11:54
Gassprenging í námu í Úkraínu - um 35 menn fastir neðanjarðar Gassprenging varð í gær í námu í Úkraínu sem lokaði um 35 manns inni niðri í námunni. Fimm manns slösuðust fyrir utan námuna. Tveimur mönnum hefur þegar verið bjargað en björgunarmenn reyna nú að bjarga hinum mönnunum. Tíminn sem þeir hafa til björgunar er naumur þar sem neðanjarðarvatn mun líklega flæða innan fárra stunda inn í námugöngin. 9.6.2008 10:51
Sprengdu hluta af stíflu í Kína Kínverskir hermenn sprengdu í gær hluta af stíflu úr grjóti og jarðvegi sem myndaðist í fljóti eftir jarðskjálftann þar í maí. 9.6.2008 09:13
Rannsaka stórt fíkniefnamál á Jótlandi Lögregla á Austur-Jótlandi í Danmörku er að ljúka rannsókn á stóru fíkniefnamáli. Snýst það meðal annars um 40 kílógrömm af amfetamíni sem 26 ára gamall maður var tekinn með. 9.6.2008 08:38
Vill að FARC hætti vopnuðum átökum Skæruliðasamtökin FARC í Kólumbíu eiga að hætta vopnuðum átökum og veita föngum sínum frelsi. Þetta segir Hugo Chavez, forseti Venesúela. 9.6.2008 08:19
Stal 150 tonnum af brautarteinum Um 150 tonnum af járnbrautarteinum var stolið nálægt Enköping í Svíþjóð. Sá sem var þar að verki er talinn hafa verið allt að viku dunda sér á staðnum. 9.6.2008 07:56
Fjöldi danskra vændiskvenna hefur tvöfaldast Fjöldi vændiskvenna í Danmörku hefur nær tvöfaldast á fjórum árum. Þetta segir í nýrri skýrslu félagsmálaráðuneytisins þar. 9.6.2008 06:53
Tveir létust í jarðskjálftanum í Grikklandi Tveir menn létu lífið í hörðum jarðskjálfta á Pelópsskaga í Grikklandi í dag. Tuttugu manns slösuðust og enn er verið að leita að fólki í húsarústum. 8.6.2008 20:30
Stór jarðskjálfti skók suðurhluta Grikklands Jarðskjálfti af stærðargráðunni 6,5 á richter skók suðurhluta Grikklands í dag. Vitað er að einn fórst og nokkrir eru slasaðir. Eitthvað er um að byggingar hafi hrunið. 8.6.2008 14:02
Vísbendingar um tíma fyrir "Stórahvell" Hópur eðlisfræðinga segir að hann hafi fundið vísbendingar um tíma fyrir svokallaðan "Stórahvell" en þá er talið að alheimurinn hafi myndast í gríðarlegri sprengingu. 8.6.2008 13:30
Tugir þúsunda mótmæltu innflutningi á nautakjöti í S-Kóreu Um fjörtíu þúsund manns mótmæltu í nótt áætlunum stjórnvalda í Suður-Kóreu um að hefja aftur innflutning á nautakjöti frá Bandaríkjunum. 8.6.2008 12:45
Fylgi breska Verkamannaflokksins hefur aldrei mælst minna Samkvæmt nýrri skoðanakönnun hefur fylgi breska Verkamannaflokksins aldrei mælst minna í sögunni. Þetta er enn eitt áfallið fyrir Gordon Brown forsætisráðherra sem horfir fram á mikil pólitísk átök innan þingflokksins á miðvikudag. 8.6.2008 11:42
Lögreglan í Kaupmannahöfn rannsakar klámfenginn barón Lögreglan í Kaupmannahöfn rannsakar nú forstjóra af aðalsættum í borginni en hann er sakaður um að hafa reynt að tæla 13 og 14 ára stúlkur til fylgilags við sig. 8.6.2008 09:51
Obama hrósaði Hillary í hástert Barak Obama forsetaframbjóðandi í Bandaríkjunum hrósaði Hillary Clinton í hástert í gærkvöldi eftir að hún lýsti yfir stuðningi við hann í ræðu, sem markaði endann á framboði hennar sjálfrar. 8.6.2008 09:49
Nunnur á hjólaskautum reka vinsælt barnaheimili Nunnur á hjólaskautum reka nú eitt vinsælasta barnaheimilið í borginni Zagreb í Króatíu. 8.6.2008 09:46
Maður vopnaður hníf varð sjö manns að bana út á götu í Tokyo Maður vopnaður hníf varð sjö manns að bana út á götu í Tokyo í gærkvöldi. Ellefu aðrir liggja sárir eftir. 8.6.2008 09:43
Þrír létu lífið í sprengingu í kolanámu í Úkraníu Þrír námamenn létu lífið og 37 er saknað eftir sprengingu í kolanámu í Úkraínu í morgun. 8.6.2008 09:40
