Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ausandi rigning á Spáni yfir páskana Þúsundir Íslendinga sem hugðust verja páskaleyfinu í sól og sumaryl á Spáni hafa í staðinn orðið að hírast innandyra í ausandi rigningu. Óvenjumikil úrkoma hefur verið við Miðjarðarhafið undanfarnar vikur. 10.4.2007 19:45
Dæmdir fyrir fjöldamorð Stríðsglæpadómsstóll í Serbíu dæmdi í dag fjóra menn til fangelsisvistar fyrir þátt sinn í fjöldamorðunum í Srebrenica í Bosníu í júlí 1995. Þeir voru meðlimir í serbneskum vígasveitum, Sporðdrekasveitunum svokölluðu. 10.4.2007 19:30
Fær ekki fósturvísana Síðasti vonarneisti breskrar konu um að verða barnshafandi dó út í dag þegar Mannréttindadómstóll Evrópu kvað upp þann dóm að hún fengi ekki að nota fósturvísa úr fyrra hjónabandi sínu. 10.4.2007 18:58
Dæmdir fyrir aftökur nærri Srebrenica Serbneskur stríðsglæpadómstóll dæmdi í dag fjóra karlmenn í fimm til tuttugu ára fangelsi fyrir að hafa myrt sex unga Bosníu-múslíma á síðustu dögum Balkanskagastríðsins sem stóð yfir á árunum 1992-1195. 10.4.2007 14:43
Íranir segja kjarnorkuna til almennra nota Evrópusambandið lítur nýjustu yfirlýsingu Írana um auðgun úrans mjög alvarlegum augum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Þjóðverjum, sem eru í forsæti fyrir sambandið. ESB kannar nú af mikilli alvöru áætlanir Írana um að auðga úran. Forseti Írans Mahmoud Ahmadinejad sagði í gær að Íranar gætu nú í auðgað úran í miklum mæli. 10.4.2007 14:22
Obama útilokar framboð með Hillary Bandaríski öldungardeildarþingmaðurinn Barak Obama, sem keppir um að verða forsetaefni demókrataflokksins, útilokar að hann muni bjóða sig fram sem varaforsetaefni Hillary Clinton sigri hún í valkosningunum. Þetta kom fram í máli þingmannsins í sjónvarpsþættinum Late Night with David Letterman. 10.4.2007 14:13
Telur 80 prósent fanga haldið í einangrun Mannréttindasamtökin Amnesty International segja að svo virðist sem fjórum af hverjum fimm föngum í Guantánamo-búðunum sé haldið í einangrun og það stangist á við fyrri stefnu Bandaríkjastjórnar um að milda aðstæður í búðunum. 10.4.2007 14:06
Önnur umferð boðuð Flest bendir til að Jose Ramos-Horta, forseta Austur-Tímor, hafi mistekist að bera sigur úr býtum í fyrri umferð forsetakosninganna í landinu sem fram fór í gær. Í yfirlýsingu kjörstjórnar landsins í morgun segir að bráðabirgðaúrslit bendi til að Horta og Fernarndo de Araujo, sem rétt eins og Horta tók virkan þátt í sjálfstæðisbaráttu Austur-Tímora gegn Indónesum, hafi orðið efstir. 10.4.2007 13:45
Sautján létust í sjálfsmorðsárás Sautján manns létu lífið í súnníabænum Muqdadiya í Írak í morgun þegar kona gyrt sprengjubelti gekk að hópi manna og sprengdi sig í loft upp. Mennirnir höfðu safnast saman fyrir utan eina af lögreglustöðvum bæjarins til að sækja um stöður í lögreglunni. 10.4.2007 13:15
Internetnotkun komin úr böndunum? Tveir af hverjum þremur internet notendum í Bretlandi eyða vinnutíma sínum í óþarfa internetnotkun. Starfsmenn missa tvo heila daga úr á mánuði vegna stjórnlausar leitar á netinu. Karlmenn bregða sér víst mun meira á netið en konur gera. 10.4.2007 12:50
Spennan vex á milli Súdana og Tsjada Súdanska ríkisstjórnin sakar stjórnarher Tsjad um að hafa ráðist á hermenn sína innan landamæra Súdans í gær og hótar grimmilegum hefndum. Hundruð hafa týnt lífi í ofbeldisverkum á svæðinu undanfarna daga. 10.4.2007 12:37
Mannleg mistök talin ástæðan Mannleg mistök virðast vera orsök þess að gríska skemmtiferðaskipið Sea Dimond sökk í síðustu viku. Enn er ekki vitað hvað olli því að tæplega 22,500 tonna skip sigldi á sker rétt við eyjuna Santorini en sex manns eru í haldi vegna atviksins. 10.4.2007 11:16
