Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tóbaksfyrirtæki sótt til saka fyrir blekkingar Alríkisdómari í Bandaríkjunum hefur komist að því að hópmálssókn á hendur tóbaksfyrirtækjum vegna light sígaretta sé tæk fyrir dómi. Fyrirtækjunum er gefið að sök að hafa talið reykingafólki trú um að light-sígarettur væru ekki eins skaðlegar og aðrar sígarettur. 25.9.2006 16:47
Hræddir þjófar Þjófar sem brutust inn í íbúðarhús í Vínarborg, í Austurríki, forðuðu sér skelfingu lostnir út úr húsinu þegar þeir fundu átta mannshöfuð í kistu, í kjallaranum. 25.9.2006 16:40
Fundu flak þyrlu sem saknað hafði verið í tvo daga í Nepal Yfirvöld í Nepal hafa staðfest að allir farþegar í þyrlu á vegum náttúruverndarsamtakanna Worldwide Fund for Nature hafi látist þegar hún hrapaði í vonskuveðri á laugardag. Flak þyrlunnar, sem var rússnesk, fannst snemma í morgun, en þess hafði verið leitað í nærri tvo daga við erfiðar aðstæður, bæði rigningu og þoku. 25.9.2006 16:00
Páfi vottar múslimum virðingu sína Benedikt sextándi páfi átti í dag fund með fulltrúum frá tuttugu múslimaríkjum í Gandolfo kastala, sem er sumarsetur hans. Öllum bar saman um að fundurinn hefði einkennst af gagnkvæmri virðingu og hlýju. 25.9.2006 15:58
Segjast ekki hafa hugmynd um hvar bin Laden sé niðurkominn Pakistönsk yfirvöld hafa engar upplýsingar um það hvar Osama bin Laden er niðurkominn eða hvort hann er á lífi. Þetta sagði talsmaður utanríkisráðuneytis landsins í dag. 25.9.2006 15:15
Drápu háttsettan al-Qaida liða í Basra Breskar hersveitir drápu í dag háttsettan al-Qadia liða í álaupi á hús í borginni Basra í Írak. Fram kemur á fréttavef BBC að maðurinn, Omar Farouq, hafi áður stýrt al-Qaida í Suðaustur-Asíu en hann var gripinn í Indónesíu árið 2002. 25.9.2006 14:45
Mótmæltu lokun miðstöðvar fyrir ungt fólk Vel á þriðja hundrað manns voru handteknir eftir að mótmæli fóru úr böndunum á Norðurbrú í Kaupmannahöfn í gærkvöld. Danska lögreglan hefur krafist gæsluvarðhalds yfir fimm þeirra. Verið var að mótmæla lokun miðstöðvar fyrir ungt fólk í hverfinu. 25.9.2006 13:30
Lést í sprengingu í Barcelona Áttræður maður lést og nokkrir slösuðust í sprengingu sem varð í Barcelona á Spáni í morgun. Svo virðist sem maðurinn sem lést hafi verið að hita pela fyrir barnabarn sitt á prímusi þegar gaskúturinn sprakk. 25.9.2006 12:30
Gagnrýna skeflilegt efnahagsástand í Rússlandi Hópur Bolsévika braust inn í rússneska fjármálaráðuneytið í morgun til að mótmæla efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar. Mótmælendurnir hlekkjuðu sig við glugga á nokkrum hæðum byggingarinnar og slepptu bæklingum þar sem ríkisstjórnin er gagnrýnd fyrir skelfilegt efnahagsástand og fátækt í landinu. 25.9.2006 12:06
Kristnir og múslimar verði að hafna öllu ofbeldi Benedikt páfi sagði í dag á fundi sínum með fulltrúum 22 múslimalanda að bæði kristnir og múslimar yrðu að hafna öllu ofbeldi um leið og hann lýsti yfir djúpri virðingu fyrir þeim sem aðhylltust íslam. 25.9.2006 11:30
Sprenging í byggingu í Barcelona á Spáni Nokkrir eru sagðir hafa slasast eftir sprengingu í húsi í Barcelona á Spáni fyrir stundu. Frá þessu er greint í spænsku útvarpi. Ekki liggur fyrir hvers vegna sprengingin varð en ljóst er að einhverjir munu vera alvarlega slasaðir. 25.9.2006 11:07
260 handteknir eftir mótmæli í Kaupmannahöfn Yfir 260 ungmenni voru handtekin í Kaupmanna í gær þegar friðsamleg mótmæli til stuðnings félagsmiðstöðinni Ungdomshuset leystust upp í óeirðir.Talið er að um 800 manns hafi tekið þátt í mótmælunum en þegar einhverjir mótmælenda fóru ekki að fyrirmælum lögreglunnar leysti hún hópinn upp. 25.9.2006 10:00