Hillary Clinton lýsir yfir stuðningi við Obama Hillary Clinton hefyr lýst yfir stuðningi við Barak Obama í komandi forsetakosningum í Bandaríkjunum næsta vetur. Hún heldur nú síðustu ræðu sína í forkosningunum sem er nú formlega lokið. 7.6.2008 16:57
Mörg pör vilja komast í 100 mílna klúbbinn Forstjóri Virgin Galactic segir að pör standi í biðröðum eftir því að komast í 100 mílna klúbbinn, það er eiga samfarir í þyngdarleysinu úti í geiminum. 7.6.2008 15:04
Kafararnir sem týndust börðust við Kómododreka Kafarirnir sem týnust í Indónesíu þurftu að berjast við Kómododreka til að halda lífi. Þetta kemur fram í fréttaskeytum frá Reuters. 7.6.2008 14:03
Horfinn pýramídi finnst á ný Fornleifafræðingar í Egyptalandi hafa fundið aftur 4.000 ára gamlan pýramída en hann hvarf í sandinn fyrir 160 árum. Lítið er eftir af pýramídanum nema grunnur hans og gengur hann undir nafninu Höfuðlausi pýramídinn. 7.6.2008 12:18
Auðvelt að kaupa fölsk diplómatísk númer á bíla í Pakistan Blaðamaður Nyhedsavisen hefur sýnt fram á það að ekki þurfi að taka nema sjö mínútur og sem svarar þrjú hundruð íslenskum krónum að kaupa fölsk diplómatísk skráningarnúmer á bíla í Islamabad, höfuðborg Pakistans. 7.6.2008 10:19
Rannsaka samtal milli fimm Guantanamo-fanga Bandaríkjaher ætlar að láta rannsaka hvernig á því stóð að fimm Guantanamo-fangar fengu að tala saman þegar verið var að birta þeim ákæru á fimmtudag. 7.6.2008 10:10
Vatn flæðir nú úr stöðuvatni í Sisjúan héraði í Kína Vatn byrjaði í morgun að flæða úr stöðuvatni í Sisjúan héraði í Kína um skurð sem kínverski herinn hefur verið að grafa undanfarna daga. 7.6.2008 10:07
Hákon krónprins Noregs gagnrýnir Sameinuðu þjóðirnar Hákon krónprins í Noregi segir að samþykkt Sameinuðu þjóðanna um að reyna að fækka fátækum um helming fyrir árið 2015 sé ekki nærri nógu metnaðarfullt markmið. 7.6.2008 10:00
Komu í veg fyrir aðgerðir í loftslagsmálum Repúblikanar í öldungadeild Bandaríkjanna komu í veg fyrir það í gær að frumvarp um aðgerðir í loftslagsmálum geti orðið að veruleika í ár. 7.6.2008 09:45
Grunaður barnaklámskennari fremur sjálfsmorð Ástralskur kennari tók sitt eigið líf og annar reyndi sjálfsvíg eftir að þeir voru handteknir í tengslum við rannsókn lögreglu á barnaklámshringi á netinu. Mennirnir voru yfirheyrðir af lögreglu þegar upp komst um barnaklámshringinn en lögreglan þar í landi hefur ákært 90 manns í tengslum við málið. 6.6.2008 21:19
Gæsluvarðhald yfir Fritzl framlengt Gæsluvarðhald hefur verið framlengt yfir hinum austurríska Josef Fritzl þangað til dómari endurmetur stöðuna eftir tvo mánuði. Fritzl er ásakaður fyrir að hafa nauðgað dóttur sinni Elisabeth Fritzl og lokað hana inni í 24 ár. Á þeim tíma gat hann henni 7 börn. Lögreglan í Austurríki segir að Fritzl hafi játnað verknaðinn á sig. 6.6.2008 16:31
Klónuð kýr eignast afkvæmi Átta kálfar hafa fæðst í Bretlandi sem eru afkvæmi klónaðrar kýr. Hún gekk þó ekki sjálf með afkvæmin heldur voru þau flutt sem fósturvísar til Bretlands af bandarískri rannsóknarstofu og gekk ,,leigukýr" með kálfana. 6.6.2008 15:21
Mugabe sagður nota matvælaaðstoð sem vopn í kosningabaráttunni Bandaríski sendiherran í Simbabve sakar stjórnvöld í landinu um að notfæra sér matvælaaðstoð til þess að afla atkvæða fyrir núverandi forseta landsins, Robert Mugabe í komandi forsetakosningum. Hann segir að Mugabe og félagar séu orðnir hræddir um að missa völdin og því grípi þeir til þessara örþrifaráða. 6.6.2008 14:27
