Fleiri fréttir

Gagnrýndi repúblikana harkalega

"Demókratar vilja byggja Bandaríkin á sameiginlegri ábyrgð og sameiginlegum tækifærum. Repúblikanar trúa því að rétta fólkið eigi að stjórna Bandaríkjunum, þeirra fólk," sagði Bill Clinton, fyrrum forseti Bandaríkjanna, þegar hann ávarpaði flokksþing demókrata í Boston.

Hjónaband samkynhneigðra ógilt

Franskur dómstóll ógilti í gær fyrsta hjónaband samkynhneigðra þar í landi. Athöfnin leiddi til þess að ríkisstjórn Frakklands gerði tilraun til þess að losa sig við hinn vinsæla borgarstjóra Bordeaux sem bar ábyrgð á henni.

Samkynhneigt hjónaband ógilt

Fyrsta hjónaband samkynhneigðra einstaklinga í Frakklandi var ógilt í borginni Bordeaux í morgun. Stjórnvöld höfðu þá þegar lýst því yfir að gifting Stephanes Chapins og Bertrands Charpentiers væri ógild og ráku í kjölfarið borgarstjóra í úthverfi Bordeaux-borgar sem gaf mennina saman.

Arafat og Qureia sættast

Yasser Arafat, forseti Palestínu, og Ahmed Qureia, forsætisráðherra landsins, sættust í morgun á fundi í borginni Ramallah á Vesturbakkanum. Þar með lýkur tveggja vikna stjórnarkreppu í Palestínu.

Fékk skilnað frá föður sínum

Fjórtán ára gamall drengur fékk löglegan skilnað frá föður sínum í Massachusetts í Bandaríkjunum í gær. Þetta er fyrsta mál sinnar tegundar í Bandaríkjunum.

Þróa enn kjarnorkubúnað

Íranir hafa haldið áfram byggingu búnaðar sem hægt er að nota til þess að búa til kjarnavopn. Með því hafa þeir rofið samkomulag sem gert var við stórþjóðir Evrópu.

Popptónleikar eða flokksþing?

Flokksþing Demókrataflokksins í Bandaríkjunum hófst í Boston í gær. Ingólfur Bjarni Sigfússon, fréttamaður Stöðvar 2 og Bylgjunnar sem staddur er á þinginu, segir gríðarlegan mun vera á þessu flokksþingi og íslensku. Þetta sé meira líkt því að vera á popptónleikum eða „Hallelúja-samkomu“.

50 ár síðan K-2 var fyrst klifið

Fimmtíu ár eru liðin síðan næsthæsta fjall heims, K-2, var klifið í fyrsta skipti. Þrátt fyrir að fjallið sé ekki alveg jafnhátt og hæsta fjallið Mount Everest er talið um þrisvar sinnum erfiðara að klífa K-2.

Frumvarp um kynjakvóta á Indlandi

Hópur kvenna safnaðist saman fyrir utan þinghúsið í Nýju-Delí á Indlandi í dag til að hvetja þingmenn til að samþykkja frumvarp um kynjakvóta. Samtök sem berjast fyrir auknum rétti kvenna stóðu að mótmælunum. Framfarabandalagið situr nú í ríkisstjórn Indlands. Nái frumvarpið samþykki þarf þriðjungur þingmanna í fylkjaþingunum að vera konur. </span />

Sjálfsmorð hermanna aukast um 40%

Hundrað og níu rússneskir hermenn hafa framið sjálfsvíg það sem af er árinu að sögn yfirmanns hersins. Það er tæplega fjörutíu prósenta aukning miðað við sama tíma í fyrra.

Qureia situr áfram

Forsætisráðherra Palestínu, Ahmed Qureia, dró til baka uppsögn sína eftir fund með leiðtoganum Jasser Arafat í Ramallah í gær. Þannig lauk tíu daga átökum milli mannanna tveggja sem valdið hafa miklum sviptingum í palestínskum stjórnmálum.

