Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fórnarlambanna í Beslan minnst Syrgjandi aðstandendur og íbúar í bænum Beslan í Rússlandi minntust þess í dag að þrjú ár eru frá því að gíslataka uppreinsnarmanna í barnaskóla í bænum endaði með skelfingu. Þrjú hundruð þrjátíu og tveir létu lífið, flestir þeirra börn. 1.9.2007 19:09
Næringarskortur vaxandi vandamál í Darfur Næringarskortur er vaxandi vandamál í héraðinu Darfur í Súdan á sama tíma og erfitt hefur reynst fyrir hjálparstarfsmenn að aðstoða þá sem hvað verst hafa orðið úti. 1.9.2007 18:52
Fellibylurinn Felix í uppsiglingu á Karabíska hafinu Gefin hefur verið út aðvörun vegna hitabeltisstormsins Felix sem er í uppsiglingu á Karabíska hafinu. Er þetta sjötti stormurinn sem hlotið hefur nafn á fellibyljatímabilinu í ár. Að sögn Fellibylsmiðstöðvarinnar í Bandaríkjunum er Felix nú staddur um 130 km vestnorðvestur af Granada og færist í vesturátt á um 30 km hraða á klukkustund. 1.9.2007 16:46
Talibanar segjast hafa fengið yfir milljarð kr. fyrir gíslana Háttsettur meðlimur Talibana segir í samtali við Reuters í dag að þeir hafi fengið 20 milljónir dollara, eða um 1,2 milljarða kr. fyrir suðurkóreansku gíslana sem þeir létu lausa í vikunni. Jafnframt fylgir með í fréttinni að þetta fé ætli Talibanar að nota til vopnakaupa. Talsmaður forsetaembættis Suður-Kóreu segir þetta vera rangt og að ekkert fé hafi verið borgað fyrir gíslana. 1.9.2007 12:04
Dýrar eignir renna út í Danmörku Dýrustu íbúðarvillurnar í Danmörku selja sig næstum sjálfar. Fréttavefur Jyllands Posten greinir frá því að íbúðarhús sem seld eru á nærri þrjú hundruð milljónir íslenskra króna í Danmörku renni út á meðan mun hægar gangi að selja helmingi ódýrari eignir. 1.9.2007 09:58
Veðmálavefir geta auglýst í sjónvarpi í Bretlandi Lögum sem lúta að veðmöngurum og spilavítum í Bretlandi hefur verið breytt en frá og með deginum í dag geta slíkir aðilar auglýst bæði í sjónvarpi og útvarpi. Það sama á við um vefsíður sem bjóða upp á veðmál en þær má nú í fyrsta skipti hýsa í Bretlandi. 1.9.2007 09:53
Chavez gerist sáttasemjari Hugo Chavez forseti Venesúela hefur ákveðið að taka að sér hlutverk sáttasemjara milli kólumbískra uppreisnarmanna og stjórnvalda þar í landi. Samið verður um lausn gísla sem uppreisnarmenn hafa undir höndum. Chavez tilkynnti áformin eftir samræður við Alvaro Uribe, forseta Kólumbíu. 1.9.2007 09:53
Tanni kóngur dró 300 tonna járnbrautarlest Malasíumaður sem ber viðurnefnið Tanni kóngur náði að draga sjö vagna járnbrautarlest í vikunni með stálvír sem hann beit saman í munni sínum. Þetta mun vera mesta þyngd sem maður hefur dregið með tönnunum einum saman. 1.9.2007 09:39
Þjóðverjanna ákaft saknað Ættingjar Þjóðverjanna tveggja sem týndust á Svínafellsjökli vilja koma á framfæri þakklæti sínu til leitarfólks. Annar þeirra hefði orðið 25 ára í dag. 1.9.2007 08:30
Lífsglöð, örlát og besta móðir í heimi Bretar og fjölmargir aðdáendur Díönu prinsessu víða um heim minntust þess í gær að tíu ár voru liðin frá andláti hennar í umferðarslysi í París. Konungsfjölskyldan í Bretlandi minntist hennar með minningarathöfn í Kensingtonhöll í London. 1.9.2007 07:45
Larry Craig ætlar að segja af sér Bandaríski öldungardeildarþingmaðurinn Larry Craig mun segja af sér á morgun í kjölfar þess að upp komst um handtöku hans fyrr í sumar. CNN greinir frá þessu og segir að Craig muni hverfa úr embætti 30. september næstkomandi. 31.8.2007 23:37
Loftsteinn gæti lent á jörðinni árið 2036 Loftsteinn gæti lent á jörðinni innan tíðar, eða árið 2036, gangi spár sumra vísindamanna eftir. Verið er að vinna að áætlunum til þess að koma í veg fyrir að steinninn, Apophis, skelli á jörðinni og eru há verðlaun í boði fyrir bestu hugmyndina. 31.8.2007 20:13
