Fleiri fréttir Sjálfsmorðsárás í Bagdad Að minnsta kosti 25 börn og einn amerískur hermaður féllu í sjálfsmorðssprengjuárás sem gerð var í Bagdad, höfuðborg Íraks í morgun. Þá er talið að 25 manns til viðbótar hafi særst í árásinni. Sprengingin átti sér stað nálægt herstöð Bandaríkjamanna en hermennirnir voru að gefa börnunum sælgæti þegar atvikið átti sér stað. 13.7.2005 00:01 Danir taki hótanir alvarlega Danmörk er næsta skotmark hryðjuverkamanna í Evrópu, segja samtökin al-Qaida í nýrri yfirlýsingu. Hryðjuverkasérfræðingur segir að Danir verði að taka endurteknar ógnanir um árás alvarlega. Samtökin sem stóðu að baki árásunum í Madríd í fyrra, og kennd eru við Abu Hafs al-Masri, birtu yfirlýsingu á netinu á sunndaginn, skrifar dagblaðið Jyllands Posten í morgun. 13.7.2005 00:01 Vígamenn drepa börn í Kenía Talið er að minnsta kosti 60 manns hafi fallið í árásum vígamanna á þorpið Turbi í norðausturhluta Kenýa í gærmorgun. Þorpsbúar í Turbi, sem aðallega er byggt Gabra-fólki, segir hóp Borana-vígamanna frá Eþíópíu hafa ráðist inn í þorpið í dögun og setið fyrir börnum á leið í skóla. 13.7.2005 00:01 Harry Potter leki
Sjá næstu 50 fréttir
Sjálfsmorðsárás í Bagdad Að minnsta kosti 25 börn og einn amerískur hermaður féllu í sjálfsmorðssprengjuárás sem gerð var í Bagdad, höfuðborg Íraks í morgun. Þá er talið að 25 manns til viðbótar hafi særst í árásinni. Sprengingin átti sér stað nálægt herstöð Bandaríkjamanna en hermennirnir voru að gefa börnunum sælgæti þegar atvikið átti sér stað. 13.7.2005 00:01
Danir taki hótanir alvarlega Danmörk er næsta skotmark hryðjuverkamanna í Evrópu, segja samtökin al-Qaida í nýrri yfirlýsingu. Hryðjuverkasérfræðingur segir að Danir verði að taka endurteknar ógnanir um árás alvarlega. Samtökin sem stóðu að baki árásunum í Madríd í fyrra, og kennd eru við Abu Hafs al-Masri, birtu yfirlýsingu á netinu á sunndaginn, skrifar dagblaðið Jyllands Posten í morgun. 13.7.2005 00:01
Vígamenn drepa börn í Kenía Talið er að minnsta kosti 60 manns hafi fallið í árásum vígamanna á þorpið Turbi í norðausturhluta Kenýa í gærmorgun. Þorpsbúar í Turbi, sem aðallega er byggt Gabra-fólki, segir hóp Borana-vígamanna frá Eþíópíu hafa ráðist inn í þorpið í dögun og setið fyrir börnum á leið í skóla. 13.7.2005 00:01
Bretar undrandi og reiðir Talið er að mennirnir hafi starfað undir stjórn utanaðkomandi aðila og er óttast að annar hópur tilræðismanna, undir stjórn sömu aðila, sé að undirbúa fleiri árásir á bæði Bretland og víðar. Einn maður var handtekinn í aðgerðum lögreglunnar í Yorkshire í gærmorgun en hann mun vera skyldur einum af meintum tilræðisumönnum. 13.7.2005 00:01
Geimskoti frestað Hætt hefur verið við að skjóta geimferjunni Discovery á loft frá Flórída en áhöfnin var komin um borð og tilbúin að leggja í hann þegar ákvörðunin var tekin nú fyrr í kvöld. Mikil spenna var við Canaveral-höfða, en þúsundir ferðamanna voru þar saman komnir til að fylgjast með atburðinum. 13.7.2005 00:01
Heita að herða á hryðjuverkavörnum Dóms- og innanríkisráðherrar Evrópusambandsríkjanna 25 samþykktu í gær að herða á baráttunni gegn hryðjuverkaógninni. Á bráðafundi sem kallaður var saman í kjölfar sprengjutilræðanna í Lundúnum ákváðu ráðherrarnir að hrinda aðgerðaáætlun ESB um hryðjuverkavarnir í framkvæmd fyrir árslok. 13.7.2005 00:01
Áhyggjur móður hjálpuðu rannsókn Símhringing örvæntingarfullrar móður kom bresku lögreglunni á sporið í leitinni að þeim sem frömdu sprengjutilræðin í Lundúnum fyrir viku. 13.7.2005 00:01
