Fleiri fréttir

Sprenging í Madríd

Sprengja sprakk í Madríd, höfuðborg Spánar, í morgun. Ekki virðist sem nokkur hafi særst í sprengingunni, sem var ekki mikil, en rúður brotnuðu þó í nærliggjandi húsum. Málið er í rannsókn.

Geimskot í fyrsta lagi á sunnudag

Bandaríska geimferðastofnunin NASA segir að geimferjunni Discovery muni í fyrsta lagi verða skotið á loft á sunnudag en ekki á morgun eins og haldið hefur verið fram. NASA hefur svigrúm til mánaðamóta til að senda ferjuna í fyrirhugaða tólf daga för að Alþjóðlegu geimstöðinni.

50 handteknir vegna barnakláms

Tæplega fimmtíu manns sem grunaðir eru um að hafa dreift barnaklámi á Netinu voru handteknir í Portúgal í gær. Þetta er stærsta aðgerð sem lögreglan þar í landi hefur ráðist í af þessu tagi.

Þúsundir minntust fórnarlambanna

Þúsundir manna komu saman við Trafalgar-torg í London í gærkvöld til að minnast þeirra sem létu lífið í sprengingunum í London í síðustu viku en tala látinna er nú komin í fimmtíu og fjóra. Lögreglan segir að enn megi búast við að tala látinna muni hækka.

Hákarlar enn á ferð

Hákarl beit 14 ára gamla stúlku í fótinn undan ströndum Texas í gær. Stúlkan fékk svöðusár á fótinn og gekkst undir aðgerð í gærkvöld. Hákarlaárásir hafa verið tíðar að undanförnu við Mexíkóflóa, þannig varð hákarl annarri 14 ára stúlku að bana undan ströndum Flórída í lok júní en þá viku var að minnsta kosti tilkynnt um þrjár hákarlaárásir.

Talið að 136 hafi farist

Mörg hundruð þorpsbúa komu saman í morgun á vettvangi lestarslyssins sem varð í Pakistan á miðvikudag til að vera við jarðsetningu þeirra sem ekki hafa verið borin kennsl á en alls eru það 64. Talið er að 136 hafi farist í árekstri þriggja hraðlesta en ekki er var hryðjuverkum um að kenna að þessu sinni heldur var um mannleg mistök að ræða.

Fuglaflensan komin til Indónesíu?

Sterkar vísbendingar eru um að fuglaflensan sé komin til Indónesíu sem er fjórða fjölmennasta ríki heims. Þrír úr sömu fjölskyldu hafa látist og hafa stjórnvöld nú þegar leitað aðstoðar Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar við rannsókn málsins.

Slösuðust við niðurrif húss

Fimm manns slösuðust þegar verslunarhúsnæði á Manhattan í New York, sem verið var að rífa niður, hrundi. Brak úr húsinu hrundi niður á gangstéttina og slasaði vegfarendur. Ekki er talið að fólkið hafi slasast alvarlega en einn fót- og handleggsbrotnaði.

Handtekinn vegna hryðjuverkanna

Maður sem eftirlýstur var vegna hryðjuverkanna í London í síðustu viku hefur verið handtekinn í Egyptalandi. Innanríkisráðuneyti Egyptalands staðfesti þetta nú síðdegis. Maðurinn, Magdy Elnasher að nafni, er þrjátíu og þriggja ára gamall og með egypskt ríkisfang en hefur stundað nám í efnafræði bæði í Bretelandi og Bandaríkjunum.

Fjórir Hamas-liðar drepnir

Fjórir Hamas-liðar í Palestínu voru skotnir til bana í dag þegar ísraelsk herþyrla skaut þremur flugskeytum nálægt landnemabyggð gyðinga á Vesturbakkanum. Skotárásin er sögð liður ísraelska hersins í hefndaraðgerðum gagnvart herskáum Palestínumönnum en þeir eru taldir hafa skotið ísraelska konu til bana í gær og fimm manns á þriðjudag.

Ódæðin halda áfram

Stjórnvöld í Keníu hafa sent 2.000 hermenn til norðurhluta landsins til að hafa upp á þeim sem frömdu fjöldamorð í bænum Turbi á þriðjudaginn. 76 biðu bana, þar af 22 börn.

Efnafræðingurinn handtekinn

Lögreglan í Kaíró handtók í gær egypskan efnafræðinema sem grunaður er um að hafa átt aðild að hryðjuverkunum í Lundúnum í síðustu viku. Leiðtogar múslima í Bretlandi heimsóttu Leeds í gær og hétu því að taka öfgamenn í sínum röðum fastari tökum.

Ólgan á Gaza fer vaxandi

Í odda skarst á milli palestínskra öryggissveita og skæruliða Hamas-samtakanna í Gazaborg í gær og féllu tveir unglingar í bardögunum. Þetta eru verstu átök á milli Palestínumanna í áraraðir.

Ótti um fuglaflensudauðsföll

Grunur leikur á að þrír Indónesar hafi látist úr fuglaflensu. Sé það rétt eru það fyrstu dauðsföllin af völdum veikinnar í landinu.

