Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hestum bjargað af hól Rúmlega hundrað hestum var bjargað í dag ofan af litlum hól í Hollandi þar sem þeir sátu fastir. Hestarnir urðu innlyksa þegar flæddi yfir friðlýst svæði á þriðjudaginn en þar hafði hestunum verið sleppt lausum. 18 hestar drukknuðu en 20 var bjargað þegar á miðvikudag, áður en veður versnaði á ný. 3.11.2006 19:45
Bandaríkin vilja taka við stjórn friðargæslu S.þ. Bandaríkin vilja taka yfir stjórn friðargæslu Sameinuðu þjóðanna þegar Ban Ki-Moon tekur við embætti framkvæmdastjóra S.þ. um mánaðamótin. Fréttastofa Reuters hefur þetta eftir háttsettum bandarískum embættismanni sem ekki vill láta nafns síns getið. Frakkar stýra friðargæslunni eins og er. 3.11.2006 19:19
Sýndi ódæðið á netinu Kanadíska lögreglan hefur handtekið mann sem misnotaði barnunga stúlku kynferðislega í beinni útsendingu á netinu. Lögreglumaður hafði áunnið sér traust ódæðismannsins á spjallrás á netinu og fékk aðgang að útsendingunni. Maðurinn var handtekinn tveimur klukkustundum síðar. 3.11.2006 19:00
Skotárás mótmælt Tvær palestínskar konur féllu og sex særðust þegar Ísraelsher hóf skothríð á mosku í bænum Beit Hanoun á Gaza-svæðinu í morgun. Hópur herskárra Palestínumanna hafði leitað þar skjóls og höfðu konurnar svarað kalli Hamas-liða og tekið sér stöðu milli moskunnar og hermannanna. Efnt var til mótmælagöngu á götum borga og bæja á Gaza-svæðinu vegna atburðarins. Byssumennirnir sátu í moskunni meðan umsátrið varði í 19 klukkustundi. Hermenn umkringdu moskuna. Hamas-samtökin kölluðu eftir stuðningi palestínskra kvenna í útvarpsávarpi og báðu þær um að taka sér stöðu við moskuna sem lifandi skildir. Um tvö hundruð konur komu á vettvang og tóku sér stöðu. Ísraelsher mun, að sögn vitna hafa skotið á konur þar sem þær hlupu að moskunni og stóðu við hana. Atvikið mun nú í rannsókn hjá Ísraelsher en hermenn á vettvangi segjast hafa verið að svara skothríð frá Palestínumönnunum sem hafi falið sig meðal kvennanna. Sumir þeirra eru sagðir hafa dulbúið sig sem konur til að lauma sér út úr moskunni. Ekki liggur fyrir hve margir herskáir Palestínumenn sem leituðu skjóls í moskunni. Sumir miðlar segja þá hafa verið allt að sextíu en aðrir að þeir hafi ekki verið fleiri en fimmtán. Rúmlega 20 Palestínumenn og einn ísraelskur hermaður hafa fallið í áhlaupi Ísarela á Beit Hanoun sem hófst á miðvikudaginn. Ísraelsher segir áhlaupið gert til að koma í veg fyrir að herskáir Palestínumenn skjóti flugskeytum á ísraelskt landsvæði. Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna, og Ismail Haniyeh, forsætisráðherra palestínsku heimastjórnarinnar, hafa báðir fordæmt aðgerðir Ísrelshers í Beit Hanoun og sagt þær fjöldamorð. 3.11.2006 18:45
600 kíló af sprengiefnum gerð upptæk í Egyptalandi Egypska lögreglan fann 600 kíló af sprengiefni á norðanverðum Sínaískaga í dag, nærri staðnum þar sem eitt tonn af sprengiefnum fannst í síðustu viku. Rúmlega 100 manns hafa látist í sprengjuárásum á ferðamannastaði á Sínaskaga frá október 2004. Sprengiefnið var falið í pokum í eyðimerkursandi en ekki fylgdi sögunni hvort einhver hefur verið handtekinn. 3.11.2006 17:56