15 særðir eftir sprengingu Að minnsta kosti fimmtán manns særðust, þar af tveir lífshættulega, er sprengja sprakk í Port of Spain, höfuðborg Trinidad og Tobago, í Karíbahafinu í gærkvöld. Sprengjunni hafði verið komið fyrir í ruslatunnu skammt frá þinghúsinu í borginni en enginn hefur lýst verkanaðinum á hendur sér. 12.7.2005 00:01
Múslímar verða fyrir aðkasti Reynt hefur verið að kveikja í fjórum moskum í Bretlandi eftir hryðjuverkaárásirnar í London í síðustu viku og hefur gætt vaxandi spennu í garð múslíma. Lögreglan hefur fengið fjölmargar tilkynningar um tilvik þar sem múslímar hafa verið áreittir á götum úti og bílar þeirra, fyrirtæki og heimili skemmd. 12.7.2005 00:01
25% með miklar áhyggjur af árás Um 25% Bandaríkjamanna hafa miklar áhyggjur af því að hryðjuverkamenn muni gera árás á landið fljótlega, að því er könnun sem birt var í gær sýnir. Þá eru 44% Bandaríkjamanna fremur áhyggjufullir, 19% hafa ekkert sérstaklega miklar áhyggjur og 11% hafa engar áhyggjur. 12.7.2005 00:01
Einn látinn vegna fellibylsins Að minnsta kosti einn maður lét lífið er fellibylurinn Dennis fór um Georgíuríki í Bandaríkjunum í gær en hundruð manna hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna fellibylsins og þeirra flóða sem myndast hafa í kjölfarið. Hjólhýsaeigendur hafa farið einna verst út úr flóðunum enda reynst erfitt að færa þau til í færð sem þessari. 12.7.2005 00:01
Enskar konur geta orðið biskupar Konur geta nú orðið biskupar í enskum kirkjum eftir að lögum innan kirkjunnar var breytt á dögunum. Málið, sem er afar umdeilt, hafði verið rætt fram og aftur en yfirmenn kirkjunnar skiptust í tvær fylkingar. 12.7.2005 00:01
Viðskiptavinum vændiskvenna refsað Páfagarður hvatti í gær til þess að lög yrðu sett um að viðskiptavinum vændiskvenna yrði refsað og að konur yrðu verndaðar frá nútíma þrælahaldi. Yfirlýsingin er gefin út í framhaldi af tveggja daga ráðstefnu sem haldin var um vændi og mansal í júní. 12.7.2005 00:01
Breska lögreglan með húsleitir Sérsveit bresku lögreglunnar gerði húsleit á fimm heimilum í borginni Leeds á Englandi í morgun í tengslum við leitina að Al-Qaida hryðjuverkamönnunum sem bera ábyrgð á sprengjutilræðunum í Lundúnum í síðustu viku. Samkvæmt Reuters-fréttastofunni eru aðgerðir lögreglunnar í morgun fyrstu skipulögðu aðgerðirnar frá því hryðjuverkaárásirnar voru framdar. 12.7.2005 00:01
Hafnar aðstoð Bandaríkjamanna Fidel Castro, forseti Kúbu, hafnaði 50 þúsund dollara aðstoð frá Bandaríkjastjórn í gær eftir að fellibylurinn Dennis reið þar yfir um helgina. Castro ávarpaði þjóð sína og sagði að það væri alveg ljóst að Kúba myndi aldrei þiggja neina aðstoð frá Bandaríkjunum. 12.7.2005 00:01
Lögreglumaður særðist í sprengingu Einn lögreglumaður særðist lítillega þegar sprengja sprakk á kaffihúsi í menningarhúsi Ítalíu í Barcelona á Spáni í morgun. Sprengjan er sögð hafa verið heimatilbúin og hafði henni verið komið fyrir í kaffivél á staðnum. 12.7.2005 00:01
Hafðist við á flugvelli í eitt ár Fyrrverandi Keníabúi, sem hafðist við í meira en eitt ár á flugvellinum í Naíróbó, fékk breskan ríkisborgararétt í morgun. Maðurinn, Sanjay Shah, var viðstaddur sérstaka athöfn í breska sendiráðinu í Naíróbí og fær hann afhent breskt vegabréf innan viku. 12.7.2005 00:01
75% Dana telja árás líklega Fleiri Danir óttast að hryðjuverkaárás verði gerð í Danmörku en áður, samkvæmt nýrri skoðanakönnun. Þrír af hverjum fjórum telja líklegt að Danmörk verði fyrir árás á næstu árum. Helmingur þjóðarinnar styður enn stríðið í Írak. 12.7.2005 00:01
Albert settur inn í furstaembættið Hátíðarhöld hófust í Monte Carlo í Mónakó í morgun í tilefni af innsetningu Alberts prins í embætti Mónakófursta en Rainier fursti, faðir hans, lést eftir langvarandi veikindi í apríl síðastliðnum. 12.7.2005 00:01