Karl í kvennaflokki

Dómari í Simbabve hefur dæmt ungan mann í fjögurra ára fangelsi fyrir að villa á sér heimildir og valda félögum sínum sálartjóni. Hann keppti í frjálsum íþróttum og vann til nokkurra verðlauna fyrir land sitt - í kvennaflokki.

Londonárás: 4 handteknir í viðbót

Fjórir menn sem grunaðir eru um aðild að hryðjuverkunum í London í síðustu viku voru handteknir í Pakistan í dag. Mennirnir voru handsamaðir í borginni Faisalabad í miðhluta landsins.

Viðhorf múslima jákvæðara en áður

Hryðjuverk gagnvart bandarískum hermönnum í Írak eru réttlætanleg að mati helmings múslima í Jórdaníu og Líbanon. Þrátt fyrir það er viðhorf þeirra til vestrænna þjóða mun jákvæðara í dag en áður.

Vopnahléið kvatt

Vopnahléi er lokið milli herskárra Palestínumanna og Ísraela að því er virðist. Yfirmaður palestínsku öryggissveitanna sagði í morgun að sveitirnar muni ekki hika við að koma á lögum og reglu á sjálfstjórnarsvæðunum og að flugskeytaárásir herskárra samtaka Palestínumanna verði stöðvaðar.

Tugir fórust í Bagdad

Rúmlega 30 manns, hið minnsta, létu lífið í sprengjuárásum í Írak sem stóðu frá morgni til kvölds í gær. 111 til viðbótar særðust.

Hringurinn þrengist óðum

Hringurinn þrengist óðum um höfuðpaura árásanna í London en lögreglan handtók í dag efnafræðinginn svokallaða sem hefur verið eftirlýstur um allan heim. Þá voru fjórir menn handteknir í Pakistan í dag, grunaðir um aðild að hryðjuverkunum. Enn er þó að minnsta kosti einn höfuðpauranna ófundinn.

Fingraför af öllum útlendingum

Bandaríkjastjórn hefur ákveðið að auka eftirlit með útlendingum sem koma inn í landið og verða fingraför nú tekin af öllum. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem heimavarnaráðherra Bandaríkjanna sendi frá sér í gærkvöld. Ráðherrann sagði þessa leið farna til að auka möguleika Bandaríkjamanna á að finna hryðjuverkamenn og hindra að þeir reyni að komast inn í landið.

Múslimar í Bretlandi biðja griða

Múslimar í Bretlandi eru undrandi yfir því að hryðjuverkamennirnir sem sprengdu upp lestar og strætisvagn í London þann sjöunda júlí síðastliðinn, hafi verið breskir ríkisborgarar. Í tilkynningu frá samtökum múslima í Bretlandi, segir að þetta sé versta mögulega útkoman fyrir múslima í landinu.

Þögn í Evrópu

Borgarstjóri Lundúna, Ken Livingstone, hefur beðið um tveggja mínútna þögn í dag til að minnast fórnarlambanna sem létust í hryðjuverkaárásnum í London fyrir viku. Þagnarstundin verður klukkan 11 að íslenskum tíma.

Bílsprengja í Bagdad

Að minnsta kosti níu manns eru særðir eftir að bílsprengja var sprengd og maður með sprengjuvesti sprengdi sig í loft upp nálægt lögreglustöð í Bagdad, höfuðborg Íraks, í morgun. Þetta gerðist utan Græna svæðisins svonefnda þar sem bandaríska sendiráðið er.

Forstjóri WorldCom dæmdur

Bernard Ebbert, fyrrum forstjóri WorldCom, var í gær dæmdur í 25 ára fangelsi fyrir svæsin fjársvik og samsæri,sem leiddi fyrirtækið í stærsta gjaldþrot í sögu Bandaríkjanna. Hluthafar í WorldCom töpuðu um 12 þúsund milljörðum íslenskra króna og 20 þúsund starfsmenn fyrirtækisins misstu vinnuna.

Tveggja manna leitað í Bretlandi

Lögreglan í Bretlandi leitar nú tveggja manna í tengslum við sprengjuárásirnar í Lundúnum fyrir viku. Annar maðurinn er nefndur höfuðpaurinn og hinn efnafræðingurinn en talið er að báðir séu löngu farnir úr landi.

Þögn í London

Tveggja mínútna þögn var í Bretlandi á hádegi í dag eða 11 að íslenskum tíma til að minnast þeirra sem létust í sprengjuárásunum í London. Stöðvuðust meðal annars strætisvagnar og leigubílar um stund og gangandi vegfarendur stóðu kyrrir.

Donald Rumsfield gaf leyfi

Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, gaf leyfi til að brjóta niður fanga á niðurlægjandi hátt í Guantanamo-fangelsinu á Kúbu, neituðu þeir að tala. Þetta segir blaðið Washington Post í dag.

