Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
NBC sýnir ekki krossfestingu Madonnu Upptaka af sviðsettri krossfesting poppsöngkonunnar Madonnu á frá nýjustu tónleikaferð hennar verður ekki meðal þess sem bandaríska sjónvarpsstöðin NBC helypir í loftið þegar hún sjónvarpar upptöku af tónleikum hennar í næsta mánuði. Athæfi söngkonunnar hefur vakið mikla reiði meðal kristinna trúarhópa í Bandaríkjunum og Evrópu. Fulltrúar þeirra hafa fordæmt Madonnu sagt hana and-kristna og fremja helgispjöll og guðlast. Því neitar söngkonan og segir þetta gert á þeim hluta tónleikanna þegar hún kalla á fjárframlög til góðagerðarsamtaka sem hjálpa alnæmissjúkum í Afríku. 20.10.2006 21:27
Jarðskjálfti skók norð vestur hluta Tyrklands Jarðskjálfti sem mældist 5,2 á Richter skók norð-vesturhluta Tyrklands í dag. Íbúar í Istanbúl fundu fyrir skjálftanum. Upptök hans voru í Balikesir-héraði sem er hinumegin við Marmarahafið frá Istanbúl. Ekki hafa borist fregnir af því að nokkur hafi týnt lífi eða hve margir hafi slast og ekki er vitað hvort miklar skemmdir hafi orðið. 20.10.2006 20:45
Orkumálum ekki blandað í deilur um stjórnmál Jose Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, og Vladimír Pútín, Rússlandsforseti, sammæltust um það í dag að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að koma í veg fyrir að orkuviðskipti sambandsins og Rússlands verði dregin inn í deilur þeirra á vettvangi stjórnmálanna í framtíðinni. Þetta kom fram þegar þeir ræddu við blaðamenn eftir fund sinn í Lahti í Finnlandi í dag. Leiðtogafundur Evrópusambandsríkjanna er haldinn þar. 20.10.2006 20:15
Peningar McCartneys og orðspor í húfi Skilnaður bítilsins Pauls McCartney stefnir í að verða einn sá stærsti og umtalaðasti á okkar tímum. Vægðarlaus umfjöllun fjölmiðla, sem fylgjast með hverju spori beggja aðila, heldur áfram. Nú hefur fyrrverandi kona bítilsins, Heather, sakað hann um heimilisofbeldi, drykkjuskap og fíkniefnaneyslu, en lögmenn hans segja hann neita því alfarið. 20.10.2006 19:15
Ekki frekari kjarnorkutilraunir Kim Jong Il, leiðtogi Norður-Kóreu, segir að ekki verði af frekari kjarnorkutilraunum í landinu, en í dag fögnuðu Norður-Kóreumenn tilrauninni í síðustu viku. Ríkisfréttastofa Norður Kóreu sagði um 100 þúsund manns hafa safnast saman í höfuðborginni Pyongyang til að fagna áfanganum. 20.10.2006 18:58
Vann eineltismál vegna andlitsblæju Íslömsk kennslukona í Bretlandi hefur unnið eineltismál sem hún höfðaði gegn barnaskólanum sem hún kenndi við. Konan var leyst frá störfum þegar hún neitaði að fjarlægja andlitsblæju í skólastofunni. Málið hefur vakið mikla athygli í Bretlandi og umræður um rétt múslímakvenna til að bera andlitsslæður sem hylja mesta hluta andlitsins. 20.10.2006 18:40
ESB fordæmir brottvísun fulltrúa frá Eþíópíu Evrópusambandið hefur fordæmt þá ákvörðun stjórnvalda í Eþíópíu að vísa tveimur sendifulltrúum sambandsins úr landi. Fulltrúar ESB segja það fullkomlega óásættanlegt. Þeir eru grunaðir um að hafa reynt að smygla tveimur flóttamönnum til Kenía. Annar þeirra er eþíópískur lögfræðingur sem vinnur fyrir Framkvæmdastjórn sambandsins. Yfirvöld í Eþíópíu segja flóttamennina hafa verið handtekna grunaða um alvarlega glæpi. Ekki er þó gefið upp hvað þeir eigi að hafa gert af sér. 20.10.2006 17:50