Dómur kveðinn upp yfir Hussein á sunnudag Búist er við því að dómur verði kveðinn upp á sunnudag yfir Saddam Hussein, fyrrverandi forseta Íraks, og sjö samverkamönnum hans vegna morðs á nærri 150 sjítum í bænum Dujail árið 1982. Fólkið lét hann drepa eftir að reynt var að ráða hann af dögum í bænum. Fari svo að hann verði sakfelldur má búast við því að hans bíði dauðadómur sem framfylgt verður með hengingu. 3.11.2006 17:05
Reiði vegna myndbands úr brúðkaupi Tíu mínútna myndband úr giftingarveislu sem Than Shwe, leiðtogi herforingjastjórnarinnar í Maynmar, eða Burma, hélt dóttur sinni í sumar veldur mikilli reiði og fordæmingu meðal íbúa Burma eftir að myndbandið fór í sýningu á Netinu. Mayanmar er eitt af fátækari ríkjum heims. 3.11.2006 16:48
Finnskir ritstjórar ákærðir vegna hatursbréfs um Gyðinga Finnski ríkissaksóknarinnhefur lagt fram kærur á hendur ritstjórum tveggja dagblaða fyrir að birta lesendabréf þar sem hvatt var til ofbeldisverka gegn Gyðingum og lýst velþóknun á helför nasista. 3.11.2006 16:33
Óttast að hundruð þúsunda flýi heimili sín í Írak Um fimmtíu þúsund Írakar flýja heimili sín í hverjum mánuði og búast má við að hundruð þúsunda muni gera það á næstunni vegna viðvarandi óstöðuleika í landinu. Þetta er mat flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna. 3.11.2006 16:15
Fyrir rétti vegna hvatningar til morða Breskur múslimi, kom fyrir dómara í dag, sakaður um að hafa hvatt til morða, í mótmælastöðu fyrir utan danska sendiráðið í Lundúnum, í Febrúar. 3.11.2006 16:02
Dómur yfir Saddam á sunnudag Búist er við að dómur verði kveðinn upp yfir Saddam Hussein og sjö meðreiðarsveinum hans á sunnudag, í einum af mörgum ákæruliðum sem þeir verða að svara fyrir. Krafist er dauðadóms yfir forsetanum fyrrverandi. 3.11.2006 14:37
Saka arabíska vígamenn um morð á börnum í Darfur Friðargæsluliðar á vegum Afríkubandalagsins í Darfur-héraði í Súdan saka arabíska vígamenn úr svokölluðum Janjawwed-sveitum um að hafa drepið að minnsta kosti 63 borgara í árásum í liðinni viku. Þar af sé tæpur helmingur börn undir tólf ára aldri. 3.11.2006 14:09
Danski umboðsmaðurinn krefur forsætisráðherra um svör Umboðsmaður danska þingsins hefur fært Ekstra blaðinu danska nokkurn sigur í baráttu þess við forsætis og utanríkisráðherra landsins. 3.11.2006 13:54
Skotið á mosku Minnst tvær palestínskar konur féllu og sex særðust þegar Ísraelsher hóf skothríð á mosku í bænum Beit Hanoun á Gaza-svæðinu í morgun. 60 palestínskir byssumenn höfðu leitað þar skjóls og konurnar höfðu tekið sér stöðu milli moskunnar og hermannanna. 3.11.2006 13:00
Bechtel kallar starfsmenn heim frá Írak Bandaríska verktakafyrirtækið Bechtel hefur ákveðið að kalla alla starfsmenn sína heim frá Írak. Fyrirtækið, sem er að reisa álver í Reyðarfirði fyrir Fjarðaál, hefur einnig tekið þátt í endurbyggingu í Írak. Rúmlega fimmtíu starfsmenn fyrirtækisins hafa týnt lífi þar. 3.11.2006 12:45
Bók um smábörn sögð lífshættuleg Margir sérfræðingar, á Norðurlöndunum, vara eindregið við sænskri bók um barnauppeldi, sem þeir segja að sé beinlínis lífshættuleg börnum. Höfundurinn er Anna Wahlgren, sem sjálf er ellefu barna móðir. 3.11.2006 12:25
