Fleiri fréttir

Frelsisstyttan opnuð á ný

Frelsisstyttan verður opnuð fyrir ferðamönnum á morgun, í fyrsta sinn eftir árásirnar ellefta september 2001. Öryggisviðbúnaður í New York og Washington var aukinn um helgina vegna hættu á hryðjuverkaárásum en þrátt fyrir það telja yfirvöld öryggi við styttuna nægjanlegt.

Lynndie blóraböggull yfirmanna

Lögfræðingar bandaríska fangavarðarins Lynndie England segja að hún sé blóraböggull yfirmanna sinna vegna illrar meðferðar á föngum í írakska fangelsinu Abu Ghraib. Herréttarhöld hefjast á morgun og ætla lögfræðingarnir að kalla til vitnis yfirmenn Lynndie í þeirri von að geta sýnt fram á að ábyrgðin hafi verið þeirra.

Þrír látast í Rafah

Þrír Palestínumenn létust í sprengingu í morgun í borginni Rafah, á Gasaströndinni, að sögn lækna á sjúkrahúsi. Vitni segja eldflaug hafa verið skotið frá ísraelskri herþyrlu, ísraelski herinn hefur ekki staðfest það. Atvikið átti sér stað nærri landamærunum við Egyptaland, þar sem átök hafa verið tíð.

Fyrsta geimfar á braut um Merkúr

Fyrsta geimfarið, sem á að fara á braut um Merkúr, var skotið á loft í morgun. Geimfarið flytur rannsóknargervihnött bandarísku geimferðastofnunarinnar, NASA, til Merkúr, sem er ein af heitustu reikistjörnum sólkerfisins en þar getur hitinn farið upp í 500 gráður á celsíus.

Gögn um árás þriggja ára gömul

Gögn sem Bandaríkjamenn studdust við þegar öryggisviðbúnaður var aukin í New York og Washington um helgina, eru að minnsta kosti þriggja ára gömul. Í dagblöðunum The New York Times og Washington Post í dag kemur fram að enn sé verið að fara í gegnum gögn

Sumarið komið til Danmerkur

Loksins, loksins, segja Danir, og eiga þá við að loksins sé sumarið komið til landsins. Það hefur ekki komið svona seint síðan 1874. Dag eftir dag, allt frá því í maí, hafa Danir litið til himins og hrist höfuðið í forundran yfir tíðarfarinu.

Konungur gagnrýnir Palestínustjórn

Abdúlla, konungur Jórdaníu, hefur gagnrýnt heimastjórn Palestínumanna fyrir framgöngu hennar í friðarviðræðum við Ísraela. Konungurinn sagði að heimastjórnin þyrfti að marka sér skýrari stefnu, ef hún ætlaðist til þess að fá stuðning Arabaríkja.

Björguðu áhöfn af skemmtibáti

Breskir hermenn björguðu fjögurra manna áhöfn af sökkvandi skemmtibáti, sem var á leið frá Belfast á Írlandi til Íslands. Þegar báturinn var um 320 kílómetra norðvestur af Skotlandi fékk hann á sig brotsjó og laskaðist það mikið að leki kom að honum.

Sex manns handteknir vegna bruna

Sex manns hafa verið handteknir vegna brunans í stórmarkaði í Paragvæ, sem kostaði 360 manns lífið um helgina. Þegar eldurinn kviknaði var dyrum markaðarins lokað svo að viðskiptavinirnir kæmust ekki út án þess að borga. Meðal hinna handteknu er eigandi stórmarkaðarins.

Frakkar senda herlið til Súdan

Þjóðir heims virðast smám saman vera að byrja að bregðast við neyðarástandinu í Darfur héraði, í Súdan. Frakkar eru að senda bæði hermenn og hjálpargögn til Darfur héraðs, til þess að vernda íbúana fyrir árásum arabískra vígasveita, en Súdan er fyrrverandi frönsk nýlenda.

Senda ekki herlið til Írak

Pakistanar munu ekki senda herlið til Íraks tilkynnti upplýsingaráðherra Sheikh Rashid Ahmed í gær aðeins nokkrum klukkutímum eftir að forsætisráðherra landsins sagði slíka ákvörðun ráðast af vilja fólksins. Ahmed sagði á fréttamannafundi að Pakistan gæti ekki verið að senda herlið þegar önnur lönd væru að draga herlið sín frá landinu.

Framtíð milljóna í húfi

Ríkisstjórn Súdan heitir að taka ástandið í Darfur héraði föstum tökum. Á næstu vikum ræðst hvort hún geri alvöru úr loforðum sínum og ennfremur hvort Sameinuðu þjóðirnar fylgi málinu eftir af staðfestu. </font /></b />

Svartfellingar hýsa ekki Fischer

Svartfellingar munu ekki skjóta skjólshúsi yfir skákmeistaranum Bobby Fischer vegna andstöðu Bandaríkjamanna að sögn forseta Svartfjallalands.

