Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Átök á milli lögreglu og innflytjenda Óeirðalögreglu í Mílanó á Ítalíu lenti í gærkvöldi saman við kínverska innflytjendur. Mótmælin voru tilkomin vegna þess sem þeir segja kynþáttamisréttis. Fleiri en 100 kínverjar tóku þátt í mótmælunum og þurftu um 20 manns að leita á sjúkrahús eftir átökin. 13.4.2007 09:31
Útvarpsmaður rekinn vegna niðrandi ummæla Bandaríska útvarps- og sjónvarpsstöðin CBS hefur rekið einn af þáttastjórnendum sínum, Don Imus, eftir að hann gerðist sekur um að úthúða körfuboltaliði svartra stúlkna vegna kynþáttar þeirra. Hann kallaði þær „heysátu-hórur“ (e. nappy-headed ho´s) en nappyhead er niðrandi orðatiltæki um hár svartra og ho er slangur yfir hórur. 13.4.2007 09:20
Þrír norskir sjómenn látnir Þrír norðmenn létust og fimm er enn saknað eftir að dráttarbáturinn Bourbon Dolphin hvolfdi rétt 75 sjómílum norðan við Hjaltland. Fyrr í kvöld var sjö manns bjargað. Tvær þyrlur, kafarar og þrjú skip eru á svæðinu að leita en standgæslan segir sjóinn vera orðin það kaldan og myrkrið orðið of mikið til þess halda áfram. Leit hefst aftur í fyrramálið. Ekki er vitað með vissu af hverju bátnum hvolfdi. 12.4.2007 23:57
Lekandi orðinn að vandamáli í Bandaríkjunum Læknar virðast hættir að geta læknað kynsjúkdóminn lekanda ef marka má nýjustu rannsóknir smitsjúkdómadeildar Bandaríkjanna. Tilfellum hefur fjölgað frá því að vera aðeins 1% smitaðir yfir í að verða 13% á aðeins síðustu fimm árum. Ástæðan er talin vera sú að læknar eru nú í auknum mæli farnir að láta fólk fá of sterkt pensillín við kvefi og öðrum slíkum kvillum. Af þeim sökum byggir líkaminn upp mótefni við pensillíninu og það hættir að virka. Yfirmaður smitsjúkdómadeildar Bandaríkjanna segir að nú þurfi að fara gefa enn sterkari lyf við kynsjúkdómum en áður til þess að lækna þá. Þess má geta að lekandi er ekki landlægur kynsjúkdómur hér á landi en nokkur tilvik koma alltaf upp á ári hverju. 12.4.2007 23:04
Ráðist á sjálft þinghúsið Átta biðu bana og fjölmargir slösuðust þegar öflug sprengja var sprengd í þinghúsinu í Bagdad í dag. Árásin er reiðarslag fyrir íröksku stjórnina og þau ríki sem hernámu landið því hún er táknræn fyrir hversu ástandið þar er slæmt og hve máttlítil yfirvöld eru í baráttu sinni við uppreisnarmenn. 12.4.2007 19:06
Kjúklingar komnir af risaeðlum Vísindamenn hafa fundið fyrstu merki þess að risaeðlan Tyrannosaurus rex sé fjarskyldur frændi hænunnar. Eru þetta fyrstu handbæru merkin sem tengja risaeðlur og fugla saman, segir vísindamaður við Harvard háskóla í Bandaríkjunum. Upplýsingar þessar fengust með því að rannsaka prótein úr beinmerg úr 68 milljón ára gömlu beini. Vísindamenn hafa löngum haldið því fram að fuglarnir eins og við þekkjum þá í dag séu komnir af risaeðlum og er þetta því mikið gleði efni en hingað til hefur ekki verið hægt að finna nýtanlegan beinmerg til þess að vinna úr. 12.4.2007 18:41
Karlmaður í Ohio ákærður fyrir tengsl við al-QaIda Bandaríska alríkisrlögreglan hefur ákært mann á fimmtugsaldri frá Ohio fyrir að vera félagi í al-Qaida hryðjuverkasamtökunum og leggja á ráðin um sprengjuárásir í bæði Bandaríkjunum og Evrópu. Maðurinn, Christopher Paul, var handtekinn í gær eftir að lögregla hafði fylgst með honum í fjögur ár. 12.4.2007 16:56