Sjáandi eða James Bond Hneyksli skekur nú ríkissaksóknaraembættið í Kólumbíu eftir að í ljós kom að ríkissaksóknari réð til sín sjáanda sem beitti dáleiðslu og særingum gagnvart starfsfólki og lifði líkt og James Bond. 25.9.2006 09:45
Rekinn úr starfi fyrir spillingu í Shanghai Æðsti leiðtogi kínverska kommúnistaflokksins í Shanghai hefur verið rekinn úr starfi fyrir spillingu. Frá þessu greinir kínverska ríkisfréttastofan og segir að maðurinn, Chen Liangyu, hafi misnotað eftirlaunasjóði borgarinnar. 25.9.2006 09:30
Spillingarnefnd tekur til starfa í Taílandi Nefnd sem skipuð hefur verið til að rannsaka meinta spillingu í ráðherratíð Thaksins Shinawatra, fyrrverandi forsætisráðherra Taílands, kom saman í fyrsta sinn í dag. 25.9.2006 08:45
Páfi fundar með fulltrúum múslima í dag Benedikt páfi sextándi fundar í dag með fulltrúum múslima í Róm til þess að reyna að lægja þær reiðiöldur sem blossað hafa upp í kjölfar ummæla hans um Múhameð spámann. 25.9.2006 08:15
Mannskætt rútuslys í Ekvador Að minnsta kosti 47 manns, þar af 17 börn, létust í rútuslysi á fjallvegi nærri Quito, höfuðborg Ekvadors, í gærkvöld. Bílstjóri rútunnar mun hafa verið á miklum hraða og misst stjórn á henni með þeim afleiðingum að hún valt. 25.9.2006 08:13
Áfram mótmælt í Búdapest Um fimm þúsund Ungverjar komu saman í Búdapest áttunda daginn í röð í gærkvöld til þess að krefjast afsagnar forsætirsráðherra landsins, Ferenc Gyurcsany, í kjölfar þess að hann var uppvís að því að ljúga að þjóðinni um efnahagsástandið í landinu. 25.9.2006 07:24
Smyglaði inn kókalaufum Evo Morales, forseti Bólivíu, ávarpaði allsherjarþingið í síðustu viku og mótmælti harðlega framgangi „stríðsins gegn vímuefnum“ og hélt við það tækifæri á lofti kókalaufi, sem hann hafði komið með frá heimalandi sínu. 25.9.2006 07:15
Heimsmet í humarrúllu áti Japaninn Takeru Kobayashi setti ansi sérstakt heimsmet í gær. Hann mætti til leiks í árlegri humarátskeppni í Boston í Bandaríkjunum. Hann gerði sér lítið fyrir og setti heimsmet með því að borða 41 humarrúllu á 10 mínútum. Þar með fór hann nálægt því að tvöfalda gamla metið sem var 22 rúllur á jafn löngum tíma. 24.9.2006 20:15
Þrjú börn myrt í Saint Louis Íbúar í Saint Louis í Bandaríkjunum eru slegnir óhug eftir að þrjú börn fundust myrt þar í borg í gær. Skömmu áður var 26 ára kona ákærð fyrir að hafa myrt móður þeirra með því að skera fóstur úr kvið hennar. 24.9.2006 19:15
Bin Laden sagður á lífi Heimildarmenn bandaríska fréttatímaritsins Time fullyrða að Osama bin Laden, leiðtogi al-Kaída hryðjuverkasamtakanna, sé ekki allur en hann sé hins vegar við dauðans dyr. Fullyrt var í frönsku blaði í gær að hann væri látinn. 24.9.2006 18:45
Kynþokkafullir og krúttlegir auðmenn Á meðan bandaríska viðskiptatímaritið Forbes birtir árlegan lista sinn yfir 400 ríkustu Bandaríkjamennina hefur Financial Times tekið saman annars konar lista. Þar er kaupsýslumönnum skipt í hópa eftir ýmsu, þar á meðal fegurð og krúttleika. Samkvæmt listanum eigum við Íslendingar kynþokkafyllsta kaupsýslumanninn. 24.9.2006 18:45
Biðlisti eftir ofnæmisprófuðum köttum Fyrstu kettlingarnir sem ekki valda ofnæmi hjá mannfólki voru settir á markaðinn á dögunum. Biðlistar eru eftir kettlingum þrátt fyrir að hver köttur kosti hátt í 300 þúsund krónur. 24.9.2006 17:00
Nylon númer eitt í Bretlandi Íslenska stúlknasveitin Nylon er í fyrsta sæti á breska danstónlistarlistanum sem birtur var í tónlistartímaritinu Musicweek í dag. Það er nýtt lag stúlknanna Sweet dreams sem situr á toppnum. Það kemur út á smáskífu þar í landi ásamt laginu Closer. 24.9.2006 16:45