Bastilludagurinn

Þjóðhátíðardagur Frakka, Bastilludagurinn, er haldinn hátíðlegur í París í dag. Mikill öryggisviðbúnaður er þó vegna dagsins nú þegar vika er liðin frá því að hryðjuverkaárásirnar voru gerðar á London.

Merkel vill ekki

Angela Merkel, formaður kristilegra demókrata og kanslaraefni í komandi kosningum í Þýskalandi, sagði í gær að hún stefni að því að sneiða hjá því að mynda svokallaða "stóra samsteypu" með jafnaðarmönnum eftir kosningarnar. Að hennar sögn væri slíkt stjórnarsamstarf "merki um stöðnun".

Ipod bjargar Apple

Hagnaður Apple tölvufyrirtækisins á þriðja ársfjórðungi nam um 20 milljörðum króna og er það fimm sinnum meiri hagnaður en á sama tíma í fyrra. Velgengni fyrirtækisins má að stærstum hluta rekja til Ipod spilarans en fyrirtækið seldi rúmlega 6 milljónir spilara á þriðja ársfjórðungi og nam salan um þriðjungi af heildarsölu fyrirtækisins.

Komu í veg fyrir árásir

Íraskir hermenn komu í veg fyrir þrjár sjálfsmorðsárásir í Bagdad í dag þegar þeir skutu tvo menn til bana og særðu þriðja manninn þegar þeir nálguðust herstöðvar í borginni. Maðurinn sem særðist var fluttur á hersjúkrahús og verður hann yfirheyrður síðar í dag.

Kennsl borin á hryðjuverkamenn

Einn mannanna sem grunaðir eru um að hafa átt þátt í sprengjuárásunum í London í síðustu viku var stuðningsfulltrúi í grunnskóla. Hann var vel liðinn bæði meðal kennara og foreldra og lagði sig allan fram við að gera vel við börnin. Foreldrar eru efins um að lögreglan gruni rétta manninn en lögreglan segist hafa borið kennsl á alla hryðjuverkamennina.

Emily gerir óskunda

Fellibylurinn Emily gekk á land á eynni Grenada í Karabíska hafinu í gær og olli talsverðu tjóni.

Þögn sló yfir Lundúnir

Vika er liðin frá hryðjuverkaárásunum á Lundúnir og var þess víða minnst með tveggja mínútna langri þögn í gær. Búið er að bera kennsl á alla tilræðismennina fjóra.

Stuðningur við hryðjuverk dvínar

Stuðningur við Osama bin Laden og árásir gegn Bandaríkjamönnum og bandamönnum þeirra í Írak fer mjög dvínandi í múslimaríkjum heimsins, sérstaklega þeim sem hafa sjálf orðið fyrir árásum hryðjuverkamanna.

Kerfisbundnar misþyrmingar

Ný rannsókn á vegum Bandaríkjahers leiðir í ljós að hinar illræmdu yfirheyrsluaðferðir sem notaðar voru í Abu Ghraib-fangelsinu í Írak voru ekki einangrað tilfelli.

Umkringdu barnaskóla

Stigamenn stráfelldu 76 manns í þorpi í norðurhluta Keníu í fyrradag. Talið er að ættbálkaerjur séu orsök ódæðanna.

Meðferð á föngum ekki pyntingar

Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, leyfði niðurlægjandi yfirheyrsluaðferðir í Guantanamo-fangelsinu á Kúbu. Þetta kemur fram í dagblaðinu Washington Post í dag. Sérfræðingar á vegum hersins segja aðferðirnar ekki geta talist pyntingar.

Tekinn af lífi án dóms og laga

Ísraelskir hermenn réðust í gær inn á heimili breskrar blaðakonu í bænum Nablus á Vesturbakkanum og skutu þar til bana, Mohammed Alassi, meintan palestínskan uppreisnarmann.

Ókeypis alnæmislyf

Taílendingar sem sýkst hafa af HIV-veirunni eiga þess nú kost að fá ókeypis lyf sem eiga að halda sjúkdómseinkennunum í skefjum.

Bjór með Níkótíni

Þýski bjórframleiðandinn Nautilus hefur hafið framleiðslu á bjór með níkótíni sem á að geta komið í stað níkótínsplásturs eða -tyggjós. Bjórinn er 6,3 prósent að styrkleika og ein 25 cl flaska inniheldur einn þriðja af níkótínmagni heils sígarettupakka.

Fyrsta ferðin síðan Columbia fórst

Geimferjunni Discovery verður skotið á loft frá Canaveral-höfða á Flórída á morgun. Þetta er fyrsta ferð ferjunnar í geiminn frá því geimferjan Columbia fórst í ferð sinni til jarðar fyrir tveimur árum en öll áhöfnin lét lífið.

Lestarlys í Pakistan

Að minnsta kosti 150 manns eru látnir eftir árekstur þriggja farþegalesta í suðurhluta Pakistan í morgun. Þá eru yfir 800 hundruð manns slasaðir. Slysið átti sér stað með þeim hætti að verið var að laga eina lestina þegar næturlest kom á fullri ferð og lenti á henni.

Sjá næstu 50 fréttir