Hermaður svarar til saka fyrir fjöldamorð í Írak Bandarískur hermaður svarar nú til saka fyrir morð á sautján óbreyttum íröskum borgurum, sem voru skotnir til bana á eða við heimili sín í Írak fyrir tveimur árum. Á meðan deila bandarískir stjórnmálamenn um veru Bandaríkjahers í Írak. 31.8.2007 18:59
Sprengjutilræði við Kabúlflugvöll - Íslendingar ómeiddir Þrettán Íslendingar sluppu ómeiddir þegar árás var gerð á Kabúl flugvöll í morgun með þeim afleiðingum að tveir hermenn létust og fjöldi særðist. 31.8.2007 18:55
Enn eitt unglingamorðið í Lundúnum 17 ára drengur var stunginn til bana í Lundúnum í gær. Þetta er enn eitt morðið í höfuðborginni þar sem unglingar koma við sögu en lögregla hefur handtekið tvo 16 ára drengi vegna málsins. Ekki er talið að morðið tengist unglingagengjunum í borginni. 31.8.2007 18:29
Bótakröfur á hendur bullu um 100 milljónir króna Danska knattspyrnusambandið hefur ákveðið að höfða skaðabótamál á hendur fótboltabullunni sem hljóp inn á völlinn í leik Svía og Dana í júní síðastliðnum og réðst á dómara leiksins. Bótakrafan hljóðar upp á um 20 milljónir íslenskra króna og bætist við um 80 milljóna króna kröfu rekstraraðila Parken sem sett var fram fyrr í vikunni. 31.8.2007 16:43
Foreldrar Madeleine í mál við portúgalska fjölmiðla Foreldrar Madeleine McCann ætla að höfða meiðyrða mál gegn portúgölsku blaði sem hélt því fram að þau hafi myrt dóttur sína. Samskipti Gerrys og Kate McCann við fjölmiðla hafa versnað stöðugt undanfarnar vikur. Margir portúgalskir fjölmiðlar vilja gera þau ábyrg fyrir hvarfi dótturinnar. Annaðhvort vegna vanrækslu eða vegna þess að þau hafi hreinlega sjálf orðið henni að bana. 31.8.2007 15:22
Ég er svo ánægður að vera hérna uppá konunni minni Stjórnmálamenn og stjórnarerindrekar þurfa að tjá sig í mörgum löndum. Það eru auðvitað töluð misjöfn tungumál í þessum löndum og það kemur fyrir að boðskapurinn brenglast í þýðingunni. Richard Woolcott sem stýrði ástralska utanríkisráðuneytinu í mörg ár rifjar upp skemmtilegar þýðingarvillur í endurminningum sem hann hefur skrifað um þetta tímabil. 31.8.2007 14:26
Norskur hvalfangari sökk við bryggju Þrjátíu metra norskur hvalbátur sökk við bryggju i Svolvær í Lofoten síðastliðna nótt. Enginn var um borð. Lögreglan útilokar ekki að unnið hafi verið skemmdarverk. Tilkynning barst um það um hálf þrjú í nótt að Willassen Senior væri að sökkva. Björgunarlið var sent á vettvang. 31.8.2007 13:25
Gíslar fara heim á leið í dag Talibanar í Afganistan hafa nú leyst síðustu suður-kóresku gíslana sína úr haldi og búist er við að gíslarnir fljúgi heim í dag. 31.8.2007 12:47
Bretar minnast Díönu prinsessu Tíu ár eru í dag liðin frá því Díöna prinsessa af Wales lést í bílslysi í París, og verða minningarathafnir haldnar um hana víðsvegar um Bretland í dag. 31.8.2007 12:26
Vona að hundkvikindið drepist fljótlega Fyrrverandi þjónustustúlka hjá hóteldrottningunni Leonu Helmsley er ákaflega glöð yfir að hún skuli nú hafa safnast til feðra sinna. Hún segir að nú verði Leona að svara til saka hjá Guði. Og þjónustustúlkan vonar að hundkvikindið Trouble drepist líka sem allra fyrst. Trouble erfði mörghundruð milljónir króna eftir húsmóður sína. 31.8.2007 11:39
Bremsulausir Færeyingar Flugvél frá færeyska flugfélaginu Atlantic Airways fór út af brautinni í flugtaki frá Færeyjum í morgun. Engan sakaði. Vélin var á leið frá Þórshöfn til Lundúna. Flugmennirnir hættu við flugtak þegar þeir uppgötvuðu að hemlabúnaður virkaði ekki sem skyldi. Hemlabilanir virðast vera viðvarandi vandamál hjá þessu flugfélagi. 31.8.2007 11:21