Blair neitar að styðja Brown Tony Blair, leiðtogi Verkamannaflokksins breska, neitaði á flokksþingi flokksins, sem hófst í Manchester í dag, að lýsa yfir stuðningi við Gordon Brown, fjármálaráðherra. Þrátt fyrir mikinn þrýsting neitaði Blair að ræða brotthvarf sitt úr formannssætinu en hann hefur lýst því yfir að þetta flokksþing sé hið síðasta sem hann sæki sem formaður. 24.9.2006 15:16
Time segir bin Laden enn á lífi en fárveikan Franskir og sádiarabískir leyniþjónustumenn og stjórnmálamenn keppast við að neita fréttum um að Osama bin Laden sé látinn eftir að lítið þekkt franskt dagblað hafði þær fréttir eftir franskri leyniskýrslu. Nýútkomið tölublað tímaritsins Time hefur eftir sádiarabískum heimildum að bin Laden sé haldinn sjúkdómi sem gæti dregið hann til dauða. 24.9.2006 14:18
Hundamúmíur finnast í Perú Meira en 40 hundamúmíur hafa fundist við fornleifauppgröft í Perú. Hundarnir voru grafnir við hlið eigenda sinna með teppi og mat og þykir allt benda til þess að Chiribaya fólkið í Suður-Perú hafi trúað því að gæludýrin ættu framhaldslíf í vændum. Slíkur umbúnaður gæludýra hefur hingað til aðeins þekkst í gröfum Egypta til forna. 24.9.2006 14:00
Fresta stofnun sjálfsstjórnarsvæða um eitt og hálft ár Íraskir stjórnmálaflokkar hafa samþykkt að fresta stofnun sjálfsstjórnarsvæða í landinu um minnst 18 mánuði. Málefnið hefur ýtt undir ofbeldi í landinu að sögn þingmanna. Stjórnarskrárnefnd verður skipuð á morgun til þess að endurskoða ýmis ákvæði stjórnarskrárinnar að kröfu súnnímúslima sem eru í minnihluta í landinu. 24.9.2006 13:52
Handtók menn fyrir að hækka verð á brauði Simbabvebúar hafa búið við brauðskort í viku eftir að ríkisstjórnin greip til aðgerða gegn bakaríum út af verðhækkunum, sem orsakast af auknum framleiðslukostnaði. Lögreglan handtók þrjá framkvæmdastjóra stórra matvælafyrirtækja á mánudag fyrir að hækka verð án samþykkis ríkisstjórnarinnar. Brauð er á lista ríkisstjórnarinnar yfir grunnmatvæli sem ríkið stjórnar verðlagi á. 24.9.2006 13:00
ETA ætlar að berjast áfram fyrir sjálfstæði Baskalands Sex mánuðum eftir að hafa tilkynnt varanlegt vopnahlé, senda aðskilnaðarsamtök Baska, ETA, frá sér myndbandsyfirlýsingu þar sem þrír grímuklæddir menn segja samtökin munu halda áfram vopnaðri baráttu sinni þar til Baskaland hlýtur sjálfstæði frá Spáni. 24.9.2006 12:33
Björgólfur Thor kynþokkafyllstur Á meðan bandaríska viðskiptatímaritið Forbes birtir lista sinn yfir ríkustu Bandaríkjamennina hefur Financial Times tekið saman annars konar lista. Þar er kaupsýslumönnum skipt í hópa eftir fegurð og gælni. Á þessu lista er Björgólfur Thor Björgólfsson sagður bera af þegar kemur að kynþokka. 24.9.2006 12:30
Íraksstríðið sagt hafa aukið hættuna á hryðjuverkum Íraksstríðið hefur aukið hryðjuverkahættuna í heiminum og auðveldað róttækum múslimum að afla stuðnings. Þetta kemur fram í nýrri bandarískri leyniskýrslu sem dagblaðið New York Times vitnar til í morgun. 24.9.2006 12:15
Mótmæla forsætisráðherranum með hvítu Þrýstingur eykst enn á forsætisráðherra Ungverjalands að hann segi af sér eftir að hafa logið að þjóðinni. Milli 20 og 50 þúsund manns mótmæltu á torginu fyrir framan þinghúsið í Búdapest í gærkvöldi en allt virðist hafa farið friðsamlega fram. Hvítt er orðinn einkennislitur mótmælendanna sem vilja með því vísa í sannleika og frið. 24.9.2006 12:00
Óhugnarlegt myndband birt Hryðjuverkasmatök sem sögð eru tengd al-Kaída birtu í morgun á vef sínum óhugnarlegt myndband sem sýnir illa meðferð á líkum bandarískra hermanna í Írak. 24.9.2006 11:30
