Fleiri fréttir

Miðlunartillagan stenst að mati forsætisráðherra
Forsætisráðherra metur það svo að miðlunartillaga ríkissáttasemjara í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins standist. Hún segist bera fullt traust til ríkissáttasemjara, þrátt fyrir að hann hafi verið harðlega gagnrýndur fyrir að vilja leggja miðlunartillögu sína í atkvæðagreiðslu.

Guðni A. Jóhannesson er látinn
Dr. Guðni A. Jóhannesson, fyrrverandi orkumálastjóri, lést á Landskotsspítala í gær, 71 árs að aldri. Banamein hans var krabbamein. Hann gegndi embætti orkumálastjóra á árunum 2008 til 2021.

Rafmagn fór líklega af í Eyjum vegna bilunar í tengimúffu
Vestmannaeyjastrengur 3 bilaði í gærkvöldi með þeim afleiðingum að rafmagnslaust var í eyjunni í um klukkustund. Þegar ljóst varð að bilunin væri umfangsmeiri en áætlað var var ákveðið að setja Vestmannaeyjastreng 1 í rekstur.

Þurftu að losa fjölda fastra bíla
Hátt í tvö hundruð björgunarsveitarmenn tóku þátt í tugum verkefna vegna óveðursins í gær. Flest útköllin snérust um fasta bíla sem voru inni á lokunarsvæðum.

Hádegisfréttir Bylgjunnar
Í hádegisfréttum verður kjaradeila Eflingar og Samtaka atvinnulífsins áfram til umfjöllunar.

Boða fleiri verkföll á hótelum, í vörubílaakstri og olíudreifingu
Samninganefnd Eflingar hefur boðað til fleiri verkfalla, sem taka til hótelkeðjanna Berjaya Hotels, hótelsins The Reykjavík Edition, til þeirra sem starfa við vörubílaakstur og olíudreifingu. Atkvæðagreiðsla meðal félagsfólks sem boðanirnar taka til verða auglýstar á vef Eflingar fyrir hádegi í dag. Aftur er um að ræða ótímabundna vinnustöðvun sem mun hefjast klukkan tólf á hádegi 15. febrúar.

Skora á íslensk stjórnvöld að banna strax einangrun á börnum
Íslensk stjórnvöld fremja mannréttindabrot með óhóflegri beitingu einangrunarvistar í gæsluvarðhaldi, samkvæmt svartri skýrslu Amnesty International. Framkvæmdastjóri samtakanna á Íslandi segir ítrekuð einangrunarvist barna sérstaklega sláandi og skorar á stjórnvöld að banna hana tafarlaust.

Lyfjaeftirliti teflt fram gegn veðmálasvindli
Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, hefur falið Lyfjaeftirliti Íslands að sinna fræðslu og forvarnarstarfi í baráttunni gegn hagræðingu úrslita í íþróttum.

Leitar að hjólastólavænum bíl fyrir brottvísanir
Ríkislögreglustjóri bindur vonir við að embættið geti fest kaup á eða leigt bifreið, sem hentar fólki sem notast við hjólastól, á fyrri hluta þessa árs. Slíka bifreið sé nauðsynlegt fyrir embættið að hafa þurfi það að flytja einstaklinga í hjólastól.

SA stefna Eflingu fyrir Félagsdóm
Samtök atvinnulífsins ætla að höfða mál fyrir Félagsdómi gegn Eflingu eftir að úrslit atkvæðagreiðslunnar á Íslandshótelum urðu ljós í gærkvöldi.

Ísland stendur í stað á spillingarlista
Transparency International hefur birt nýjan árlegan lista sinn um spillingu í ríkjum heims. Ísland stendur þar nokkurn veginn í stað á milli ára, skipar 14.-17 sæti listans, en skipaði 13. til 18. sætið á listanum á síðasta ári.