Ríkasti maður Noregs bak við lás og slá Kjell Inge Rökke, ríkasti maður Noregs dvelur nú í fangelsi og verður þar næstu 30 dagana. Rökke hlaut fangelsisdóminn fyrir að hafa mútað skipaeftirlitsmanni í tengslum við lúxussnekkju sína og útgáfu á haffærnisskírteini árið 2001. 31.8.2007 10:58
Fram með kústinn kerlíng Alþjóðleg rannsókn hefur leitt í ljós að kvæntir karlmenn taka umtalsvert minni þátt í húsverkunum en karlmenn sem eru í sambúð. Könnuðir við fylkisháskólann í Norður-Karólínu töluðu við yfir 17 þúsund manns í 28 löndum til þess að komast að þessari niðurstöðu. 31.8.2007 10:52
Stal brú í heilu lagi Rússneska lögreglan hefur haft hendur í hári manns sem stal brú í heilu lagi í Ryazan héraði austan við Moskvu. Brúin var úr stáli, tvíbreið og fimm metra löng. Maðurinn skrúfaði hana í sundur og hlóð henni á trukkinn sinn. Svo fór hann með hana og seldi hana í brotajárn. Lögreglan í Ryazan héraði segir að þetta sé umfangsmesti þjófnaður ársins. 31.8.2007 10:17
Beint frá minningarathöfn um Díönu prinsessu Bein útsending verður á Vísi klukkan 11 frá minningarathöfn um Díönu prinsessu af Wales en í dag eru tíu ár síðan hún lést í bílslysi í París. Minningarathöfnin þar sem synir Díönu, þeir Harry og Vilhjálmur verða viðstaddir ásamt Karli Bretaprins fer fram í Guards Chapel í Lunúnum. 31.8.2007 10:09
Ellefu látnir að minnsta kosti í lestarslysi í Ríó Að minnsta kosti ellefu létu lífið og 63 slösuðust þegar yfirfull lest skall á aðra í úthverfi brasilísku borgarinnar Rio de Janeiro í dag. Yfir hundrað björgunarmenn voru á staðnum og óttast slökkviliðsmenn að fleiri hafi látist. 30.8.2007 22:47
Skipverji sem var í haldi sjóræningja íhugaði sjálfsmorð Einn skipverjanna fimm sem eru nýkomnir til Danmerkur aftur, eftir að hafa verið á valdi sjóræningja í þrjá mánuði, segist oft hafa íhugað að fremja sjálfsmorð þennan tíma. Útgerðin hefur lítið viljað koma til móts við skipverjana en hefur boðist til að endurnýja farsíma þeirra. 30.8.2007 19:39
Skógareldarnir í Grikklandi í rénun Svo virðist sem skógareldarnir í Grikklandi séu í rénun. Yfirvöld eru þó viðbúin því að eldurinn kunni að glæðast á ný á svæðum þar glatt hefur logað síðustu daga. Að minnsta kosti sextíu og fjórir hafa látist í skógareldunum. 30.8.2007 18:58
Blóðugar deilur mafíugengja Deilur ítalskra mafíugengja eru taldar ástæða þess að sex Ítalar voru myrtir í Þýskalandi fyrr í mánuðinum. Lögreglan á Ítalíu handtók í dag á fjórða tuga manna í tengslum við morðin. 30.8.2007 18:50
Viðbrögðin of hæg Fórnarlömb fjöldamorðanna við Virginía Tech-háskólann í Bandaríkjunum hefðu hugsanlega orðið mun færri ef yfirvöld hefðu brugðist skjótar við, samkvæmt nýrri rannsókn. 30.8.2007 18:34
Ný meðferð fyrir MS-sjúklinga Vísindamenn hafa lagt til að ný meðferð verði notuð gegn heila og mænusigg-sjúkdómnum (MS) sem felur í sér notkun á hormóninu estrógen. Meðferðin felst í því að estrógen-hormónið er notað til að bægja frá eða jafnvel snúa við einkennum sjúkdómsins án þess að til komi þær algengu hliðarverkanir sem hormónameðferðum fylgja. 30.8.2007 17:49
Rússar ólu á stríðsótta til þess að selja vopn Rússar gerðu hvað þeir gátu til þess að ala á stríðsótta í Ísrael og Sýrlandi í sumar, til þess að auka vopnasölu sína til Sýrlands, að sögn diplomatisku öryggisþjónustunnar í Ísrael. Snemma í sumar kom upp sá orðrómur að Sýrlendingar hyggðust endurheimta Golan hæðirnar með stríði á hendur Ísrael. Jafnframt var sagt frá liðssafnaði beggja ríkjanna við landamærin. 30.8.2007 17:09
