Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Greftrunarstaðir frá 13. öld Fornleifafræðingar hafa fundið þrjá greftrunarstaði í Inglefield Land á Norðvestur-Grænlandi. Þetta er í fyrsta sinn sem greftrunarstaðir finnast svo langt í norðri. Frá þessu var greint í ríkisútvarpi Grænlands. 7.9.2004 00:01
Ítölskum konum rænt í Írak Hjálparsamtök í Írak halda því fram að tveimur ítölskum konum hafi verið rænt í miðborg Bagdad. Konurnar voru sjálfboðaliðar í samtökunum „Brú til Bagdad“ sem sinna hjálparstörfum í landinu og voru stofnuð í kjölfar fyrra Írakstríðsins árið 1991. Vitni segja að konurnar hafi verið numdar á brott ásamt tveimur Írökum. 7.9.2004 00:01
Blóðug átök í Sadr-borg Blóðug átök hafa kostað á fjórða tug manna lífið í fátækrahverfinu Sadr-borg í Írak undanfarinn sólarhring. Hundrað og sjötíu Írakar hafa særst í átökunum. Einn bandarískur hermaður liggur í valnum og nokkrir eru sárir. 7.9.2004 00:01
130 föngum sleppt í Ísrael Ísraelar hófu að sleppa 130 palestínskum föngum í dag í aðgerð til að fækka í yfirfullum fangelsum landsins. Fleiri föngum hefur ekki verið sleppt í einu í Ísrael í meira en sjö mánuði. 7.9.2004 00:01
Enn mismælir Bush sig George Bush Bandaríkjaforseti virðist hafa mismælt sig á mjög svo vandræðalegan hátt í gær þegar hann hélt þó hefðbundna framboðsræðu um aukinn kostnað í heilbrigðiskerfinu. Bush sagði nauðsynlegt að grípa til aðgerða gegn auknum fjölda fáránlegra lögsókna í landinu gegn læknum því of margir læknar misstu störf sín vegna þeirra. 7.9.2004 00:01
Bauð löggunni maríjúana Þýskur piltur var handtekinn síðastliðinn föstudag fyrir að reyna að selja maríjúana. Það væri kannski ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að ungi maðurinn, sem er 17 ára gamall, var staddur í afmæli hjá lögreglumanni þegar hann bauð gestunum varninginn en langflestir gestanna voru lögreglumenn. 7.9.2004 00:01
Baráttan hafin Sár fátækt, öryggisleysi og mikill hægagangur í uppbyggingu Afganistans eru meginefni kosningabaráttunnar sem nú er hafin, þeirrar fyrstu í sögu landsins. Átján frambjóðendur hafa gefið kost á sér í forsetakosningunum sem fara fram eftir mánuð. 7.9.2004 00:01
Þingið fór tífalt fram úr áætlun Skotar hafa getið sér orðspor fyrir nísku en þess verður ekki vart á skoska þinginu. Glæsileg bygging sem hýsir þingið hefur verið tekin í notkun, þremur árum á eftir áætlun og eftir að framkvæmdir reyndust tífalt dýrari en upphaflega var gert ráð fyrir. 7.9.2004 00:01
Fjórtán létust í loftárás Í það minnsta fjórtán palestínskir vígamenn létu lífið þegar ísraelsk herþyrla skaut flugskeytum að þjálfunarbúðum Hamas-hreyfingarinnar á Gaza-svæðinu. Þrjátíu til viðbótar særðust í einhverri mannskæðustu loftárás Ísraela á Palestínumenn frá því átök þeirra á milli brutust út fyrir tæpum fjórum árum síðan. 7.9.2004 00:01
Litlu munar á stóru flokkunum Munur á fylgi tveggja stærstu stjórnmálaflokka Bretlands mælist innan skekkjumarka í nýrri skoðanakönnun Populus um fylgi flokkanna. Verkamannaflokkurinn nýtur stuðnings 32 prósenta kjósenda en Íhaldsflokkurinn 30 prósenta.<font face="Helv"></font> 7.9.2004 00:01
Mannskæð flóð í Kína Á annað hundrað manns fórust og tuga er saknað eftir miklar rigningar og flóð í suðvesturhluta Kína. Níu þúsund manns til viðbótar voru fluttir veikir eða slasaðir á sjúkrahús vegna flóðanna og aurskriða sem fylgdu vatnsveðrinu. 7.9.2004 00:01
