Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kim Jong-il fagnar afmæli sínu Kim Jong-il, leiðtogi Norður-Kóreu, hélt upp á sextugasta og þriðja afmælisdag sinn í dag með því að koma fyrir almenningssjónir í fyrsta sinn í tvo mánuði. Sögusagnir hafa verið á kreiki um veikindi Kims en hann virtist við hestaheilsu og sat rússneska danssýningu. 18.2.2005 00:01
Berklar í Hollandi Berklasjúkdómurinn hefur gert vart við sig í borginni Zeist í Hollandi. Fyrr í mánuðinum greindist kona sem vinnur á búðarkassa í matvöruverslun með sjúkdóminn. Í kjölfarið fóru 21 þúsund manns, sem töldu sig mögulega hafa komist í snertingu við konuna, í berklapróf. 18.2.2005 00:01
Lungnabólgufaraldur í Kongó Að minnsta kosti 60 hafa látist í mannskæðum lungnabólgufaraldri sem nú geisar í Kongó í Afríku. Samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO) er þetta versti lungnabólgufaraldur sem greinst hefur í heiminum í 50 ár. 18.2.2005 00:01
Rússar styðja Írani Vladimir Pútín, forseti Rússlands, segist sannfærður um að Íranir séu ekki að reyna að þróa kjarnorkuvopn. Eftir fund í Moskvu með Hassan Rowhani, yfirmanni kjarnorkumála Írana, sagði Pútín að rússnesk stjórnvöld myndu áfram vinna með Írönum og hjálpa að ljúka smíði kjarnakljúfs í borginni Bushehr í suðurhluta Írans. 18.2.2005 00:01
Ekki aðeins pyntingar í Abu Ghraib Svo virðist sem Bandaríkjaher noti pyntingar á kerfisbundinn hátt til að yfirheyra fanga. Komið hefur í ljós að bandarískir hermenn hafa ekki bara stundað pyntingar í Abu Ghraib fangelsinu í Írak og á Guantanamo á Kúbu, heldur líka í Afganistan. 18.2.2005 00:01
Fundu 4 tonn af maríjúana Mexíkóska lögreglan hefur lagt hald á fjögur tonn af maríjúana sem fundust í húsi við borgina Juarez. Borgin er við bandarísku landamærin og er talið að smygla hafi átt efninu til Bandaríkjanna. 18.2.2005 00:01
Ráðist á síja-múslíma í Írak Að minnsta kosti 36 írakar létust, flestir síja-múslímar, í fimm sprengjuárásum uppreisnarmanna súnní-múslíma í landinu í gær. Talið er að árásirnar tengist Ashoura, trúarhátíð sjía-múslíma, sem nær hámarki í dag. 18.2.2005 00:01
Al-Kaída mun nota gereyðingarvopn Óöldin í Írak eykur líkurnar á því að uppreisnarmenn láti til skarar skríða í öðrum löndum að mati Porters Goss, yfirmanns bandarísku leyniþjónustunar CIA. Hann segir aðeins tímaspursmál hvenær hryðjuverkahópur eins og Al-Kaída muni reyna árásir með gereyðingarvopnum. 17.2.2005 00:01
Sprenging í Sómalíu fellir tvo Tveir féllu í valinn og sex særðust í sprengingu sem varð í höfuðborg Sómalíu í morgun. Embættismenn frá grannríkinu Kenýa segja að flest bendi til þess að hryðjuverkamenn hafi staðið að sprengingunni. 17.2.2005 00:01
ESB-baráttan að hefjast Baráttan fyrir því að fá stjórnarskrá Evrópusambandsins samþykkta er að hefjast fyrir alvöru. Á sunnudaginn kjósa Spánverjar um stjórnarskrána, fyrstir allra Evrópuþjóða. Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, heimsótti Spán í gær til þess að hvetja þarlenda stjórnmálamenn til dáða í báráttunni fyrir að fá stjórnarskrána samþykkta. 17.2.2005 00:01
Sharon líklega ekki ákærður Dómsmálaráðherra Ísraels mun líklega ekki ákæra Ariel Sharon vegna meintrar fjármálaspillingar frá árinu 1999. Þetta sögðu heimildarmenn innan dómsmálaráðuneytis Ísraela í morgun. 17.2.2005 00:01