Kuldakast í miðvesturríkjum Bandaríkjanna Kuldakast sem gengur yfir miðvesturríki Bandaríkjanna hefur valdið töluverðum usla ríkjunum bæði í dag og í gær. Segir á vef USA Today að rekja megi sex dauðsföll í umferðinni til mikillar hálku á vegum úti og þá hefur hundruðum flugferða verða verið frestað vegna ofankomu. 12.4.2007 16:25
Verðhrun á sumarhúsum í Danmörku Verð á sumarhúsum í Danmörku hefur farið hríðlækkandi að undanförnu og þá mest á vinsælustu svæðunum. Verðlækkunin er að mestu rakin til spákaupmennsku en margir hafa viljað græða á kaupum og sölum á sumarhúsum. 12.4.2007 15:58
Einkaflugvél nauðlenti í Stokkhólmi Einn maður slasaðist alvarlega og þrír lítillega þegar einkaflugvél nauðlenti í Stokkhólmi um miðjan dag í dag. Eftir því sem sænskir miðlar greina frá var um að ræða fjögurra sæta Piper PA 28 flugvél en flugmaður hennar tilkynnti um vélarvandræði skömmu eftir að hún hafði tekið á loft frá Bromma-flugvelli. 12.4.2007 15:55
Kafbátur fyrir almenning Bandaríska fyrirtækið US Submarine framleiðir kafbáta af ýmsum stærðum og gerðum fyrir almenning. Nýjasta faratækið er sannkaðaður lúxusdallur. Báturinn er 65 metra langur og með þrjú þilför. Hann er því aðeins átta metrum styttri en risaflugvélin Airbus 380. Báturinn ber tegundarnafnið Phoenix 1000. 12.4.2007 15:13
Árás í þingi glæpaverk hugleysingja Nouri al-Maliki, forsætisráðherra Íraks, lýsti árásinni í írakska þinginu í Bagdad í morgun sem glæpaverki hugleysingja og sagði að hún myndi ekki draga kjarkinn úr írökskum þingmönnum. Að minnsta kosti tveir írakskir þingmenn eru nú sagðir látnir og vel á annan tug manna særður eftir árásina sem var í kaffiteríu í írakska þinginu. 12.4.2007 14:57
Ekki gefa konum langt nef Tvær Saudi-Arabiskar eiginkonur reiddust eiginmanni sínum svo mjög, þegar hann sagðist ætla að kvænast þriðju konunni, að þær réðust á hann og bitu hann í nefið. Judaie Ibn Salem hélt að hann gæti leyst deilu um skiptingu á heimilisplássinu, með hótun um þriðju eiginkonuna. Það varð þó aðeins til þess að magna deiluna. 12.4.2007 14:45
900 krónur til Bandaríkjanna Stjórnendur Ryanair eru að undirbúa stofnun systurflugfélags til að hefja flug til Bandaríkjanna með 30-50 véla flugflota. Ryanair, sem er stærsta lággjaldaflugfélag Evrópu, ætlar að hefja þetta flugið á næstu þrem til fjórum árum. Michael O'Leary, forstjóri Ryanair segir að farmiðarnir muni kosta allt niður í tæpar níuhundruð íslenskar krónur. 12.4.2007 14:22
ACHTUNG ! Lucio býr í Aubstadt í suðurhluta Þýskalands. Hann skildi ekkert í því þegar hann fékk kvaðningu frá þýska hernum um að hann ætti að mæta til herþjónustu innan tíu daga. Ellegar hefði hann verra af. Lucio skilur satt að segja afskaplega lítið í flestum hlutum því hann er ekki nema fjögurra vikna gamall. 12.4.2007 13:27
Náðar veggjakrotara í Taílandi Bhumibol Adulyadej, konungur Taílands, náðaði í morgun Svisslendinginn Oliver Rudolf Jufer sem á dögunum var dæmdur í tíu ára fangelsi fyrir vanvirðu við konung. 12.4.2007 13:00
Fyrrverandi heimsmethafi í köfun drukknar Franski kafarinn Loic Leferme lét lífið í morgun þegar hann var við köfunaræfingar án súrefnisútbúnaðar nærri frönsku borginni Nice. Þessi fyrrum heimsmethafi í loftfirrðri köfun virðist hafa misst meðvitund á talsverðu dýpi. 12.4.2007 12:45