Fjörutíu létust í bardögum Í það minnsta fjörutíu manns létu lífið í bardögum og árásum víðs vegar í Írak í gær. Flestir féllu í bardögum í Sadr-borg, fátæktarhverfi í Bagdad. Þar létust 34 í hörðum bardögum og nær 200 manns til viðbótar voru fluttir særðir á sjúkrahús. 7.9.2004 00:01
Möguleiki á samningum Norður-írsku stjórnmálaflokkarnir gætu komist að samkomulagi um stjórnarmyndun áður en næsta vika er liðin, sagði Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, um stjórnarmyndunarviðræður flokkanna á sitt hvorum kanti norður-írskra stjórnmála, Sinn Fein og Sambandssinnaflokks Ian Paisley. 7.9.2004 00:01
Grimmd Tsjetsjena Augu alheimsins beinast að Rússlandi í kjölfar hörmunganna í Beslan. Pútín forseti Rússlands hefur verið gagnrýndur heima og erlendis. Hernaður og ódæði eru Tsjetsjenum í blóð borin. </font /></b /> 7.9.2004 00:01
Ofsaveður víða um heim Ofsafengið veður hefur verið í mörgum heimshlutum undanfarna sólarhringa. Bandaríkin, Kína og Japan hafa öll fengið að kenna á öfgum veðurguðanna. 7.9.2004 00:01
Gíslatökumenn deildu innbyrðis Hryðjuverkamennirnir sem tóku hátt í 1.200 manns í gíslingu í skóla í Beslan vissu ekki allir af því að til stæði að taka börn í gíslingu að sögn gíslatökumanns sem lifði bardagann á þriðjudag af. 7.9.2004 00:01
Halda fjölmiðlum í járngreipum Pútín Rússlandsforseti þvertekur fyrir viðræður við barnamorðingja og aðskilnaðarsinna í Tsjetsjeníu, og segir eins hægt að stinga upp því á að Ósama bin Laden komi til fundar í Hvíta húsið. Opinber rannsókn á hryðjuverkunum í Ossetíu kemur ekki heldur til greina. Rússneskur almenningur veit þó lítið um málið þar sem ríkið heldur fjölmiðlum í járngreipum. 7.9.2004 00:01
Aukin harka um forsetastólinn Aukin harka færist í keppni þeirra George Bush og Johns Kerrys um forsetastólinn í Bandaríkjunum. Hins vegar er umdeilanlegt hvort umræðan sé málefnalegri fyrir vikið. 7.9.2004 00:01
Vítahringur ofbeldis heldur áfram Vítahringur ofbeldis og hefndarverka hélt áfram í Miðausturlöndum í nótt þegar ísraelski herinn gerði árás á Gasa-borg í hefndarskyni fyrir hryðjuverk fyrir viku. 7.9.2004 00:01
Grátbað forseta Frakklands Franskur blaðamaður sem haldið er í gíslingu í Írak grátbað, í myndbandi sem sýnt var í nótt, Jaques Chirac Frakklandsforseta að láta undan kröfum mannræningjanna, og fella úr gildi bann við því að skólastúlkur hylji hár sitt. 31.8.2004 00:01
Ímyndunarveikur í átta ár Bandarískur karlmaður í Kaliforníu hefur fengið skilaboð frá lækni sínum um að hann sé ekki alnæmissmitaður eins og honum var greint frá fyrir átta árum. Maðurinn, sem heitir Jim Malone, hefur síðan honum var tilkynnt að hann væri smitaður af Hiv-veirunni sem veldur alnæmi, sótt stuðningsfundi alnæmissmitaðra, barist við þunglyndi og óttast dauðann. 31.8.2004 00:01
Góðar fréttir fyrir reykingamenn Rannsóknir á nýju hjálparmeðali fyrir reykingamenn á amtssjúkrahúsinu í Kaupmannahöfn sýna að 40 prósentum þeirra sem nota lyfið tekst að losna við sígaretturnar í eitt skipti fyrir öll. Nýja lyfið er pilla sem heitir Variniklæn. 31.8.2004 00:01
Mótmæla til stuðnings föngum Grímuklæddir stuðningsmenn Hamas hreyfingarinnar gengu um götur Gasa borgar í gær ásamt hundruðum Palestínumanna til að styðja kröfur palestínskra fanga sem sitja í fangelsum í Ísrael. 31.8.2004 00:01