Gore vonast eftir umhverfisvakningu Al Gore, fyrrum varaforseti Bandaríkjanna og einn helsti talsmaður umhverfisins, vonast til þess að tónleikaröð hans, Live Earth, eigi eftir að gera jafn mikið fyrir umhverfismál og Live Aid tónleikarnir gerðu fyrir málefni Afríku. 10.4.2007 10:57
Talið að 400 hafi látið lífið í Tsjad Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna áætlar að allt að 400 manns hafi látið lífið í átökum á landamærum Tsjad fyrir 11 dögum síðan. Þá réðust Janjaweed hersveitir frá Súdan yfir landamærin til þess að eltast við flóttafólk úr Darfúr-héraði. Upphaflega var talið að um 65 hefðu látið lífið í árásunum sem áttu sér stað þann 31. mars síðastliðinn. 10.4.2007 10:32
Rússar segja ekkert sanna staðhæfingar Írana Rússar segjast ekki hafa neina sönnun á því að Íranar hafi náð einhverjum áfanga sem bendi til þess að þeir geti nú auðgað úran í miklu magni. Utanríkisráðuneyti Rússlands skýrði frá þessu í dag. 10.4.2007 10:13
Brixtofte dæmdur fyrir umboðssvik og embættismisnotkun Dómstóll í Hilleröd í Danmörku dæmdi í morgun Peter Brixtofte, fyrrverandi bæjarstjóra í sveitarfélaginu Farum í útjaðri Kaupmannahafnar, í tveggja ára fangelsi fyrir gróf umboðssvik og misnotkun á embætti sínu. 10.4.2007 09:49
Önnur umferð nauðsynleg í forsetakosningum í Austur-Tímor Svo virðist sem að það muni þurfa aðra umferð í forsetakosningunum í Austur-Tímor. Sem stendur eru tveir menn nærri jafnir og er það forsætisráðherrann, Jose Ramos-Horta, og annar uppreisnarmaður sem umbreyttist í stjórnmálamann. Kosið var í gær og fóru kosningarnar friðsamlega fram. 10.4.2007 08:59
Íranir halda kjarnorkuáætlun sinni áfram Íranar eru komnir í hóp þjóða sem geta auðgað úran í miklu magni til kjarnorkuframleiðslu. Þetta fullyrti Mahmoud Ahmedinajad, forseti landsins í dag. Íranar væru komnir á "iðnaðarstig" í framleiðslu kjarnorku, sem þýðir að þeir eru einu skrefi nær því að geta framleitt kjarnorkusprengju. Stjórnvöld í Íran ítreka þó sem fyrr að kjarnorkuframleiðslan sé í friðsamlegum tilgangi. 9.4.2007 19:30
Fjögur ár frá falli Saddams Styttan af Saddam féll í Baghdad fyrir sléttum fjórum árum í dag. 70.000 mannslífum síðar hefur ástandið nákvæmlega ekkert batnað og haldið var upp á afmælið í höfuðborginni með algjöru banni á allri bílaumferð. 9.4.2007 19:15
Synti Amazon-fljótið endilangt Rúmlega fimmtugur Slóveni afrekaði um helgina fyrstur allra að synda niður Amazon fljótið eins og það leggur sig. Leiðin er meira en fimm þúsund kílómetrar. 9.4.2007 19:08
Níu handteknir eftir hnífabardaga Níu hafa verið handteknir eftir hnífabardaga fyrir utan næturklúbb í Álaborg í Danmörku um helgina. Tuttugu og eins árs karlmaður sem reyndi að skakka leikinn lét lífið eftir að hafa orðið fyrir ítrekuðum hnífsstungum. 9.4.2007 19:02
Tókst að rækta hluta úr mannshjarta Breskum vísindamönnum hefur tekist að rækta hluta úr mannshjarta með stofnfrumum. Frumvarp sem hefði heimilað noktun íslenskra fósturvísa til stofnfrumurannsókna var kippt af dagskrá á síðasta degi Alþingis. 9.4.2007 19:01
Mega ekki hagnast fjárhagslega á frásögnum sínum Varnarmálaráðuneyti Bretlands hefur bannað fleiri sjóliðum að selja frásagnir sínar af dvöl þeirra í Íran. Áður hafði þeim verið leyft að sekja frádagnir sínar og tókst tveimur þeirra að gera það. Faye Turney, eina konan sem var með í för, fékk víst um 100.000 pund fyrir að hafa selt sögu sína til ITV1 og dagblaðsins the Sun. 9.4.2007 17:50
Bandaríkin kæra Kínverja Bandaríkin hafa lagt fram tvær kærur á hendur Kína hjá Alþjóðaverslunarráðinu (World Trade Organization) vegna þess hversu auðvelt er að fjölfalda og selja amerískar bíómyndir, tónlist, bækur og hugbúnað ólöglega. „Það er allt of mikið um sjóræningjastarfsemi og falsanir í Kína.“ sagði Susan Schwab, verslunarfulltrúi Bandaríkjanna í tilkynningu sem hún sendi frá sér í dag. 9.4.2007 17:34