Íþróttadeild stofnuð í Vatíkaninu

Ákveðið hefur verið að stofna íþróttadeild í Vatíkaninu til þess að höfða til þeirra milljóna sem fylgjast með Ólympíuleikunum í Aþenu síðar í mánuðinum.

Berserkur myrðir í Osló

Norska lögreglan leitar manns sem gekk berskerksgang í sporvagni í gær og varð farþega að bana með hníf í gær og særði fimm aðra, tvo alvarlega, eftir því sem greint er frá á heimasíðu Verdens gang.

Friðardúfur til Aþenu

Fimm friðardúfum, sem bera boðskap fimm trúarleiðtoga, var sleppt í Róm í dag. Þeim er ætlað að fljúga á Ólympíuleikana í Aþenu. Boðskapurinn sem dúfurnar flytja er frá Jóhannesi Páli páfa og æðstu trúarleiðtogum gyðinga og múslima.

Geimganga Padalka og Fincke

Bandarískur og rússneskur geimfari, fóru í dag í geimgöngu frá Alþjóðlegu geimstöðinni. Þeir bjuggu sig meðal annars undir að taka á móti nýrri tegund af birgðaflaugum, sem verið er að hanna í Evrópu.

Halda upp á hertöku Gíbraltar

Bretar halda uppá það í dag að 300 ár eru liðin frá því að þeir hertóku Gíbraltarklettinn. Spánverjum er ekki skemmt, en Bretar segja að þetta komi þeim ekki við. Hátíðin er haldin til þess að minnast þess að breski flotinn hertók Gíbraltar árið 1704.

Þrír biðu bana á Gaza

Þrír Palestínumenn biðu bana í dag, þegar sprengja sem þeir hugðust granda ísraelskri jarðýtu með, sprakk í höndunum á þeim. Sprengingin varð í Rafha flóttamannabúðunum, á Gaza svæðinu, og dæmigerðar fyrir það sem gerist á nær hverjum degi, einhversstaðar á sjálfstjórnarsvæðum palestínumanna.

Byggðist á gömlum gögnum

Yfirvöld í Bandaríkjunum gáfu út öryggisviðvörun vegna hryðjuverkahættu sem byggðust á þriggja ára gömlum upplýsingum. Samkvæmt tilkynningu frá heimavarnarráðuneytinu var talið að hryðjuverkamenn hyggðu á árás á fjármálastofnanir í New York og Washington.

Kerry með leyniáætlun

John Kerry, frambjóðandi Demókrataflokksins til forsetaembættisins í Bandaríkjunum, gefur í skyn að hann muni ná samkomulagi um lyktir Íraksstríðsins nái hann kjöri sem forseti. Hann neitar hins vegar að gefa upp hvað hann hafi fyrir sér í þessum efnum.

Fordæma árásir á kirkjur

Leiðtogar múslima í mörgum löndum hafa fordæmt sprengjuárásir sem gerðar voru á sex kristnar kirkjur, í Írak, í gær. Árásirnar voru allar gerðar á sama tíma, í mismunandi borgum. Að minnsta kosti fimmtán manns létu lífið, og tugir særðust.

Eldsvoði í verslunarmiðstöð

Að minnstakosti 283 fórust í miklum eldsvoða, í stórri verslunarmiðstöð, í Suður-Ameríkuríkinu Paragvæ, í gær. Yfir eitthundrað manns hlutu mismunandi alvarleg brunasár. Eldurinn kviknaði í gassprengingu, sem varð í matvörudeild verslunarmiðstöðvarinnar. Meðal þeirra sem fórust voru fjölmörg börn, og lögreglan segir að heilu fjölskyldurnar hafi þurrkast út.

Ráðlagt að sækja um hæli í Japan

Lögfræðingur skáksnillingsins Bobbys Fischer, hefur ráðlagt honum að sækja um pólitískt hæli, í Japan, meðan beðið er úrskurðar dómstóla um hvort hann verður framseldur til Bandaríkjanna. Þar á Fischer yfir höfði sér tíu ára fangelsi fyrir að brjóta viðskiptabann á fyrrverandi Júgóslavíu, með því að tefla þar skákeinvígi, við Boris Spassky, árið 1992.

Morðið sett á Netið

Morð á tyrkneskum gísl mannræningja í Írak, var sett á internetið, í dag. Tyrkinn var með bundið fyrir augun. Hann var látinn liggja á hnjánum, og skotinn þrem skotum í hnakkann. Mörgum tyrkjum hefur verið rænt, í Írak, undanfarnar vikur, og að minnsta kosti tveir hafa verið myrtir, til viðbótar við þann sem sýndur var í dag.

Lokaðir inni í brennandi verslun

Eigandi brennandi stórmarkaðar, í Paragvæ, skipaði öryggisvörðum að loka öllum dyrum, til þess að viðskiptavinir kæmust ekki út án þess að borga. Um 300 manns fórust. Stórmarkaðurinn er einn af hinum stærstu sinnar tegundar, sem er höfuðborg Suður-Ameríkuríkisins Paragvæ.