Öryggisráðið klofið vegna Hariri-málsins Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna er klofið í afstöðu sinni til sérstaks dómstóls sem skal rétta í máli sakborninga fyrir morðið á Rafik Hariri, fyrrum forsætisráðherra Líbanons. Bandaríkin styðja tillöguna enda er ríkisstjórn Líbanons undir verndarvæng Bandaríkjanna. Rússar draga hins vegar taum Sýrlendinga, sem almannarómur sakar um að hafa skipulagt morðið. 2.11.2006 22:35
Vestræn ríki verða að búa sig undir aukin elliglöp Breskir vísindamenn vara við því í nýútkominni skýrslu að vestræn samfélög ættu að undirbúa aukna aðstöðu og aðstoð við aldrað fólk með elliglöp eða hrörnunarsjúkdóma sem leggjast á heila, út af því að batnandi lífskjör og lífslíkur hafa það í för með sér að fleira og fleira fólk nær háum aldri með bilandi heilastarfsemi. 2.11.2006 22:00
Fiskurinn hverfur eftir 42 ár Fiskistofnar og sjávarspendýr í höfum heimsins hrynja árið 2048 ef mannfólkið heldur áfram með uppteknum hætti við að spilla umhverfi og lífríki sjávar. Þetta er niðurstaða vísindamanna sem hafa unnið úr vísindagögnum sem ná aftur til sjöunda áratugarins og heimildum fornleifafræðinga um þróun lífríkisins í yfir þúsund ár. 2.11.2006 20:15
Færeyingar reiðir Íslendingum Reiði ríkir í Færeyjum vegna umræðu um bágborna stöðu samkynhneigðra í eyjunum en Íslendingar vöktu athygli á málinu á þingi Norðurlandaráðs. Óttast er að umræðan geti jafnvel orðið til að skaða réttindabaráttu homma og lesbía í Færeyjum. 2.11.2006 19:12
Myrti dóttur sína til að hefna framhjáhalds eiginkonunnar Breskur karlmaður var í dag dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að myrða þriggja ára gamla dóttur sína með klóróformi fyrir tæpu ári síðan. Maðurinn reyndi einnig að fremja sjálfsvíg eftir ódæðið. Hann segist hafa framið ódæðið í hefndarskyni eftir að hann komst að því að eiginkona hans hélt fram hjá honum. 2.11.2006 18:03
Ein eftirlitsmyndavél á hverja 14 Breta Í Bretlandi fylgist ein eftirlitsmyndavél með hverjum fjórtán íbúum, og það er von á fleirum. Formaður bresku Persónuverndarinnar óttast að Bretland sé orðið að því eftirlitsþjóðfélagi sem George Orwell sá fyrir í bók sinni 1984. 2.11.2006 16:47
Kenna stúlkunni sjálfri um hópnauðgun Fjórir grískir skólapiltar hafa verið ákærðir fyrir að hópnauðga búlgarskri bekkjarsystur sinni. Íbúar þorpsins sem þetta gerðist í, segja að þetta hafi verið stúlkunni að kenna. 2.11.2006 16:20
Óttast blóðsúthellingar á hinsegin dögum Enn er verið að draga víglínur í Jerúsalem, en að þessu sinni eru þær á milli strangtrúaðra gyðinga og samkynhneigðra. Búist er við að 8000 manns taki þátt í skrúðgöngu "Hinsegin daga" í borginni helgu hinn tíunda þessa mánaðar. 2.11.2006 15:50
Neyðarfundur vegna morðöldu í Napólí Romano Prodi, forsætisráðherra Ítalíu, fór til neyðarfundar í Napólí, í dag, til að leggja á ráðin um hvernig sé hægt að stöðva öldu morða sem gengið hefur yfir borgina undanfarnar vikur. 2.11.2006 14:56
Kaup á lettneskum banka gagnrýnd Í nýjustu grein Ekstra Bladet um íslenskt viðskiptalíf er ýjað að því að lettneski bankinn Lateko hafi beitt danska bankamenn blekkingum til að fá sambankalán. Bankinn er í eigu Íslendinga. 2.11.2006 14:42
Blair vill ekki rugla saman Guði og Darwin Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, segir í viðtali við tímaritið New Scientist, að hann yrði áhyggjufullur ef sköpunarsagan yrði kennd sem raunvísindi, í breskum skólum. Sköpunarsagan er sú kenning Biblíunnar að Guð hafi skapað heiminn á sex dögum. 2.11.2006 14:11