Norðmenn sniðgangi skoskt viskí Norski þingmaðurinn Ivar Kristiansen skorar á norska neytendur að sniðganga skoskt viskí í vínbúðum í mótmælaskyni við aðför skoskra laxeldismanna að norsku laxeldi. Hann segir að Skotarnir beiti Evrópusambandinu fyrir sig til að vernda eigin hagsmuni á kostnað Norðmanna. 17.2.2005 00:01
Fuglaflensan ógnar enn Víetnam Yfirvöld í Víetnam íhuga nú hvað skuli gera til að stemma stigu við fuglaflensunni sem herjað hefur á landsmenn undanfarið. Þrettán manns hafa látist af völdum flensunnar síðastliðnar vikur. Til tals hefur komið að slátra öllum hænsfuglum sem fyrirfinnast í Víetnam en sú hugmynd hefur ekki fengið góðan hljómgrunn hjá mörgum bóndanum í landinu. 17.2.2005 00:01
Kínverjar stærstu neytendurnir Kínverjar hafa tekið við af Bandaríkjamönnum sem stærstu neytendur landbúnaðar- og iðnaðarvarnings í veröldinni. Kínverjar kaupa inn meira af kornvörum, kjöti, kolum og stáli en Bandaríkjamenn. Þeir eiga einnig fleiri sjónvörp, ísskápa og farsíma en Bandaríkjamenn hafa enn vinninginn þegar kemur að olíu. 17.2.2005 00:01
Sharon ekki ákærður Engin ákæra verður gefin út á hendur Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, vegna spillingarmáls sem allt leit út fyrir að gæti bundið enda á stjórnmálaferil hans. 17.2.2005 00:01
Meðlimir ETA handteknir Tveir félagar í aðskilnaðarhreyfingu herskárra Baska, ETA, voru handteknir á Spáni í morgun, skammt frá borginni Valencia. Lögreglan lagði hald á nokkurt magn sprengiefna á sama stað. Talsmaður lögreglunnar greindi frá því að karlmaður og kona væru í haldi og að jafnframt hefðu fundist byssa og skjöl á staðnum. 17.2.2005 00:01
Vilja afsögn ríkisstjórnarinnar Vaxandi þrýstingur hefur verið á ríkisstjórn Líbanons um að segja af sér. Stjórnin nýtur stuðnings stjórnvalda í Sýrlandi og hefur óánægja í garð hennar aukist eftir að fyrrverandi forsætisráðherra landsins, Rafik Hariri, var ráðinn af dögum. 17.2.2005 00:01
Grunaður um aðild að mannráninu Tuttugu og fjögurra ára karlmaður hefur verið handtekinn í Kaupmannahöfn að beiðni sænsku lögreglunnar þar sem hann er grunaður um aðild á ráninu á Fabian Bengtsson. Lögreglan í Kaupmannahöfn vill ekki gefa upp af hvaða þjóðerni maðurinn er en segir þó að hann sé hvorki Dani né Svíi. Foreldrar hans búa þó í Danmörku. 17.2.2005 00:01
Kjarnorkuvopnaeign helsta ógnin Kjarnorkuvopnaeign Asíuríkja er meðal helstu ógna sem Bandaríkjamenn þurfa að fylgjast með að mati yfirmanns bandarísku leyniþjónustunnar, CIA. Hryðjuverk eru áfram ofarlega á lista yfir ógnir. 17.2.2005 00:01
4 látnir í sprengingu í Taílandi Að minnsta kosti fjórir eru látnir og 40 særðir, sumir lífshættulega, eftir að sprengja sprakk í fjölfarinni götu, nærri vinsælu hóteli, í ferðamannabænum Sungai Kolok í Taílandi fyrir stundu. Forsætisráðherra Taílands var staddur í bænum fyrr í dag en samkvæmt Reuters-fréttastofunni var hann farinn frá Sungai Kolok þegar sprengingin varð. 17.2.2005 00:01
Yfirmaður allrar leyniþjónustu BNA George Bush hefur skipað John Negroponte, fyrrverandi sendiherra Bandaríkjanna í Írak, sem yfirmann allrar leyniþjónustu í Bandaríkjunum. Embættið er nýtt af nálinni og er stofnun þess liður í aðgerðum Bandaríkjastjórnar til að reyna að koma í veg fyrir að atburðirnir þann 11. september 2001 endurtaki sig. 17.2.2005 00:01
Fellur portúgalska ríkisstjórnin? Portúgalska ríkisstjórnin mun falla í þingkosningunum um næstu helgi ef marka má skoðanakannanir þar í landi. Jafnaðarmannaflokkurinn sem er í stjórnarandstöðu hefur töluvert forskot á sósíaldemókrata, sem leiða ríkisstjórnina, og samkvæmt sumum könnunum myndu jafnaðarmenn ná hreinum meirihluta ef kosið yrði nú. 17.2.2005 00:01