Áfram mótmæli í New York Mótmæli halda áfram á götum New York borgar. Mótmælin í gær voru þó ekki eins fjölmenn og mótmælin á sunnudag en nokkur þúsund manns tóku þó þátt. Andrúmsloftið virtist einnig vera léttara en mótmælendur lögðu áherslu á málefni heimilislausra, alnæmissjúkra og önnur velferðamál. Í kringum tíu þúsund lögregluþjónar eru við störf á svæðinu. 31.8.2004 00:01
Engin tengsl milli rána Nú er komið í ljós að bankaræningjarnir á Akerbryggju í Osló eiga ekkert sameiginlegt með ræningjunum í Stavanger og Jessheim annað en atvinnunna. Þeir eru einfaldlega ræningjar. Hitt er annað mál að ránið á Akerbryggju var skipulagt af þremenningunum meðan þeir sátu saman í fangelsi í Ósló. Tveir þeirra voru í helgarleyfi og sá þriðji í fæðingarorlofi hjá fjölskyldu sinni. 31.8.2004 00:01
Vill tryggja frelsi gíslanna Forseti Frakklands, Jacques Chirac, ítrekaði í dag að allt yrði gert til að frelsa tvo franska blaðamenn sem eru í haldi mannræningja í Írak. Chirac er í Rússlandi sem stendur og mun funda með Putin Rússlandsforseta og Gerhard Schröder kanslara Þýskalands, en þeir voru á sínum tíma allir andsnúnir Íraksstríðinu. 31.8.2004 00:01
Réttarhöld yfir Milosevic hafin Ásakanir sem Slobodan Milosevic er borinn eru helberar lygar og málflutningur saksóknara við stríðsglæpadómstólinn í Haag er byggður á útúrsnúningi á mannkynssögunni. Þessu hélt Milosevic fram í morgun, þegar hann hóf málsvörn sína. 31.8.2004 00:01
Hóta Shaath lífláti Hópur palestínskra öfgamanna hótaði í morgun að ráða utanríkisráðherra Palestínu, Nabil Shaath, af dögum. Þeir segja þátttöku hans í ráðstefnu á Ítalíu með starfsbróður sínum frá Ísrael dauðasök. Snúi Shaath aftur til Gasa-strandarinnar verði hann tekinn af lífi. Til stendur að Shaath komi til Gasa í dag. 31.8.2004 00:01
Drápu tólf gísla Írakskur hópur uppreisnarmanna, Alsa al-Sunna, segist hafa drepið tólf gísla frá Nepal og sýndu þeir myndir af drápunum á íslamskri vefsíðu í dag. Í yfirlýsingu segjst þeir hafa framkvæmt dóm guðs yfir Nepölunum sem hefðu komið til landsins til að berjast við múslima og þjóna gyðingum og kristnum mönnum. 31.8.2004 00:01
Hamas ábyrg fyrir sjálfmorðsárásum Fimmtán fórust þegar öflugar sprengjur sprungu skammt frá eða um borð í tveimur strætisvögnum í suðurhluta Ísraels skömmu fyrir hádegi. Fimmtíu hið minnsta særðust. 31.8.2004 00:01
Bush og Kerry hnífjafnir Bush Bandaríkjaforseti hefur étið upp forskotið sem John Kerry var með í skoðanakönnunum. Fylgi frambjóðendanna tveggja er nú hnífjafnt. Fram eftir sumri naut John Kerry forskots á Bush í könnunum, bæði hvað almennar vinsældir snerti og svo í nokkrum lykilmálaflokkum. 31.8.2004 00:01
Bílsprenging í Moskvu Átta fórust og margir eru sárir eftir að öflug bílsprengja sprakk við neðanjarðarlestarstöð í Moskvu síðdegis. 31.8.2004 00:01
Bush lofsamaður á flokksþingi George Bush er sterk hetja sem sýndi hryðjuverkamönnum í tvo heimana. Þetta voru skilaboðin sem ræðumenn á flokksþingi repúblíkana sendu í gærkvöldi. Aðalræðumenn kvöldsins voru þingmaðurinn John McCain og fyrrverandi borgarstjóri New York borgar, Rudy Guiliani. 31.8.2004 00:01
Tólf gíslar myrtir Mikil reiði ríkir í Nepal eftir að tólf þarlendir gíslar voru myrtir af vígamönnum í Írak. Reiðin beinist hvort tveggja að morðingjunum en ekki síður að stjórnvöldum í Nepal sem þykja ekki hafa gert nóg til að tryggja lausn gíslanna. 31.8.2004 00:01