Heimferð flóttamanna frestað Flóttamannahjálp SÞ hefur ákveðið að fresta því að flytja fóttamenn aftur til heimahaga sinna í Suður-Súdan vegna átaka sem hafa blossað upp á svæðinu. Flytja átti fólk til Súdan frá flóttamannabúðum í Norður-Úganda en hætt var við það þar sem fréttir bárust af því að um 40 almennir borgarar hefðu fallið í átökum við óþekkta byssumenn. 20.10.2006 17:28
Samveldið samþykkir niðurstöðu kosninga í Gambíu Kosningaeftirlitsmenn breska samveldisins hafa samþykkt niðurstöður forsetakosninga í Gambíu sem fram fóru 22. september síðastliðinn. 20.10.2006 16:55
Telja sig hafa fundið líkamsleifar fórnarlamba Líkamsleifar sem taldar eru vera af fórnarlömbum hryðjuverkaárásanna á Tvíburarturnana þann 11. september 2001 hafa fundist í holræsum nærri staðnum þar sem World Trade Center stóð. 20.10.2006 16:47
Evrópusambandið að miðla málum milli Rússa og Georgíumanna Evrópusambandið (ESB) er sem stendur að reyna að koma á sáttum á milli Rússlands og Georgíu. Samskipti ríkjanna hafa versnað til muna undanfarið vegna áhuga forseta Georgíu á því að ganga í ESB. Javier Solana, utanríkisráðherra ESB, hefur verið í samningaviðræðum við forseta landanna tveggja síðustu daga en með litlum árangri. 20.10.2006 16:34
Ákærður fyrir sprengjugabb á íþróttavöllum Yfirvöld í Bandaríkjunum hafa ákveðið að sækja tvítugan mann í Milwaukee til saka fyrir að hafa birt falsaða hótun á Netinu um að hryðjuverkamenn hygðust sprengja svokallaðar skítugar sprengjur á sjö stórum fótboltavöllum í landinu. 20.10.2006 16:01
Ryan Air reynir að stækka við sig Fyrir tveimur vikum ákvað lággjaldaflugfélagið Ryan Air að bjóða í írska flugfélagið Aer Lingus. Á fréttamannafundi sem Ryan Air hélt í dag kom síðan fram að ef að kaupunum yrði myndi starfsmönnum hjá Aer Lingus fækkað þar sem það væri ein af leiðunum til þess að lækka rekstrarkostnað flugfélagsins. 20.10.2006 15:11
Vígamenn sækja í sig veðrið í Írak Alls hafa um 15 manns látist og 91 slasast í bardögum á milli öryggissveita og vígamannanna í Írak í dag. Vígamenn sjía, sem eru hliðhollir Muqtada al-Sadr, gerðu áhlaup á bæinn Amara í Suður-Írak. 20.10.2006 14:23
Pútín í vandræðum eftir misheppnaðan brandara Valdímír Pútín, forseti Rússlands, virðist í slæmum málum í heimalandinu eftir heldur misheppnaðan brandara sem fréttamenn áttu ekki að heyra. Pútín var á blaðamannafundi með Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, á dögunum og í lok hans mátti heyra Pútín biðja Olmert fyrir kveðju til forseta Ísraels, Moshe Katsav. 20.10.2006 14:20
Ráðist á bílalest Haniyehs Forsætisráðherra Palestínu, Ismail Haniyeh, slapp ómeiddur þegar ráðist var á bílalest hans þegar hann var á leið frá föstudagsbænum í mosku á Gaza-ströndinni í dag. Heimildarmenn innan Hamas segja að skotið hafi verið á bílalestina auk þess sem ein bifreið hafi verið brennd. 20.10.2006 12:35
Fjarlægja æxli með hátíðnihljóði Læknum hefur tekist að þróa aðferð til að fjarlægja æxli með hátíðnihljóði. Uppskurðir gætu því heyrt sögunni til. Verið er að gera tilraunir með aðferðina á konum með bandvefsæxli, sem hefðu annars þurft að gangast undir legnám. Aðferðin felst í því að beina sterkum ómsjárgeisla að sýktum vefjum og hún skilur ekki eftir ör. 20.10.2006 12:14
26 þúsund milljarðar tapaðir vegna spillingar Rannsóknarstofnun vegna spillingar í Nígeríu áætlar að 26 þúsund milljarðar af nígerísku almannafé hafi tapast þar síðan 1960 vegna spillingar stjórnmálamanna. Fénu hafi ýmist verið stolið eða sólundað. Nuhu Ribadu, framkvæmdastjóri stofnunarinnar segir að níundi og tíundi áratugurinn hafi verið verstir en enn í dag lendir landið í efstu sætum lista yfir spilltustu lönd heims. 20.10.2006 12:12