Samkomulag ríkra og fátækra fjarri

Yfirmaður Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar, WTO, í Genf segir enn langt í land áður en hægt verður að tryggja nýtt samkomulag á milli vel stæðra ríkja og hinna fátækari um alþjóðaviðskipti.

Ólögleg áfengissala í Svíþjóð

Lögreglan í Svíþjóð telur að nær annar hver matvörukaupmaður í Malmö stundi ólöglega sölu á áfengi. Smygl á áfengi hefur aukist um helming síðastliðin fjögur ár og það verður sífellt algengara að verslað sé með áfengi sem keypt er í öðrum ESB-ríkjum en Svíþjóð, að því er fram kemur á norræna fréttavefnum.

Pútín sakaður um hefndaraðgerðir

Vladimir Pútín, forseti Rússlands, er sakaður um að reyna að eyðileggja fjármálaveldi Mikhails Kodorkhovskys, auðkýfings og aðaleiganda rússneska olíurisans Yukos, en Kodorkhovsky hefur verið í fangelsi að undanförnu vegna gruns um fjársvik og skattsvik.

Sleppt úr Guantanamo

Fjórir Frakkar sem verið hafa meira en tvö ár í haldi Bandaríkjamanna í Guantanamoflóa á Kúbu komu heim í gær. Viðræður um hvort þrír fangar í viðbót fáist framseldir standa yfir milli franskra og bandarískra stjórnvalda að sögn Jacques Chirac Frakklandsforseta.

Portúgalar biðja um aðstoð

Yfir þúsund slökkviliðsmenn berjast nú við eldana í Portúgal. Það eru héruðin í kringum Algarve og Faró sem hafa orðið verst úti en eldar hafa komið upp í fjórtan af átján héruðum landsins síðustu daga. Mjög heitt er um þessar mundir í Portúgal og hefur hitinn farið yfir 40 gráður.

Ættingjar gísls hótuðu drápum

Sex Írakar særðust er sprengja sprakk í borginni Fallujah í Írak í dag. Vígamenn eru grunaðir um verknaðinn. Hryðjuverkamenn hafa hótað árásum á veginum milli Jórdaníu og Íraks en mesta umferðin þar á milli er á vegum Bandaríkjahers. Talið er að þetta sé sami hópur og rændi jórdönsku bílstjórunum í gær.

Súdanar uggandi um refsiaðgerðir

Súdanska ríkisstjórnin fordæmdi hugmyndir um erlendar hersveitir í Darfur-héraði í gær. Bandaríkjamenn hafa endurskoðað uppkast að ályktun Sameinuðu þjóðanna um stöðu mála í héraðinu. Arabar eru áhyggjufullir.

Clinton fagnað gríðarlega

Bill Clinton, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, og Hillary Clinton, kona hans og þingmaður í New York ríki, töluðu á flokksþingi demókrata í gær. Ingólfur Bjarni Sigfússon fréttamaður sótti fundinn og að hans sögn ætlaði allt um koll að keyra þegar Clinton steig í pontu.

Háhyrningur tryllist

Gestum í skemmtigarðinum Sea World Adventure Park í borginni San Antonio brá heldur betur í brún þegar háhyrningur réðst á dýratemjara sinn í miðri sýningu. Háhyrningurinn reyndi í sífellu að berja manninn ofan í vatninu og reyndi svo að bíta hann. Dýratemjarinn komst upp úr lauginni og voru meiðsl hans ekki talin alvarleg.

Stjórnarkreppu í Palestínu lokið

Ahmed Qureia, forsætisráðherra Palestínu, dró afsögn sína til baka í dag. Þar með líkur tveggja vikna stjórnarkreppu í Palestínu. 

IRA-foringi borinn til grafar

Joe Cahill var borinn til grafar í gær. Það var hann sem stjórnaði írska lýðveldishernum í Belfast snemma á áttunda áratugnum þegar samtökin hófu mannskæðar árásir sínar á Norður-Írlandi.