Kóka kóla verðmætasta vörumerkið

Aðeins tvö norræn fyrirtæki eru á lista yfir hundrað verðmætustu vörumerki heims. Þetta eru Nokia og IKEA. Tímaritið Business Week birti listann, en á honum trónir Coca Cola í efsta sæti. Nokia er í áttunda sæti, fellur úr sjötta sæti í fyrra. IKEA er í fertugasta sæti, hækkar sig úr fertugasta og þriðja sæti í fyrra.

Þurfa nýjan þjóðsöng

Serbía og Montenegro, einu ríki fyrrum Júgóslavíu sem enn eru í ríkjasambandi, reka nú á eftir því að samþykkt verði nýr þjóðsöngur ríkjanna til að forðast hróp og niðurköll á Ólympíuleikunum, en það þykir mjög líklegt ef spilaður verði gamli þjóðsöngur Júgóslavíu.

Alþjóðlegt heimskautaár 2007

Alþjóðlegt heimskautaár hefst árið 2007. Þá munu vísindamenn hefja nýjar boranir í Grænlandsjökli í þeim tilgangi að öðlast meiri þekkingu um fortíðina. Þetta kemur fram í frétt frá NRK í Noregi.

Viðbúnaður Bandaríkjanna aukinn

Óupplýst handtaka á 25 ára tölvunarfræðingi þann 13. júlí leiddi til þess að viðbúnaðarstig bandarískra stjórnvalda var hækkað á sunnudag.

Mikil flóð í Pennsylvaníu

Úrhellis rigningar og flóð ollu miklum usla í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum í gær. Flóðin voru slík að hús fóru á bólakaf og bílar sópuðust eftir götum. Þetta olli miklum samgöngutruflunum, bæði á landi og í lofti.

Gríðarlegar öryggisráðstafanir

Gríðarlegar öryggisráðstafanir hafa verið gerðar við fjármálastofnanir í New York, vegna yfirvofandi árásar hryðjuverkamanna. Þegar fjármálastofnanir í New York opnuðu fyrir viðskipti, í morgun, voru þær umkringdar vegatálmum, öryggishliðum og lögregluþjónum með hríðskotariffla og sprengjuleitarhunda.

Sprenging í miðbæ Prag

Sprenging varð í Prag í dag, í miðju verslunarhverfi í sögufrægum hluta miðbæjarins. Talið er að bíll hafi sprungið og að minnsta kosti 16 séu særðir.en ekki vitað nánar um tildrög sprengingarinnar.

Sex látnir í Uzbekistan

Sex eru nú látnir eftir sprengjuárásir á sendiráð Bandaríkjanna og Ísraels og skrifstofur ríkissaksóknara í borginni Tashkent í Uzbekistan á föstudaginn. Talið er að múslimskir öfgamenn standi að baki verknaðinum.

Sextíu ár frá uppreisn í Varsjá

Sextíu ár eru liðin frá því að íbúar Varsjár í Póllandi risu upp gegn ógnarstjórn nasista í Seinni Heimsstyrjöld. 200 þúsund Pólverjar létust í uppreisninni og höfuðborgin var lögð í rúst í átökunum.

Sjö gíslar lausir úr haldi

Sjö gíslar sem hafa verið í haldi mannræningja í Írak í tvær vikur, hefur verið sleppt að sögn utanríkisráðherra Kenya. Talmenn indversku stjórnarinnar segjast þó ekki hafa fengið neina staðfestingu um að gíslarnir hafi verið látnir lausir.

Gíslarnir enn í haldi

Þeir sjö gíslar sem ríkisstjórn Kenýa sagði að hefðu verið sleppt í dag, eru enn í haldi mannræningja í Írak að sögn atvinnuveitenda mannanna en þeir voru bílstjórar fyrir kúweiskt fyrirtæki í Írak.

12 látast í kirkjusprengingum

Talið er að að minnsta kosti 12 hafi látist í nokkrum sprengingum nálægt kirkjum í Bagdad og borginni Mosul í dag að sögn lögreglu í Írak. Fyrstu tvær sprengingarnar urðu nálægt kirkjum í fjölmennu verslunarhverfi í Bagdad.

20 manns létust í Írak í dag

Hátt í 20 manns létust í sex sprengjuárásum í Bagdad og Mósúl í Írak í dag. Flestar þeirra voru sjálfsmorðsárásir fyrir utan kristnar kirkjur. Í það minnsta tólf létust í einni sprengjunni en uppreisnarmaður lagði bíl sínum fullum af sprengiefni fyrir utan armenska kirkju í miðborg Bagdads í þann mund sem guðþjónusta var að hefjast.

Viðbúnaður í New York

Mikill viðbúnaður er í New York, New Jersey og Washington en stjórnvöld í Bandaríkjunum segjast hafa öruggar heimildir fyrir því að hryðjuverkasamtökin al-Qaeda hyggist gera árás á fjármálastofnanir í borgunum.

Sjá næstu 50 fréttir