Óttast að náttúruleg stífla í Kína bresti Vatn er tekið að seytla gegnum náttúrulega stíflu sem myndaðist í Jianjiang-fljótinu í Sichuan-héraðinu í Kína þegar jarðskjálftinn varð þar 12. maí. Verkfræðingar hafa nú vökult auga með stíflunni sem er úr grjóti og jarðvegi en óttast er að hún bresti með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. 6.6.2008 13:02
Medvedev vill ekki að Úkraína gangi í Nató Dmitry Medvedev, forseti Rússlands hefur varað Viktor Yushchenko, forseta Úkraínu við því að Úkraína gangi í Nató. Ef fari svo þá muni samskipti á milli Rússlands og Úkraínu stirðna í kjölfarið. Forsetarnir tveir eru um þessar munir á óformlegum leiðtogafundi 12 fyrrum Sovétríkja. 6.6.2008 12:40
Mannfall á Srí Lanka Að minnsta kosti 20 féllu og 80 særðust þegar vegsprengja sprakk í úthverfi Kólombo, höfuðborgar Srí Lanka, í morgun. Strætisvagn ók hjá þegar sprengjan sprakk. Þetta var á háannatíma. 6.6.2008 12:16
Horfinn pýramídi finnst á ný Fornleifafræðingar í Egyptalandi hafa fundið aftur 4.000 ára gamlan pýramída en hann hvarf í sandinn fyrir 160 árum. Lítið er eftir af pýramídanum nema grunnur hans og gengur hann undir nafninu Höfuðlausi pýramídinn. 6.6.2008 09:06
Telja Danmörku ofarlega á skotlista al-Qaeda Dönsk stjórnvöld telja að landið sé nú komið í hóp helstu skotmarka al-Qaeda-samtakanna. Sé landið þar ásamt Ísreal, Bandaríkjunum og Englandi. Þetta kemur í kjölfar yfirlýsingar frá einum af foringjum al-Qaeda fyrr í vikunni. 6.6.2008 08:34
Tvöfalda þarf matvælaframleiðslu heimsins Matvælaframleiðsla í heiminum verður að hafa tvöfaldast árið 2030 auk þess sem styðja þarf betur við bændur í fátækari löndum. Þetta eru meginniðurstöður þriggja daga ráðstefnu í Róm 6.6.2008 08:17
Tonn af sprengiefni í bifreiðum í Pakistan Yfirvöld í Pakistan stöðvuðu í gærkvöldi tvær bifreiðar sem fluttu um eitt tonn af sprengiefni í borginni Rawalpindi. Að minnsta kosti þrír menn hafa verið handteknir vegna málsins og sæta nú yfirheyrslum. 6.6.2008 07:20
Hótuðu að brenna bandaríska og breska sendierindreka Bandarískir og breskir sendierindrekar voru hætt komnir í Zimbabve í gær þegar lögregla og hermenn þar í landi stöðvuðu bílalest þeirra og hótuðu að brenna þá lifandi. Að sögn Sean McCormack, talsmanns bandaríska utanríkisráðuneytisins, voru fimm bandarískir sendiráðsstarfsmenn teknir höndum. 6.6.2008 06:38
Clinton og Obama fara ekki saman í slaginn Hillary Clinton ætlar ekki að sækjast eftir því að verða varaforsetaefni Baracks Obama í komandi forsetakosningum í Bandaríkjunum. Þetta segir kosningastjóri Hillary og bætti því við að Obama ætti valið. Obama leitar nú logandi ljós að varaforsetaefni og hafa nokkrir verið nefndir. 5.6.2008 20:59
Vill deyja sem píslarvottur Tveir meðlimir al Qaeda sem ákærðir eru í tengslum við hryðjuverkaárásirnar þann 11.september 2001 sögðu fyrir rétti í dag að þeir vildu deyja sem píslarvottar. 5.6.2008 20:32
Aðvörunarkerfi fyrir jarðskjálfta á leiðinni? Vísindamenn hjá Nasa nálgast það að geta spáð fyrir um jarðskjálfta en þeir fundu út að náin tengsl eru á milli raftruflana í jaðri lofthjúps okkar og yfirvofandi jarðskjálfta á jörðu niðri. Út frá þessum tengslum telja þeir að hægt sé að búa til aðvörunarkerfi fyrir jarðskjálfta. 5.6.2008 16:38
Ráðist á bílalest breskra og bandarískra sendiráðsstarfsmanna í Simbabve Ráðist var á starfsmenn sendiráða Bandaríkjanna og Bretlands í Simbabve á leið þeirra í bílalest að rannsaka pólitískt ofbeldi í Simbabve. 5.6.2008 14:49
Anders Fogh ætlar ekki að biðja al-Qaeda afsökunar Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur segist ekki taka það í mál að biðja hryðjuverkasamtökin al-Qaeda afsökunar eins og þau kröfðust þegar samtökin lýstu ábyrgð á árásinni á danska sendiráðið í Pakistan á hendur sér. 5.6.2008 14:03