Vill meiri þrýsting á Sýrlendinga Sýrlendingar eru úr takt við önnur ríki í Mið-Austurlöndum, sagði George W. Bush Bandaríkjaforseti þegar hann lýsti því yfir að hann vildi vinna með öðrum ríkjum að því að þrýsta á Sýrlendinga um að hverfa með her sinn frá Líbanon. 17.2.2005 00:01
Meiri réttur flugfarþega Flugfarþegar eiga rétt á tugþúsunda króna greiðslum verði þeir af flugi fyrir verknað flugfélagsins sem þeir eiga bókað flug með. Þetta er hluti af nýjum reglum Evrópusambandsins um réttindi flugfarþega sem tóku gildi í gær. 17.2.2005 00:01
Þjálfunarbúðir hryðjuverkamanna Írak er orðið að þjálfunarbúðum fyrir hryðjuverkamenn sem geta beitt reynslu sinni þaðan til árása annars staðar. Þetta kom fram í máli Porter Goss, yfirmanns bandarísku leyniþjónustunnar (CIA) þegar hann svaraði bandarískum þingmönnum. 17.2.2005 00:01
Ekki vitað um 30 kíló af plútóníum Stjórnendur kjarnorkuendurvinnslustöðvarinnar í Sellafield í Bretlandi geta ekki gert grein fyrir því hvað varð af 30 kílóum af plútóníum sem koma ekki fram í tölum um birgðahald. Umhverfisráðherra hefur óskað upplýsinga frá breskum stjórnvöldum. 17.2.2005 00:01
Bið eftir stjórnarmyndun Íraska kjörstjórnin kynnti í gær staðfest úrslit í þingkosningunum en talið er að nokkrar vikur líði áður en ný ríkisstjórn tekur við völdum. Ástæðan er sú að flokkarnir sem sæti eiga á þingi hafa enn ekki komið sér saman um hver verði næsti forsætisráðherra. 17.2.2005 00:01
Vatíkanið kennir andasæringar Háskóli Vatíkansins er farinn að bjóða upp á nýtt námskeið. Hér eftir geta rómversk-kaþólskir klerkar lært hvernig á að særa illa anda úr andsetnu fólki, að því er BBC greindi frá. 17.2.2005 00:01
Krefjast brottreksturs forsetans Foreldrar barna sem létu lífið þegar rússneskir hermenn réðust gegn gíslatökumönnum í skóla í Beslan krefjast þess að forseti Norður-Ossetíu verði rekinn. Þau skrifuðu Vladimír Pútín Rússlandsforseta bréf og báðu hann um að reka Alexander Dzasokhov úr embætti forseta Norður-Ossetíu. 17.2.2005 00:01
Bankarán IRA talið upplýst Írskir lögreglumenn hafa handtekið sjö einstaklinga sem grunaðir eru um bankarán í Belfast og lagt hald á andvirði um 260 milljóna króna. Írska lýðveldishernum hefur verið kennt um bankaránið og það staðið í vegi fyrir friðarsamkomulagi á Norður-Írlandi. 17.2.2005 00:01
Hollendingar íhuga kjarnorku á ný Hollendingar eru á ný farnir að velta því fyrir sér hvort þeir eigi að loka eina kjarnorkuverinu í landinu eða hvort starfrækja eigi það áfram. 17.2.2005 00:01
Svíi biður umhjálp Sænskur ríkisborgari, sem haldið er í gíslingu í Írak, bað Karl Gústaf Svíakonung og Jóhannes Pál II páfa um hjálp við að losna lifandi úr gíslingu sinni. Gíslatökumenn tóku hjálparbeiðni mannsins upp á myndband og sendu það til fjölmiðla. 17.2.2005 00:01
Víglína í átökum við Bandaríkin Sýrland er vaxandi vandamál að mati utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Tilgangur bandalags Sýrlendinga og Írana er óljós en því er velt upp hvort það sé eins konar víglína í átökum við Bandaríkin. 17.2.2005 00:01
Fengu hundaæðissýkt líffæri Þrír sjúklingar berjast fyrir lífi sínu í Þýskalandi eftir að í þá voru grædd líffæri úr konu sem reyndist hafa verið með hundaæði. Líffæragjafin lést eftir hjartaáfall á síðasta ári og við rannsókn virtist allt í lagi með líffæri hennar. 17.2.2005 00:01
