Erlent

600 kíló af sprengiefnum gerð upptæk í Egyptalandi

Dýnamítstangir
Dýnamítstangir MYND/Brynjar Gauti Sigurðsson
Egypska lögreglan fann 600 kíló af sprengiefni á norðanverðum Sínaískaga í dag, nærri staðnum þar sem eitt tonn af sprengiefnum fannst í síðustu viku. Rúmlega 100 manns hafa látist í sprengjuárásum á ferðamannastaði á Sínaskaga frá október 2004. Sprengiefnið var falið í pokum í eyðimerkursandi en ekki fylgdi sögunni hvort einhver hefur verið handtekinn.

Á þessu sama svæði hefur ítrekað komið til skotbardaga milli lögreglu og manna sem eru grunaðir og eftirlýstir fyrir sprengjurárásirnar undanfarinna tveggja ára. Egypska stjórnin hefur kennt íslömskum öfgahóp sem kallast al-Tawhid wal Jihad (Einn Guð og Jihad) sem stjórnvöld segja vera samtök baráttuglaðra bedúína á Sínaí.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×