London: Líklega sjálfsmorðsárásir Breska fréttastöðin Sky hefur það eftir heimildum innan lögreglunnar að fjórir tilræðismenn í sprengjuárásunum í London í síðustu viku hafi látist í árásunum. Ýtir þetta undir þann grun að um sjálfsmorðsárásir hafi verið að ræða. 12.7.2005 00:01
Grunur um að a.m.k. einn hafi dáið Breska lögreglan er enn að reyna að komast að því hvort allir fjórir sprengjutilræðismennirnir í London í síðustu viku hafi látist í árásunum. Talsmaður lögreglunnar greindi frá þessu í beinni útsendingu á Sky-fréttastöðinni rétt í þessu. Sterkar vísbendingar eru um að a.m.k. einn þeirra hafi látist í sprengingunni við Aldgate-lestarstöðina. 12.7.2005 00:01
Með 300 ketti á heimilinu Rúmlega 300 kettir voru fjarlægðir af heimili eldri konu í Virginíufylki í Bandaríkjunum á dögunum. Um þriðjungur kattanna var dauður. 12.7.2005 00:01
Tvennum sögum fer af mannfalli Tvennum sögum fer af mannfalli í sjálfsmorðssprengjuárás í verslunarmiðstöð í Ísrael fyrr í dag. Meðlimur öryggisveitar á vettvangi segir að a.m.k. 30 hafi látist. Annar heimildarmaður segir aðeins þrjá hafa farist. 12.7.2005 00:01
Enginn lýst ábyrgð á sprengingunni Einn lögreglumaður særðist lítillega þegar sprengja sprakk við kaffihús menningarstofnunar Ítalíu í Barcelona á Spáni í morgun. Talið er að ítalskir stjórnleysingjar standi á bak við atvikið en enn sem komið er hefur enginn lýst ábyrgð á því. 12.7.2005 00:01
Bendir allt til sjálfsmorðsárása Talið er að fjórir tilræðismenn hafi verið meðal þeirra sem létu lífið í hryðjuverkaárásunum í Lundúnum síðastliðinn fimmtudag. Breska lögreglan greindi frá þessu síðdegis og bendir allt til þess að um sjálfsmorðsárásir hafi verið að ræða. 12.7.2005 00:01
Norskur fjársvikari fyrirfór sér Norski fjársvikarinn Ole Christian Bach skaut sig í bifreið sinni á flótta undan sænsku lögreglunni á mánudagskvöld. Mikil umræða var um málið í skandinavískum fjölmiðlum í gær og hefur lögmaður Bach óskað eftir rannsókn á dauða hans. 12.7.2005 00:01
Fyrrum forsætisráðherra í rannsókn Saksóknarar í Rússlandi hófu á mánudag rannsókn á meintum fjársvikum Mikhail Kasyanov, sem var forsætisráðherra Rússlands árin 2000-2004. Eftir að Pútín Rússlandsforseti rak hann úr embætti á síðasta ári gerðist Kasyanov einn harðasti gagnrýnandi Pútins. 12.7.2005 00:01
Sjálfsmorðsárás í Ísrael Átján ára gamall Palestínumaður framdi sjálfsmorðssprengjuárás utan við verslunarmiðstöð í bænum Netanía í gær. Tvær konur létust og þrjátíu særðust í árásinni. Þetta er önnur sjálfsmorðsárásin síðan vopnahlé var samþykkt fyrir fimm mánuðum. 12.7.2005 00:01
Húsleit hjá Intel <font face="Helv">S</font>amkeppnisyfirvöld í Evrópu leituðu í gær óvænt samtímis á skrifstofum Intel í Bretlandi, Þýskalandi, Spáni og Ítalíu. Intel er stærsti framleiðandi tölvuörgjörva í heiminum með 90 prósent markaðshlutdeild, 12.7.2005 00:01
Líklega sjálfsmorðsárásir Breska lögreglan rannsakar nú hvort fjórir meintir sjálfsmorðsárásarmenn hafi verið meðal þeirra látnu í hryðjuverkaárásunum í Lundúnum. Í gærkvöld sagðist hún hafa sannanir fyrir því að í það minnsta einn sprengjumaður hafi látist og verið væri að kanna hvort svo hefði verið um þá alla. 12.7.2005 00:01
Sprenging í verslunarmiðstöð Sprenging varð í verslunarmiðstöð í bænum Netanya í Ísrael fyrir stundu. Að sögn útvarpsins á staðnum eru margir látnir. Nánari upplýsingar um sprenging<font face="Courier New">una</font> liggja ekki fyrir að svo stöddu. 12.7.2005 00:01
Öryggisgæsla í hámarki Öryggisgæsla í London hefur enn verið hert og er nú í algjöru hámarki þar sem mennirnir sem frömdu hryðjuverkin á fimmtudaginn eru enn á lífi og undirbúa aðra árás. Þessu er haldið fram í breska dagblaðinu <em>Times</em> í morgun. 11.7.2005 00:01