Vongóður um skipan þjóðstjórnar Ismail Haniyeh, forsætisráðherra palestínsku heimastjórnarinnar, sagðist í morgun vongóður um skipan þjóðstjórnar Hamas- og Fatah-liða. Þar með vísaði hann á bug ummælum Abbas forseta frá í gær um að viðræður væru aftur komnar á byrjunarreit. Haniyeh segir viðræðum framhaldið og þeim miði í rétta átt. 24.9.2006 11:00
Dregur fréttir af andláti bin Ladens í efa Sendiherra Pakistana í Bandaríkjunum dregur í efa fréttir fransks blaðs frá í gær um að Osama bin Laden, leiðtogi al-Kaída hryðjuverkasamtakanna, sé allur. Blaðið vitnaði í leynilega skýrslu frönsku leyniþjónustunnar þar sem sagði að hann hefði dáið úr taugaveiki í Pakistan í síðasta mánuði. 24.9.2006 10:48
Bandaríkjamenn biðja stjórnvöld í Venesúela afsökunar Bandarísk yfirvöld hafa beðið stjórnvöld í Venesúela afsökunar á því að utanríkisráðherra landsins, Nicolas Madura, hafi verið í haldi öryggisvarða á Kennedyflugvelli í New York í eina og hálfa klukkustund í gær. Madura sótti Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna sem haldið er þar í borg. 24.9.2006 10:15
Börnin þrjú fundin Þrjú börn, sem íbúar í Saint Louis í Bandaríkjunum hafa leitað síðustu daga, fundust myrt þar í borg í gærkvöldi. Nokkru áður hafði 26 ára kona verið ákærð fyrir að hafa myrt móður barnanna og skorið fóstur úr kvið hennar. 24.9.2006 10:01
Bara milljarðamæringa á Forbes listanum 400 ríkustu menn Bandaríkjanna eru samanlagt metnir á jafnvirði tæplega 90 þúsund milljarða króna. Bandaríska viðskiptatímaritið Forbes hefur birt lista sinn yfir 400 ríkustu Bandaríkjamennina þetta árið og í fyrsta sinn dugir ekki að vera milljónamæringur til að komast á blað. 23.9.2006 19:45
23 létust í lestarslysi Nú er vitað að 23 týndu lífi í lestarslysi í Þýskalandi í gær. Lest, sem knúin er með segulafli, fór þá af sporinu þegar hún skall á viðgerðarvagni. Áætlað er að á fjórða tug farþega hafi verið um borð í lestinni en engan farþegalista er að finna þar sem um tilraunaferð var að ræða. 23.9.2006 19:00
Taugaveiki sögð hafa dregið bin Laden til dauða Franskt blað fullyrðir í dag að Osama bin Laden, leiðtogi al-Kaída hryðjuverkasamtakanna, sé allur. Hann hafi dáið úr taugaveiki í Pakistan í síðasta mánuði. Ekki hefur verið hægt að staðfesta fréttir blaðsins. 23.9.2006 18:45
Einn til viðbótar handtekinn fyrir dagheimilisbruna Einn Svíi til viðbótar hefur verið handtekinn vegna rannsóknar á fimm íkveikjum í dagheimilum í sænska bænum Skövde undanfarnar vikur. Þrír voru handteknir á fimmtudagskvöldið en einum þeirra var sleppt um hádegisbilið í dag. Sænska lögreglan telur sig vera að þrengja hringinn en vill ekki gefa nánari upplýsingar um hina grunuðu. 23.9.2006 16:30
Einungis milljarðamæringar á Forbes listanum Bandaríska viðskiptatímaritið Forbes hefur nú byrt árlegan lista sinn í 400 ríkustu menn og konur Bandaríkjanna og að þessu sinni eru einvörðungu milljarðamæringar á listanum. Höfundur listans segir þetta í fyrsta sinn sem auður hvers og eins á listanum er að lágmarki einn milljarður bandaríkjadala, jafnvirði rúmlega 70 milljarða íslenskra króna. 23.9.2006 12:30
Fóstur skorið úr kvið látinnar konu Lögregla í Saint Louis í Bandaríkjunum leitar nú þriggja barna sem hafa verið týnd síðan á mánudaginn. Þau eru eins, tveggja og sjö ára. Móðir þeirra fannst myrt í gær og hafði fóstur verið skorið úr kvið hennar. Lögregla telur sig hafa fundið fóstrið en það hefur ekki verið staðfest. 26 ára kona, sem sást í fylgd barnanna skömmu áður en þau hurfu, er nú í haldi lögreglu. 23.9.2006 12:15