Viðvaranir áfram í gildi fram eftir morgni
Appelsínugul viðvörun er enn í gildi á Suðurlandi og verður fram til klukkan 10 samkvæmt vef Veðurstofunnar.

Íslensk stjórnvöld gerist sek um mannréttindabrot með beitingu einangrunarvistar
Ný skýrsla Amnesty International segir íslensk stjórnvöld beita einangrunarvist í gæsluvarðhaldi í of miklum mæli. Framgangur þessi brjóti meðal annars gegn samningi Sameinuðu þjóðanna hvað varðar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu meðal annars.

Meira en tíu bílar fastir í Grafarvogi vegna færðar og útköll um allt land
Upplýsingafulltrúar Landsbjargar og almannavarna segja daginn hafa gengið vel fyrir sig. Mest sé um lítil verkefni og greinilegt að fólk hafi hlustað á veðurviðvaranir.

Hafa samþykkt verkfallsboðun
Starfsmenn Íslandshótela hafa samþykkt boðun um verkfallsaðgerðir. Rafræn atkvæðagreiðsla sem hófst á hádegi síðastliðinn þriðjudag lauk nú fyrir stuttu. Verkfall hefst í næstu viku, hafi samningar ekki náðst.

Mega ekki skíra barnið sitt Kisu
Xavier, Æja, Klaría og Hyrrokkin eru á meðal þeirra eiginnafna sem samþykkt voru á fundi mannanafnanefndar fyrr í mánuðinum.

Stígamót alfarið á móti því að afnema klámbann
Stígamót taka undir það að kominn sé tími til að endurskoða löggjöfina um klám enda nær hún illa utan um þann stafræna veruleika sem við búum við í dag. Samtökin eru hinsvegar alfarið á móti því að bann við klámi verði afnumið. Heldur þurfi að horfast í augu við það að klám er í raun stór ógn við lýðheilsu og jafnrétti og grípa til viðeigandi aðgerða.

Hafa áhyggjur af strandaglópum
Veðrið er farið að versna og eru appelsínugular og gular viðvaranir í gildi víða. Búið er að loka nokkrum vegum á Suður- og Suðausturlandi vegna veðurs. Almannavarnir hafa mestar áhyggjur af því að fólk verði strand og komist ekki leiðar sinnar.

Kvöldfréttir Stöðvar 2
Efling krefst þess að miðlunartillaga ríkissáttasemjara verði felld úr gildi og hefur lagt fram stjórnsýslukæru vegna tillögunnar til félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins.

Rafmagnsleysið í Vestmannaeyjum líklega vegna veðurs
Rafmagnslaust varð í Vestmannaeyjum, Landeyjum og Vík eftir að Rimakotslína 1 leysti út skömmu eftir klukkan fjögur í dag. Samkvæmt upplýsingum frá Landsneti er svæðið nú keyrt með varaafli og ættu því flestir að vera komnir aftur með rafmagn. Bilunin er líklega vegna veðurs.

Kristrún farin í fæðingarorlof
Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar er farin í fæðingarorlof og hefur kallað inn varaþingmann á Alþingi.

Veginum um Hellisheiði lokað
Veginum um Hellisheiði hefur nú verið lokað. Hvalfjarðargöngum var lokað í stutta stund en hafa þau nú verið opnuð aftur.

Vindmylluveri í Klausturselsheiði mótmælt
Landvernd hefur komið á fót undirskriftasöfnun þar sem skorað er á norska orkufyrirtækið Zephyr AS að falla frá áformum um að reisa risavaxið vindorkuver í landi Klaustursels á Fljótsdalsheiði.

Verkfræðinemar við HR fengu Nýsköpunarverðlaun forsetans
Axel Pálsson, Tómas Frostason og Tómas Orri Pétursson hlutu Nýsköpunarverðlaun Forseta Íslands við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag. Verðlaunin hlutu þeir fyrir verkefnið „Vélræn endurhæfing í heimahúsi með sýndarveruleika“.