Hvíta húsið harmar ákvörðun Írana Hvíta húsið hefur lýst yfir áhyggjum vegna yfirlýsinga Írana í dag um að þeir hafi hafið framleiðslu á auðguðu úrani í iðnaðarmagni. „Við höfum miklar áhyggjur af tilkynningu Írana.“ sagði Gordon Johndroe, talsmaður öryggisráðs Hvíta hússins. „Íranar halda áfram að ögra alþjóðasamfélaginu og einangra sig enn frekar með því að auka við kjarnorkuáætlun sína frekar en að draga úr henni.“ 9.4.2007 17:02
Vilja ekki að hermenn hagnist persónulega Breska varnarmálaráðuneytið ætlar sér að endurskoða reglur sínar varðandi það að gefa hermönnum og fyrrum starfsfólki leyfi til þess að selja sögur sínar til fjölmiðla. Mikil umræða varð um málið í Bretlandi í kjölfar þess að ákveðið var að leyfa sjóliðunum sem Íranar handtóku að selja fjölmiðlum sögur sínar. 9.4.2007 15:52
Vegið að málfrelsi í Rússlandi Talsmenn málfrelsis í Rússlandi vöruðu við því í dag að hafin væri herferð gegn stjórnarandstæðingum eftir að stjórnmálamenn hliðhollir stjórnvöldum réðust gegn dagblaði sem birti viðtal við formann flokks sem er í stjórnarandstöðu. 9.4.2007 15:09
Íranar stefna ótrauðir á kjarnorku Íranar skýrðu frá því í dag að þeir myndu endurskoða aðild sína að samningnum um að takmörkun á útbreiðslu kjarnavopna (NPT) ef frekari þrýstingi er beitt gegn þeim vegna kjarnorkuáætlunnar þeirra. Ali Larijani, helsti samningamaður Írana í kjarnorkumálum, skýrði frá þessu í dag. 9.4.2007 14:30
Íhuga stofnun samráðshóps Heimsins stærstu gasútflytjendur eru nú að skoða möguleikann á því að stofna með sér samráðshóp til þess að geta stjórnað verðinu á gasi. Á meðal þessara útflytjenda eru Rússland, sem sér stórum hluta Evrópu fyrir gasi, Íran og Qatar. 9.4.2007 14:13
Íranar halda kjarnorkuáætlun sinni áfram Forseti Írans, Mahmoud Ahmadinejad, tilkynnti á fréttamannafundi í dag að Íranar myndu ekki láta undan þrýstingi vesturveldanna og gefa kjarnorkuáætlun sína upp á bátinn. Ahmadinejad er enn að tala og hefur ekki skýrt nákvæmlega frá því hvað felst í yfirlýsingu hans. 9.4.2007 13:41
Íranar sýna ný myndbönd af sjóliðunum Írönsk sjónvarpsstöð hefur birt myndbandsupptökur af bresku sjóliðunum sem voru í haldi, þar sem þeir sjást tefla, spila borðtennis og horfa á sjónvarpið. Stjórnvöld í Teheran segja myndbandið sýna að fullyrðingar um að sjóliðarnir hafi verið beittir harðræði haldi ekki vatni. 9.4.2007 12:42
Írakar mótmæla í Najaf Allt að milljón Sjíja múslimar mun í dag fylkja liði um götur Najaf í Írak til að mótmæla hersetu Bandaríkjamanna, fjórum árum eftir að Baghdad var hernumin. Öllu rólegra er í höfuðborginni sjálfri á þessum tímamótum, enda öll bílaumferð bönnuð í sólarhring af ótta við hryðjuverk. 9.4.2007 12:40
Níu handteknir eftir hnífabardaga Níu hafa verið handteknir eftir hnífabardaga fyrir utan næturklúbb í Álaborg í Danmörku um helgina. Tuttugu og eins árs karlmaður lét lífið eftir að hafa orðið fyrir ítrekuðum hnífsstungum og sex til viðbótar slösuðust. 9.4.2007 12:22
Allt á suðupunkti í Afganistan Allt er á suðupunkti í Afghanistan, eftir að uppreisnarmenn úr röðum Talibana skáru afganskan túlk á háls í gær. Sex Kanadamenn féllu í bílsprengjuárás í suðurhluta landsins. 9.4.2007 12:20
Byggja stíflu og bjarga hafinu Stjórnvöld í Kasakstan fengu í gær vilyrði fyrir 128 milljóna dollara láni frá Heimsbankanum (e. World Bank) til þess að fylla Aralhafið á ný. Peningarnir verða notaðir til þess að hleypa af stokkunum öðrum hluta verkefnis sem miðar að því að koma sjó aftur í Aralhafið. Sameinuðu þjóðirnar segja að hvarf Aralhafsins sé eitthvert mesta og stærsta umhverfisslys sögunnar. Þetta verkefni mun þó verða til þess að hafið snýr aftur. 9.4.2007 11:59