Þúsundir fjölmenntu á götu Tehran Þúsundir Írana fjölmenntu á götum úti í Tehran í morgun til að sýna stuðning sinn við Palestínu. Mótmælendur vildu með aðgerðum sínum ítreka andstöðu sína við Ísraelsríki. 20.10.2006 11:22
Ekki fleiri kjarnorkusprengingar í Norður-Kóreu Kim Jong-il sagði kínverskum sendierindreka á fundi þeirra fyrr í vikunni að Norður-Kóreumenn myndu ekki gera tilraunir með fleiri kjarnorkusprengjur. Yonhap fréttastofan suðurkóreska hefur þetta eftir kínverskum embættismanni. Kínverski embættismaðurinn Tang Jiaxuan ræddi við Kim Jong-il á miðvikudaginn og kom bjartsýnn til baka. 20.10.2006 11:02
Hamas verði ekki bolað út Forsætisráðherra Palestínu, Ismail Haniyeh, sagði í dag að flokkur hans Hamas, myndi koma í veg fyrir tilraunir Abbas forseta og Fatah-hreyfingar hans til að rjúfa þing og boða til nýrra kosninga eða fella ríkisstjórn Hamas til þess að binda enda á stjórnmálakrísu í Palestínu. 20.10.2006 10:27
Vopnahléð lítils virði í Balad í Írak Nýumsamið vopnahlé í Balad, um 130 km norður af Bagdad, sem héraðshöfðingjar samþykktu á miðvikudaginn virðist ekki hafa mikil áhrif. Í gær létust níu manns þegar 15 sprengjum var varpað í árás á þorp súnnímúslima í nágrenni Balad-borgar. Borgin Balad er nokkurs konar eyja sjíamúslima á svæði sem er að mestu byggt súnnímúslimum. 20.10.2006 10:00
Ástralir fordæma hvalveiðar Íslendinga Ástralía hefur nú bæst í hóp ríkja sem gagnrýna þá ákvörðun íslenskra stjórnvalda að hefja hvalveiðar í atvinnuskyni á ný. Umhverfisráðherra Ástralíu, Ian Campbell, segir í áströlskum fjölmiðlum að það sé sorglegt þegar þróað ríki eins og Ísland snúist gegn einum af mestu afrekum Í umhverfismálum á síðustu öld sem hafi verið að stöðva hvalveiðar. 20.10.2006 09:50
Hald lagt á 8,5 tonn af kókaíni Lögregla í Kólumbíu lagði í dag hald á 8,5 tonn af kókaíni sem var verið að flytja með þremur hraðbátum til Bandaríkjanna frá bænum tocordo í Choco-héraði. Götuverðmæti efnisins er sagt rúmir ellefu milljarðar íslenskra króna. 19.10.2006 23:43
Fatah- og Hamas-liðar ræðast við Fulltrúar Fatah-samtakann Mahmouds Abbas, forseta Palestínumanna, og Hamas-samtakann, sem sitja í heimastjórn Palestínumanna, áttu í kvöld fund á Gaza-svæðinu til að ræða aukin átök milli liðsmanna þessara tveggja samtaka. Óttinn við borgarastyrjöld er mikill að sögn ónafngreinds fulltrúa sem sat fundinn. Það voru háttsettir fulltrúar samtakanna sem ræddust við en þetta er fyrsti fundur háttsettra fulltrúa þessara fylkinga í margar vikur. 19.10.2006 23:32
Svipti sig lífi skömmu fyrir aftöku Fangi á dauðadeild í Texas í Bandaríkjunum svipti sig lífi í dag, aðeins örfáum klukkustundum áður en að það átti að taka hann af lífi. Maðurinn skrifaði skilaboð í eigin blóði í fangaklefa sínum þar sem hann hélt fram sakleysi sínu. 19.10.2006 23:02
Minnst 77 súdanskir hermenn druknuðu Að minnsta kosti 77 súdanskir hermenn drukknuðu þegar gufubátur þeirra sökk eftir árekstur við farþgaferju á ánni Níl í Suður-Súdan í dag. Hermennirnir eru allir liðsmenn í ferlsisher fólksins í Súdan, eins og hann er kallaður, og fyrrverandi uppreisnarmenn. Einn hermaður til viðbótar týndi lífi þegar tveir björgunarbátar skullu saman nær slysstaðnum skömmu eftir að bátur hermannanna tók að sökkva. 19.10.2006 22:47
