Erlent

Fiskurinn hverfur eftir 42 ár

MYND/Jón Sigurður
Fiskistofnar og sjávarspendýr í höfum heimsins hrynja árið 2048 ef mannfólkið heldur áfram með uppteknum hætti við að spilla umhverfi og lífríki sjávar. Þetta er niðurstaða vísindamanna sem hafa unnið úr vísindagögnum sem ná aftur til sjöunda áratugarins og heimildum fornleifafræðinga um þróun lífríkisins í yfir þúsund ár.

Niðurstöður vísindamannanna birtast í nýjasta tölublaði hins þekkta vísindatímarits Science. Þar greinir frá því að 29% tegunda séu þegar útdauðar eða í útrýmingarhættu. Þegar vísindamennirnir framreikna þessa þróun fyrir næstu áratugina reikna þeir með að árið 2048 hafi heildarafli í heiminum minnkað um 90%.

Þetta gildir um allar tegundir sjávarlífvera, allt frá svifi og skeldýrum til þorsks og túnfisks. Sjávarspendýr: selir og hvalir, verða ekki undanskilin áhrifunum af hruni fiskstofna, þá verður minna um æti fyrir þessi dýr.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×