Ekkert að kosningunum "Enginn getur beitt valdi til að neyða fólk til að kjósa," sagði Vladimir Pútín Rússlandsforseti þegar hann varði forsetakosningarnar í Tsjetsjeníu. Gagnrýnt hefur verið að kosningarnar hafi ekki verið nægilega lýðræðislegar og að viðamikið kosningasvindl hafi átt sér stað. 31.8.2004 00:01
Reyna enn að mynda stjórn Harðlínumenn á sitt hvorum væng norður-írskra stjórnvalda hefja í dag enn eina tilraunina til að mynda starfhæfa ríkisstjórn, nokkuð sem hefur reynst þeim um megn. Viðræðurnar hefjast á sama tíma og þess er minnst að áratugur er síðan Írski lýðveldisherinn tilkynnti um vopnahlé, sem hefur reyndar ekki alltaf haldið. 31.8.2004 00:01
Demókrati í röðum repúblikana Öldungadeildarþingmaðurinn Zell Miller er ansi frábrugðinn öðrum ræðumönnum á flokksþingi repúblikana sem hafa það verkefni að sannfæra Bandaríkjamenn um að kjósa George W. Bush forseta í haust. Ástæðan er einföld. Miller er demókrati og hefur setið á þingi fyrir þá frá árinu 2000 en var um sextán ára skeið vararíkisstjóri í Georgíu. 31.8.2004 00:01
Víst má vinna baráttuna Degi eftir að George W. Bush Bandaríkjaforseti sagði í sjónvarpsviðtali að líklega væri ekki hægt að vinna sigur í baráttunni gegn hryðjuverkum virtist hann kominn á öndverða skoðun. "Við hittumst á stríðstímum, þegar land okkar á í stríði sem það hóf ekki en mun fagna sigri í," sagði Bush á fundi með fyrrverandi hermönnum í Nashville. 31.8.2004 00:01
120 þúsund mótmæla Yfir 120 þúsund manns fjölmenntu á götur úti í New York borg í gær til þess að mótmæla stjórnunarháttum Bush. Þetta er mesti fjöldi sem tekið hefur þátt í mótmælum fyrir flokksþing í Bandaríkjunum en flokksþing Rebúblikana sem hefst í dag mun standa út vikuna. 30.8.2004 00:01
17 látast í Kabúl Að minnsta kosti 17 manns, þar á meðal börn, hafa farist í sprengjutilræðum í Kabúl um helgina. Fjarstýrð bílsprengja sprakk í gær fyrir utan höfuðstöðvar bandaríska fyrirtækisins DynCorp, en fyrirtækið sér meðal annars um öryggismál fyrir Hamid Karzai forseta Afganistan. Einnig var gerð árás á skóla. 30.8.2004 00:01
Alkhanov forseti Tsétséníu Alu Alkhanov var kjörinn forseti Tsétséníu með nærri 85 prósentum atkvæða í kosningunum um helgina. Segja má að niðurstaðan komi ekki á óvart þar sem Alkanov var valinn af Putin Rússlandsforseta til þess að bjóða sig fram og helsti andstæðingur hans var útilokaður frá framboði. 30.8.2004 00:01
Rán fyrir tilviljun í klámmyndband Nýjasta vopnaða bankaránið í Noregi í nótt rataði fyrir tilviljun inn á klámmyndband og kann það að varpa ljósi á röð ofbeldisfullra stórrána í Noregi upp á síðakstið. 30.8.2004 00:01
Röskun á flugi SAS SAS flugfélagið þurfti að fella niður um það bil tuttugu flug frá Kaupmannahöfn í morgun vegna skyndiverkfalls flugmanna. Flugmennirnir ætla að hefja vinnu á ný fyrir hádegi en ljóst er að veruleg röskun hefur orðið á áætlunarflugi félagsins og þar með að líkindum á ferðum þó nokkurra Íslendinga 30.8.2004 00:01
Farandverkamenn kyrrsettir 240 farandverkamenn á 15 metra löngum trébát hefur verið kyrrsettir, af ítalska sjóhernum, í höfn við ítölsku eyjuna Lampedusa. Meirihluti fólksins segist vera frá Palestínu, en einnig er hluti fólksins frá Bangladesh og Írak. 30.8.2004 00:01
Fellibylurinn Chaba veldur usla Fellibylurinn Chaba gengur nú yfir suðurhluta Japans. Þrír hafa látist og 30 slasast. Um 6000 manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna hugsanlegra flóða og hættu á skriðum. 300 þúsund manns á Kyushu eyjum eru án rafmangns. 30.8.2004 00:01