Aldrei fleiri fangar

Föngum og öðrum þeim sem falla undir refsikerfi Bandaríkjanna heldur áfram að fjölga og nálgast nú að vera sjö milljónir manna. Umfang fangelsiskerfisins hefur aukist stórkostlega og hefur verið áætlað að fjögur prósent af vinnuafli Bandaríkjanna tengist löggæslu- og réttarkerfi landsins.

15 laumufarþegar í Finnlandi

Fimmtán laumufarþegar frá Asíu fundust um borð í flutningaskipi sem lagðist að bryggju í finnsku borginni Hamína í morgun en skipið var að koma frá Antwerpen. Ellefu þeirra eru frá Víetnam og fjórir frá Indlandi. 

Lífi gíslanna þyrmt

Hópur íslamskra skæruliða í Írak sem heldur sjö erlendum borgurum í gíslingu hefur framlengt frest sem þeir höfðu gefið samningamönnum. Lífi gíslanna verður því þyrmt um sinn en hópurinn ítrekar kröfur sínar um að kúveiskt fyrirtæki, sem starfsmennirnir vinna fyrir, dragi sitt fólk frá Írak.

Kerry í hafnabolta

John Kerry, forsetaframbjóðandi demókrata í Bandaríkjunu, kastaði fyrsta boltanum í hafnaboltaleik Boston Red Sox og New York Yankess sem fram fór í Boston í gær. Kerry er í Boston vegna flokksþings demókrata sem hefst í dag. Sá sem tók við boltanum var hermaður sem hefur tekið þátt í stríðinu í Afganistan.

Kínverskur flugræningi yfirbugaður

Kínverji sem gerði tilraun til að ræna Boeing 737 farþegaflugvél með 108 farþegum um borð, nokkru eftir flugtak frá Peking í morgun, var yfirbugaður á flugvelli í borginni Zhengzhou eftir að flugstjórinn lenti þar í skyndingu.

Hryðjuverkabæklingur í Bretlandi

Upplýsingabæklingur um hvernig bregðast skuli við, verði hryðjuverkaárás gerð á Bretlandi, verður sendur inn á hvert heimili þar í landi á næstunni. Bæklingurinn inniheldur upplýsingar um fyrstu hjálp og í honum má finna leiðbeiningar um undirbúning, svo sem að gott sé að birgja sig upp af dósamat.

Sprengingar í Indónesíu

Sprengjur heyrðust springa í morgun við kosningamiðstöð í Jakarta, höfuðborg Indónesíu, rétt áður en tilkynna átti úrslit forsetakosninga sem hafa farið fram í landinu. Vitni segist hafa séð fólk hlaupa út úr byggingunni.

77 ára kona kveikir í syni sínum

77 ára gömul norsk kona frá bænum Refsnesi var úrskurðuð í gæsluvarðhald í gær, grunuð um að hafa kveikt í í fimmtugum syni sínum. Mæðginin höfðu setið að sumbli á heimili þeirra þegar eitthvað slettist upp á vinskapinn. Lögreglan telur að þegar þar var komið sögu hafi konan skvett rótsterkum spíra á drenginn sinn og kveikt svo í.

Einmana Danir

Óvenju margir Danir þjást af einmanaleika nú yfir sumarleyfistímann ef marka má aukið álag á neyðarlínur þar sem fólki í vanda er svarað. Fólkið kvartar yfir sumarlokunum verslana og þjónustufyrirtækja og að vinir og kunningjar séu úti um hvippinn og hvappinn þannig að ekki náist samband við þá.

Bann á asísku fuglakjöti framlengt

Evrópusambandið framlengdi í dag bann við innflutningi á kjúklingakjöti og lifandi fuglum frá níu Asíuríkjum af ótta við að ekki hafi náðst að útrýma fuglaflensu í löndunum. Bannið átti að falla úr gildi þann 15. ágúst nk. en það hefur verið framlengt til 15. desember.