Rússland ekki á meðal lýðræðisríkja Rússland og Írak fá ekki aðgöngu að samtökum lýðræðisríkja. Alþjóðleg nefnd sérfræðinga mun tilkynna það í næstu viku. Bandaríkin áttu frumkvæði að stofnun hópsins og á hann að stuðla að auknu frjálsræði í stjórnmálum. Sérfræðinganefndin mun mæla með því að 100 ríki verði boðuð til ráðherrafundar lýðræðisríkja en hann verður haldinn í borginni Bamoko í Malí. 12.4.2007 11:51
Tívolí opnað um næstu helgi Tívolí í Kaupmannahöfn verður opnað um næstu helgi og að venju er þar að finna ýmsar nýjungar. Nú gefst börnum á öllum aldri til dæmis tækifæri til þess að sigla umhverfis jörðina með Nemo, skipstjóra á kafbátnum Nautilusi. Í þessum nýja rússíbana er gusugangur, risakolkrabbar og einir tólf kafbátar. 12.4.2007 11:26
Krókódíll reif handlegg af dýralækni Stór krókódíll beit handlegginn af dýralækni í dýragarði í Tævan, í gær. Dýralæknirinn var að svæfa skepnuna og hafði skotið í það pílu með deyfilyfjum. Þegar krókódíllinn var kyrr orðinn, gekk læknirinn að honum til þess að fjarlægja píluna. En krókódíllinn snarsneri sér þá og reif af honum handlegginn. 12.4.2007 10:56
Mikill meirihluti Dana andvígur reykingabanni á börum Sjö af hverjum tíu Dönum vilja að reykingar verði áfram leyfðar á börum og veitingastöðum landsins samkvæmt skoðanakönnun sem birt er í fríblaðinu Dato. 12.4.2007 10:50
Sprenging í írakska þinginu Mikil sprenging varð í írakska þinghúsinu rétt í þessu og talið er að fjölmargir hafi látið lífið. Vitni sögðu að svo virtist sem sprengingin hefði átt sér stað á veitingastað í þinghúsinu þegar margir þingmenn voru á staðnum. Sky News segja að sex þingmenn hafi látið lífið og fjölmargir særst. Í ljós hefur komið kom að sjálfsmorðssprengjumaður var að verki. 12.4.2007 10:50
Strætóbílstjórar í bæjum í Danmörku leggja niður vinnu Strætisvagnasamgöngur liggja niðri í fjölmörgum bæjum á Jótlandi og á Borgundarhólmi í dag vegna mótmæla strætisvagnabílstjóra. Þeir eru ósáttir við að fá ekki sömu laun og starfsbræður þeirra í Kaupmannahöfn og nágrenni. 12.4.2007 10:31
Vill fækka sólarlandaferðum Leiðtogi norska Vinstri flokksins vill að Norðmenn fækki sólarlandaferðum sínum niður í mest eina á ári, til þess að draga úr gróðurhúsaáhrifum. Landsfundur flokksins hefst í Bergen á morgun og Lars Sponheim segir að þar verði umhverfismálin efst á dagskrá. Hann húðskammar ríkisstjórnina fyrir slælega frammistöðu og segir að almenningur verði að færa fórnir. 12.4.2007 10:30
Hársbreidd frá því að skjóta niður farþegaþotu Það munaði ekki nema hársbreidd að ísraelskar orrustuþotur skytu niður bandaríska farþegaflugvél sem var að fara að lenda í Tel Aviv, í gær. Þotan var frá Continental Airlines. Flugmönnunum láðist að tilkynna komu sína inn í ísraelska lofthelgi. Flugumferðarstjórar kölluðu vélina margsinnis upp, en þegar hún svaraði ekki voru fjórar orrustuþotur sendar á móti henni. 12.4.2007 10:17
Elbaradei segir ástæður Írana áhyggjuefni Mohamed Elbaradei, yfirmaður Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar (IEAE), sagði í dag að Íranar væru enn á byrjunarstigum úranframleiðslu. „Það er hægt að skilgreina hvað stórframleiðsla sé á mismunandi vegu. En Íranar hafa rétt hafið vinnu á kjarnorkustöð þar sem hægt er að auðga úrani.“ sagði Elbaradei við fréttamenn. 12.4.2007 10:15