Loka vegköflum undir Eyjafjöllum, við Reynisfjall og á Lyngdalsheiði
Veginum undir Eyjafjöllum sem liggur frá Markarfljóti til Víkur í Mýrdal hefur verið lokað. Þá hefur veginum við Reynisfjall verið lokað, sem og Lyngdalsheiði.

Hafa skilað inn stjórnsýslukæru vegna ríkissáttasemjara
Stéttarfélagið Efling hefur skilað stjórnsýslukæru til ráðuneytis vinnumarkaðsmála vegna framferðis ríkissáttasemjara í kjaradeilu stéttarfélagsins og Samtaka atvinnulífsins. Formaður Eflingar segir það ekki koma á óvart að hafa ekki fengið fund með ráðherra í morgun.

Eldur í raðhúsi í Kópavogi
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út eftir að eldur kom upp í raðhúsi við Hrauntungu í Kópavogi í dag.

Efling þarf að skila greinargerð á föstudaginn
Héraðsdómur Reykjavíkur ákvað í morgun að Efling fengi til föstudags til að skila greinargerð í deilu félagsins við ríkissáttasemjara um hvort félaginu sé skylt að afhenda félagatal sitt vegna miðlunartillögu sáttasemjara. Fyrirtaka í málinu fór fram í héraðsdómi eftir hádegið.

Karókí bridgespilara fyrir bí eftir að ælt var á græjurnar
Hópur af bridgespilurum neyddist til að hætta við karókí eftir að ælt var á karókíræjurnar á Bankastræti Club. Hópurinn sem samanstóð af spilurum sem höfðu verið að keppa á Reykjavík Bridge Festival þurfti því að sætta sig við að spjalla saman en ekki syngja saman.

Sektaður á leiðinni til mömmu á 37 kílómetra hraða
Ólafur Páll Gunnarsson útvarpsmaður á Rás 2 er hugsi eftir að hafa í annað sinn á einu ári verið sektaður fyrir að aka á 37 kílómetra hraða í heimabæ sínum Akranesi. Skiptar skoðanir er á því hvernig bregðast eigi við kappakstri á Seltjarnarnesinu á föstudagskvöld.

Samhæfingarstöð almannavarna virkjuð og öllu innanlandsflugi aflýst
Samhæfingastöð Almannavarna var virkjuð á hádegi vegna lægðarinnar sem gengur yfir í dag en óvissustig almannavarna er í gildi vegna veðurs. Gular og appelsínugular verða í gildi á nánast öllu landinu fram á nótt. Búist er við að vegum verði lokað og breytingar hafa verið gerðar á flugáætlun. Veðurfræðingur Vegagerðarinnar segir stutt í næstu lægð. Íþróttaæfingar hafa víða verið blásnar af.

Takast á um félagatalið í dómsal í dag
Krafa ríkissáttasemjara um að Efling afhendi félagatala sitt, svo hægt sé að greiða atkvæði um miðlunartillögu, verður tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur nú eftir hádegi. Óvíst er hvenær niðurstaða liggur fyrir en óskað hefur verið eftir flýtimeðferð.

Telur bæjaryfirvöld vilja fórna Ástjörn fyrir Haukahúsið
Davíð Arnar Stefánsson, oddviti Vinstri grænna í Hafnarfirði, segir þyngra en tárum taki að bæjaryfirvöld telji sig þess umkomna að vera ósammála mati fagstofnunar um náttúruvernd.

Hádegisfréttir Bylgjunnar
Í hádegisfréttum verður veðrið í forgrunni en enn ein lægðin nálgast nú óðfluga og hefur óvissustig almannavarna verið virkjað víða um land. Óttast er að röskun verði á samgöngum og flugfélögin höfðu vaðið fyrir neðan sig og flýttu ferðum í morgun.