Búist við tilkynningu um kjarnorkuáætlun Búist er við því að Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, skýri frá því í dag að Íranar ætli að hefja auðgun úrans í stórum stíl. Hingað til hafa þeir aðeins verið með örfáar skilvindur, eða um 350, í tilraunaskyni. Alþjóðakjarnorkumálastofnunin (IAEA) hefur sagt að Íranar hafi sett upp 300 skilvindur í viðbót og hugsanlegt er að nú verði tilkynnt að hafin hafi verið uppsetning á 3.000 skilvindum. 9.4.2007 11:15
Kosningabaráttan í Frakklandi formlega hafin Kosningabaráttan fyrir fyrstu umferð forsetakosninganna í Frakklandi 22. apríl er hafin. Tólf frambjóðendur ætla sér að feta í fótspor Jacques Chirac, hins aldna forseta sem nú lætur af völdum. Nicolas Sarkozy, frambjóðandi hægri flokksins UMP þykir líklegastur til sigurs. Segolene Royal, frambjóðandi sósíalista fylgir honum fast á hæla. Ekki langt á eftir þeim er Francis Bayrou og Jean-Marie Le Pen situr í fjórða sæti. 9.4.2007 10:49
Kirkjan í Zimbabwe varar stjórnvöld við Biskupar rómversk-kaþólsku kirkjunnar í Zimbabwe vöruðu við því að ef ekki yrðu haldnar frjálsar kosningar myndi almenningur rísa upp á afturlappirnar og bylting yrði raunin. Þetta var fullyrt í bréfi sem hengt var upp í kirkjum víðs vegar um landið í gær. 9.4.2007 10:29
Íranar segja sjóliðana ljúga Írönsk sjónvarpsstöð hefur birt myndbandsupptökur af bresku sjóliðunum sem voru í haldi, þar sem þeir sjást tefla, spila borðtennis og horfa á sjónvarpið. Stjórnvöld í Teheran segja myndbandið sýna að fullyrðingar um að sjóliðarnir hafi verið beittir harðræði haldi ekki vatni. 9.4.2007 09:52
Slóveni lýkur Amazon sundi Rúmlega fimmtugur Slóveni afrekaði um helgina fyrstur allra að synda niður Amazon fljótið eins og það leggur sig. Slóveninn var skiljanlega hálf vankaður þegar hann kom á leiðarenda, enda meira en fimm þúsund kílómetrar að baki og mikil og hörð barátta við ofskynjanir, örmögnun og pírana fiska. 9.4.2007 09:47
Sjíar mótmæla hersetu Bandaríkjanna Tugþúsundir Sjía gengu morgun fylktu liði um götur Najaf í Írak til að mótmæla hersetu Bandaríkjamanna. Í dag eru fjögur ár liðin frá því bandarískar hersveitir náðu höfuðborginni Baghdad á sitt vald, en afmælisveislan er í daprara lagi. 9.4.2007 09:42
Talibanar myrtu gísl Uppreisnarmenn úr röðum Talibana skáru afganskan túlk á háls í gær. Uppreisnarmennirnir höfðu áður sleppt ítölskum blaðamanni sem túlkurinn vann með í Afghanistan. Þeir kröfðust þess að stjórnvöld í landinu létu nokkra uppreisnarmenn lausa úr fangelsum landsins, ef túlkurinn ætti að komast lífs af. 9.4.2007 09:37
Róstursamt í Írak í dag Að minnsta kosti þrjátíu létust í átökum í Írak í dag. Á meðal látinna eru fimmtán almennir borgarar sem létust í bílsprengju í Mahmoudiyah suður af Bagdad höfuðborg Íraks. 8.4.2007 18:15
Íranar brýna klærnar Íranar hafa varað Íraka við því að það geti haft alvarleg áhrif á samskipti landanna ef fimm Íranar sem Bandaríkjamenn handtóku verði ekki látnir lausir. Talið er að það hafi verið vegna þessarra manna sem Íranar ráku flugvél forsætisráðherra Íraks út úr lofthelgi sinni um helgina. 8.4.2007 16:01
Bílar bannaðir í Bagdad Öll bílaumferð verður bönnuð í 24 klukkustundir á morgun, þegar fjögur ár eru liðin frá því borgin féll í hendur Bandaríkjanna. Þetta er gert til að koma í veg fyrir hryðjuverk, en bílsprengjur eru vinsælt vopn hjá upopreisnarmönnum. Bannið stendur frá klukkan fimm í fyrramálið til klukkan fimm að morgnu þriðjudags. 8.4.2007 15:16