Reyndu að flýja úr fangelsi í Egyptalandi Þrír menn sem eru í haldi yfirvalda í Kaíró í Egyptalandi, grunaðir um aðild að sprengjuárásum á þrjá ferðamannastaði við Rauðahafið í október 2004, reyndu að flýja úr fangelsi í dag. Það tókst ekki og slasaðist einn þremenninganna. Mennirnir höfðu bundið saman föt og reyndu að klifra yfir fangelsisveggina. 19.10.2006 22:05
Grípa þurfi til valdbeitingar til að stöðva Ísraela Yfirmaður eftirlitssveita Sameinuðu þjóðanna í Suður-Líbanon segir að svo geti farið að grípa verði til valdbeitinga til að koma í veg fyrir innrásir Ísraela inn í lofthelgi Líbana. Alain Pellegrini, yfirmaður friðargæslusveitanna, sagði þetta á blaðamannafundi í dag og bætti því við að til þess að það yrði hægt þyrfti að breyta umboði hersveita SÞ í landinu. Talsmenn SÞ sögðu eftir fundinn að ekki væri verið að undirbúa það. Sendifulltrúi Ísraela hjá SÞ segir það koma sér á óvart að Pellegrini hafi látið þessi orð falla. 19.10.2006 21:50
Internet Explorer 7 vafrarinn kominn á vefinn Uppfærsa á Internet Explorer netvafrara Microsoft tölvurisans er nú aðgengileg almenningi. Internet Explorer 7 er fyrsta uppfærsla á vafraranum í rúm 5 ár. Meðal nýjunga er sá möguleiki að opna fjölmarga undirglugga í sama aðal vefglugga, að leita beint á netinu og sérstakt kerfi sem á að koma í veg fyrir ýmsar innrásir tölvuþrjóta sem ásælast upplýsingar um bankareikninga og greiðslukort tölvunotenda. Hægt er að sækja vafrarann að kostnaðarlausu á netinu en fjölmargir fá sjálfkrafa uppfærslu í næsta mánuði noti þeir Windows XP stýrikerfið í tölvum sínum. 19.10.2006 21:04
Dow Jones mælist yfir 12 þúsund stigum Dow Jones hlutabréfavísitalan hækkaði um 19 stig í dag og var yfir 12 þúsund stigum við lokun markaðar í Bandaríkjunum í dag, í fyrsta sinn í sögunni. Dow Jones vísitalan mælir gengi hlutabréfa í stærstu fyrirtækjum Bandaríkjanna. Minnkandi verðbólga í Bandaríkjunum, breytingar á olíu- og bensínverði og jákvæðar afkomutölur hjá fjölmörgum fyrirtækjum eru ástæður þessa að sögn sérfræðinga á markaði. 19.10.2006 20:42
Þungt haldinn eftir árás stingskötu Rúmlega áttræður Bandaríkjamaður liggur nú þungt haldinn á sjúkrahúsi á Flórída eftir að stingskata stökk um borð í bát hans og stakk hann í bringuna. 19.10.2006 20:18
Þjóðaratkvæðagreiðsla um fóstureyðingar í Portúgal Portúgalar ganga að kjörborðinu í janúar á næsta ári og greiða atkvæði um það hvort leyfa eigi fóstureyðingar í landinu. Fóstureyðingar eru aðeins leyfðar í Portúgal nú ef konu hefur verið nauðgað og hún verður síðan þunguð, líf hennar er talið í hættu, fósturskaði orðið eða hætta á alvarlegri fötlun. 19.10.2006 20:04
8 sprengingar í vopnageymslu í Serbíu Að minnsta kosti 20 særðust þegar minnst 8 sprengingar urðu í vopnageymslu serbneska hersins í nótt. Vopnageymslan stóð á hæð nærri iðnaðarbænum Paracin, um 150 kílómetra suður af höfuðborginni Belgrad. Fjölmargar byggingar í Paracin skemmdust. 19.10.2006 19:44
Mýkri friðargæsla Ásýnd íslensku friðargæslunnar verður mýkt og lögð verður áhersla á borgaraleg svið í verkefnavali hennar. Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra kynnti þessar hugmyndir á fundi utanríkismálanefndar í morgun. 19.10.2006 19:00
Reyna að tala um fyrir Kim Kínverjar hafa sent erindreka sína til Norður-Kóreu til að freista þess að fá þarlend stjórnvöld til að hætta kjarnorkutilraunum sínum. 19.10.2006 18:45