Mjög samviskusamur næturvörður Pólskur innbrotsþjófur hringdi og bað lögregluna að bjarga sér eftir að næturvörður réðst á hann, vopnaður exi, og barði hann til óbóta. 2.11.2006 13:14
Leit að skipverja hætt á Eystrasalti Leit hefur verið hætt að skipverja sem féll útbyrðis þegar sænskt flutningaskip sökk í Eystrasalti í gærkvöld. Ofsaveður og stórsjór voru á þessum slóðum þegar neyðarkall barst frá skipinu og skömmu síðar valt það. 2.11.2006 12:45
Íraksforseti vill hafa bandaríska herinn 2-3 ár til viðbótar Íraski forsetinn Jalal Talabani sagði í morgun að bandarískar hersveitir ættu að vera í landinu allt að þrjú ár í viðbót svo að lögregla á svæðinu geti byggt upp starfsemi sína. Þetta kom fram á fréttamannafundi sem hann hélt við upphaf vikuferðalags um Frakkland. 2.11.2006 12:09
Nýr soldán skipaður í Nígeríu 53 ára gamall ofursti úr nígeríska hernum, Mohammed Sada Abubakar, hefur verið skipaður soldáninn af Sokoto. Sá er gegndi embættinu á undan honum lést í flugslysi í Nígeríu þann 29. október síðastliðinn. 2.11.2006 11:50
Kerry biðst afsökunar John Kerry, öldungardeildarþingmaður demókrata í Massachusetts, lét í kvöld undan þrýstingi og bað hermenn í Írak afsökunar, sem og fjölskyldur þeirra og nákomna. Hann sagðist harma það að orð sín hefðu verið mistúlkuð, hann hefði ekki viljað særa neinn. Repúblikanar hafa gert sér mat úr orðum hans og er talið að þetta gæti jafnvel haft áhrif á kosningaúrslit. 1.11.2006 23:27
Guðfaðir korsísku mafíunnar látinn í bílslysi Jean-Baptiste Colonna, "hinn eini sanni guðfaðir korsísku mafíunnar" samkvæmt rannsóknarskýrslu franska þingsins, lést í bílslysi á Korsíku í kvöld. Sterkur grunur lék á að hann tengdist heróínmsmyglhringnum French connection sem smyglaði gríðarlegu magni af heróíni til Bandaríkjanna á árunum 1937-1973 en hann var sýknaður eftir áfrýjun. 1.11.2006 22:59
260 þúsund tonn af olíu gætu lekið í Eystrasaltið Flutningaskipið Finnbirch hafði fulla tanka, samtals um 260 þúsund tonn af olíu þegar það sökk í aftakaveðri í kvöld á milli eyjanna Eylands og Gotlands. Vaktstjóri hjá sænsku strandgæslunni segir engin merki um það enn að olían sé farin að leka en segir að möguleikinn sé alltaf til staðar. Hvöss norðnorðaustanátt er enn á slysstaðnum og eins er enn saknað. 1.11.2006 22:43
Líbanskur klerkur segir Íran stjórna Líbanon í gegnum Hisbollah Einn æðsti klerkur súnnímúslima, Mohammad Ali Jouzou, mufti í fjallahéraðinu Mt Lebanon, gagnrýnir Hisbollah-hreyfingu sjíamúslima fyrir að þjóna hagsmunum Írans og Sýrlands. "Öll afrek sem Hisbollah montar sig af eru verk Persa sem ekki þjóna aröbum á nokkurn hátt," sagði Jouzou í ræðu í dag. Frá þessu er greint í líbanska dagblaðinu Daily star. 1.11.2006 21:53
Tveggja enn saknað eftir skipsskaða í Eystrasalti Flutningaskipið Finnbirch er horfið í hafið við sænsku eyna Gotland eftir að hafa marað í hálfu kafi síðan um hálfsjö-leytið að íslenskum tíma. 4-5 metra ölduhæð og kafaldsbylur hafa hamlað björgunarstörfum en 12 af 14 manna áhöfn hefur þó verið bjargað um borð í þyrlu. Þyrlur og nærstödd skip leita enn að þeim tveimur sem saknað er. 1.11.2006 21:40