Morðingi faldist í runnum í viku

Lögreglan í Bretlandi handsamaði í gær mann sem grunaður er um fjögur morð en hann hafði þá verið á flótta undan lögreglu í eina viku. Maðurinn, Mark Hobson að nafni, er 34 ára gamall og hafðist við í runnum á bak við verslunarmiðstöð í Jórvíkurskíri þessa sjö daga sem hans var leitað.

Háttsettur Íraki myrtur

Þrír létust í sjálfsmorðsárásum í borginni Mósúl í Írak í morgun og háttsettur embættismaður var myrtur á heimili sínu í Bagdad. Árásum í Írak fer fjölgandi.

Forsætisráðherra Tékka tilnefndur

Forseti Tékklands, Vaclav Klaus hefur tilnefnt leiðtoga Sósíaldemókrataflokksins til að leiða næstu ríkisstjórn landsins. Fyrrverandi forsætisráðherra landsins, Vladimir Spidla, sagði af sér eftir að flokkur hans tapaði í Evrópuþingskosningum í síðasta mánuði.

Hver er John Kerry?

Hver er John Kerry? Það er spurningin sem hann verður helst að svara á flokksþingi demókrata sem hefst í dag í Boston.

Þúsund látnir af völdum flóða

Nær þúsund manns hafa látið lífið í miklum flóðum í Suður-Asíu síðasta mánuðinn. Um tveir þriðju hlutar Bangladess eru undir vatni og eru flóðin þar þau verstu í tæpan áratug.

66 ára maður gekk berkserksgang

Að minnsta kosti fjórir menn særðust þegar 66 ára gamall maður gekk berserksgang og skaut úr riffli á nágranna sína í Munchen í Þýskalandi í dag. Byssumaðurinn skaut síðan sjálfan sig í höfuðið. Hann var fluttur á sjúkrahús ásamt fórnarlömbum sínum en hann hringdi á dyrabjöllum nágranna sinna og skaut þá í maga og hnakka.

Danir drepa í

Stöðugt fleiri Danir drepa í sígarettunum fyrir fullt og allt samkvæmt nýrri skoðanakönnun Gallups. Flestir þeirra sem hætta að reykja eru á aldrinum 25-34 ára en þrátt fyrir það eru reykingamenn enn fjölmennastir í þessum aldurshópi.

Átök í kjölfar mótmælakeðju

Sex Palestínumenn voru drepnir í átökum við ísraelskar hersveitir á Vesturbakkanum í gær. Þá sendu ísraelskar þyrlur flugskeyti á byggingar í Gazaborg í kjölfar árásar vígamanna á félagsmiðstöð landtökumanna þar sem sex börn særðust.

Gripið verði til refsiaðgerða

Evrópusambandið vill að Sameinuðu þjóðirnar grípi til refsiaðgerða gegn Súdönum bindi þeir ekki þegar í stað enda á átökin í Darfur-héraði. Bandaríkjamenn hafa þegar lýst sig sömu skoðunar og telja átökin í Súdan jafngilda þjóðarmorði.

Sprenging á McDonald´s í Mexíkó

Sprenging skók McDonald´s-skyndibitastað í Mexíkóborg í morgun. Yfirvöld hafa ekki enn viljað greina frá hvað olli sprengingunni eða hvort einhverjir hafi slasast. Að sögn embættismanns á borgarskrifstofum Mexíkóborgar er veitingastaðurinn í verslunarmiðstöðinni Lindavista Plaza í norðurhluta borgarinnar.

Höfrungar og selir í Thames

Höfrungar og selir eru meðal þeirra dýrategunda sem hafa endurnýjað heimkynni sín í Thames-ánni í London. Á viktoríutímabilinu, fyrir um tvö hundruð árum, varð Thames svo menguð að nær öllu dýralífi í ánni var eytt.

Hryðjuverkabæklingur í Bretlandi

Breska ríkisstjórnin hefur varið meira en milljarði íslenskra króna í því skyni að uppfræða almenning um hvernig bregðast eigi við ef hryðjuverkaárás ætti sér stað.

Sjá næstu 50 fréttir