Harma að sjálfboðaliðar séu dregnir fyrir dóm
Forsvarsmenn Knattspyrnufélags Akureyrar harma að ákæruvaldið hafi ákveðið að ákæra sjálfboðaliða sem fengnir voru til að sinna miðasölu og umsjón með risastórum hoppukastala á Akureyri sumarið 2021. Sér í lagi þar sem eigandi hoppukastalans hafi ítrekað lýst ábyrgð sinni í fjölmiðlum. Forseti bæjarstjórnar er annar sjálfboðaliðanna sem sætir ákæru. Meirihlutinn á Akureyri lýsir yfir fullu trausti við störf hans.

Ætlar ekki að beita sér gegn miðlunartillögunni
Vinnumarkaðsráðherra segist ekki ætla að beita sér fyrir því að ríkissáttasemjari dragi miðlunartillögu sína til baka. Hann segist bera fullt traust til ríkissáttasemjara og segist ætla að funda með Eflingu þegar hann kemur heim frá Kaupmannahöfn.

Börn staðin að þjófnaði
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust tvær tilkynningar í gær þar sem börn reyndust hafa gerst sek um lögbrot. Í báðum tilvikum var um að ræða þjófnað.

Nágrannaerjur verði einna verstar í tví- og þríbýli
Nágrannaerjur geta verið mjög fljótar að vinda upp á sig og verða oft einna verstar í tví- og þríbýli. Þetta segir lögfræðingur sem aðstoðað hefur nágranna við að ná sáttum í deilum sem oft enda í algjöran hnút.

Heimildin óumdeild og ekki háð samþykki deiluaðila
„Það er alveg ljóst að sáttasemjari hefur þessa heimild til að leggja fram miðlunartillögu og þarf ekkert samþykki deiluaðila til þess. Það er staðreyndin.“

Veðrið versni mjög eftir hádegi
Óvissustigi Almannavarna hefur verið lýst yfir vegna slæmrar veðurspár. Gular og appelsínugular viðvaranir taka gildi nánast á landinu öllu klukkan tólf á morgun. Veðurfræðingur segir að veðrið taki að versna mjög hratt eftir hádegi.

Kallar eftir fundi með lögreglu og vill hraðamyndavél á Norðurströnd
Bæjarstjórinn á Seltjarnarnesi mun óska eftir fundi með lögreglunni strax í fyrramálið vegna alvarlegs bílslyss sem varð í bænum á föstudag. Bæjarbúar vilja að gripið verði til aðgerða til að koma í veg fyrir hraðakstur, til dæmis með uppsetningu hraðamyndavélar.

Icelandair flýtir flugi vegna óveðursins
Icelandair hefur tekið ákvörðun um að flýta brottfarartíma nokkurra flugferða vegna slæmrar veðurspár á morgun. Mælt er með því að farþegar fylgist vel með.

„Þetta er óþekkjanlegt“
Mikið tjón varð hjá ábúendum á bænum Skollagróf í Hrunamannahreppi þegar gríðarlegt krapaflóð varð í Hvítá aðfaranótt föstudags. Bóndi segir svæðið óþekkjanlegt og man ekki eftir öðru eins flóði.

Heimurinn hrynji ekki þó tímalína raskist
Mennta- og barnamálaráðherra heldur fast í tímaáætlun þjóðarhallar og telur raunhæft að höllin muni rísa árið 2025. Kostnaður við uppbyggingu eru tæpir fimmtán milljarðar og skipting milli ríkis og borgar liggur ekki fyrir. Upphaflega sagðist Reykjavíkurborg eiga tvo milljarða til.

Vilja að Guðmundur Ingi beiti sér gegn miðlunartillögu ríkissáttasemjara
Formaður Eflingar krefst þess að vinnumarkaðsráðherra beiti sér gegn umdeildri miðlunartillögu ríkissáttasemjara. Ráðherra neyddist þó til að fresta fundi með formanninum sem halda átti í fyrramálið.