Gerðu loftárás á talibana Bandaríkjaher felldi nokkra tugi talibana í loftárás í suðurhluta Afganistan í gær. Árásin var gerð þegar talibanar sátu fyrir stjórnarhernum í Afganistan á leið þeirra frá Kabúl til Kandahar. Enginn liðsmaður hersins féll í loftárásunum. Embættismenn í Afganistan skýrðu frá þessu í morgun. 12.4.2007 10:04
Gerber og Nestle í eina sæng Swisslenska fyrirtækið Nestle hyggst tilkynna kaup á Bandaríska barnamats merkinu Gerber í dag. Tilboðið hljómar upp á 5 milljarða Bandaríkjadollara. Snemma á tíunda áratugnum reyndi Nestle að kaupa Gerber fyrir 2,5 milljarða en kaupin gengu ekki eftir. Með kaupum á Gerber vill Nestle bæta ímynd sína og komst inn á hollari markað en þeir hafa hingað til verið á. Gerber er nú í eigu lyfjafyrirtækisins Novartis. 11.4.2007 23:18
Brasilísk flugmálayfirvöld telja flug vera öruggt Flugmálayfirvöld í Brasilíu telja flug á þeirra yfirráðasvæði vera örugg, þrátt fyrir að flugturnar þeirra séu undirmannaðir og að þangað vanti nýrri tæki. Nú þegar hafa flugumferðastjórar farið einu sinni í verkfall og þeir hóta að gera það aftur en ekkert breytist. 11.4.2007 22:19
Umhverfisverndarsinnar þurfa að vera kynþokkafyllri Fylkisstjóri Kaliforníuríkis, Arnold Schwarzenegger, sagði umhverfisverndarsinnum í Georgetown-háskólanum í dag að þeir þyrftu að hætta að nöldra og vera kynþokkafyllri. 11.4.2007 21:08
AC Milan og Liverpool í undanúrslit Meistaradeildarinnar AC Milan mætir Manchester United í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu eftir að ítalska liðið lagði Bayern München 2-0 í seinni leik liðanna í Þýskalandi í kvöld. Þá tryggði Liverpool sér einnig sæti í undanúrslitunum með því að leggja hollenska liðið PSV Eindhoven 1-0 á Anfield í kvöld. Þar mætir liðið Chelsea líkt og í undanúrslitum keppninnar 2005. 11.4.2007 20:56
Saka Írana um að vopnbúa uppreisnarmenn súnnía Talsmaður Bandaríkjahers sakaði í dag Írana um að um sjá uppreisnarmönnum úr röðum súnnía í Írak fyrir vopnum í baráttu sinni. Þetta er í fyrsta sinn sem Bandaríkjaher heldur slíku fram en áður höfðu Bandaríkjamenn sakaða Írana, sem eru langflestir sjíar, um að sjá sjíum í Írak fyrir vopnum. 11.4.2007 20:41
Fílsunginn trekkir að Fjöldi fólks hefur lagt leið sína í dýragarðinn í Hamborg í Þýskalandi undanfarinn sólarhring til að berja augum lítinn fílskálf sem kom þar í heiminn í gær. Litli fíllinn er reyndar ekkert mjög lítill því fæðingarþyngd hans var 86 kíló og stærðin yfir herðakambinn 96 sentimetrar. 11.4.2007 20:00
Sólgos talin hafa áhrif á loftslagsbreytingar Æ fleiri vísindamenn eru að komast á þá skoðun að samspil sólgosa og geimryks hafi talsvert að segja um loftslagsbreytingar á jörðinni. Þeir telja að fylgni sé á milli hlýnunar jarðar og mikilla sólgosa undanfarna áratugi. 11.4.2007 19:45
Samtök tengd al-Kaída lýsa yfir ábyrgð Samtök sem kenna sig við al-Kaída segjast bera ábyrgð á sprengjuárásum sem gerðar voru Algeirsborg í Alsír í dag. Þrjátíu létu lífið í tilræðunum, sem meðal annars var beint gegn forsætisráðherra landsins. 11.4.2007 19:15
Nota Indland og Kína sem afsökun til að menga Bandaríkjamenn nota Indland og Kína sem afsökun til að koma sér hjá því að draga úr útblæstri gróðurhúsaloftegunda að mati Maneka Gandhi, fyrrverandi umhverfisráðherra Indlands.Þetta kom fram í máli hins fyrrverandi ráðherra á blaðamannfundi í Brussel í dag. Hann segir fáránlegt af Bandaríkjamönnum að ætlast til þess að Indland og Kína gangist undir Kyoto bókunina á þessum tímapunkti. 11.4.2007 16:56