Forsætisráðherra Fílabeinsstrandarinnar fær aukin völd Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti samhljóða í dag að veita forsætisráðherra Fílabeinsstrandarinnar til þess að hann geti stýrt landinu farsællega til kosninga á næsta ári. Forseti landsins, Laurent Gbagbo, er þar með sviptur nær öllum völdum. 1.11.2006 21:38
Kerry iðrast klaufalegs brandara John Kerry, öldungardeildarþingmaður demókrata, sagðist í sjónvarpsviðtali iðrast þess að hafa sagt klaufalegan brandara um hermenn í Írak. Hann neitar hins vegar að biðja hermenn í Írak formlegrar afsökunar og segir skeytið hafi átt að beinast gegn repúblikönum og stjórnarháttum þeirra. 1.11.2006 21:26
Marokkómaður átti verðlaunaskopmynd í helfararkeppni Marokkómaðurinn Abdellah Derkaoui fór með sigur af hólmi í teiknimyndasamkeppni íranska dagblaðsins Hamshahri um bestu helfararskopmyndina. Að sögn skipuleggjenda keppninnar bárust 1.193 myndir í keppnina frá 63 löndum. Abdellah fékk í sigurlaun ríflega 800 þúsund íslenskra króna. Frakki og Brasilíumaður skiptu með sér 540 þúsundum fyrir annað sætið. 1.11.2006 20:30
Búið að bjarga 9 af 14 eftir skipsskaða við Gotland Tvær þyrlur hafa bjargað níu manns úr sjónum eftir að flutningaskip fór á hliðina skammt frá sænsku eyjunum Eylandi og Gotlandi í aftakaveðri. Alls voru 14 manns í áhöfn skipsins, 4 Svíar og 10 Filippseyingar. Mikil ölduhæð og blindbylur gera allt björgunarstarf ákaflega erfitt. 1.11.2006 20:26
Bush vill Rumsfeld áfram og tafarlausar viðræður við N-Kóreu George Bush, forseti Bandaríkjanna, staðfesti traust sitt á Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra í ræðu í dag. Mikill þrýstingur hefur verið á Rumsfeld að segja af sér vegna Íraksmála. Þá sagðist Bush vilja sjá viðræður við Norður-Kóreumenn halda áfram eins fljótt og auðið væri. 1.11.2006 19:42
Friðarviðræðum frestað í Sómalíu Friðarviðræðum í Sómalíu hefur verið frestað um sinn en sáttasemjarar hvetja stríðandi aðila til að sýna biðlund og þolinmæði. Fulltrúar ríkisstjórnarinnar og íslamskra uppreisnarmanna mættu ekki til sáttafundar og dró það nokkuð úr bjartsýni á að friðarsamkomulag geti náðst. 1.11.2006 19:00
Óveður í Evrópu 22 menn hafa látist í miklum flóðum í suðaustanverðu Tyrklandi undanfarinn sólarhring. Þá rak norskan olíuborpall stjórnlaust í Norðursjó í fárviðri sem gekk yfir norðanverða Evrópu í nótt. 1.11.2006 18:30
Bandaríkjamenn óttast að ríkisstjórn Líbanons verði steypt Yfirvöld í Bandaríkjunum trúa því að Sýrland, Íran og Hisbollah séu að reyna að kollvarpa líbönsku ríkisstjórninni sem Fouad Siniora, forsætisráðherra, fer fyrir. Tony Snow, talsmaður Hvíta hússins, sagði Sýrlendinga beita sér að þessu marki til að koma í veg fyrir rannsókn sérstaks dómstóls á máli þeirra sem sakaðir eru um að hafa myrt Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons. 1.11.2006 18:19
De Beers vill útrýma blóðdemöntum Demantarisinn De Beers óttast að frumsýning kvikmyndarinnar "Blóðdemanturinn" með Leonardo DiCaprio hafi neikvæð áhrif á gimsteinasölu og hvetur því til áhrifaríkari herferðar gegn svokölluðum átakademöntum eða blóðdemöntum sem uppreisnarmenn og vígahópar í mörgum Afríkuríkjum selja á svörtum markaði til að fjármagna áframhaldandi átök. 1.11.2006 17:58