Hótar Íslendingum ófarnaði Sjávarútvegsráðherra Bretlands segir að Íslendingum muni hefnast fyrir að hefja hvalveiðar og spáir því að Bretar muni sniðganga íslenskar vörur og þjónustu. Bandarísk stjórnvöld hafa einnig lýst yfir vonbrigðum með veiðarnar. 19.10.2006 18:30
Flugþjónar og flugfreyjur leggja niður vinnu í Finnlandi Verkfall 1500 flugfreyja og flugþjóna hjá finnska flugfélaginu Finnair heldur áfram. Samningaviðræðum milli fulltrúa starfsmanna og flugfélagsins, sem fóru fram í dag, skiluðu engum árangri og var frestað til morguns. Verkfallið hófst í morgun. Viðræður hafa staðið í margar vikur eftir að það fréttist að félagið ætlaði að ráða starfsfólk í gegnum Aero, dótturfélag sitt í Eistlandi, og greiða því töluvert lægri laun. 19.10.2006 18:15
Lík þýsks drengs fundið eftir 2 daga leit Lögregla í Fulda í Þýskalandi fann í dag lík 6 ára drengs sem hefur verið leitað í tvo daga. Móðir drengsins lést í bílslysi og var óvíst hvort drengurinn hefði verið í bílnum með henni þegar slysið varð. 19.10.2006 17:30
Grímuklæddir ræningjar á McDonalds Lögreglan í franska bænum Saint-Denis, norður af höfuðborginni París, umkringdi í dag McDonalds skyndibitastað þar í bæ en fregnir höfðu borist af því að ræningjar hefðu tekið þar fólk í gíslingu. Lögreglumaður á ferð framhjá sá þrjá grímuklædda menn ganga inn á skyndibitastaðinn í morgun og var varla hægt að áætla annað en að þeir ætluðu að fremja þar rán. 19.10.2006 17:11
Fimmtán fórust í flugslysi í Úsbekistan Fimmtán fórust þegar lítil flugvél, sem notuð er til flugþjálfunar, brotlenti í Úsbekistan í dag. Fram kom í úsbeskum fjölmiðlum að vélin hefði verið eins hreyfils af gerðinni An-2, en hún hrapaði til jarðar þegar reynt var að lenda henni á flugvelli nærri höfuðborginni Tashkent. 19.10.2006 16:00
Helmingur Bandaríkjamanna telur flesta þingmenn spillta Helmingur Bandaríkjamanna telur að flestir þingmenn landsins séu spilltir samkvæmt nýrri skoðaðakönnun sjónvarpsstöðvarinnar CNN. Eru þetta tólf prósentustigum fleiri en í upphafi árs. Könnunin leiðir einnig í ljós að aðeins 42 prósent eru ánægð með störf demókrata á þingi en repúblikanar fá enn verri útreið því aðeins rúmlega þriðjungur er ánægður með störf þeirra á þingi. 19.10.2006 15:20
Fullskipuð keppnin um hin nýju 7 undur veraldar Mayaborgin forna Chichen Itza í Mexíkó er síðasti staðurinn sem fær að taka þátt í keppninni um hin nýju sjö undur veraldar. Vinningshafar verða tilkynntir í Lissabon þann sjöunda júlí 2007 en auk Chichen Itza taka þekktar byggingar og minnismerki þátt í keppninni, þeirra á meðal eru Taj Mahal í Indlandi, Effelturninn, Stonehenge, stytturnar á Páskaeyjunni og óperuhúsið í Sydney. 19.10.2006 13:30
Vopnahlé samþykkt í Balad í Írak Héraðshöfðingjar í Balad-héraði, norður af Bagdad í Írak, féllust í gær á 20 daga vopnahlé í borginni sem hefur logað í átökum milli sjía og súnnímúslima. Röð hefndarárása milli sjía og súnnímúslima hafa kostað 95 manns lífið á fimm dögum í borginni Balad. Borgin er að mestu byggð sjíamúslimum en héraðið í kring tilheyrir súnnimúslimum. 19.10.2006 12:45
Leitað að 300 milljónasta Bandaríkjamanninum Bandaríkjamenn leita nú logandi ljósi að 300 milljónasta Bandaríkjamanninum sem fæddist á þriðjudaginn. Fjölmiðlar strandanna á milli keppast við að stinga upp á nýfæddum börnum sem fæddust nærri örlagastundinni 7:46 á þriðjudagsmorgun að austurstrandartíma. Í húfi eru lífstíðarbirgðir af Pampers-bleyjum og heiðurinn, vitaskuld. 19.10.2006 10:00