Faldi nýfætt barn sitt í þvottakörfu Sextán ára stúlka er í haldi lögreglu eftir að lík nýfædds barns hennar fannst í þvottavél á heimili hennar í borginni Frankfurt an der Oder í austurhluta Þýskalands í gær. 30.8.2007 15:56
Íbúar norðurlanda 0,4 prósent af jarðarbúum Norðulandabúar eru orðnir rúmar 25 milljónir. Samkvæmt tölum frá norrænu hagstofunum búa rúmlega 9 milljón manns í Svíþjóð, í Danmörku og Finnlandi rúmlega 5 milljónir og tæplega 5 milljónir í Noregi. Rúmlega 300 þúsund manns búa á Íslandi, á Grænlandi búa rúmlega 50.000 manns og tæplega 50.000 í Færeyjum. Á Álandseyjum búa 27.000 manns. 30.8.2007 14:54
Kanada fordæmir samninga við Talibana Utanríkisráðherra Kanada hefur gagnrýnt stjórnvöld í Suður-Kóreu harðlega fyrir að semja við Talibana í Afganistan um lausn gísla sem þeir tóku. Talibanar tóku 23 gísla frá Suður-Kóreu. Tveir þeirra voru myrtir en hinir hafa nú allir verið látnir lausir, eftir miklar samningaviðræður. 30.8.2007 14:45
Meistaradeildin: Drátturinn í beinni á Vísi.is Dregið verður í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í dag klukkan 16:00 í Monte Carlo á Suðurströnd Frakklands. Vísir.is sýndi frá drættinum í beinni ústendingu. Fjögur ensk lið eru í pottinum og eru þau öll í fyrsta styrkleikaflokk. Rosenborg er eina liðið frá Norðurlöndunum. 30.8.2007 14:37
Beljur með nafnskírteini Bændur í Vestur-Bengal á Indlandi hafa verið skyldaðir til þess að fara með beljur sínar í myndatökur, til þess að útvega þeim nafnskírteini. Þetta er liður í því að koma í veg fyrir stórfellt smygl á þeim til Bangladesh. Meirihluti Indverja eru hindúar og samkvæmt þeirra trú eru þessir jórtrandi ferfætlingar heilagar kýr. Það er bannað að flytja þær úr landi. 30.8.2007 14:13
Grikkir sækja bætur vegna eldanna Þúsundir Grikkja streymdu í banka í landinu í gær til að sækja bætur frá ríkisstjórninni vegna eldanna sem hafa geysað þar í landi undanfarna daga. Allir Grikkir geta fengið bætur, sýni þeir skilríki og skrifi undir yfirlýsingu um að þeir hafi orðið fyrir tjóni vegna eldanna. 30.8.2007 11:58
Svæfðu Madeleine í hel segja portúgalskir fjölmiðlar Portúgalar hafa af einhverjum orsökum misst alla samúð með foreldrum Madeleine McCann, litlu bresku telpunnar sem nú hefur verið leitað í fjóra mánuði. Fjölmiðlar í landinu eru uppfullir af allskonar slúðurfréttum um málið. 30.8.2007 10:43
Hraðafgreiðsla á Bótoxi Fljótlegra er að fá tíma fyrir Bótox sprautu, en að láta fjarlægja hugsanlega illkynja fæðingarbletti í Bandaríkjunum. Þetta kemur fram í könnun sem samtök húðsjúkdómalækna þar í landi gerðu. 30.8.2007 10:00
Kínverjar reyna að róa Japani Kínverjar reyndu í dag að róa Japani yfir mikilli hervæðingu sinni, á fundi varnarmálaráðherra landanna. Meðal annars varð að samkomulagi að kínverskt herskip heimsækti Japan og er það í fyrsta skipti í sögu landanna. Kínverjar hafa stóraukið framlög til hermála undanfarin ár, og Japanir hafa af því áhhyggjur. 30.8.2007 09:40
Yfirsáust tíu þúsund evrur Þjófur sem sem stal skjalatösku í Dusseldorf í gær, tók ekki eftir því að í henni voru tíu þúsund evrur, eða rúmar 860 þúsund krónur, og henti henni. ,,Ég gæti trúað að hann yrði svekktur þegar hann kemst að því" sagði talsmaður lögreglu í borginni. 30.8.2007 09:21
Úr fötunum eða ég sprengi Alríkislögreglan í Bandaríkjunum rannsakar nú ránstilraunir sem framdar hafa verið að undanförnu í nokkrum fylkjum. Ránið fer þannig fram að maður hringir í banka og verslanir og segir að sprengja sé á staðnum. Hann hótar að sprengja verði ekki orðið við kröfum hans um peninga og að allir viðstaddir klæði sig úr fötunum. 29.8.2007 22:00