Sjö Írakar myrtir í morgun Hópur uppreisnarmanna myrti í morgun sjö írakska hermenn nærri höfuðborginni Bagdad. Uppreisnarmennirnir óðu inn í eftirlitsstöð hersins og skutu þar á allt sem fyrir varð. Fimm manns særðust í skotbardögunum sem stóðu í um hálfa klukkustund. 11.7.2005 00:01
Falast eftir 130 milljarða aðstoð Ríkisstjórnin í Ísrael ætlar að falast eftir ríflega tveggja milljarða dollara aðstoð, eða rúmlega 130 milljarða króna, frá Bandaríkjunum vegna fyrirhugaðs brottfluttnings frá Gasa ströndinni. Frá þessu greinir ísraelskt dagblað í morgun og þar segir jafnframt að stefnt sé að því að hefja brottfluttninginn strax í næsta mánuði. 11.7.2005 00:01
Fellibylurinn Dennis geysist áfram Fellibylurinn Dennis geysist nú um Suðausturströnd Bandaríkjanna á meira en fimmtíu metrum á sekúndu. Yfirvöld hafa hvatt nærri tvær milljónir manna til að yfirgefa heimili sín vegna fellibylsins. Nú þegar hafast um tíu þúsund manns við í neyðarskýlum og hótel á Suðausturströndinni eru þétt setin. 11.7.2005 00:01
Bakijev kjörinn forseti Kirgistans Kurmanbek Bakijev hefur verið kjörinn forseti Kirgistans. Þegar búið var að telja nærri öll atkvæði í morgun hafði Bakijev hlotið nærri áttatíu og níu prósent talinna atkvæða og því unnið kosningarnar með algjörum yfirburðum. 11.7.2005 00:01
Pamplona: 4 töluvert slasaðir Fjórir menn slösuðust töluvert í hinu árlega nautahlaupi í borginni Pamplona á Spáni í morgun. Meðal þeirra var einn öryggislögreglumaður sem var á vakt. Nautahlaupið fer fram dagana 7. til 14. júlí og er hluti af sumarhátíð í borginni. 11.7.2005 00:01
22 námuverkamenn létust í Kína Minnst tuttugu og tveir létust í sprengingu í kolanámu í vesturhluta Kína í nótt. Rúmlega sextíu manns eru enn fastir inni í námunni en þegar hefur tekist að bjarga sex námuverkamönnum út. Öryggi í kínverskum kolanámum er mjög ábótavant og í fyrra létust meira en sex þúsund manns vegna sprenginga í námum landsins. 11.7.2005 00:01
Minnast hinna myrtu í Srebrenica Þúsundir komu saman í bænum Srebrenica í Bosníu í morgun til að minnast þeirra átta þúsund karlmanna úr röðum múslima sem voru myrtir af Bosníu-Serbum í Bosníu-deilunni fyrir tíu árum. 11.7.2005 00:01
Búið að ná öllum líkum Búið er að ná öllum líkum úr neðanjarðarlestunum sem sprengdar voru í hryðjuverkaárásunum í Lundúnum síðastliðinn fimmtudag. Öryggisgæsla hefur enn verið hert í borginni þar sem mennirnir sem frömdu hryðjuverkin í síðustu viku eru enn á lífi og eru taldir undirbúa aðra árás. 11.7.2005 00:01
16 létust í gassprengingu Sextán manns létu lífið þegar öflug gassprenging varð í verslun í bænum Ukhta í norðausturhluta Rússlands fyrir stundu. Verslunin er á tveimur hæðum og er önnur hæðin nánast ónýt. 11.7.2005 00:01
Tveir létust á flugsýningu Tvær litlar flugvélar flugu hvor á aðra á flugsýningu í Kanada í gær með þeim afleiðingum að báðir flugmennirnir létust samstundis. Flugvélarnar voru að líkja eftir orrustum í fyrri heimsstyrjöldinni en ekki vildi betur til en svo að önnur vélin flaug upp undir hina. 11.7.2005 00:01
Mannskæðasta námuslys ársins Að minnsta kosti 59 eru sagðir hafa látist í gassprengingu í kolanámu í Kína í morgun. Fyrst var talið að 22 hafi látist en kínverskir fjölmiðlar greindu frá því nú síðdegis að 37 lík til viðbótar hafi fundist ofan í námunni. 11.7.2005 00:01
Londonárás: 52 látnir Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, sagði á breska þinginu í dag að allt benti til þess að hryðjuverkaárásunum í London í síðustu viku hefðu verið skipulagðar af íslömskum öfgamönnum. Staðfest hefur verið að 52 létust í árásunum og eru 56 enn á spítala. 11.7.2005 00:01