Dýrt spaug ef flug tefst Það getur verið þreytandi að bíða tímunum saman á flugvöllum eða jafnvel í flugvélum vegna tafa, en framvegis verður það líka dýrt spaug - fyrir flugfélögin. Nýjar Evrópureglur tóku í dag gildi sem gera ráð fyrir mun hærri greiðslum til farþega sem verða fyrir töfum. 17.2.2005 00:01
Kyoto-sáttmálinn orðinn gildur Kyoto-sáttmálinn um losun gróðurhúsalofttegunda tók loks gildi í nótt, sjö árum eftir að hann var samþykktur. Til þess að sáttmálinn tæki gildi þurfti aðild landa sem bæru samanlagt ábyrgð á losun að minnsta kosti 55% prósenta gróðurhúsalofttegunda heimsins. 16.2.2005 00:01
Kalla sendiherra sinn heim Yfirvöld í Líbanon segja yfirgnæfandi líkur á að morðið á Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra, í fyrradag hafi verið sjálfsmorðssprengjuárás. Þrátt fyrir það hafa Bandaríkjamenn kallað sendiherra sinn í Sýrlandi heim í kjölfar árásarinnar. 16.2.2005 00:01
Snarpur skjálfti nærri Tókýó Tuttugu og átta manns slösuðust í jarðskjálfta upp á 5,4 á Richter sem varð í grennd við Tókýó snemma í morgun. Engar alvarlegar skemmdir urðu í skjálftanum en nokkur truflun varð á lestarsamgöngum og hlutir féllu úr hillum í verslunum og heimahúsum. 16.2.2005 00:01
Þúsundir á götum Beirútar Þúsundir manna hafa safnast saman í Beirút, höfuðborg Líbanon, til þess að fylgjast með því þegar líkkista Rafiks Hariris, fyrrverandi forsætisráðherra landsins, verður flutt í gegnum borgina. Hariri var myrtur í sprengjuárás í fyrradag. Stór hluti þeirra sem safnast hafa saman bera skilti með áletruðum ókvæðisorðum um Sýrlendinga. 16.2.2005 00:01
Langfleygasta farþegavél heims Flugrisinn Boeing afhjúpuðu í gær langfleygustu farþegaflugvél í heimi. Vélin getur ferðast á milli nánast hvaða tveggja borga sem er í heiminum, án þess að millilenda. Þannig verður hægt að ferðast í beinu tuttugu tíma flugi á milli New York og Sidney í Ástralíu svo að dæmi sé tekið. 16.2.2005 00:01
Smástirni fer nærri Jörðu Föstudagurinn þrettándi verður ekki óhappadagur í apríl árið 2029. Þá mun smástirni á stærð við þrjá knattspyrnuvelli fara mjög nærri Jörðinni, án þess þó að rekast á hana. Þetta er mat stjörnufræðinga í Bretlandi. 16.2.2005 00:01
Munu brátt geta smíðað kjarnavopn Ísraelsstjórn heldur því fram að aðeins sé hálft ár þar til stjórnvöld í Íran verði búin að koma sér upp allri þeirri þekkingu sem þau skortir nú til að smíða kjarnorkuvopn. 16.2.2005 00:01
Barnið komið til foreldra sinna Litla kraftaverkabarnið frá Srí Lanka, sem fannst undir braki skömmu eftir að flóðbylgjan gekk þar á land annan dag jóla, hefur nú loks fengið að fara til foreldra sinna. Níu pör sögðust vera foreldrar barnsins en nú hefur verið skorið úr um málið með DNA-prófi. 16.2.2005 00:01
Danskur ráðherra segir af sér Ráðherra fjölskyldu- og neytendamála í Danmörku sagði af sér í morgun vegna eigin peningavandræða. Ráðherranum, Henriette Kjær, og eiginmanni hennar hafði margoft verið fyrirskipað af dómstóli í Kaupmannahöfn að borga upp vangreitt lán fyrir húsgagnakaupum upp á rúmlega 600 þúsund íslenskar krónur, en aldrei farið eftir því. 16.2.2005 00:01
Blaðakonan biður sér griða Ræningjar ítölsku blaðakonunnar Giuliöna Sgrena hafa sent frá sér myndband þar sem hún biður sér griða. Sgrena, sem er fimmtíu og sjö ára blaðamaður á ítalska dagblaðinu Il Manifesto, var rænt í Bagdad í byrjun febrúar. 16.2.2005 00:01