Danir kvarta minna yfir fríblöðum Danski samgöngumálaráðherrann hefur fallið frá þeirri hugmynd að setja sérstök lög til að koma í veg fyrir að fríblöðum sé dreift inn á dönsk heimili. Upphaflega settu margir Danir sig gegn því að fá fríblöðin óumbeðið heim til sín og bárust samgöngumálaráðuneytinu yfir tvö hundruð kvartanir í hverjum mánuði vegna þessa. Snarlega hefur hins vegar dregið úr kvörtunum að undanförnu og voru þær rétt um eitt hundrað í síðasta mánuði.Minnst er kvartað yfir dreifingu Nyhedsavisen. 11.4.2007 15:50
Al-Qaida segist bera ábyrgð á árásum í Algeirsborg Hópur tengdur al-Qaida hryðjuverkasamtökunum segist bera ábyrgð á sprengjuárásum í miðborg Algeirsborgar, höfuðborgar Alsírs, í morgun sem kostuðu að minnsta kosti á annan tug manna lífið. Þá særðust að minnsta kosti 80 manns í árásunum. 11.4.2007 15:18
Fer fram á 12 ára fangelsi yfir höfuðpaur í Munch-málinu Ríkissakóknari í Noregi fór í dag fram á það fyrir lögmannsrétti að þrír menn sem sakfelldir voru fyrir að hafa rænt málverkunum Ópinu og Madonnu af Munch-safninu í Olsó fyrir nærri þremur árum yrðu dæmdir í sjö til tólf ára fangelsi. 11.4.2007 14:23
Lífskjörin fara stöðugt versnandi Fjórum árum eftir innrásina í Írak fer hagur þjóðarinnar stöðugt versnandi. Í nýrri skýrslu Alþjóðaráðs Rauða krossins segir að vargöldin í landinu hafi gert líf almennings óbærilegt, sjúkrahús séu óstarfhæf vegna ótta starfsfólks og skortur á brýnustu nauðsynjum sé viðvarandi. 11.4.2007 13:30
Máli á hendur Rasmussen vegna Íraksstríðs vísað frá Landsréttur í Danmörku vísaði í dag frá máli sem 26 andstæðingar Íraksstríðsins höfðuðu á hendur Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, vegna þátttöku Dana í stríðinu. Hópurinn, sem nefndi sig stjórnarskrárnefndina, var stofnaður í kjölfar innrásarinnar í Írak árið 2003. 11.4.2007 13:10
Sáttaráðstefnu í Sómalíu frestað Sáttaráðstefnu sem átti að halda í Sómalíu þann 16. apríl hefur verið frestað vegna þess hversu ótryggt ástandið er í höfuðborginni Mogadishu. Samtök Arabaríkja ætluðu að standa fyrir henni en báðu um mánaðarfrest. Ráðstefnan verður eitt stærsta innlenda framtakið til þess að binda enda á ofbeldi í landinu en fleiri en 1.000 hafa látið lífið í átökum í landinu síðan 29. mars. 11.4.2007 11:58
Sprengingar í höfuðborg Alsír Að minnsta kosti tvær sprengingar urðu í höfuðborg Alsír, Algeirsborg, í morgun og sprakk önnur þeirra fyrir utan skrifstofu forsætisráðherra landsins. 17 manns létu lífið í þeim og yfir 80 særðust. Mikil ringulreið greip um sig í miðborg Algeirsborgar en þúsundir flykktust út á götur og sjúkrabílar þustu á vettvang. Fréttastofa alsírska ríkisins sagði frá. 11.4.2007 10:56
Kárahnjúkar virkja kínverska drauma Kárahnjúkavirkjun er þegar farin að hafa áhrif á landann. En það sem oft gleymist er að hún hefur áhrif langt út fyrir landsteinana. Þetta kemur fram í grein sem birt var á vefsíðu Time þann 6. apríl síðastliðinn. 11.4.2007 10:47
Yfirmaður tyrkneska hersins heldur fréttamannafund Yfirmaður tyrkneska hersins heldur fréttamannafund á morgun en í Tyrklandi er herinn talinn valdamikill og er fundarins því beðið með eftirvæntingu. Forsetakosningar verða haldnar í landinu í næsta mánuði. Elíta landsins, en til hennar teljast margir herforingjar, eru þeirrar skoðunar að trúmál og stjórnmál fari ekki saman. 11.4.2007 10:17